Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Page 17
miðvikudagur 10. nóvember 2010 erlent 17
Jim Morrison, söngvari bandarísku
hljómsveitarinnar The Doors, var
dæmdur fyrir að bera hold sitt á
sviði á tónleikum í Miami í Florída
árið 1969. Hann neitaði ávallt sök
en var engu að síður dæmdur til sex
mánaða fangelsisvistar og 500 doll-
ara sektar. Morrison áfrýjaði dómn-
um en málið var ekki tekið fyrir aft-
ur því söngvarinn lést í baðkari í
París úr hjartabilun árið 1971, að-
eins 27 ára að aldri. Nú gæti farið
svo að Morrison verði loksins náð-
aður, 40 árum eftir að dómurinn yfir
honum féll.
Árið 2007 fóru aðdáendur Mor-
rison þess á leit við fylkisstjóra Flór-
ída, Charlie Crist, að málið yrði tek-
ið upp að nýju. Crist brást vel við
beiðninni en hefur ekki gefist tími til
að líta á málið hingað til. Nú á hann
aðeins tvo mánuði eftir í starfi og
hefur lofað því að skoða mál Mor-
rison áður en hann lætur af emb-
ætti. „Í fullri hreinskilni hef ég ekki
gefið málinu mikinn gaum, en ég er
tilbúinn að líta á þetta á þeim tíma
sem ég á eftir. Það er allt mögulegt.“
Dave Diamond er aðdáandinn sem
hóf baráttuna fyrir náðun Morri-
son. Hann kveðst ánægður með að
fráfarandi fylkisstjóri sé tilbúinn að
skoða málið. „Við erum vongóð um
að hann klári þetta mál. Hann er
eini ríkisstjóri Flórída sem hefur svo
mikið sem veitt málinu athygli og
við erum honum þakklát fyrir það.“
Margir þeirra sem voru staddir
á umræddum tónleikum hafa viljað
staðfesta frásögn Morrison, um að
hann hafi aðeins þóst bera sig – með
því að stinga fingri út um buxnaklauf.
Því miður náðist ekki ljósmynd af at-
hæfinu og því hefur ekki verið hægt
að staðfesta hvort um fingur eða lim
hafi verið að ræða.
Jim Morrison, var dæmdur fyrir að bera hold sitt á tónleikum árið 1969:
Morrison gæti verið náðaður
Pólitísk framtíð
Berlusconis óviss
George W. Bush, fyrrverandi for-
seti Bandaríkjanna, hefur nú gefið
út bókina „Decision Points“. Bókin
fjallar um forsetatíð hans og kemur
í henni fram fjöldi upplýsinga sem
ekki hafa áður birst. Í gær birtist
viðtal við Bush í breska dagblaðinu
Times þar sem hann var að kynna
bókina í Bretlandi. Vegna hins nána
samstarfs sem Bush átti við fyrrver-
andi forsætisráðherra Bretlands,
Tony Blair, er búist við að bókin
muni vekja mikla athygli þar í landi.
Bush ljóstraði einnig upp um áætl-
anir sem hann hafði um Íran og
einnig að pyntingar hefðu hjálpað
til við að bjarga breskum manns-
lífum.
Ætlaði að ráðast á Íran
Í bók sinni skrifar Bush um Íran:
„Ég skipaði varnarmálaráðuneyt-
inu að rannsaka hvað væri nauð-
synlegt til að gera árás.“ Hann vildi
að sprengjuárás yrði gerð til að
koma í veg fyrir áætlanir Írana um
að auðga úran og jafnvel smíða
kjarnorkusprengju. „Þetta hefði
stöðvað sprengjuna, í það minnsta
tímabundið.“ Bush viðurkenndi að
öryggisráðgjafar hans hafi skipað
sér í tvær fylkingar. Þeir sem voru
á móti hugmyndinni um sprengju-
árás á Íran sögðu að slíkt uppátæki
gæti ýtt undir þjóðerniskennd Írana
og á sama tíma hatur í garð Banda-
ríkjanna. Þeir sem voru sammála
hugmyndinni töldu að árás gæti
hjálpað stjórnarandstöðunni í Íran
að ná völdum. Bush ræddi mál-
ið við Tony Blair sem var sammála
honum um að ekki væri hægt að
semja við Mahmoud Ahmedinejad,
forseta Írans. „Eitt er víst. Banda-
ríkin munu aldrei leyfa Írönum að
hóta heimsbyggðinni með kjarn-
orkusprengju,“ skrifar Bush.
