Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Side 18
Um síðustu helgi gaf þverskurður af íslensku þjóð- inni tíma sinn og krafta, þeirri bráðþörfu hug- mynd að enn væri von fyrir land vort að vaxa að þroska og efla lýðræðið. Tilgangurinn var og er að bregðast rétt við aðsteðj- andi kreppu og forða börnum okkar og barnabörnum frá því að endurtaka ósköpin sem yfir Ísland dundu, vonandi um ókomna tíð. Er óhætt að segja að margt hafi komið fram á þessum ágæta þjóð- fundi sem er einstakur í sögu okkar. Snúi sér að þjóðarhagsmunum Ein róttækasta tillaga þjóðfundar er sú að gera Ísland að einu kjördæmi og kjósa þingmenn persónukjöri. Sannarlega athyglisvert í ljósi mik- illar gagnrýni á gömlu fjórflokkana, enda margir horfnir frá þeirri trú að unnt sé að bæta þá innan frá. Gleym- um þó ekki að allir hafa þeir á að skipa mörgum frábærum leiðtogum þótt þeir nýti þá misvel og stundum ekki. Þar við bætist að þjóðfélagsbreyting- ar taka oft æði langan tíma. Það er því brýnt að þessir ágætu flokkar rísi nú upp úr aðgerðarfælni meðalmennsk- unnar og snúi sér að þjóðarhagsmun- um! Það getur m.a. þýtt leiðtogaskipti í forystuflokki ríkisstjórnarinnar. Er tími Össurar Skarphéðinssonar kom- inn? Íslendingar standa frammi fyr- ir risavaxinni áskorun. Ætla þeir að halda í sitt best menntaða fólk eða missa það í betur launuð störf erlend- is? Ætla þeir að tryggja að óbilandi framkvæmdagleði og festa íslenskrar þjóðarsálar í aldanna rás fái að njóta sín eða láta eymd, fátækt og átthaga- fjötra ráða ferðinni? Gríðarlegur mannauður Í raun hafa möguleikar okkar bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi aldrei verið meiri en nú og við erum ekki ein á báti. Allar þjóðir, stórar og smáar, reyna nú að bregðast við yf- irstandandi kreppu og leita leiða til að auka hagvöxt og bæta við góð- um störfum til handa þegnum sín- um. Gríðarlegur mannauður Íslend- inga og náttúruauðlindir okkar valda því að við eigum meiri möguleika en flestir. Tökum eitt dæmi. Í dag fer all- ur hinn vestræni heimur hamförum við að reyna að losa sig úr heljarklóm hefðbundinna orkugjafa. Fyrir bragð- ið telja æ fleiri að græn orka verði ein- hver stærsta iðnbylting sögunnar og muni skapa ný störf svo hundruð- um þúsunda skiptir. Í dag er Ísland í fremstu röð á þessu sviði með dýr- mætan mannauð og sérþekkingu! Því sætir furðu að eitt stærsta fyrir- tæki landsins á þessu sviði, Orku- veita Reykjavíkur, segi upp fólki í stað þess að ráða tugi, jafnvel hundruð í ný störf! Orkusjóður Íslendinga Útlendingum, sem þekkja til þessa iðnaðar, ber saman um að Íslend- ingar eigi sjálfir að eiga auðlind- irnar og orkuverin en selja orkuna og þekkinguna. Kannski er besta leiðin sú að stofna öflugan orku- sjóð Íslendinga utan um þessar að- gerðir eitthvað í líkingu við norska olíusjóðinn og það sem hann hefur áorkað. Hvaða leið sem verður far- in skiptir sköpum að jafnt stjórnvöld sem stjórnarandstaða hugsi miklu stærra en þeir gera nú, því Íslend- ingar hagnast margfalt meira á því að standa sameinaðir að hagnýt- ingu þessara gífurlegu auðlinda en að eyða dýrmætum tíma í sérhags- munagæslu og karp. Staðreyndin er nefnilega sú að Ís- lendingar hafa alltaf hagnast mest á kreppum því einmitt þá neyðast all- ir til að hugsa hlutina upp á nýtt. Ís- lendingar eiga því að snúa sér að því heils hugar að fullnýta þau tækifæri sem nú hafa skapast í gerbreyttum heimi á glænýrri öld. „Fyrst sagði hún mér að velja eina stelpu en þegar henni varð ljóst að ég ætlaði ekki að taka barn frá henni sagði hún að ég gæti svo sem tekið strákinn.