Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Side 7
MánUDAGUR 9. ágúst 2010 fréttir 7
Flest bendir til þess að Landsbankinn
og Vestia, dótturfélag bankans, hafi
afskrifað á annan milljarð króna þeg-
ar það seldi fyrirtækið Parlogis í lok
júlí. Kaupandinn var Lyfjaþjónust-
an ehf., sem er að fullu í eigu Kristj-
áns Jóhannssonar lektors við Háskóla
Íslands. Samkvæmt skrá yfir álagða
skatta og gjöld er Kristján tekjuhæsti
háskólamaður landsins með um 2,2
milljónir króna á mánuði.
Kaupverð Parlogis var 250 milljón-
ir króna og var kaupverðið greitt í einu
lagi. Margt bendir til þess að Lands-
bankinn hafi lánað kaupandanum
fyrir kaupunum.
Parlogis er lyfjadreifingarfyrirtæki
með aðsetur á Krókhálsi í Reykja-
vík og hjá fyrirtækinu vinna um 50
manns. Fyrirtækið er með nærri
þriðjungs hlutdeild í lyfjadreifingu
í landinu. Formlegt söluferli hófst
snemma í maí, en Vestia, dótturfélag
Landsbankans átti 80 prósenta hlut í
því og Atorka 20 prósent.
Á brauðfótum um langt skeið
Í raun hefur rekstur Parlogis verið í
gjörgæslu síðan Landsbankinn seldi
félagið í skuldsettri yfirtöku árið 2007.
Landsbankinn hefur tvívegis lánað
mikið fé vegna eigendaskipta á fé-
laginu síðan þá, fyrst mönnum sem
stóðu á bak við Dreifingarmiðstöðina
ehf. (DM). Samkvæmt ársreikningi
Parlogis árið 2008 greiddu eigend-
ur sér um 160 milljóna króna arð og
er varla að sjá að það hafi samrýmst
hagsmunum Landsbankans og var
félaginu lýst sem fjárvana fyrirtæki á
þeim tíma í Viðskiptablaðinu 8. okt-
óber 2009. Eftir að DM var lýst gjald-
þrota í fyrra tók Landsbankinn við
rekstri Parlogis.
Rekstrartap Parlogis árið 2008
nam nærri 1.260 milljónum króna og
var eigið fé þess neikvætt um nánast
sömu upphæð. Skuldir námu um 2,4
milljörðum króna.
Í ársreikningi Parlogis fyrir árið
2009 kemur fram að hlutafé félagsins
hafi verið aukið um 1.253 milljónir
króna með skuldbreytingu lána fyrir
síðustu áramót.
Samkvæmt sölugögnum Fyrir-
tækjaráðgjafar Landsbankans eru yfir
70 prósent tekna Parlogis til komnar
vegna sölu og dreifingar á vörum frá
Icepharma sem einnig var í meiri-
hlutaeign Kristjáns Jóhannssonar. Í
gögnunum kemur fram að Parlog-
is beri mikla áhættu, meðal annars
gengisáhættu vegna vöruinnflutn-
ings, í samningum sínum við Icep-
harma. Jafnframt kemur fram að sölu-
samningar Parlogis og Icepharma
gilda til loka næsta árs. Af þessu leiðir
að þeir sem höfðu á annað borð hug á
að kaupa Parlogis af Landsbankanum
/ Vestia urðu að gera tilboð með fyr-
irvara um endurskoðun og framleng-
ingu samninga við Icepharma. Að
öðrum kosti mætti líta svo á að Par-
logis væri nánast ósöluhæft.
Lánaði bankinn
fyrir kaupunum?
Af framangreindum ástæðum voru
Icepharma og Kristján Jóhannsson í
yfirburða stöðu til þess að kaupa Par-
logis þar sem hann hélt í alla enda.
Með öðrum orðum voru Kristján
og Icepharma nánast í lykilstöðu til
þess að losa Landsbankann við Par-
logis. Þess má geta að Landsbank-
inn er einnig viðskiptabanki Icep-
harma. Heimildarmenn DV telja að
þar af leiðandi hafi söluferlið á veg-
um Landsbankans og Vestia verið
hálfgert sjónarspil. Salan var aðeins
opin svokölluðum fagfjárfestum sem
hindraði áhuga á kaupum á lyfjadreif-
ingarfyrirtækinu.
Í tilkynningu segir að 12 aðilar
hefðu fengið kynningargögn en ekk-
ert gefið upp um hversu margir hefðu
lagt fram skuldbindandi tilboð.
Í tilkynningunni frá Vestia um sölu
Parlogis kemur ekki fram hverjir eig-
endur Lyfjaþjónustunnar ehf. eru, en
það fyrirtæki staðgreiddi 250 milljónir
króna fyrir Parlogis. Samkvæmt hluta-
félagaskrá er Kristján Jóhannsson
lektor eini eigandi félagsins. Kristján
er jafnframt stjórnarformaður og að-
aleigandi Icepharma í gegn um eign-
arhaldsfélögin Akurey ehf. og Lyng
ehf. Kristján á helmingshlut í Akur-
ey á móti Ingu Rósu Guðmundsdótt-
ur. Akurey er aftur meirihlutaeigandi
í Lyngi ehf. sem á Icepharma að öllu
leyti.
