Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2010, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2010, Qupperneq 11
14. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR 11 Já, þetta er svona vitlaust. Og svo lagði ég á.“ Samskipti við forsætisráðherra Geir Haarde, fyrrverandi forsætis- ráðherra, hefur unnið mikið með Davíð Oddssyni í gegnum tíðina og sagði í skýrslutöku rannsóknar- nefndar að vinskapur þeirra næði fjörutíu ár aftur í tímann. Geir sagði að Davíð væri óútreiknanlegur. „Og það má segja að það hafi flækt okk- ar samstarf, vegna þess að maður gat ekki alltaf áttað sig á því hvenær var hann að tala við mann, sem hann er búinn að þekkja svona lengi og hef- ur sopið marga fjöruna saman með? Hvenær var hann að tala við mig sem minn forveri í starfi út af einhverju sem hann vissi? Og hvenær var hann embættismaðurinn að ráðleggja for- sætisráðherranum? Þetta var flók- ið, sérstaklega vegna þess að hon- um hættir til að vera stóryrtur, taka djúpt í árinni, „dramatísera“ og gera hlutina jafnvel leikrænt þegar hann [er] í „essinu“ sínu og þetta gerði það að verkum að maður gat ekki alltaf, maður vissi ekki alltaf í hvoru hlut- verkinu maður var eða hann.“ Lamdi fast í borðið Þriðjudaginn 30. september 2008 kynnti Davíð Oddsson sér lánabók Glitnis. Í skýrslutöku rannsóknar- nefndarinnar sagði Davíð þetta: „Ég varð nú eiginlega fyrir „sjokki“ þarna daginn eftir að menn ætla að taka Glitni yfir, þá sé ég í fyrsta skipti svona útdrátt úr lánabók, um stærstu skuldara, og þá sé ég að eig- andi bankans virðist í þeim tölum skulda 170 milljarða, en reyndar reyndust það nú vera 300 og eitt- hvað milljarðar. Þá er forstjóri Fjár- málaeftirlitsins staddur í bankan- um og mér varð svo mikið um þetta að ég hljóp niður á 1. hæðina, þar sem hann var, og kallaði hann yfir í næsta herbergi og sýndi honum þessar tölur, þar sem var sko Baug- ur, Gaumur og FL Group og Landic Property og bara 360... þá sagði for- stjóri Fjármálaeftirlitsins: „Þú mis- skilur þetta, þetta eru ekkert sömu aðilarnir.“ Þá lamdi ég nú fast í borð- ið og sagði: „Þú talar ekki svona við mig drengur.“ En ég áttaði mig ekk- ert á því... mér fannst hann vera að gera grín að mér. En þetta var miklu verra því að svo voru þarna nöfn, sem ég hafði ekki þekkingu á, að voru sömu aðilarnir.“ 200.000 króna rauðvín Í skýrslunni er mikið fjallað um kröfu breska seðlabankans um að íslensk stjórnvöld myndu fara í það að minnka bankakerfið. Davíð hafði þetta um þau mál að segja fyrir rann- sóknarnefndinni: „Meginskýring- in var sú að þeir menn sem þarna þurfti að taka á, þeir voru búnir að vera stórkostlegir gleðigjafar fyrir þjóðfélagið. Stórkostlegir gleðigjaf- ar fyrir þjóðfélagið, m.a.s. að þegar var verið að hugsa um framhaldið þá var alltaf Sigurður Einarsson kallað- ur til og gerður að stjórnarformanni í einhverjum nefndum sem áttu að undirbúa framhaldið, hvernig sem að hann hafði – núna tala menn um ofurlaun – hvernig sem hann hafði borgað sér 500 til 600 milljónir. Þó að allir þessir menn vissu að hann væri opnandi rauðvínsflöskur sem kostuðu 200.000 krónur, flösku eftir flösku eftir flösku.“ „ÞÚ TALAR EKKI SVONA VIÐ MIG DRENGUR“ Fræg mynd Margt af því sem kemur fram í skýrslum sem teknar voru af Davíð Oddssyni var sagt fyrst á þessum tíma þegar hann var í ökumannssætinu á leið út úr Seðlabank- anum um það leyti sem Glitnir féll. MYND RÓBERT REYNISSON Rannsóknarnefnd Alþingis bar vanrækslusyndir á Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóra, í átta liðum. Aðeins nokkrir þeirra rötuðu inn í niðurstöður rannsóknarskýrsl- unnar með rökstuðningi um vanrækslu. „Hvergi mistök eða vanræksla“ Alls fengu tólf einstaklingar bréf frá rannsóknarnefnd Alþingis í febrúar síðastliðnum, fjórir ráð- herrar og átta embættismenn. Þeir fengu frest til andmæla svo sem lög bjóða. Nefndin sendi Davíð Oddssyni, fyrrverandi formanni bankastjórn- ar Seðlabankans, bréf um átta mis- munandi athugunarefni sem hvert um sig flokkast sem mistök eða vanræksla af hálfu hans. Í fyrsta lagi rakti nefndin álita- mál varðandi veðlán