“ n Bergljót Arnalds rithöfundur upplifði helvíti í paradís þegar hún heimsótti Kongó. - DV „Mér sýnist þetta vera uppblásnar sakir, tilbúning- ur. Þetta er svo crazy.“ n Ingvar Karlsson, faðir íslensku konunnar sem sökuð er um stórfellda fjárkúgun í Bandaríkjunum. - pressan.is „Við neitum okkur um að fara á skíði í Bláfjöll í tvö ár en höldum kannski einhverju öðru, til dæmis þjónustu við öryrkja, gamalt fólk, börn og þá sem minnst mega sín að einhverju leyti.“ n Jón Gnarr borgarstjóri íhugar að loka Bláfjöllum og spara 87 milljónir. - Kastljós „Ég er ágætlega sáttur og mér fannst fundurinn með ríkisstjórninni góður.“ n Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, um úrræði ríkisstjórnarinnar til eflingar atvinnulífs á Suðurnesjum. - mbl.is „Ísland hefur auðvitað verið mikið í umræðunni og það hefur kannski smitast út í listirnar, það er allavega mikill áhugi á bókunum víða um Evrópu.“ n Arnaldur Indriðason rithöfundur hefur selt næstum því sjö milljónir eintaka af bókum sínum. - Fréttablaðið Byltingin er komin Oft er það þannig að undarlegustu upp-finningar breyta heiminum. Fyrir sjö árum kom upp sú einfeldningslega hugmynd að stofna vefsíðu, þar sem hægt væri að gefa fólki einkunn eftir útliti. Þessi hugmynd þróaðist út í Facebook-vettvang þar sem fólk sýnir sig, sér aðra og á samskipti á netinu. Facebook hefur á örskömmum tíma orðið helsti drifkraftur lýðræðisins á Íslandi. Nú stendur yfir bylting. Það mætti kalla hana upplýsingabyltingu eða félagslega byltingu en hún stefnir hraðbyri í lýðræð- isbyltingu. Byltingin felst í því að fólk hefur öðlast samvitund. Netið er framlenging af huga fólks. Þar getur fólk nálgast nánast allar upplýsingar í heimi jafnhratt og með því að rifja upp með sínum eigin huga. Þar getur fólk líka tengst hugum annars fólks og borið sig saman við aðra á hraða og mælikvarða sem aldrei hefur verið mögulegur áður. Fé- lagslega byltingin hefur í för með sér aukið flæði upplýsinga, aukna samvitund og farveg fyrir vilja almennings. Samband fólks við valdamenn er orðið gagnvirkt. Fyrir nokkrum áratugum gat fólk valið á milli flokksblaða og Ríkisútvarpsins í leit að upplýsingum. Menguðum upplýs- ingum var haldið að fólki. Stjórnmálamenn höfðu sjálfir lítið aðgengi að skoðunum al- mennings. Nú getur borgarstjórinn í Reykja- vík varpað fram hugmynd á Facebook og fengið skoðanir fólks nánast samstundis. Ástþór Magnússon lagði einhvern tímann til beint lýðræði í gegnum hraðbanka. Það var flókið og tímafrekt í framkvæmd. Fyrir nokkrum árum lagði Samfylkingin fram þingsályktunartillögu um að skoðaðar yrðu leiðir til að koma á beinu lýðræði. En svarið er komið. Nú stendur ekkert í vegi fyrir því að komið verði á beinna lýðræði; ekkert annað en vilji og hagsmunir stjórnmálamanna og auðvitað andstaða þeirra sem treysta ekki almenningi til að taka ákvarðanir. Við sjáum ekki fyrir afleiðingarnar af fé- lagslegu byltingunni. Fulltrúar gamla kerfis- ins munu gagnrýna Facebook-lýðræðið. Þeir munu tala um skrílræði og forheimskun og ala á ótta fólks hvert við annað. Margir hafa efast um að lýðurinn sé hreinlega fær um að taka ákvarðanir. Fólk sé ekki nægilega upplýst. En aðkoma margra að ákvörðunum þynnir hins vegar út sérhagsmuni sem hafa kostað okkur svo mikið. Efast er um að fólk nái að kynna sér yfir 500 frambjóðendur í persónukjörinu til stjórnlagaþings. Meðal annars hefur verið sagt að almenningur muni einfaldlega kjósa þá sem eru frægastir eða ríkastir – þá sem eru best kynntir – því enginn hafi tíma til að kynna sér frambjóðendurna alla. Nú á fólk, þvert á móti, mun auðveldara með að kynna sér hvort frambjóðendur hafi sömu málefnalegu