Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Side 19
júlíus júlíusson framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla á Dalvík hafði varla tíma til að borða fisk um helgina. LítiLL tími tiL að borða fisk Heimur teiknimyndasagnanna er heillandi. Sumir hafa sagt og stutt það góðum rökum að teiknimyndasögur séu goðsögur nútímans. Í staðin fyr- ir Herkúles og Akkíles höfum við Hulk og Spiderman. Alveg eins og í hinum fornu goðsögum eru andstæðingar hetjanna okkar einnig í brennidepli athyglinnar. Hin ormhærða Medúsa og skrímslið Hýdra eiga sér bræður í Lex Luthor og Two-Face. Andstæðingur leðurblöku- mannsins Two-Face er einn eftirminnilegasti andstæðingur Leðurblökumanns- ins. Hann er ungur og efnilegur lög- fræðingur á uppleið en sturlast þegar skvett er á hann sýru í réttarsal. Hann var reyndar tæpur fyrir því að pabbi hans beitti hann ofbeldi þar sem refs- ingum var beitt eftir hvort fiskurinn eða skjaldarmerkið kom upp í ein- földu hlutkesti. Þetta situr í Tvífésa og hann ákveður illvirki sín með hlut- kesti. Tvífési er bandbrjálaður og hef- ur sér til fylgilags fjölda meðreiðar- sveina og -meyja sem fylgja honum í blindri hlýðni. Eggið eða hænan? Það sem er svo skemmtilegt við goð- sögur er að maður veit ekki hvort í þeim megi finna raunverulegar fyr- irmyndir, hvort þær séu eins kon- ar samnefnari fyrir manngerðir eða mannlega breyskleika. Eru goðsögur skáldsögur eða eru þær handbæk- ur um lífið og tilveruna? Þar ligg- ur efinn. Hitt er víst að alltaf þegar ég heyri um brjálæðinginn Tvífésa, dettur mér í hug Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins. Með þessu er ég ekki að segja að Bjarni sé bandbrjálaður þótt að b-in séu alltof mörg í þessu samhengi. Það er bara ansi margt líkt með þeim Tvífésa og Bjarna Ben. Ýmislegt sameiginlegt Í fyrsta lagi eru þeir báðir lögfræðing- ar sem hafa skaðast um aldur og ævi vegna starfa sinna. Tvífési fékk á sig gusu af sýru en Bjarni Ben fékk vafn- ing í hausinn. Í báðum tilfellum má segja að skaðinn sé óafturkræfur, því Bjarni Ben losnar ekki undan flækj- unni sem vafði hann inn í stærsta rán Íslandssögunnar þegar hann aðstoð- aði félaga sína og fjölskyldumeðlimi við að ná fjármunum úr bótasjóði stærsta tryggingafélags Íslands. Tví- fési er afmyndaður í framan en ber sig vel. Alveg eins og Bjarni Ben, sem talar sperrtur í baki um siðvæðingu viðskiptalífsins. Svo er það þetta með peningana og að láta auðnu ráða för. Tilviljun eða tækifærismennska? Þegar Geir Haarde gekk af vettvangi stjórnmálanna kom Bjarni Ben und- ir eins fram og sagðist geta leitt Sjálf- stæðisflokkinn á vit ESB. Nokkrum vikum síðar var Bjarni Ben einarður andstæðingur aðildar. Svo mjög að hann var meira að segja á móti því að þjóðin fengi að kjósa um málefn- ið. Þetta mál breyttist úr því að vera bara nokkuð sniðugt yfir í svo mikið óhræsismál að þjóðinni væri engan veginn treystandi til að taka afstöðu til þess. „Hvaða hrun?“ Sama sinnis er frændi Bjarna Ben, Björn Bjarnason, og hinn sjálftöku- og vandræðamaðurinn, Styrmir Gunnarsson. Báðir fulltrúar ónýtrar og þjóðskaðlegrar stjórnmálastefnu en samt með kassann þaninn, með spurnarglampa undir grásprengdum augabrúnunum. „Hvaða hrun ert þú að tala um?