Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Page 2
2 fréttir 10. nóvember 2010 miðvikudagur
Skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu
leitaði til stjórnenda Milestone, Baugs
og Sjóvár eftir aðstoð við einkavæðing-
arstefnu ríkisstjórnarinnar árin 2005 og
2006. Drög að stefnunni gengu á milli í
mörgum tölvupóstum. Milestone, Sjóvá og
Baugur voru öll hagsmunaaðilar og höfðu
áhuga á að taka við rekstri sem áður
hafði verið á hendi ríkisins, meðal annars
breikkun Suðurlandsvegar. Rannsóknar-
nefnd Alþingis gagnrýnir samkrull stjórn-
mála og viðskiptalífs í skýrslu sinni.
BÁÐU ÚTRÁSARMENN UM
RÁÐ UM EINKAVÆÐINGU
Fjármálaráðuneytið leitaði til ís-
lenskra útrásarmanna eftir ráðgjöf
um markaðsvæðingu ríkisrekstrar á
árunum 2005 og 2006. Þetta kemur
fram í tölvupóstum frá skrifstofustjóra
í ráðuneytinu sem DV hefur und-
ir höndum. Árni M. Mathiesen var
fjármálaráðherra á þessum tíma og
báru samskiptin yfirskriftina „útvist-
un“. Með orðinu útvistun var átt við
að hugmyndir ráðuneytisins snérust
um að færa ríkisrekstur frá hinu opin-
bera og til einkaaðila, kaupa þjónustu
af einkareknum fyrirtækjum frekar en
að ríkið sæi um hana sjálft. Segja má
að beiðni ráðuneytisins um aðstoð við
útvistunartillögurnar hafi einnig falið í
sér útvistun á vinnu þess til einkaað-
ila.
Beiðnin um aðstoð við „markaðs-
væðingu ríkisrekstrar“, eins og það
var orðað, kom frá skrifstofustjóra á
fjárreiðu- og eignaskrifstofu fjármála-
ráðuneytisins, Þórhalli Arasyni, og
voru tölvupóstarnir sendir til Skarp-
héðins Bergs Steinarssonar, fram-
kvæmdastjóra hjá Baugi, Guðmundar
Ólasonar, forstjóra Milestone, og Þórs
Sigfússonar, forstjóra Sjóvár. Bæði
Skarphéðinn og Guðmundur höfðu
verið starfsmenn fjármálaráðuneytis-
ins og einkavæðingarnefndar á árun-
um þarna á undan og Þór hafði verið
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Allir
höfðu því einhverja reynslu, og vænt-
anlega einhverjar skoðanir, á mark-
aðsvæðingu ríkisrekstrar.
Aðstoð hagsmunaaðila
Einn af tölvupóstum Þórhalls til Guð-
mundar, Þórs og Skarphéðins er dag-
settur 27. janúar 2006 en með hon-
um sendi skrifstofustjórinn skjal með
hugmyndum um útvistunarstefnu
ríkisins. Þar segir Þórhallur: „Sælir
félagar. Þá er komið að þið viðskipta-
jöfrarnir leggið okkur skriffinnun-
um lið í markaðsvæðingu ríkisrekstr-
ar. Gott væri að þið gæfuð ykkur tíma
í að lesa þetta plagg yfir og gefa mér
ábendingar. Sumir ykkar hafa fengið
þetta á fyrri stigum og er kannske far-
ið að leiðast þetta en nú er komið að
því að við þurfum að fara að setja
punktinn yfir i-ið og koma þessu í
framkvæmd. Svo erum við Arnar
að vinna í minnisblaði um endur-
reisn nýskipunar, hugsanlega und-
ir heitinu „einfaldari ríkisrekstur“, og
væri gott að eiga ykkur að í því máli.“
Ein af forsendunum fyrir þeim til-
lögum um útvistun sem lagðar voru
fram í skjalinu var að henni væri ætlað
að „… auka skilvirkni í rekstri ríkisins
með því að innleiða samkeppni við
veitingu þjónustu.“ Með þessari út-
vistun átti að draga úr kostnaði ríkis-
ins við kaup og veitingu þjónustu með
því að koma henni í hendur einka-
aðila. Í skjalinu kom fram að mark-
mið ríkisins með aukningu á útvist-
un á þessum tíma hafi verið að ná 500
milljóna króna sparnaði árlega, eða
2 milljarða sparnaði á árunum 2006–
2009, með því að bjóða þjónustu út til
einkafyrirtækja.