Seðlabankans til fjármálafyrirtækja, einkum Icea- bank. Telur rannsóknarnefndin að bankarnir hafi farið í kringum þá reglu Seðlabankans að lán séu ekki veitt gegn veði í eigin skuldabréf- um bankanna. Eins og menn muna tapaði Seðlabankinn hundruð- um milljarða á lánveitingum gegn ófullnægjandi veðum. Í endanlegri gerð skýrslunnar er ekki að sjá að rannsóknarnefndin hafi talið þessi áhættusömu útlán Seðlabankans til vanrækslusynda eða mistaka. Undir lokin voru bankarnir komnir fram á hengi- flug. „Bankarnir áttu þá ekkert til (...) bankarnir voru að deyja,“ sagði Davíð í skýrslutöku. Glitnir og Landsbanki Í öðru lagi athugaði rannsóknar- nefndin hvort seðlabankastjórn- in hefði gerst sek um vanrækslu eða mistök þegar bankinn afl- aði ekki upplýsinga um skipt- ingu innlána erlendra aðila milli útibúa erlendis og starfsstöðva bankanna hér á landi. Nefndin taldi það vera lykilatriði að Seðla- bankinn aflaði sér upplýsinga til að geta betur mætt útgreiðslum ef áhlaup yrði. Í þriðja lagi athugaði rann- sóknarnefndin viðbúnað varð- andi söfnun innlána erlendis og stöðu Tryggingasjóðs innstæðu- eigenda og fjárfesta. Svo var að sjá sem Seðlabankinn fylgdist illa með tilraunum til þess að flytja Icesave-innlán Landsbankans í breska lögsögu þótt augljóslega drægi það úr áhættu og yki fjár- málastöðugleika. Nefndin spurðist í fjórða lagi fyrir um beiðni Landsbankans um 2,5 milljarða punda, jafnvirði 390 milljarða króna fyrirgreiðslu í ág- úst 2008 til þess að flytja Icesave í dótturfyrirtæki. Athugaði rann- sóknarnefndin hvort það gæti tal- ist vanræksla af hálfu Seðlabank- ans að sinna illa svo alvarlegu erindi en reyna þess í stað frekar á þolrif breska fjármálaeftirlitsins sem virtist hafa miklar áhyggjur af Icesave líkt og Bank of England. Þetta atriði og síðari liðir, sem varða yfirtöku Seðlabankans á Glitni, fjalla um meintar van- rækslusyndir stjórnar Seðlabank- ans, en þeir eru hluti af endanlegri niðurstöðu rannsóknarnefndar- innar. Reynir á manndóm nefndarmanna Davíð andmælti nefndinni með 48 blaðsíðna greinargerð. Þar er langt mál um mögulegt van- hæfi tveggja rannsóknarnefndar- manna, Sigríðar Benediktsdóttur og Tryggva Gunnarssonar. Í einum töluliðanna átta seg- ir Davíð meðal annars: „Nú er það svo að hver læs maður sér það í sviphendingu að ekkert þeirra at- riða sem til „athugunar“ er í tölu- liðum 1 – 8 hafa „öðru fremur“ haft þýðingu fyrir þá atburðarás sem leiddi til falls bankanna.“ Hann bætir við á öðrum stað: „Eins og áður er tekið fram virðast allmörg „athugunarefni“ nefnd- arinnar byggð á því að hægt sé að teygja verkefni Seðlabankans um fjármálastöðugleika langt út fyrir það sem lög landsins og athuga- semdir við lagafrumvörp marka þó bankanum með skýrum hætti.“ Í lokin segir Davíð ennfrem- ur: „Þegar þetta tvennt er skoðað saman, að ekkert „athugunarefn- anna“ er til komið vegna brota á hinum tilgreindu lögum, sem Al- þingi hefur falið nefndinni að huga sérstaklega að og hitt sem nefnd- in gefur sér sem forsendu, að þau skuli „öðru fremur“ hafa haft þýð- ingu fyrir fall bankanna, getur nið- urstaðan aðeins orðið ein. Eina málefnalega og sanngjarna nið- urstaðan sem hægt er að komast að er að bankastjórnin þáverandi hafi hvergi gerst sek um mistök eða vanrækslu sem hægt er að fella undir þessi skilyrði. Reynir nú að- eins á manndóm nefndarmanna og að þeir séu ráðnir í að láta ekki annað en málefnaleg sjónarmið hafa áhrif á orð sín og gerðir.“ JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Eina málefnalega og sanngjarna niður-staðan sem hægt er að komast að er að bankastjórnin þáverandi hafi hvergi gerst sek um mistök eða vanrækslu sem hægt er að fella undir þessi skilyrði. Glitnir yfirtekinn „Nú er það svo að hver læs maður sér það í sviphendingu að ekkert þeirra atriða sem til „athugunar“ er í töluliðum 1 – 8 hafa... þýðingu fyrir þá atburðarás sem leiddi til falls bankanna,“ andmælir Davíð Oddsson. Ef þetta gengur ekki fram mun ég persónu- lega sjá til þess að þér verði ólíft á Íslandi það sem eftir er.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.