Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Side 20
Strand hjá SÍM
SÍM-ari mánaðarins í ágúst (3. - 31.)
er Heidi Strand. Hún sýnir níu text-
ílmyndverk, unnin með blandaðri
tækni. Heidi lauk listnámi í Þránd-
heimi árið 1978. Hún hefur haldið
25 einkasýningar á Íslandi og á öll-
um Norðurlöndunum og tekið þátt
í 34 samsýningum víða um heim.
SÍM-salurinn er staðsettur í Hafnar-
stræti 16 og er bent á vefsíðuna sim.
is til að nálgast upplýsingar um opn-
unartíma.
KoSSar og
KanSónur
Tríóið Sopranos kemur fram í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
næsta þriðjudagskvöld klukk-
an 20.30. Um er að ræða létta
og skemmtilega sumartónleika,
undir nafinu Kossar og kansónur.
Sopranos-tríóið skipa þær Hörn
Hrafnsdóttir mezzósópran,
Margrét Grétarsdóttir og Svana
Berglind Karlsdóttir sópransöng-
konur ásamt Hólmfríði Sigurðar-
dóttur píanóleikara. Þær flytja
og leika íslenskar og erlend-
ar kossavísur úr ýmsum áttum
sem í glaðværð sinni vega upp á
móti hinum ódauðlegu ítölsku
kansónum sem fjalla um ástir og
örlög. Tónleikarnir spanna allan
tilfinningaskala rómantíkurinnar
– allt frá ástsjúkum ungmennum
til mölbrotinna hjartna: Fyrsti
kossinn, Arrivederci Roma, Il
bacio og fleiri perlur í glænýjum
útsetningum.
danShátÍð á
tveiMur StöðuM
Arctic Lindy Exchange-danshátíðin
verður haldin í annað sinn vikuna
9.-15. ágúst í Reykjavík og á Ísafirði.
Það er gaman að segja frá að Arctic
Lindy er talin fyrsta og eina danshá-
tíðin í heiminum sem er ekki haldin
eingöngu í einni borg heldur gefst
þátttakendum tækifæri til að ferð-
ast með hátíðinni, skoða sig um og
skemmta sér í öðru umhverfi. Því
má segja að hátíðin sé nokkurs kon-
ar farandhátíð. Í ár var ákveðið að
fara til Ísafjarðar.
20 fókus 9. ágúst 2010 mánudagur
artFart Í dag
Hvernig var þinn dagur?
Lifandi stuttmynd. Oft á tíðum koma upp atvik snemma á morgnana sem setja ef til vill allan
daginn úr skorðum.
Hvernig ætla ég að takast á við daginn? Hvernig ætlar áhorfandinn að fara í gegnum minn dag?
Höfundar: Ásta Margrét Jónsdóttir, Kara Hergils og Vala Gestsdóttir.
Sýnt í Útgerðinni.
Sýningartímar: 9. ágúst kl. 21.00, 10. ágúst kl 21.00
verð: 1.200 krónur
hvað heitir lagið?
„Hey you with the pretty
face, welcome to the human
race.“
Svar: The elecTric lighT OrchesTra (elO) - Mr. Blue sky.
FöStudagur 13. ágÚSt
Silfurtorg Ísafirði
Kl. 15.00.
JOHNNY SLÆR Í GEGN - TRÚÐLEIKUR
Leikari, höfundur, búningar: Ársæll
Níelsson
Leikstjórn: Ole Brekke
austurvöllur Ísafirði
Kl. 17.00
HUGLEIÐINGAR Á AUSTURVELLI
Austurvöllur, garðurinn við hliðina á
sundhöllinni
Hörður Torfa
edinborgarhúsið Ísafirði
Kl. 20.00
LONG, LONG AGO....