Akurey var stofnað árið 2007 í
tengslum við skuldsetta yfirtöku á Ic-
epharma. Inga Rósa er lyfjafræðingur
og eftir því sem DV kemst næst er hún
starfsmaður Lyfjastofnunar Íslands
sem gæti valdið hagsmunaárekstrum
gagnvart eignarhaldi hennar í lyfja-
dreifingu.
Fréttablaðið greindi frá því þann
10. júní síðastliðinn að Akurey ehf.
hefði aldrei frá upphafi skilað árs-
reikningum. Kristján var þá nýskip-
aður fulltrúi Bankasýslunnar (ríkis-
ins) í stjórn Arionbanka. Kristján kom
af fjöllum og taldi að um handvömm
hefði verið að ræða.
Ársreikningum Akureyjar hefur nú
verið skilað. Þar kemur fram að eigið
fé félagsins var neikvætt um nærri 1,3
milljarð króna í árslok 2008. Á sama
tíma var eigið fé Lyngs ehf. neikvætt
um nánast jafn háa upphæð eða 1,1
milljarð króna.
Bankinn á þremur
stöðum við borðið
Varla er um það að ræða að Akurey,
Lyng eða Icepharma hafi getað lagt
fram fé til kaupanna á Parlogis nú.
Þannig er því ósvarað hvernig Lyfja-
þjónustan ehf., sem er algerlega í eigu
Kristjáns, hafi getað staðgreitt 250
milljónir króna við kaupin á Parlogis
fyrir skemmstu. DV tókst ekki að afla
upplýsinga um það við vinnslu frétta-
rinnar hvort Landsbankinn hefði lán-
að Kristjáni fyrir kaupverðinu.
Miðað við skuldir Parlogis og
stöðu félagsins áætla heimildarmenn
DV að Landsbankinn hafi afskrifað 1
til 1,5 milljarð króna um leið og Par-
logis var selt.
Landsbankinn tengist Kristjáni
með margvíslegum hætti í viðskipt-
um með áðurgreind félög. Bankinn
er viðskiptabanki Icepharma sem
Kristján á meirihluta í. Landsbank-
inn er því í senn eigandi, seljandi
og viðskiptabanki Kristjáns, sem
virðist alla tíð hafa gegnt lykilstöðu
sem mögulegur kaupandi Parlogis.
Heimildir eru og fyrir því að Lands-
bankinn hafi fyrirfram talið sig hafa
mestan hag af því að Icepharma
kæmist yfir Parlogis til þess að styrkja
rekstur fyrirtækisins. Þetta styður
grunsemdir um að söluferlið hafi í
rauninni verið einhvers konar leik-
þáttur og aðrir bjóðendur hafi ekki
átt raunhæfa möguleika til að kom-
ast yfir fyrirtækið.
Allt bendir til þess að Landsbankinn hafi afskrifað 1 til 1,5 milljarð
króna þegar hann seldi fyrirtæki í eigu Kristjáns Jóhannssonar
lektors lyfjadreifingarfyrirtækið Parlogis ehf. fyrir skemmstu.
Ýmsir þeir sem fengu gögn um söluna og sýndu áhuga á kaupum
telja að salan hafi verið nánast fyrirfram ákveðin og að sett hafi
verið upp leiksýning af hálfu bankans til að fullnægja formsat-
riðum um opið söluferli.
FÉKK FYRIRTÆKI
Á SILFURFATI
er því í senn eigandi,
seljandi og við-
skiptabanki Kristjáns, sem
virðist alla tíð hafa gegnt
lykilstöðu sem mögulegur
kaupandi Parlogis.
EIgnARhALdSFÉLAgIð AKUREY EhF.
Kristján Jóhannsson - 50 prósent
Inga Rósa Guðmundsdóttir - 50
prósent
EIgnARhALdSFÉLAgIð LYng EhF.
Akurey ehf. - 61 prósent
Margrét Guðmundsd. - 18 prósent
Karl Þór Sigurðson - 12 prósent
Aðrir - 9 prósent
IcEphARmA EhF.
Lyng ehf. - 100 prósent
LYFjAþjónUSTAn EhF.
Kristján Jóhannsson lektor - 100
prósent
pARLogIS EhF.
Lyfjaþjónustan ehf. - 100 prósent
Jóhann hauKsson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Þriðjungur
lyfjadreifingar-
innar. Áætlað er
að Landsbankinn
hafi afskrifað 1
til 1,5 milljarð
króna þegar hann
seldi á dögunum
lyfjadreifingarfyr-
irtækið Parlogis
sömu aðilum og
reka Icepharma.
Launahæsti
háskólamaðurinn
Kristján Jóhannsson
staðgreiddi 250
milljónir króna
þegar Lyfjaþjónust-
an ehf. í hans eigu
keypti Parlogis af
Landsbankanum.
Ríkisbankinn. Landsbankinn er í eigu ríkisins. Efasemdir eru um trúverðugleika
söluferlis bankans á lyfjadreifingarfyrirtækinu Parlogis.