Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2010, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 14. apríl 2010
Björn Ingi Hrafnsson, Óli Björn
Kárason og Styrmir Gunnarsson
eru þeir þrír fjölmiðlamenn sem
skulduðu bönkunum meira en eitt
hundrað milljónir króna á árunum
2005 til 2008.
Þetta kemur fram í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis. Björn Ingi,
sem var þar til á mánudag ritstjóri
vefmiðilsins Pressunnar, hafði i lok
september 2008, örfáum dögum
fyrir hrun, 563 milljónir króna að
láni frá Kaupþingi.
Samdi í september 2008
Fram kemur að lánin til Björns Inga
hafi öll verið veitt af Kaupþingi.
„Annars vegar voru lánin til Björns
beint en þau voru hæst í lok sept-
ember 2008, rúmar 100 milljónir
króna. Hins vegar voru lán veitt til
félags í hans eigu, Caramba-hug-
myndir og Orð ehf. Þau lán voru
því sem næst öll í formi framvirkra
samninga um hlutabréf. Þau hluta-
bréf sem hæstu samningarnir voru
um voru í Kaupþingi, Exista, Bakka-
vör og Spron,“ segir í skýrslunni.
Þá kemur fram að athyglivert sé að
í september 2008 hafi félagið gert
nýja samninga um kaup á hluta-
bréfum í Exista, sem hafi numið 230
milljónum króna. „Við gerð þeirra
samninga ríflega tvöfölduðust
skuldir félagsins,“ segir í skýrslunni.
Skuldaði líka hálfan milljarð
Óli Björn Kárason skuldaði litlu
minna en Björn Ingi. Hann skuld-
aði, síðla árs 2005, 478 milljón-
ir króna en á þeim tíma var hann
eigandi og útgáfustjóri Viðskipta-
blaðsins. Lánin voru öll veitt frá
Kaupþingi og voru flest veitt til ÓB-
fjárfestingar (í eigu Óla Björns) og
félaga í meirihlutaeigu þess félags.
Eitt þeirra félaga gaf út Viðskipta-
blaðið. Óli Björn sagði í yfirlýsingu
sem hann sendi frá sér vegna þess
sem fram kemur í skýrslunni að
um eðlileg bankaviðskipti hafi ver-
ið að ræða og lánin hafi snúist um
endurfjármögnun fyrirtækja í hans
eigu, meðal annars vegna útgáfu
Viðskiptablaðsins. Sjálfur hafi hann
ekki verið blaðamaður eða ritstjóri
á þeim tíma. Hann segir að lokum
að hann hafi í ársbyrjun 2007 selt
hluti sína í Framtíðarsýn og Fiski-
fréttum og þar með hafi viðskipta-
sambandi hans við Kaupþing lokið.
Styrmir Gunnarsson, fyrrver-
andi ritstjóri Morgunblaðsins,
skuldaði mest í ársbyrjun 2006, eða
154 milljónir króna. Fram kemur að
lánin hafi verið í öllum stóru bönk-
unum þremur. „Frá miðju ári 2007
voru lán hans við bankana þrjá
undir 100 milljónum króna,“ að því
er segir í skýrslunni.
Í lax og gisti á Radisson
Björn Ingi kemur raunar víðar við
í skýrslunni. Í kaflanum um styrki
og fríðindi til stjórnmálaflokka og
stjórnmálamanna segir að íslensk-
ir stjórnmálamenn virðist ekki hafa
þegið boðsferðir frá bönkunum í
miklum mæli. Björn Ingi Hrafns-
son flaug þó til London, gisti á Rad-
isson Edwarian í byrjun árs 2007 og
var í veislu á Claridge's Hotel vegna
Kaupthing Singer & Friedlander.
„Björn Ingi Hrafnsson veiddi líka í
boði Glitnis í Laxá í Leirársveit dag-
ana 10.-11. júlí 2007, sem stjórn-
armaður í Orkuveitunni,“ segir í
skýrslunni.
Segist aldrei hafa
verið boðið í lax
Í yfirlýsingu sem Björn Ingi birti á
Pressunni á þriðjudag segir með-
al annars: „Hið rétta í málinu er
nefnilega auðvitað, að hér er ekk-
ert ólöglegt á ferðinni. Ég hef aldrei
þegið far í einkaþotu af bönkum
eða öðrum stórfyrirtækjum, aldrei
þegið boð í laxveiði frá fyrirtækj-
um, á enga erlenda reikninga og
hef aldrei tekið stöðu gegn krón-
unni og þótt fyrirtæki í eigu minni
og konu minnar, sem er löggiltur
verðbréfamiðlari og sérfræðingur á
þessu sviði, hafi átt í hlutabréfavið-
skiptum og tekið lán í þeim tilgangi,
eins og þúsundir annarra sambæri-
legra félaga, þýðir það ekki að neitt
óeðlilegt hafi verið á ferðinni,“ skrif-
aði Björn Ingi Hrafnsson, um leið og
hann tilkynnti um að hann myndi
tímabundið stíga til hliðar sem rit-
stjóri miðilsins.
