Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Side 22
22 Úttekt 9. ágúst 2010 mánudagur Ógnarstjórn Rauðu kmeranna í Kambódíu frá 1975 til 1979 er fjölda Kambódíumanna enn í fersku minni. Talið er að um tvær milljón- ir hafi látið lífið í valdatíð Rauðu kmeranna. Hátt í tuttugu þúsund voru pyntuð og myrt eftir mislanga dvöl í S-21, alræmdu fangelsi sem stýrt var af Duch. Duch hefur nú hlotið dóm fyrir glæpi sína. Böðull Rauðu Fyrrverandi fangelsisstjóri hins alræmda Toul Sleng-fangels-is Rauðu Kmeranna í Kamb-ódíu var sakfelldur fyrir glæpi gegn mannkyni þann 26. júlí af stríðs- glæpadómstól Kambódíu. Fangelsisstjórinn Duch, sem heitir réttu nafni Kaing Guek Eav, var dæmd- ur til þrjátíu og fimm ára fangelsis, en hann hafði viðurkennt að hafa haft yf- irumsjón með pyntingum og aftök- um þúsunda karla, kvenna og barna í fangelsinu, og bað við réttarhöldin um fyrirgefningu vegna ódæða sinna. Duch mun þó ekki afplána þrjátíu og fimm ár því dómarar styttu dóminn um fimm ár af ýmsum ástæðum. Meintir óvinir teknir af lífi Tuol Sleng-fangelsið var endastöð þúsunda Kambódíumanna sem tald- ir voru „óvinir“ ríkisstjórnar Rauðu kmeranna sem var við völd í landinu frá 1975 til 1979. Í stjórnartíð Rauðu kmeranna var fólk neytt til að yfirgefa borgir landsins og látið þræla á hrís- grjónaökrum, og átti stöðugt yfir höfði sér að vera tekið af lífi fyrirvaralaust, eða í kjölfar pyntinga, ef það var talið vera óvinir byltingarinnar. Leiðtogi Rauðu kmeranna, Pol Pot, „Bróðir númer eitt“ safnaðist til feðra sinna árið 1998, og er Duch fyrstur fimm æðstu manna Rauðu kmeranna sem standa þarf skil á gerðum sínum fyrir dómstólum. Lítill vafi var talinn á að hann yrði sakfelldur fyrir stríðs- glæpi og glæpi gegn mannkyni. Þrátt fyrir að hafa gengist við glæp- um sínum í Toul Sleng-fangelsinu, sem þekkt var sem S-21, fullyrti hann að hann hefði einungis farið að fyrir- mælum sér æðri manna. Hann kom fólki á óvart á lokadegi réttarhaldanna með því að fara fram á sýknu. „Drepið þau öll með tölu“ Duch, sem er fyrrverandi stærð- fræðikennari, hafði fátt sér til máls- bóta og í máli sækjenda kom fram að hann hefði fyrirskipað hrottaleg- ar pyntingar aðferðir til að knýja fram „játningar“ fanganna. Táneglur voru rifnar af og raf- magnspyntingum beitt að undirlagi Duchs sem að auki lagði blessun sína yfir allar aftökur. Það ríkti enginn losarabragur á skráningu Duchs, enda hafði hann á sér orð fyrir nákvæmni. Hann kom sér upp stóru safni ljósmynda, skýrslna yfir játningar og annað sem taldist til sannana í málum þeirra sem haldið var föngnum í Tuol Sleng. Á einu minnisblaði Duchs kemur fram að vörður einn spurði hvað ætti að gera við sex drengi og þrjár stúlkur sem sökuð voru um að vera svikarar. Duch svaraði að bragði: „Drepið þau öll með tölu“. Sem fyrr segir sagði Duch fyrir réttinum að hann hefði einungis fylgt skipunum, og bætti því við að hann hefði ekki þurft að kemba hærurn- ar hefði hann gengið í bága við fyrir- mæli yfirmanna sinna. Sú útskýring er ekki talin ávinna honum fyrirgefningu landsmanna sinna því það sem átti sér stað innan við veggi Tuol Sleng-fang- elsisins er talið vera táknmynd þeirra voðaverka sem framin voru í valdatíð Rauðu