áherslur og það sjálft. Nú geta allir farið inn á DV á netinu og tekið þar próf og samstundis fundið þá frambjóðendur til stjórnlagaþings sem hafa sömu áherslur. Byltingin mun leiða af sér breytingar. En ekki án þess að fólk þrýsti á þær. Framtíðin þarf ekki að snúast um það hvort við kjósum Samfylkinguna, Sjálfstæðisflokk, Fram- sóknarflokk eða Vinstri-græna. Innan fárra ára getum við brotist undan þeim. JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. Nú geta allir farið inn á DV á netinu og tekið þar próf. LEIÐARI 18 UMRÆÐA 10. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR „TRÚÐUR“ Í RÁÐHÚSI n Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykja- vík, þótti sumpart fara á kostum í viðtali við Kastljósið þar sem hann svaraði út og suður en var einlægur hvað eigið þekking- arleysi varðaði. Margir í blogg- heimum hafa hælt Jóni fyrir frammistöð- una en aðrir eru froðufellandi yfir vitleysisgangn- um. Þeirra á meðal er örbloggarinn Stefán Fr. Stefánsson: „Samfylk- ingin með Dag B. Eggertsson ber mikla ábyrgð á því að halda þessari vitleysu áfram mikið lengur. Þeirra er ábyrgðin á þessum trúð sem veit ekkert í sinn haus,“ bloggar Stefán af miklum móð. HRANNAR OG LÖGGAN n Hrannar B. Arnarsson, aðstoð- armaður forsætisráðherra, sver af sér að hafa látið lögregluna handtaka mót- mælanda sem fóðraði máva á lóð Stjórnar- ráðsins. Þetta fullyrti hann meðal ann- ars í kjallara- grein í DV. Einar Thorsteinsson, fréttamaður Ríkisútvarpsins, sem skúbbaði mávamálinu er ekki alveg sáttur við frásögn aðstoðarmanns- ins. „Þar sem ég gerði mávafréttina er rétt að benda á að Hrannar sagði mér sjálfur að hann hefði óskað eftir því við lögreglumanninn sem starfar í Stjórnarráðshúsinu að hann „gerði eitthvað í málinu“ [...] það fór svo að konan var handtek- in,“ segir Einar á Facebook-síðu sinni. HVÍT LYGI n Einar Thorsteinsson, fréttamað- ur Ríkisútvarpsins, bendir á að Hrannar B. Arnarsson gerði aldrei athugasemd við frétt Ríkisútvarps- ins um mávana og mótmæland- ann. „En hefur hinsvegar eftir á sagt við aðra fjölmiðla að hann hefði aldrei „óskað eftir hand- töku“,“ segir Einar á Facebook-síðu sinni. Þarna virðist því vera um eins konar hvíta lygi Hrannars að ræða. Hann krafðist þess af lögregl- unni að hún gerði eitthvað en sver af sér að hafa óskað eftir handtöku. BÓTASJÓÐSMAÐUR LÆRIR n Meðal þeirra sem lentu á flæðis- keri eftir hrunið var Þór Sigfússon sem hraktist frá Sjóvá eftir að fjár- hagur félags- ins og bótasjóðs þess þornaði upp. Mál Þórs og bræðranna Karls og Steingríms Wernerssona sem áttu Sjóvá er til rannsókn- ar hjá sérstökum saksóknara. Þór þótti ekki mikill bógur í forstjórastarfinu. En nú er þess vænst að hann geti tekist á við sambærileg verkefni. Þór er á bóla- kafi í doktorsnámi í hagfræði við Háskóla Íslands. SANDKORN TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is UMSJÓN HELGARBLAÐS: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is UMSJÓN INNBLAÐS: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Er tími Össurar kominn? MARGRÉT HRAFNSDÓTTIR Athafnakona skrifar Gríðarlegur mannauður Ís- lendinga og náttúru- auðlindir okkar valda því að við eigum meiri möguleika en flestir. KJALLARI BÓKSTAFLEGA „Ekki hjá okkur. Það er ekki transfita í hamborgurunum og frönskunum hjá okkur. Við erum búnir að kanna það mjög vel,“ segir TÓMAS A. TÓMASSON, eigandi Hamborgarabúllu Tómasar, en sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra hefur boðað reglugerð sem takmarkar transfitusýrur í matvælum. FARA MENN NOKKUÐ Í TRANS? SPURNINGIN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.