Fullyrðing hans um að hafa
aldrei þegið laxveiðar frá fyrirtækj-
um stangast á við það sem fram
kemur í skýrslunni þar sem fullyrt er
að Björn Ingi hafi veitt í Laxá í Leir-
ársveit í boði Glitnis, sumarið 2007.
„Töpuðum öllum
okkar sparnaði“
Björn Ingi segist enn fremur í yfir-
lýsingunni aldrei hafa fengið krónu
afskrifaða í íslensku bankakerfi og
að hann standi ekki vel fjárhagslega
í dag, frekar en margir aðrir lands-
menn. „Við hjónin töpuðum öllum
okkar sparnaði og miklu meira en
það í hruninu,“ segir Björn og segir
það taka af öll tvímæli um að hann
hafi vitað að bankarnir væru að fara
í þrot.
„Ég er að þessu sögðu vitaskuld
jafnsannfærður og fyrr um að nafn
mitt verði hreinsað og mun vinna
að því ásamt mínum lögmanni,“
segir hann.
Engir leynireikningar
Björn Ingi vildi í samtali við DV
engu svara til um það hvernig á því
stæði að hann skuldaði bönkun-
um hálfa milljarðinn; sagði raunar
að það væri ekki hann sem skuld-
aði þetta heldur félög í hans eigu.
Í áðurnefndri yfirlýsingu vitn-
ar Björn Ingi í gamla bloggfærslu
þar sem fram kemur að hugmynd
þeirra hjóna með fjárfestingum
Caramba ehf. hafi auðvitað ver-
ið að búa til sparnað og varasjóð.
Áhætta þeirra hafi verið umtals-
verð enda væru þau í persónuleg-
um ábyrgðum fyrir félagið. „Félagið
tók þátt í hefðbundnum og eðlileg-
um verðbréfaviðskiptum, keypti og
seldi hlutabréf, stundum gegn láni.
Smám saman myndaðist nokkuð
eigið fé,“ segir Björn Ingi.
Hann segir hins vegar að
skemmst sé frá því að segja að
draumurinn um fjárhagslegt sjálf-
stæði hafi gersamlega snúist upp
í andhverfu sína. Félagið hafi tap-
að öllu sínu og skuldirnar séu langt
umfram verðlausar eignir. Þau hafi
ekki verið svo forsjál að selja síðustu
dagana fyrir hrun, eins og einhverj-
ir hafi haft vit á að gera. „Við eigum
engar innistæður í bönkum, enga
fjármuni fengið gefins, enga leyni-
reikninga í útlöndum og engar aðr-
ar eignir. Höfum ekki breytt eignar-
haldi á heimili okkar, verðum bara
að takast á við okkar fjárhagslegu
erfiðleika eins og aðrir og reyna að
sigrast á þeim. Sama á við um bar-
áttuna fram undan hjá svo fjöl-
mörgum í þessu landi.“
SKULDUGIR
RITSTJÓRAR
Samanlagt skulduðu fjölmiðlamennirnir Björn Ingi Hrafnsson og Óli Björn Kárason milljarð króna fyrir
bankahrunið. Björn Ingi fullyrðir að hann hafi aldrei þegið boð í laxveiði, en það stangast á við niður-
stöðu nefndarinnar um að hann hafi farið í laxveiði í boði Glitnis sumarið 2007. Styrmir Gunnarsson,
fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, skuldaði 154 milljónir króna.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
HEIMILD: SKÝRSLA RANNSÓKNARNEFNDAR ALÞINGIS.
NAFN HÁMARKSSTAÐA STARF
Björn Ingi Hrafnsson 563 m.kr. þann
30. september 2008
Ritstjóri Pressunnar
Óli Björn Kárason 478 m.kr. þann
31. ágúst 2005
Útgáfustjóri og eigandi
Viðskiptablaðsins
Styrmir Gunnarsson 154 m.kr. þann
30. júní 2006
Ritstjóri
Þeir fjölmiðlamenn sem höfðu yfir 100 milljóna lán (eigin, maka eða félaga
þeirra) á árunum 2005 til falls bankanna 2008.
Lán til fjölmiðlamanna
Styrmir Gunnarsson Ritstjórinn
skuldaði 154 milljónir króna sumarið
2006.
Hálfur milljarður Óli Björn skuldaði
liðlega 500 milljónir þegar hann stýrði
Viðskiptablaðinu.
Skuldaði hálfan milljarð Björn Ingi segist
standa illa fjárhagslega enda sé hann í
persónulegum ábyrgðum.