Athygli vekur að þeir sem fengu
tillögurnar um útvistunina til skoð-
unar voru hagsmunaaðilar í málinu
í þeim skilningi að þeir voru stjórn-
endur hjá þremur stórum og umsvifa-
miklum fyrirtækjum á markaði, Sjóvá,
Baugi og Milestone. Þeir Guðmundur
og Skarphéðinn voru því að veita rík-
inu ráðgjöf um tillögur sem gátu kom-
ið sér vel fyrir þá og þeirra fyrirtæki ef
ríkið hefði keypt af þeim tiltekna þjón-
ustu eftir útboð.
Þessi útvistunar-
stefna ríkisins sem
Þór, Guðmundur
og Skarphéðinn
höfðu veitt ráð-
leggingar um
var svo sam-
þykkt af ríkis-
stjórn Íslands
sumarið 2006 og
er hún aðgengileg
á netinu í sinni
endanlegu
mynd.
Sóttust eftir samstarfi við ríkið
Sú staðreynd að þessi fyrirtæki sem
Þór, Guðmundur og Skarphéðinn
unnu hjá voru hagsmunaaðilar sést
meðal annars á því að í febrúar 2006
byrjaði Þór, sem þáverandi forstjóri
Sjóvár, að viðra þær hugmyndir við
Kal Wernersson, aðaleiganda Mile-
stone og Sjóvár, og Guðmund, for-
stjóra Milestone, að eignarhaldsfé-
lagið tæki upp samstarf við ríkið um
breikkun Suðurlandsvegar. „Sjóvá
gæti óskað eftir viðræðum við stjórn-
völd um að eiga og reka breikkaðan
Suðurlandsveg og ríkið greiddi Sjóvá
(sérstöku félagi í eigu Sjóvár, Baugs
o.fl.) fyrir hverja bifreið sem ekur um
veginn,“ sagði Þór í tölvupósti til Karls
og Guðmundar. Þessi hugmynd Þórs,
sem sjálfur hafði veitt fjármálaráðu-
neytinu ráðgjöf um útvistunarstefn-
una, var dæmi um útvistun þar sem
hún gekk út á að færa byggingu og
rekstur á akvegi frá íslenska ríkinu til
einkaaðila.
Viðhorf Karls til hugmynda um
aðkomu Milestone að þjónustu sem
þangað til hafði verið á hendi ríkis-
ins sést ágætlega í svari Karls til Þórs:
„Fram til þessa hef ég að mestu verið
að gæla við [að] koma ríkisvaldinu til
bjargar hvað varðar umönnun okk-
ar eldri borgara með byggingu elli-
heimila á borð við Sóltúnið, en hvers
vegna ekki að laga til í samgöngum,
þar er einnig allt í klessu hjá ríkinu,
enda þarf varla að spyrja hvaða flokk-
ur ræður ríkjum (ríð-
ur rækjum) í þessu
ráðuneyti.“
Talsvert var rætt
um þessar hug-
myndir Þórs um
breikkun Suður-
landsvegar á fyrri
hluta árs 2006 en
á endanum varð
ekkert úr því að
Sjóvá kæmi að
byggingu vegar-
ins. Hugur þeirra
stóð þó til þess enda
taldi Þór að bygging
vegarins gæti ver-
ið „góður bissniss“
fyrir Sjóvá. Þeir
einkaaðilar sem
komu að því að
ráðleggja ríkisvaldinu um útvistunar-
stefnuna voru því augljóslega með-
al þeirra sem ætluðu sér að hagnast
á aukinni útvistun og einkavæðingu
á þjónustu sem hafði verið opinber
þangað til.
Ekkert bendir til aðkomu
ráðherranna
Heimildir DV innan úr stjórnkerfinu
benda til að starfsmenn ráðuneyta
leiti almennt séð ekki eftir utanað-
komandi ráðgjöf í tilteknum málum
nema með formlegum hætti og þá
oftast með vitneskju ráðherra. Mjög
sjaldgæft mun vera að starfsmenn
ráðuneyti leiti að eigin frumkvæði til
utanaðkomandi aðila, eða hagsmuna-
aðila, eftir ráðgjöf eða aðstoð við þá
stefnumótunarvinnu sem unnin er í
ráðuneytunum.
