Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Page 4
4 FRÉTTIR 9. ágúst 2010 MÁNUDAGUR
• Hindrar blöðrumyndun
– verndar fætur
• Vatnsheldur
– vörn gegn bakteríum
• Dregur úr óþægindum
og sársauka
• Gervihúð sem andar
Compeed
plásturinn
Miklu færri komast að en vilja í nám til kennsluréttinda:
Hundruð umsækjenda
Háskóli Íslands þurfti að hafna rétt
um tvö hundruð einstaklingum
sem sóttu um nám til kennslurétt-
inda í haust. Samkvæmt upplýsing-
um frá menntavísindasviði skólans
sóttu þrjú hundruð manns um nám
til kennsluréttinda hjá skólanum.
Menntavísindasvið samþykkti að-
eins níutíu af þessum umsóknum.
Því samþykkti skólinn aðeins einn
þriðja þessara umsókna. Þar var til
að mynda strax tekin sú stefna að
fara ekki yfir umsóknir sem bárust
eftir að umsóknarfrestur til námsins
rann út.
Hjá Háskólanum á Akureyri bár-
ust 225 umsóknir vegna náms til
kennsluréttinda. Samkvæmt upplýs-
ingum frá skólanum fengu þar af 168
manns inni og hafa 120 þegar greitt
skólagjöld fyrir næsta vetur. Þar var
sú stefna tekin að leggjast á eitt til að
koma til móts við nemendur. Í ág-
úst tekur skólinn í notkun nýja bygg-
ingu. Þar er meðal annars stór fyrir-
lestrarsalur sem gerir það að verkum
að tök eru á að taka á móti fleirum
en annars yrði. Hann getur tekið allt
að þrjú hundruð manns í sæti. Sam-
kvæmt upplýsingum frá skólanum
hafa aldrei eins margir sótt um nám
til kennsluréttinda að hausti.
rhb@dv.is
Aðeins þriðjungur inni Háskóli Íslands samþykkti aðeins níutíu umsóknir af um
þrjú hundruð vegna náms til kennsluréttinda. Háskólinn á Akureyri samþykkti mun
fleiri.
Tafir vegna
áreksturs
Nokkurra bíla árekstur varð á þjóð-
vegi 1 um Bólstaðarhlíð, við Bólu,
rétt við Öxnadalsheiði um miðjan
dag á sunnudag. Þjóðvegurinn var
lokaður um stund af þessum sökum
og tók um það bil klukkustund að
koma umferðinni af stað aftur. Engin
alvarleg slys urðu á fólki í árekstr-
inum. Lögreglan á Sauðárkróki fer
með rannsókn málsins, en ekki lá
fyrir á sunnudag hverning slysið at-
vikaðist.
Stunginn í
bakið á Dalvík
Piltur um tvítugt var stunginn í bakið
á Dalvík á sunnudagsmorgun en þar
í bæ fór fram Fiskidagurinn mikli nú
um helgina. Pilturinn mun ekki vera
alvarlega slasaður en annar piltur á
svipuðum aldri hefur verið handtek-
inn grunaður um verknaðinn.
Þá féll átján ára piltur í sjóinn og
var kaldur og blautur en fékk að-
hlynningu björgunarsveitarmanna.
Fyrir utan þessi tvö atvik, pústra og
ölvunarlæti, þá mun hátíðin hafa
farið vel fram.
Kirkjan vill
minni niðurskurð
Kirkjuþing vill að miðað verði við
fimm prósenta niðurskurð í rekstri
Þjóðkirkjunnar á árinu 2011 í stað
níu prósenta, eins og ríkisstjórnin
hefur gert kröfu um. Á aukakirkju-
þingi sem haldið var um helgina var
því beint til kirkjuráðs að það skyldi
ganga til samninga við ríkisvaldið
um væntanlegan niðurskurð. Niður-
skurðartillögurnar séu síðan háðar
samþykki kirkjuþings og Alþingis.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há-
skóla Íslands, HÍ, sat í stjórn Glitn-
ir Globe, undirsjóðs Save & Sa-
ve-innistæðusjóðs Glitnis, sem
Glitnir stofnaði fyrir bankahrun.
Sjóðurinn var hugsaður sem mót-
vægi við Icesave-innistæðureikn-
inga Landsbankans sem frægir eru
orðnir. Með stjórnarsetu sinni í
Glitnissjóðnum bætist Kristín í hóp
annarra háskólarektora sem tengj-
ast fjármálageiranum á góðæris-
tímum fyrir hrun með einhverjum
hætti.
Á þessum tímum taumlítill-
ar gróðahyggju bankamanna sat
Svafa Grönfeldt, fyrrverandi rekt-
or Háskólans í Reykjavík, í stjórn
Landsbankans og þá hlaut Runólf-
ur Ágústsson, fyrrverandi rektor
háskólans á Bifröst, einnig hundr-
uð milljóna kúlulán til hlutabréfa-
kaupa í Icebank. Athyglisvert er að
þrír rektorar sem sinntu störfum
sínum á árunum fyrir hrun virðast
því hafa tengst fjármálageiranum
með einum eða öðrum hætti.