Leikari: Makka Kleist
Leikstjórn: Svenn B. Syrin
Silamiut-leikhúsið á Grænlandi
edinborgarhúsið Ísafirði
Kl. 22.00
I‘M A COP
Leikari, höfundur, leikstjórn: Smári
Gunnarsson
Laugardagur 14. ágÚSt
við pollinn Ísafirði
Kl. 12.09
KRAPP, SVÍNASTEIK OG PÍKUSÖGUR
Brönsleikhús Við pollinn Ísafirði
Flytjendur: Leynigestir
edinborgarhúsið
Kl. 15.00
LUZ
Dansari: Henna Riikka Nurmi
edinborgarhúsið
Kl. 17.00
HETJA
Leikari: Kári Viðarsson
Höfundar, leikmynd/búningar: Kári
Viðarsson og Víkingur Kristjánsson
Leikstjórn: Víkingur Kristjánsson
Frystiklefinn, Snæfellsbæ
edinborgarhúsið
Kl. 20.00
VÖLUSPÁ
Leikari: Pétur Eggerz
Tónleikari: Birgir Bragason
Höfundur: Þórarinn Eldjárn
Leikmynd/búningar: Anette Werenskiold
Leikstjórn: Peter Holst
Möguleikhúsið
edinborgarhúsið
Kl. 22.00
PÓLITÍK
Leikari: Davíð Þór Jónsson
Höfundar: Davíð Þór Jónsson, Ricky
Gervais
Sunnudagur 15. ágÚSt
gíslastaðir Haukadal í dýrafirði
Kl. 15.00
SKÚLI MENNSKI
Flytjandi: Skúli Þórðarson
Leiklistarhátíðin Act
alone hefst um næstu
helgi á Ísafirði:
EinlEikir
leiklistarhátíðin Act alone hefst formlega á Ísafirði um næstu helgi. Síðustu árin hefur Ísafjörður sinnt ein-
leiknum á einleikin hátt með því að
halda sérstaka leiklistarhátíð helg-
aða einleik sem heitir einfaldlega
Act alone. Nú er enn á ný blásið í
einleikslúðrana í einleiksbænum og
sjöunda Act alone-hátíðin er hand-
an við hornið. Í gegnum árin hafa
fjölmargir innlendir og erlendir ein-
leikarar sýnt listir sínar á hátíðinni
en hátt í níutíu sýningar hafa ver-
ið sýndar á Act alone til þessa. Það
kennir margra grasa á Act alone í ár
og er óhætt að segja að fjölbreyti-
leiki formsins sé í aðalhlutverki.
Trúðleikur, uppistand, dans, söng-
ur, eins manns leikrit og allt þar
á milli. Meðal sýninga má nefna
Hetju, Völuspá, Pólitík og sérstaka
gestasýningu frá Silamiut-leikhús-
inu á Grænlandi, Long, Long Ago....
Sýningarstaðir Act alone verða bæði
úti og inni. Leikurinn hefst á Silfur-
torgi í hjarta Ísafjarðar með trúðs-
leik fyrir alla fjölskylduna. Eftir það
verður skundað á Austurvöll á Ísa-
firði og þaðan liggur svo leiðin í Ed-
inborgarhúsið þar sem leikurinn
hefst með sérstakri gestasýningu
frá Grænlandi. Einnig verður boð-
ið upp á Brönsleikhús á veitinga-
staðnum Við pollinn á Ísafirði og á
sunnudag lýkur hátíðinni með eins
manns tónleikum á Gíslastöðum í
Haukadal í Dýrafirði. Það ættu allir
að geta fundið sér eitthvað við hæfi
á Act alone. Dagskrá Act alone er að
finna á heimasíðunni actalone.net
en þar má einnig finna allar upplýs-
ingar um hátíðina frá upphafi sem
og ýmiss konar fróðleik um einleiks-
formið. Það er Elfar Logi Hannesson
sem er listrænn stjórnandi Act alone
en stjórn hátíðarinnar skipa Jón Páll
Hreinsson, Jón Viðar Jónsson, Mars-
ibil G. Kristjánsdóttir og Rebekka A.
Ingimundardóttir.
í aðalhlutverki
dagskrá act alonE 2010
elfar Logi Hannesson
Listrænn stjórnandi Act alone.
Makka Kleist Græn-
lenskur leikhúsfrömuður
mætir á hátíðina.