Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Side 8
8 FRÉTTIR 10. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR
KARLREMBUR VERÐA
LÍKA FYRIR OFBELDI
Á þeim tveimur mánuðum sem liðn-
ir eru frá opnun Drekaslóðar, þjón-
ustumiðstöðvar fyrir þolendur of-
beldis, hafa yfir 100 einstaklingar
leitað sér aðstoðar þar. Þar af hefur
hlutur karla verið hærri en áður hef-
ur þekkst hjá sambærilegum sam-
tökum, en karlar voru 23 prósent
þeirra sem leituðu til Drekaslóðar á
síðustu mánuðum.
Thelma Ásdísardóttir, sem er í for-
svari fyrir Drekaslóð, segist taka þess-
um upplýsingum fagnandi. „Þetta
eru ótrúlegar tölur. Ef við berum þær
til dæmis saman við komutölur karla
á Stígamótum þá eru þeir 8–11 pró-
sent af þeim sem þangað leita. Lang-
flestir þessara manna koma vegna
eigin mála, ofbeldismála og kynferð-
isbrotamála en einnig vegna ofbeldis
á heimilum og einelti. Hér er nefni-
lega unnið úr afleiðingum alls kyns
ofbeldis, ekki bara kynferðislegs of-
beldis. Kannski finnst karlmönnum
þá auðveldara að koma til okkar og
kannski hefur það haft áhrif að við
lögðum áherslu á það í Kastljósinu
að þetta væri þjónusta sem væri ætl-
uð fyrir bæði kynin. En auðvitað er
um stuttan tíma að ræða, þannig að
ég þori ekki alveg að negla neitt nið-
ur. En svo virðist sem karlar leiti sér
í auknum mæli aðstoðar vegna of-
beldis sem þeir hafa verið beittir.“
Langflestir koma aftur
Ráðgjafahópurinn á Drekaslóð er
breiður. „Ég ætlaði upphaflega að
vera hér ein en það sprakk fljótlega
og nú höfum við kallað inn gestaráð-
gjafa sem hefur fjölþætta reynslu af
ofbeldi. Hér eru ráðgjafar sem þekkja
það að hafa verið útskúfað af fjöl-
skyldunni fyrir að segja frá kynferð-
isbrotum, ráðgjafar sem þekkja það
hvernig það er að verða fyrir einelti
og svona alls konar. Hér er líka karl
sem kemur inn einu sinni í mánuði
og veitir ráðgjöf. Hann er alltaf full-
bókaður og hingað til hafa bara karl-
ar verið í viðtölum hjá honum. Aðrir
karlar vilja aftur á móti frekar tala við
konu og þá er þeim það frjálst. Flestir
sem hingað koma eru að opna á ný
mál, þótt einhverjir hafi leitað ann-
að áður. Og langflestir þeirra ákveða
að koma aftur, þannig að við erum
að sjá sama fólk aftur og aftur. Eins
er mikil ásókn í hópastarfið okkar en
það er að komast af stað núna. Þeir
sem hafa sótt hópastarf eða nám-
skeið á okkar vegum eru ekki inni í
þessum tölum.“
Á ekki að vera kvennabarátta
Hún segir að nú sé kominn tími til
að taka umræðuna um kynferðislegt
ofbeldi úr samhengi við kvennabar-
áttuna. „Hingað til hefur umræðan
um kynferðislegt ofbeldi alltaf verið
samofin kvennabaráttunni. Ég styð
það alveg og það var þarft á sínum
tíma. Núna er aftur á móti kominn
tími til að halda áfram og gera þetta
að baráttu beggja kynja. Nú er þekkt
að tíundi hver strákur á Íslandi verð-
ur fyrir kynferðislegu ofbeldi fyrir 18
ára aldur. Við vitum að karlar verða
fyrir margvíslegu ofbeldi. Þeim er
nauðgað og þeir eru misnotaðir. En
hvaða áhrif hefur það á þá að um-
ræðan sé alltaf tengd kvennabarátt-
unni? Getur karlmaður sem lenti í
nauðgun en er kannski svolítil karl-
remba leitað sér aðstoðar? Fram
til þessa hefur ekki mátt tala um
ákveðin mál. Við viljum að það sé
pláss til þess að ræða öll mál.“
Telur kvenkynsgerendur fleiri
Eitt af því sem hún vill skoða frekar
er hlutfall kvenkynsgeranda. „Þær
rannsóknir sem við byggjum á voru
allar unnar út frá kvennabaráttunni.
Það er spurning hvort að þær nái
utan um heildarmyndina. Ég myndi
vilja skoða það frekar. Mín tilfinning
er sú að kvenkynsgerendur séu fleiri
en við teljum. Á þeim árum sem
ég hef starfað sem ráðgjafi hef ég
oft orðið vitni að því að fólk kemur
fyrst vegna ofbeldis sem karl beitti
það en þegar kafað er dýpra kem-
ur í ljós að fólk á líka sögu af kven-
kynsgeranda. Kannski mömmu sem
beitti það ofbeldi eða barnapíu sem
misnotaði það. Ofbeldismál eru svo
margvísleg. Fólk á ekki að þurfa að
upplifa það þannig að það geti ekki
leitað sér aðstoðar ef gerandinn var
kona."
INGIBJÖRG DÖGG KJARTANSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is
Svo virðist sem karlar leiti sér í
auknum mæli aðstoðar
vegna ofbeldis sem þeir
hafa verið beittir.
Ef marka má komutölur Drekaslóðar virðast karlar vera að leita sér aðstoðar vegna
afleiðinga ofbeldis í auknum mæli. Thelma Ásdísardóttir segir tímabært að taka bar-
áttuna gegn kynferðisofbeldi frá kvennabaráttunni. Þetta eigi að vera sameiginleg
barátta beggja kynja.
