Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Page 4
4 FRÉTTIR 10. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR Spjalla í síma án bílbeltis Einn af hverjum tíu ökumönnum talar í farsíma án handfrjáls bún- aðar og svipað margir nota ekki bílbelti samkvæmt könnunum sem tryggingafélagið VÍS gerði í október. Kannaðir voru 26.186 bílar og voru 8,5 prósent ökumanna án bílbeltis, eða 2.221. Níu prósent töl- uðu í síma án handfrjáls búnaðar, eða 2.298 ökumenn. Fylgst var með umferðinni tvisv- ar í október á fyrir fram ákveðnum stöðum við stofnbrautir og þeir bílar taldir sem sjá mátti með vissu hver bílbeltanotkun var og hvort ökumaður var að tala í GSM-síma án handfrjáls búnaðar eða ekki. Hersetusafn á Suðurnesin Flutningur Landhelgisgæslunnar á Miðnesheiði og nýtt safn um hersetu Bandaríkjahers á Íslandi er með- al þess sem á að gera til að byggja upp atvinnu á Reykjanesi. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem ríkisstjórnin hélt í Víkingaheimum í Reykjanesbæ á þriðjudagsmorg- un eftir ríkisstjórnarfund sem þar fór fram. Þá stendur til að koma á fót útibúi umboðsmanns skuldara á Suðurnesjum. Safnið sem um ræðir verður sett upp á Keflavíkurflugvelli og verður unnið í samvinnu við andstæðinga hersins og stuðningsmenn. Þetta er í fyrsta skipti sem ríkisstjórnin fund- ar á Suðurnesjum en Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir sögðu að stefnt yrði að því að halda fleiri slíka fundi á landsbyggðinni. DV.is opnaði á þriðjudag sérstakan stjórnlagaþingsvef þar sem kjósend- ur geta nálgast allar nauðsynlegar upplýsingar um þá 523 einstaklinga sem eru í framboði til stjórnlaga- þings. Á vefnum mun frambjóðend- um gefast kostur á að kynna sig fyrir þjóðinni auk þess sem þar verður að finna svör frambjóðenda við spurn- ingum DV um helstu álitamál stjórn- arskrárinnar. Þá geta allir frambjóð- endur skrifað pistla um stefnumál sín og þá má einnig lesa stutta kynn- ingu um hvern og einn; starfsfer- il, aldur og hvers vegna viðkomandi býður sig fram til setu á stjórnlaga- þingi. Vefurinn hlaut góðar viðtökur um leið og hann var opnaður á þriðjudag og höfðu þúsundir notenda skoðað hann. Vefnum er ætlað að verða lif- andi vettvangur umræðu þar sem lesendur síðunnar geta lagt fram fyr- irspurnir til frambjóðenda, eða kom- ið skoðunum sínum á framfæri með Facebook-athugasemdakerfi DV.is. Nú þegar hafa fjölmargir áhugaverð- ir pistlar birst á vefnum en þeim mun fjölga ört á næstu dögum og vikum. Í dag, miðvikudag, geta kjósendur tekið sömu könnun og DV lagði fyr- ir frambjóðendur til stjórnlagaþings. Út frá niðurstöðum hennar geta þeir fundið út með hvaða frambjóðend- um þeir eiga málefnalega samleið. Kosið verður til stjórnlagaþings þann 27. nóvember næstkom- andi. Stjórnlagaþingið kemur sam- an í febrúar á næsta ári og mun það standa í tvo til fjóra mánuði. Þingið verður skipað minnst 25 og mest 31 þjóðkjörnum fulltrúa. DV opnar vef um frambjóðendur til stjórnlagaþings: Allt á einum stað Allar upplýsingar DV.is hefur opnað vef um stjórnlagaþing þar sem hægt er að nálgast allar nauðsynlegar upplýsingar um frambjóðendur. Sökuð um fjársvik Héraðsdómur Westchester-sýslu í New York-ríki í Bandaríkjunum hefur ákært íslenska konu, Helgu Ingvars- dóttur, dóttur Ingvars Karlssonar heildsala og umsvifamikils athafna- manns, og bandarískan kærasta hennar, Vickram Bedi, fyrir stórfelldan þjófnað. Er þeim gefið að sök að hafa í gegnum tölvufyrirtæki mannsins, Datalink Computer Services, kúgað fé úr fórnarlambi sínu á sex ára tímabili. Upphæðin nemur sex milljónum dala. Fórnarlambið, Roger C. Davidson, er þekktur píanóleikari og tónskáld. Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Rakatæki frá AIR-O-SWISS • Auka gæði loftsins • Hljóðlát og sparneytin • Auðveld í notkun • Fást einnig í hvítum lit Hefur hlotið reddot hönnunarverðlaunin Eitt af því sem Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri í Lands- bankanum, fæst við í ráðgjafarstörf- um sínum um þessar mundir er að vera milliliður í leigu á erlendum skuldabréfum til innlendra og er- lendra aðila, samkvæmt heimild- um DV. Skuldabréfin eru síðan oft notuð til að fá lán í erlendum bönk- um, eins og til dæmis Deutsche Bank, Barclays, City Bank eða öðr- um slíkum fyrirtækjum. Um er að ræða skuldabréf sem kallast „med- ium term notes“ sem eru yfirleitt til fimm eða tíu ára. Eitt þekktasta skuldabréfaútboð liðinna ára í ís- lensku viðskiptalífi, útboð Glitnis í New York árið 2007 þar sem safn- aðist einn milljarður