Vingaðist við Blair yfir
Meet the Parents
Þegar Bush og kona hans Laura
hittu forsætisráðherra Bretlands,
Tony Blair, og konu hans Cher-
ie í fyrsta skipti kom þeim strax vel
saman. Eitt af því sem braut ísinn
var þegar hópurinn ákvað að horfa
á kvikmynd saman, en fyrir valinu
varð grínmyndin Meet the Parents
sem skartar Robert DeNiro og Ben
Stiller í aðalhlutverkum. „Þegar þau
féllust á að horfa á Meet the Par-
ents, þá vissum við Laura að Bush-
hjónin og Blair-hjónin ættu eftir að
eiga gott samband.“
Bush gengur svo langt að líkja
Blair við Winston Churchill og
minntist þess að kvöldið fyrir inn-
rásina í Írak átti Blair á hættu að fá
vantrauststillögu á sig samþykkta af
breska þinginu. Segir Bush að hann
hafi gefið Blair kost á að draga Bret-
land út úr stríðinu. „Ég vildi miklu
frekar hafa Tony sem forsætisráð-
herra og sterkan bandamann með
alla hans visku og útsjónarsemi,
heldur en missa ríkisstjórnina.“
Blair mun hafa svarað: „Ég er með.
Ef það kostar mig ríkisstjórnina,
gott og vel.“
Pyntingar björguðu
mannslífum
Í viðtalinu við Times var Bush
spurður út í pyntingaraðferð sem
á ensku nefnist „waterboarding.“ Í
henni felst að sá sem er pyntaður er
bundinn þannig að höfuð hans hall-
ar niður á við og vatni hellt yfir and-
lit hans, sem framkallar drukknun-
artilfinningu. Bush sagðist ekki líta
á aðferðina sem pyntingar heldur
„útvíkkaða yfirheyrslutækni.“ Hafi
upplýsingar sem fengust með að-
ferðinni hjálpað til við að klófesta
al-Kaída-leiðtogann Khalid Sheikh
Mohammed og jafnframt komið í
veg fyrir árásir hryðjuverkamanna
í bæði Bretlandi og í Bandaríkjun-
um. Fjöldi ríkja hefur lýst yfir and-
stöðu sinni við slíkar aðferðir, en
af hverju beitti Bush þeim engu að
síður? „Lögfræðingarnir sögðu að
þetta væri löglegt. Ekki er ég lög-
fræðingur.“
inga. Berlusconi sagði í raun sjálfur af
sér árið 2005 þegar hann var forsæt-
isráðherra og fékk í kjölfarið nýtt um-
boð til að mynda ríkisstjórn. Sú stjórn
varð reyndar ekki langlíf en það er
engin nýlunda fyrir Ítali. Hvergi í Evr-
ópu hafa verið jafn tíð stjórnarskipti á
síðustu 65 árum og á Ítalíu. En það er
sama hvor leiðin verður farin, hvort
heldur að Berlusconi segi af sér eða að
kosið verði um vantraust með stuðn-
ingi Finis og fylgismanna hans. Ríkis-
stjórnin verður leyst upp og það mun
falla í hlut forseta Ítalíu, Giorgio Nap-
olitano, að finna þann rétta til að fela í
hendur umboð til ríkisstjórnarmynd-
unar. Napolitano er meðlimur Komm-
únistaflokksins og þar með ólíklegt
að hann hafi samúð með Berlusconi,
eða nokkrum öðrum hægrimanni. Allt
eins er talið líklegt að boðað verði til
kosninga, en verði það gert á Berlus-
coni ekki heldur von á góðu. Sé miðað
við nýlegar skoðanakannanir hafa vin-
sældir forsætisráðherrans aldrei verið
minni. Er það að mestu leyti vegna gíf-
urlegs niðurskurðar ríkisstjórnarinn-
ar sem bitnar nú á almannaþjónustu.