Systurnar í Drekaslóð Thelma og Ruth Ásdísardætur
standa að baki Drekaslóð, þjónustumiðstöðvar fyrir
þolendur hvers kyns ofbeldis. Tveir mánuðir eru liðnir frá
opnun Drekaslóðar og hefur aðsóknin verið gífurleg. Svo
virðist sem karlar sæki sér aðstoðar í auknum mæli.
Kona á sextugsaldri hefur verið dæmd
í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa
dregið sér samtals 386.276 kr. af sam-
eiginlegum bankareikningi vistmanna
á vernduðu heimili fyrir geðfatlaða
á vegum Reykjavíkurborgar. Hún var
dæmd til að borga Reykjavíkurborg
386.276 kr. með vöxtum og vaxtavöxt-
um ásamt 100.000 kr. í málskostnað en
einnig fékk hún þriggja mánaða skil-
orðsbundinn dóm til tveggja ára.
Konan var starfsmaður á vernd-
uðu heimili að Krummahólum 8 þar
sem fjórir geðfatlaðir menn bjuggu
og lögðu þeir fé í sameiginlegan sjóð
sem nota átti til að kaupa nauðsynj-
ar til heimilisins. Var það í verkahring
hennar að kaupa mat og aðra nauð-
synjavöru inn á heimilið einu sinni í
viku og hafði hún því aðgang að sam-
eiginlegum reikningi vistmanna.
Sumarið 2005 óskaði félagsráðgjafi
eftir því að hún yrði leyst frá störfum
vegna gruns um fjárdrátt og í fram-
haldinu funduðu starfsmenn kær-
anda með ákærðu til að gefa henni
kost á að skýra málið. Í kærubréfinu
segir um þennan fund: „Kærða við-
urkenndi á fundinum að hafa „feng-
ið lánað“ fé með úttektum úr hrað-
banka. Aðspurð um ýmsar, sýnilega
óheimilar úttektir sagðist hún hafa
„farið kortavillt“ í veski sínu. Hún
sagðist jafnframt hafa greitt til baka
í formi innkaupa sem hún hefði sjálf
greitt fyrir. Engin gögn finnast um
slíkar endurgreiðslur. Hún segist enn
fremur hafa hent bókhaldsgögnum
fyrri ára.“ Í framhaldinu var hún leyst
fyrirvaralaust frá störfum.
Yfirlit yfir færslur kortsins sýna
meðal annars að konan notaði kortið
fimm sinnum á sama kvöldi á Nikkab-
ar en hver færsla þar nam 600 krón-
um. Einnig sýna nokkrar færslur með-
al annars útektir á Fjörukránni, Kaffi
Reykjavík, Ýr hárgreiðslustofu, Nönu
snyrtivöruverslun, McDonalds, Play-
ers sportklúbbi og Toppmyndum.
hanna@dv.is
Skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt:
Stal fé frá geðfötluðum
Héraðsdómur Reykjavíkur Kona var
dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að stela fé af geðfötluðum.
Þrjú til fjögur
sjálfsvíg á mánuði
Þrír til fjórir svipta sig lífi í hverjum
mánuði á Íslandi samkvæmt upp-
lýsingum frá landlæknisembætt-
inu. Þetta kemur fram í tilkynningu
sem Ný dögun, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, sendu frá sér en á
fimmtudagskvöld mun séra Svavar
Stefánsson fjalla um sorg eftir sjálfs-
víg. Sjálfsvíg á Íslandi eru um 12,8
á hverja hundrað þúsund íbúa en
þessi tala sveiflast mikið milli ára.
Er hér um að ræða nokkurra ára
meðaltal. Er þetta mun meiri fjöldi
en ferst í umferðarslysum á Íslandi.
Samverustundin, þar sem séra
Svavar heldur erindi, verður haldin
í safnaðarheimili Háteigskirkju og
hefst klukkan 20.
Réttarhöldum yfir
Jóni Ásgeiri frestað
Réttarhöldum yfir Jóni Ásgeiri Jó-
hannessyni og fleirum sem fara
áttu fram í hæstarétti í New York
á þriðjudag var frestað. Að sögn
slitastjórnar Glitnis var það gert til
að gefa málsaðilum tækifæri til að
leggja fram frekari greinargerðir og
koma að athugasemdum um skjöl
sem nýverið hafa komið í leitirnar og
verið efni bréfaskipta milli málsaðila
og dómstólsins undanfarnar vikur.
Þá hafa varnaraðilar ákveðið að
draga til baka lögfræðiálit Brynjars
Níelssonar, og að önnur yfirlýsing
frá íslenskum sérfræðingi verði lögð
fram.
Þriðjungur fyrir-
tækja í vanda
Um fimm til sjö þúsund íslensk
fyrirtæki eru með neikvætt eigið
fé, samkvæmt vefriti efnahags- og
viðskiptaráðuneytisins. Þetta er um
þriðjungur íslenskra fyrirtækja. Í vef-
ritinu kemur fram að skuldsetning
fyrirtækja hafi margfaldast á árunum
fyrir 2008 og skuldir fyrirtækja vaxið
hraðar en eignir. Þegar krónan féll í
kjölfar efnahagshrunsins hafi skuldir
hækkað þar sem stór hluti lánanna
var í erlendri mynt. Vegna þessarar
skuldaaukningar jókst neikvætt eigið
fé fyrirtækja árið 2009 upp í rúma
6,6 milljarða króna á meðan jákvætt
eigið fé þeirra nam rúmum 6,8 millj-
örðum króna.