dollara, var út- boð á slíkum bréfum. Í tilfelli Sigurjóns mun með- al annars vera um að ræða ítalska skuldabréfaeigendur sem íslensk- ir og erlendir aðilar leigja bréfin af. Sigurjón tekur síðan ákveðna þóknun fyrir að vera milliliður í viðskiptunum á milli fjárfestanna og skuldabréfaeigandanna og veita ráðleggingar um hvernig beri að stunda þau. Líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum heldur Sigurjón úti skrifstofu á Skúlagötu 19 en lít- ið hefur frést af því við hvað hann fæst þar. Lán á móti leigðu bréfi Sérfræðingur á fjármálamarkaði sem þekkir til slíkra viðskipta segir að þau gangi fyrir sig á eftirfarandi hátt: „Þú leigir aðgang að erlendum skuldabréfum frá þessum skulda- bréfasöfnurum. Þeir halda áfram á skuldabréfunum og fá þannig sína vexti af þeim áfram en þeir skuld- binda sig til að selja þau ekki. Á móti gefa þeir SWIFT-staðfestingu á því til annars fjármálafyrirtækis að peningarnir séu til staðar. Á móti þessari staðfestingu gefur fjármála- fyrirtækið út bankaábyrgð út á þessi skuldabréf og leigjandi skuldabréf- anna getur fengið lánað út á þau.“ Fyrir leiguna á skuldabréfun- um borgar leigjandinn sem svar- ar nokkrum prósentum af heildar- verðmæti skuldabréfanna, yfirleitt um tíu prósent fyrir fimm ára leigu og svo minna eftir því sem leigu- tíminn styttist. „Tryggingarnar fyrir láninu eru sem sagt leigðu skulda- bréfin sem lántakandinn á ekki en staðfestingin frá raunverulegum eiganda skuldabréfanna sýnir fram á að peningarnir eru fyrir hendi... Leigjandi skuldabréfanna fær svo lán sem nemur 70 til 90 prósent- um af verðmæti skuldabréfanna en borgar bara tíu prósent í leigu,“ segir sérfræðingurinn. Ef íslenskur fjárfestir vill til dæm- is fá 700 milljónir að láni í erlendum banka getur hann greitt erlendum skuldabréfaeiganda um 100 millj- ónir króna fyrir fimm ára leigu á skuldabréfum sem samsvara millj- arði króna. Skuldabréfin eru svo veð hans fyrir láninu frá erlenda bank- anum. Lánið frá erlenda aðilanum getur viðkomandi svo notað til fjár- festinga eða einhvers annars. Íslensku bankarnir hættu að veita slík lán Ef viðskiptin sem leigjandi bréf- anna fjármagnar með láninu ganga upp og skila hagnaði gerir hann lánið við erlenda fjármálafyrirtæk- ið upp í lok lánstímans og stendur kannski eftir með einhvern hagnað og enginn þarf að komast að því að fjármögnunin hafi verið fengin út á leigt skuldabréf. „Flestir sem nota þessa fjármögnunarleið eru heiðar- legir og nota þetta sem skammtíma- lausn til að fjármagna sig. Ef fjár- festing þeirra gengur upp gera þeir lánið upp í lok lánstímans. Það er eingöngu þegar illa gengur hjá leigj- andanum sem lánið getur fallið á bankann eða tryggingarfélag hans.“ Bankar og stór fjármálafyrirtæki geta sömuleiðis notað þessa að- ferð sem fjármögnunarleið: Leigt skuldabréf og fengið lán fyrir þau hjá erlendum aðilum. Þá er áhætt- an af viðskiptunum vitanlega meiri og eignasafn bankans lítur út fyrir að vera miklu burðugra en það er í raun og veru. Efnahagsreikningur- inn getur verið óraunhæfur vegna leigðu skuldabréfanna. Fjármunirn- ir á bak við skuldabréf upp á milljarð eru í raun og veru aðeins 100 millj- óna leigugjald til eiganda skulda- bréfsins. Ef bankinn hrynur mun skellurinn af lánaviðskiptunum vegna leigðu skuldabréfanna lenda á bankanum sem lánaði fjármunina út á þessi bréf. Íslensku viðskiptabankarnir þrír, Íslandsbanki, Arion banki og Landsbankinn, veita ekki lengur lán út á erlend skuldabréf, samkvæmt heimildum DV. Þetta var gert í ís- lensku bönkunum fyrir hrun en hef- ur ekki verið gert eftir hrun enda getur hættan af þess konar viðskipt- um verið nokkur, eins og sést. DV náði ekki í Sigurjón Árnason á þriðjudag til að ræða við hann um viðskiptin og ráðgjafarstörf hans. Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri í Landsbankanum, veitir fjárfestum ráð- gjöf um leigu á erlendum skuldabréfum. Bréfin eru notuð til að tryggja þeim lánafyr- irgreiðslu í erlendum bönkum. Leigjandi skuldabréfanna greiðir leigu af bréfunum. Íslensku bankarnir veita ekki lengur lán út á erlend skuldabréf. SIGURJÓN GEFUR RÁÐ UM SKULDABRÉFALEIGU INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Leigjandi skuldabréf- anna fær svo lán sem nemur 70 til 90 prósentum af verðmæti skulda- bréfanna en borg- ar bara tíu prósent í leigu. Skuldabréfaráðgjafi Sigurjón Árnason vinnur við það um þessar mundir að veita innlendum og erlendum aðilum ráðgjöf um leigu á erlendum skuldabréfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.