Flott stjórn
Ákveðið framlag úr Save & Save-
innistæðusjóðnum, 0,1 prósent af
vöxtum innistæða, var eyrnamerkt
umhverfissjóðnum Glitnir Globe.
Kristín rektor var fengin til að sitja
þar í stjórn ásamt norska skauta-
kappanum Johann Olav Koss og dr.
Rajendra Pachauri, formanni lofts-
lagsnefndar Sameinuðu þjóðanna.
Save & Save-reikningarnir voru
stofnaðir árið 2008 en innláns-
söfnun á þá hóf Glitnir ekki fyrr en
um mitt ár 2008. Sökum þess þótti
rannsóknarnefnd Alþingis ekki
ástæða til að taka þá ítarlega til
skoðunar, líkt og gert var með hina
áþekku Icesave-reikninga Lands-
bankans.
Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra hefur ákveðið að
veita eina milljón króna til Rann-
sóknarstofu um Háskóla, sem Páll
Skúlason, fyrrverandi rektor HÍ,
veitir forstöðu til þess að rannsaka
sérstaklega þátt háskólanna á góð-
æristímum fyrir bankahrun.
Óheppileg tengsl
Seta Kristínar rektors í stjórn Glitn-
ir Globe gæti orðið eitt af því sem
Rannsóknarstofa Páls mun rann-
saka. Hann kemur reyndar til með
að rannsaka tímabil þar sem hann
sjálfur sat sem rektor HÍ og þarf
að gæta sín á óheppilegum hags-
munaárekstrum við þá skoðun.
Í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis var komist að þeirri niður-
stöðu að líkt og margir, til að mynda
fjölmiðlar, hefðu háskólamenn get-
að lagt mun meira af mörkum í op-
inberri umræðu á grundvelli sér-
fræðiþekkingar sinnar. Þrátt fyrir
slæm móttökuskilyrði fyrir gagnrýni
á tímum góðærisins hefðu sérfræð-
ingar háskólanna átt að halda á lofti
þeim hættumerkjum sem blöstu
við.
Góð málefni
Kristín staðfestir setu sína í banka-
sjóðnum og bendir á að stjórnar-
mennirnir hafi eingöngu verið fag-
aðilar sem ekki höfðu fjárhagslega
ábyrgð. Hún segir fjarstæðukennt að
tengja sig við fjármálageirann fyrir
hrun með stjórnarsetunni. „Save &
Save var ný sparnaðarleið sem átti
að fara af stað og mótframlög frá
bankanum áttu að leggja áherslu á
umhverfismál, endurnýjanlega orku
og sjávarútveg. Til mín var leitað að
sitja í fagráði fyrir sjóðinn, aðeins
ráðgefandi um meðferð þessa sjóðs
til þessara málaflokka. Ég þáði boð-
ið í ljósi þess að þarna átti að styrkja
áhugaverð málefni sem við hjá skól-
anum höfum lagt mikla áherslu á.
Þetta var fagráð sem bar enga fjár-
hagslega ábyrgð og því fjarstæðu-
kennt að tengja mig við fjármála-
markaði út frá þessu,“ segir Kristín.
„Umræðan um þátt háskólanna
í bankahruninu á fyllilega rétt á sér.
Við verðum hins vegar að muna að
ýmislegt var sagt af háskólakennur-
um sem ekki fékk hljómgrunn. Eftir
á að hyggja er alveg hægt að segja að
meira hefði mátt vara við en þegar
það er skoðað má sjá að ansi margir
sem vöruðu við án þess að hlustað
væri á þá.“
DV1008069524
Rektor Háskóla Íslands, Kristín Ingólfsdóttir, sat í stjórn umhverfissjóðs á vegum
Glitnis sem stofnaður var út frá Save & Save-innistæðureikningum bankans, hliðstæðu
Icesave-reikninga Landsbankans. Á sama tíma höfðu tveir aðrir háskólarektorar bein
tengsl við fjármálageirann fyrir bankahrun, þau Runólfur Ágústsson og Svafa Grön-
feldt. Öðrum fyrrverandi rektor, Páli Skúlasyni, hefur verið falið að rannsaka þátt
háskólanna á góðæristímunum fyrir hrun.
KRISTÍN REKTOR SAT Í
STJÓRN BANKASJÓÐS
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Þetta var fagr-áð sem bar enga
fjárhagslega ábyrgð og
því fjarstæðukennt að
tengja mig við fjármála-
markaði útfrá þessu.
Sat í stjórn Kristín sat í stjórn umhverfissjóðs Glitnis fyrir bankahrunið. Þar segist hún eingöngu hafa átt að vera ráðgefandi um
fjármuni sjóðsins en ekki bera fjárhagslega ábyrgð. MYND VILHELM GUNNARSSON