Kynlífshneykslin virðast Ítalir þola
betur, enda ef til vill orðnir vanir slík-
um uppátækjum frá Berlusconi – sem
margir virðast telja meiri skemmti-
kraft en stjórnmálamann.
Bræður munu berjast Hér
sjást Gianfranco Fini og Silvio
Berlusconi ræða saman.
George W. Bush er byrjaður að kynna
bók sína „Decision Points“, sem fjallar
um forsetatíð hans. Þar kennir ýmissa
grasa, meðal annars að hann ætlaði að
fyrirskipa sprengjuárás á Íran.
sprengjur úr bók
George W. Bush
BJörn teitsson
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
nánir samstarfs-
menn Bush og
Blair á góðri stund.
Þeir kynntust fyrst
yfir kvikmyndinni
Meet the Parents.
Jim Morrison
Söngvarinn
goðsagna-
kenndi lést
áður en
áfrýjun hans
var tekin fyrir.
skotmaðurinn í
malmö með asperger
Lögreglan í Malmö handsamaði 38
ára karlmann sem er grunaður um
skotárásir á síðustu mánuðum. Hafa
skotárásirnar einkum beinst að fólki
af erlendum uppruna. Nú hefur mað-
urinn verið nafngreindur í sænskum
fjölmiðlum en hann var úrskurð-
aður í gæsluvarðhald í gær. Maður-
inn, sem heitir Peter Mangs, sagði
lögreglu að hann þjáðist af Asperger-
heilkenni og gæti þess vegna illa tjáð
sig við yfirheyrslur. Faðir Mangs hefur
staðfest þetta. Nú þegar er Mangs
grunaður um sex skotárásir, og er ein
þeirra flokkuð sem morð, en kann að
hafa átt aðild að mun fleiri árásum.
Hús fritzl verður
jafnað við jörðu
Hús Josephs Fritzl, austurríska
hrottans sem nauðgaði dóttur sinni
meira en þrjú þúsund sinnum, verður
að öllum líkindum jafnað við jörðu.
Fritzl útbjó sem kunnugt er leynibú-
stað í kjallara hússins, þar sem hann
hélt dóttur sinni nauðugri og framdi
hryllilega glæpi. Húsið er í Amstetten,
sem alla jafna er rólegur bær þar sem
gott þykir að búa. Dómarinn sem sér
um gjaldþrot Fritzl, Markus Sonn-
leitner, segir það skipta litlu máli.
„Það er mikill áhugi fyrir því að húsið
hverfi, enda held ég að enginn vilji
búa í húsi með slíka sögu.“
Rottur koma að
góðum notum
Hollenskt fyrirtæki sem leggur
áherslu á hjálparstarfsemi hefur
nú kynnt til sögunnar rottur sem
geta þefað uppi jarðsprengjur og
einstaklinga sem bera með sér
berkla. Hinar svokölluðu þef-rottur
eru þjálfaðar í Hollandi og eru því
næst sendar til Afríku en þær hafa
þegar komið að gagni í bæði Tans-
aníu og Mósambík. Jarðsprengjur
eru gífurlegt vandamál í Afríku en
árlega láta þúsundir lífið eða missa
útlimi af völdum þeirra. Talið er að
þef-rotturnar gætu dregið mjög úr
fjölda fórnarlamba jarðsprengna.