“ Bjarnabófarnir og hyski Tvífésa En Bjarni og Tvífési eiga fleira sam- eignlegt. Illyrmislegan hóp jábræðra og fjárpressara sem gera hvað sem er fyrir foringjann. Bófaflokkur Tvífésa er hópur skuggalegra vera sem lítið er vitað um. Meira er vitað um Bjarna- bófana. Þar kennir ýmissa grasa og fer sennilega Guðlaugur Þór fremstur meðal jafningja. Illugi Gunnarsson er þarna líka sem og Ásbjörn Óttarsson, sem fór á svig við skattalög. Tryggvi Þór Herbertsson er úr þessum hópi og kúlulánadrottningin Þorgerður Katr- ín er ekki langt undan. Eini þjófurinn sem hefur náðst og verið gómaður af löggunni er Árni Johnsen. Hann sat inni um hríð en kom sterkur inn aftur. stan lee eða Hómer? Mér hafa alltaf þótt goðsögur heill- andi. Líka nútímagoðsögur eins og sú um Tvífésa. Goðsögur endurspegla nefnilega veruleikann þótt þær séu eftir Stan Lee en ekki úr munnmælum aftan úr grárri forneskju. Bjarni „Two-Face“ 1 RunólfuR og RáðheRRann voRu RóttækiR Í helgarblaði DV var nærmynd af Runólfi Ágústssyni, sem var umboðsmaður skuldara í einn dag. 2 PlayStation-bygging í JaPan vekuR athygli Skrifstofubygging í Osaka í Japan minnir óneitanlega á PlayStation 3-leikjatölvu. 3 tyRkneSkiR flugfReyJuR SendaR í megRun Tyrkneskt flugfélag hefur skikkað flugfreyjur og flugþjóna í megrun, annars verða þau færð í önnur störf. 4 fRamhJáhaldSSkandall idol-StJöRnu Paula Cook sakar Idol-stjörnuna Fantasiu Barrino um að hafa haldið við eiginmann hennar frá því í ágúst í fyrra. 5 tvítuguR PiltuR Stunginn í bakið á dalvík Lögreglan rannsak- ar árás sem átti sér stað á Dalvík um helgina. 6 lady gaga á bRJóStunum í ChiCago Söngkonan Lady Gaga er gjörn á að hneyksla. 7 kúlulánakóngaR glitniS enn víða að StöRfum Af 16 lykilstjórn- endum Glitnis sem fengu milljarða kúlulán eru níu enn í dag við starfandi sem lykilstjórnendur Íslandsbanka. mest lesið á dv.is myndin Hver er maðurinn? „Dalvíkingur í húð og hár og fram- kvæmdastjóri Fiskidagsins mikla.“ Hvað drífur þig áfram? „Ég held að það sé jákvæðnin og bjartsýnin.“ Hvaða þrjú orð lýsa þér best? „Ef ég nota orð annarra, þá er ég jákvæður, ofvirkur og kærleiksríkur.“ Áhugamál? „Það er matseld og allt sem snýr að henni. Hún er helsta áhugamálið.“ uppáhaldsmatur? „Það er fiskur og ég get nefnt að mér þykir rauðspretta mjög góð.“ Hvernig gekk Fiskidagurinn mikli í ár? „Bara hrikalega vel, alveg hreint. Þetta var 10 ára afmæli dagins og samkvæmt starfsmönnum Fiskidagsins var þetta alveg framúrskarandi. Þetta var ólýsanlegt.“ Hvers vegna tókstu að þér að vera framkvæmdastjóri? „Þegar þessi hugmynd kom upp í upphafi var strax leitað til mín. Ég er mjög hrifinn af ögrandi og léttgeggjuð- um hugmyndum og á erfitt með að segja nei við þeim.“ Hvað er skemmtilegast við daginn? „Það er mjög margt, en ef ég á nefna eitt þá er það þetta ótrúlega andrúmsloft sem myndast, og svo mjög margir tala um. Það er kærleiksríkt og rólegt and- rúmsloft sem ríkir í kringum dagskrárliði Fiskidagsins.“ En hvað er erfiðast við Fiskidaginn? „Það er erfiðast að bera þessa ábyrgð á svona stóru dæmi.“ Hvað ertu búinn að borða mikið af fiski um helgina? „Ég er búinn að borða mjög lítið, það er þannig að þegar maður er svona á fullu, þá má maður ekkert vera að því að borða. Ég smakkaði svolítið, en sennilega borðaði ég minnst af öllum á svæðinu, fyrir utan þá sem ekki borða fisk.“ Hvernig sérðu þennan dag fyrir þér eftir fimm ár? „Ég sé hann þróast áfram sem ljúfa fjölskylduhátíð og ég held að eftir fimm ár verði komið jafnvægi á gestafjölda.“ maður dagsins kjallari „Dásamleg!“ RAgnHEiðuR KjARTAnsdóTTiR 26 ÁRA, HóTELSTARFSmAðuR „Jörðin þarf á henni að halda.“ BjARni VAlTÝR guðjónsson 81 ÁRS, kIRkJuORGAnISTI „Ekki góð svona á sumrin.“ TABET MoHAMMEd 24 ÁRA, VEITInGAmAðuR „Hún er góð.“ KRisTjÁn REzMiKoV 24 ÁRA, kOkkuR „Hún kom mér bara á óvart.“ louis Filippo ToRREs MEzA 22 ÁRA, ÞJónn hveRnig finnSt þéR Rigningin? dómstóll götunnar MánUDAGUR 9. ágúst 2010 umræða 19 „ Tvífési fékk á sig gusu af sýru en Bjarni Ben fékk vafning í hausinn.“ TEiTuR ATlAson nemi skrifar Mynd EinAR BjARnAson Borgarstýra Hin virðulega Salbjörg Gnarr, leikin af Jóni Gnarr borgarstjóra Reykjavíkur, stal senunni á Gay Pride um helgina. Mynd/RóBERT REynisson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.