Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2010, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2010, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 14. apríl 2010 Íslenska bankakerfið hrundi. Sá ís- kaldi veruleiki blasir nú við í veskjum þorra landsmanna, sjóðum ríkis og sveitarfélaga og í fjárhag fyrirtækja. Lagt var fyrir rannsóknarnefnd Alþingis að grafast fyrir um orsakir hrunsins, leita sannleikans og rekja ábyrgð á hruninu til einhverra. Niðurstöður nefndarinnar liggja nú fyrir á meira en tvö þúsund blað- síðum. Rannsóknin beindist að stjórn- völdum, eftirlitsaðilum og bönkunum sjálfum, stjórnendum þeirra og eig- endum. Nefndin hefur sent sérstök- um saksóknara fjölmörg mál þar sem rannsókn hennar hafði vakið grun- semdir um lögbrot innan bankanna. Sum málanna voru þegar til rann- sóknar hjá sérstökum saksóknara. Tólf einstaklingar, ráðherrar og embættismenn, fengu á endanum bréf frá rannsóknarnefndinni þar sem krafist var svara um meint mistök eða vanrækslu í störfum. Einstaklingarnir tólf nutu enda andmælaréttar. „Í svarbréfum lýstu þessir einstaklingar því viðhorfi sínu að þeir hefðu ekki sýnt af sér nein mis- tök eða vanrækslu. Einnig var ítrekað í svarbréfunum vísað til þess að það hefði verið á ábyrgð annarra stofn- ana og ráðherra eða embættismanna að fara með viðkomandi verkefni og sinna eftirliti af hálfu ríkisins með því málefni sem til umræðu var hverju sinni,“ eins og segir í 21. kafla skýrsl- unnar. Að teknu tilliti til andmæla rötuðu aðeins sjö nöfn ráðherra og embætt- ismanna inn í lokagerð skýrslunn- ar. Þetta eru ráðherrarnir fyrrverandi Geir H. Haarde, Árni M. Mathiesen og Björgvin G. Sigurðsson. Ráðherraábyrgð Geir og Árni hafa dregið sig í hlé frá stjórnmálum en Björgvin situr enn á þingi. Hann er talinn hafa sýnt van- rækslu í starfi viðskiptaráðherra fyrir bankahrun. Björgvin hvetur til þess að landsdómur verið kallaður saman og látið verði reyna á sekt eða sakleysi hans í nafni laga um ráðherraábyrgð. Þeim hefur aldrei verið beitt frá setn- ingu þeirra árið 1963. Það er háð vilja Alþingis hvort lögunum verði nú beitt og er það í saksóknarahlutverki að þessu leyti. Í lögum um ráðherraábyrgð segir meðal annars að ráðherra verði sekur „… ef hann framkvæmir nokkuð eða veldur því, að framkvæmt sé nokkuð, er stofnar heill ríkisins í fyrirsjáanlega hættu, þótt ekki sé framkvæmd þess sérstaklega bönnuð í lögum, svo og ef hann lætur farast fyrir að framkvæma nokkuð það, er afstýrt gat slíkri hættu, eða veldur því, að slík framkvæmd ferst fyrir.“ Alþingi tekur ákvörðun um máls- höfðun gegn ráðherra eða ráðherr- um á grundvelli þingsályktunartil- lögu. Að því loknu þarf það að skipa sérstakan saksóknara Alþingis. Það er skylda þessa saksóknara að leita allra fáanlegra sannana fyrir kæruatriðum. „Honum ber að undirbúa gagnasöfn- un og rannsókn á málinu og gera til- lögur til landsdóms um viðeigandi ráðstafanir til að leiða hið sanna í ljós,“ eins og segir í nýlegri grein í Tímariti lögfræðinga eftir Andra Árnason að- junkt við Háskólann í Reykjavík. Engin leiðsögn um mál Davíðs og þriggja annarra Rannsóknarnefnd Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að fjórir lykilemb- ættismenn hefðu gerst sekir um van- rækslu. Þetta eru seðlabankastjórarn- ir fyrrverandi Davíð Oddsson, Eiríkur Guðnason og Ingimundur Friðriks- son. Auk þeirra gerðist Jónas Fr. Jóns- son, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeft- irlitsins, sekur um vanrækslu í starfi að mati rannsóknarnefndarinnar. Á sama tíma og mál ráðherranna kann að fara í ákveðinn farveg líkt og mál einstakra eigenda bankanna og stjórnenda þeirra hafnar í réttarsölum að lokinni rannsókn sérstaks saksókn- ara liggur ekkert ljóst fyrir um fram- hald mála hjá embættismönnunum fjórum. Rannsóknarnefnd Alþingis vísaði til að mynda ekki málum þeirra áfram til sérstaks saksóknara. Mál ráðherranna þriggja er með öðrum orðum í höndum Alþingis. Mál eigenda og stjórnenda föllnu bank- anna er í höndum sérstaks saksókn- ara og fer sína leið í gegnum réttar- og dómskerfið. Óljósara er hins vegar hvaða stefnu mál Davíðs, Eiríks, Ingimundar og Jónasar geta tekið. DV hefur þó heim- ildir fyrir því að sú þverpólitíska þing- mannanefnd, sem fjallar um niður- stöður rannsóknarnefndar Alþingis, hafi fjallað um fyrrverandi embættis- mennina fjóra og telji sig að minnsta kosti hafa tillögurétt um hvernig brugðist verði við að því er þá varðar. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar er getið um að Jónas Fr. hafi sýnt van- rækslu við að koma á nægilega traustu skipulagi í Fjármálaeftirlitinu í sam- ræmi við skýlaus ákvæði laga um op- inbert eftirlit með fjármálastarfsemi frá 1998. Þá er einnig getið um að FME hafi ekki fylgt íákvæði laga um fjármálafyrirtæki varðandi eftirlit og áhættuskuldbindingar Landsbankans langt umfram lögbundið hámark. Brot gegn nokkrum lagabálkum Rannsóknarnefnd Alþingis telur samkvæmt lögunum um rannsókn- arnefndina frá árinu 2008 að stjórn Seðlabanka Íslands hafi sýnt van- rækslu í starfi. En auk þess gætu komið til álita brot gegn lögum um Seðlabanka Íslands og brot gegn stjórnsýslulögum. Þá er í lögum um starfsmenn ríkisins að finna ákvæði um afglöp í starfi. Þannig er vel hugsanlegt að starfs- missir Davíðs Oddssonar, Ingimund- ar Friðrikssonar, Eiríks Guðnason- ar og Jónasar Fr. Jónssonar verði ekki einu afleiðingar bankahrunsins fyrir þá heldur geti komið til málshöfðunar gegn þeim. Fyrst og síðast var það verkefni rannsóknarnefndarinnar að fram- fylgja lagabókstafnum um nefndina, en þar segir meðal annars í fyrstu grein að hún skuli „… leggja mat á hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi á Íslandi og eftirlit með henni, og hverjir kunni að bera ábyrgð á því.“ Þetta er áréttað síðar í sömu grein þar sem ætlast er til þess að nefndin geri „… ráðstafanir til þess að hlutað- eigandi yfirvöld fjalli um mál þar sem grunur vaknar við rannsókn nefnd- arinnar um refsiverða háttsemi eða brot á starfsskyldum og gera jafnframt grein fyrir þeim málum í skýrslu til Al- þingis.“ Málið til ríkissaksóknara Í sem stystu máli eru ávirðingar for- stjóra FME að mati rannsóknarnefnd- ar Alþingis einkum tengdar slælegu eftirliti og eftirfylgni. Tekið er dæmi um afskipti og slælegt eftirlit með áhættusækni innan Landsbankans sem lenti á borðum FME. Seðlabankastjórarnir Davíð, Eirík- ur og Ingimundur eru taldir hafa van- rækt skyldur sínar og hlutverk gagn- vart Landsbankanum sumarið 2008 þegar í óefni var komið, jafnvel þrátt fyrir vilja breskra eftirlitsstofnana og Englandsbanka til að koma að vaxandi vanda vegna Icesave-reikninganna. Sömuleiðis teljast athafnir og athafna- leysi þeirra varðandi eitt og annað við þjóðnýtingu Glitnis til vanrækslu og jafnvel brot gegn stjórnsýslulögum. Sérstök þingmannanefnd fjallar um mál Davíðs, Ingimundar, Eiríks og Jónasar á föstudag. Embætti ríkissak- sóknara skoðar mál þeirra einnig eins og áður segir. EKKI BENDA Á MIG Rannsóknarnefnd Alþingis sendi ekki mál seðlabankastjóranna Davíðs Oddssonar, Eiríks Guðnasonar, Ingimundar Friðriks- sonar og Jónasar Fr. Jónssonar, fyrrver- andi forstjóra FME, til frekari rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Rannsóknar- nefndin telur þrátt fyrir þetta að þeir hafi allir gert sig seka um vanrækslu í starfi. Í skýrslutöku bentu ráðherrar og emb- ættismenn hver á annan og enginn þeirra gekkst við ábyrgð á bankahruninu. Mál þeirra verður kannað hjá ríkissaksóknara. JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Rannsóknar-nefnd Alþingis vísaði til að mynda ekki málum þeirra áfram til sérstaks saksóknara. Yfirtaka Glitnis Davíð Oddsson er sagður hafa vanrækt að afla málefnalegra upplýsinga um stöðu Glitnis áður en bankinn var þjóð- nýttur. Á myndinni eru auk Davíðs Lárus Welding, Eiríkur Guðnason og Ingimundur Friðriksson. Aðrir ákveði hvað verði um embættismennina Rannsóknarnefnd Alþingis gefur enga leiðsögn um það hvað gera skuli með niðurstöður nefndarinnar varðandi fjóra embættismenn sem taldir eru hafa vanrækt skyldur sínar. Fyrrverandi forstjóri FME Björgvin G. Sigurðsson tók Jónas Fr. Jónsson með sér í fallinu þegar hann sagði af sér embætti viðskiptaráðherra í búsáhaldabyltingunni snemma árs í fyrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.