Ekkert í tölvupóstunum frá Þórhalli
bendir til að Árni Mathiesen hafi beð-
ið um að haft yrði samband við þessa
einstaklinga til að fá skoðanir þeirra á
útvistunarstefnunni. Beiðni Þórhalls
til þeirra Guðmundar, Skarphéðins
og Þórs virðist hafa verið óformleg og
byggð á persónulegum tengslum enda
höfðu Guðmundur og Skarphéðinn
unnið í ráðuneytinu áður en þeir urðu
stjórnendur hjá Milestone og Baugi.
ingi f. vilhjálmSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Þá er komið [að því] að þið við-
skiptajöfrarnir leggið
okkur skriffinnunum lið
í markaðsvæðingu ríkis-
rekstrar.
Ráðlögðu fjármálaráðneytinu Skarphéðinn
BergSteinarsson,GuðmundurÓlasonogÞór
Sigfússongáfufjármálaráðuneytinuráðum
markaðsvæðinguríkisrekstrarárin2005og2006.
Tölvupóstsamskiptimilliþeirraográðuneytisins
sýnahugsanlegahversumikilafskiptiíslenskirvið-
skiptamenngátuhaftafopinberristefnumörkun.
áhugasamur Árni
Mathiesenfjármála-
ráðherravarmjög
áhugasamurum
útvistunarstefnuna
semmiðaðiaðþvíað
komaþjónusturíkis-
insyfirtileinkaðila.
TölvupóSTuR um úTiviSTunAR-
STEfnunA fRá ÞóRhAlli Til
guðmundAR og ÞóRS fRá Því í
nóvEmbER 2005:
„Sælirbræður
Þaðerbúiðaðveraerfiðfæðingáþessu
oghefurgengiðerfiðlegaaðfinnaform
semgætivirkjaðhvetjandioghöfðað
tilmanna.Endaðiáaðnotauppleggiðí
gömluinnkaupastefnunni.Annaðsem
hefurvafistfyrirokkureraðráðuneyt-
isstjórinnhefurhaftþaðsjónarmið
aðþettaséueiginlegatvöverkefn.
Annarsvegaraðstyrkjastöðuríkisins
semkaupandaoghinsvegaraðauka
útvistun.Einhvernveginnhefégekki
falliðfyrirþeirrihugmyndenuppleggið
hefurþóaðeinhvertjuleititekiðmiðaf
því.Núvilégbiðjaykkurumaðlítayfir
þettaoggefaokkurábendingar.Fjár-
málaráðherraermjögáhugasamurum
þettaverkefniogtókþaðtilsérstakrar
umfjöllunaráinnkauparáðstefnunnií
vikunni.
KveðjaÞórhallur
PS.ÞaðtókGuðmundtværvikuraðlesa
þettasíðastenÞórgerðiþaðátveimur
dögum.“
TölvupóSTuR fRá ÞóR Til
ÞóRhAllS ÞAR SEm hAnn
SvARAR honum um úTviSTunAR-
STEfnunA:
„Sælir,
Mérfinnstefniðbýsnagottogáhuga-
vertoguppröðuningóð.Stundumer
þettadálítiðleiðinlegaskrifað,með
nafnorðaflaumeða„útboðrekstrarþjón-
ustuorð“ensamtertextinnauðlesinn
aðmestuognokkuðgagnorður.
Tilhamingjumeðþetta
kveðja
Þór“
TölvupóSTuR fRá KARli
Til ÞóRS um bREiKKun
SuðuRlAndSvEgAR:
„SællÞór
Þettaerathyglisverðhugmynd.
Framtilþessahefégaðmestuveriðað
gælaviðkomaríkisvaldinutilbjargar
hvaðvarðarumönnunokkareldri
borgarameðbygginguelliheimilaá
borðviðSóltúnið,enhversvegnaekki
aðlagatilísamgöngum,þarereinnig
alltíklessuhjáríkinu,endaþarfvarlaað
spyrjahvaðaflokkurræðurríkjum(ríður
rækjum)íþessuráðuneyti.
Enendilegaaðkíkla/kýlaámálið.
Égstyðþettafullkomlega.
Kv
KW“
SKilgREining á úTviSTun úR
SKjAli RáðunEyTiSinS:
„Súþjónustasemríkiðákveðurað
kaupaafaðilumutanríkisins–hvort
semumeraðræðaeinstaklinga,fyrir-
tæki,sjálfseignastofnanir,félagasamtök
eðasveitarfélög–frekarenaðsinna
hennisjálftmeðeiginmannafla.Þettaá
bæðiviðþjónustusemríkiðsemurum
aðkaupaafaðilumutanríkisinsvegna
eiginnotaeðafelurþeimaðveita
almenningi.“
tölvupóstar