kmeranna. Duch afhjúpaður Það var snemma árs 1999 að eldri maður gaf sig á tal við blaðamanninn Nic Dunlop sem staddur var í þorpinu Battambang í norðvesturhluta Kamb- ódíu. Maðurinn kynnti sig sem Hong Pen og sagðist vera fyrrverandi kenn- ari frá höfuðborginni Phnom Penh. Maðurinn talaði ágæta ensku og var íklæddur bol sem á var merki banda- rískra hjálparsamtaka. Kennarinn fyrrverandi hefði betur hallað sér til hlés því blaðamaðurinn bar kennsl á viðmælanda sinn, enda hafði hann gengið um með ljósmynd af honum í nokkra mánuði. Myndin var einmitt af Duch, hinum alræmda fangelsisstjóra Tuol Sleng-fangels- isins. Hinn óvænti fundur blaða- mannsins og kennarans fyrrverandi frá Phnom Penh sem hafði stýrt stofn- un sem á fjórum árum lét yfirheyra og pynta, og taka af lífi 17.000 manns sem síðar var fleygt eins og skarni í fjölda- grafir, leiddi til handtöku Duchs. Aðhylltist kínverskan kommúnisma Saga Duchs hófst snemma á fimmta áratugnum. Hann fæddist í Kampong Thom-héraði. Hann var skírður Kaing Guek Eav og snemma kom í ljós að stærðfræði lá vel fyrir honum og hann gekk í bestu skóla landsins. Hann lærði til kennaraprófs í Phnom Pehn og á þeim tíma kynntist hann námsmönnum frá Kína og lað- aðist að kínverskum kommúnisma. Eftir að hann gerðist kennari gat hann sér orðstírs sem strangur og nákvæm- ur leiðbeinandi. En vinstrisinnaðar skoðanir hans höfðu vakið athygli lög- reglunnar og seint á sjöunda áratugn- um var hann í varðhaldi um nokkurt skeið. Þegar þar var komið sögu breidd- ust átök út um landið vegna Víet- namstríðsins. Í kjölfar sprengjuárása Bandaríkjanna á þorp í austurhluta Kambódíu flýðu þorpsbúar í faðm uppreisnarmanna sem börðust gegn ríkisstjórn Kambódíu sem naut stuðn- ings Bandaríkjanna. Duch gekk til liðs við uppreisn- armennina sem kölluðu sig Rauðu kmerana og var gerður að yfirmanni öryggismála á einu svæði, og varði síðar þremur mánuðum í að yfirheyra franskan mannfræðing, Francois Biz- ot, sem síðar var sleppt að frumkvæði Duchs sem taldi hann vera saklausan. k e nna dæmdur n Einræðisstjórn maóista sem var við völd í Kambódíu frá 1975 til 1979. Einnig þekkt sem Angkar. n Stofnuð og leidd af Saloth Sar, betur þekktum sem Pol Pot. n Kastaði fyrir róða trúarbrögðum, skólum og gjaldmiðli með það fyrir augum að koma á stofn landbúnaðarsamfélagi. n Talið er að allt að tvær milljónir hafi látið lífið sökum hungurs, þrælkunar, pyntinga og lífláta. n Rauðu kmerarnir voru hraktir frá völdum í innrás Víetnama árið 1979. n Pol Pot flýði og naut frelsis til ársins 1997. Hann dó ári síðar. n Duch naut frelsis til ársins 1999. Hann var dæmdur til þrjátíu og fimm ára fangelsis árið 2010. Duch er eini æðstu ráðamanna Rauðu kmeranna sem þurft hefur að svara fyrir gjörðir sínar. Rauðu KmeRaRniR Á einu minnis-blaði sem hann hélt kemur fram að vörð- ur einn spurði hvað ætti að gera við sex drengi og þrjár stúlkur sem sökuð voru um að vera svikarar. Duch svaraði að bragði: „Drepið þau öll með tölu“. Kaing Guek Eav Fór fram á sýknu á lokadegi réttarhaldanna. MynD REutERs Duch, Kaing Guek Eav Á þeim tíma sem hann var yfirböð- ull ógnarstjórnar Rauðu kmeranna í Kambódíu. MynD REutERs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.