Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Side 19
Ríkisstjórn Jó- hönnu Sigurðar- dóttur hefur tekið sér fyrir hendur að gera hreint í stjórnarráðinu. Þetta á að gera með lagabreyt- ingum sem miða að aukinni skil- virkni þess, fag- legri vinnubrögð- um, gagnsæi, skarpari skilningi, getu og vinnubrögðum. Með þessu á að auka traust almennings til stjórn- arráðsins. Sumt af þessu sem hér er nefnt merkir í raun viðleitni til þess að draga úr klíkuskap, leyndarhyggju, sundur- lausri, flokkshollri og ófaglegri stjórn- sýslu í kunningjaveldi íslenska lýð- veldisins. Þjóðin hefur látið klíkuskap og þöggun yfir sig ganga af hálfu stjórn- mála sem litið hafa á stjórnarráðið sem herfang til þess að útdeila stöðum til gæðinga og kaupa hollustu þeirra og auðsveipni. Jón Þorláksson, stofn- andi Sjálfstæðisflokksins, taldi eðlilegt og lofsvert að vera vinur vina sinna, en „lyklar að ríkisféhirslunni eru engum fengnir til þess að sækja þangað vinar- gjafir eða fylgdarlaun.“ Jón sá ekki fyr- ir að 80 árum eftir stofnun Sjálfstæð- isflokksins seildust forystumenn hans eftir lyklunum að ríkisféhirslunni til þess að koma vinum, frændum og sonum í æðstu dómaraembætti á svig við almennar reglur um verðleika og hæfni. Markmið ríkisstjórnarinnar eru skýr þótt litlu hafi enn verið breytt. Jóhanna hefur þó sett á fót nefnd sérfræðinga sem þegar hefur skilað áfangaskýrslu. Fjölmiðlar hafa lítið kynnt efni hennar fyrir almenningi. Hvar er verðleikaþjóðfélagið? Nefnd Jóhönnu telur að skýra þurfi mörk pólitískra og faglegra ráðninga starfsfólks innan stjórnarráðsins, eins og fram kemur á öðrum stað í DV í dag. Hefja þurfi yfir allan vafa að fast- ir starfsmenn stjórnsýslunnar séu ráðnir á faglegum, gagnsæjum, sann- gjörnum og samræmdum forsend- um. Óvissa um ráðningu og fram- gang fagfólks og sérfræðinga vegna pólitískra inngripa dregur úr trúverð- ugleika stjórnarráðsins, trausti milli starfsmanna og aðdráttarafli þess sem starfsvettvangs. „Stjórnarráð Íslands og stjórnsýsl- an í heild glíma við trúverðugleika- vanda sem endurspeglast ekki síst í umræðu um ófaglegar og jafnvel spilltar ráðningar. Því er haldið fram að fólk sé oft ráðið á grundvelli pólit- ískra tengsla og fyrirgreiðslu frekar en faglegra sjónarmiða – flokksskírteini hafi meira að segja við ráðningu og skipun í embætti en menntun, hæfni og reynsla,“ segir orðrétt í skýrslunni. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra hefur talað fyrir umbótum af þessu tagi árum og jafnvel áratug- um saman. Vandalaust er að fletta því upp í þingmálaskrá langt aft- ur í tímann. Samt sem áður er ein- hvern veginn ekki að finna afgerandi merki þess að ríkisstjórn hennar sé á hraðferð inn í nýja tíma. Átakanleg er sagan um ófaglegan aulagang og pukur við ráðningu nýs framkvæmda- stjóra Íbúðalánasjóðs. Þar ríkti ósam- kvæmnin, leyndin og sambræðing- ur pólítískra og faglegra sjónarmiða sem tryggðu á endanum með mikilli vissu að sá hæfasti var ekki ráðinn. Því þurfti enga valnefnd þegar staðan var auglýst í síðara skiptið? Af hverju var fyrri valnefndinni kippt úr sambandi í fyrra skiptið og staðan auglýst á ný? Alla þessa sögu þyrfti nefnd Jóhönnu að fá að heyra í smáatriðum til þess að geta betur áttað sig á viðteknum ósið- um og meinum ríkjandi starfshátta. Við erum það sem við gerum Af öðrum toga er stuðningur núver- andi ráðherra við nokkra arkitekta bankahrunsins sem hafa fengið nóg af eymdinni og vilja lifa í hægindum er- lendis. Árni M. Mathiesen fékk með- mælabréf frá utanríkisráðherranum til virðulegra stafa erlendis löngu áður en Alþingi hafði rannsakað mál hans og löngu áður Alþingi hafði komist að niðurstöðu um málshöfðun gegn ráð- herrum. Gat ráðherrann með góðu móti skrifað meðmælabréf fyrir fyrr- verandi samráðherra sinn og verið jafnframt ráðinn í að greiða atkvæði með því að hann yrði sendur fyrir landsdóm? Samstarfsráðherra Norðurland- anna innan ríkisstjórnarinnar fram- lengdi ráðningu Halldórs Ásgrímsson- ar hjá ráðherranefnd Norðurlandaráðs um tvö ár og bar við einhvers konar meðvitundarleysi. Bæði menntamála- ráðherra og forsætisráðherra þótti málið heldur óheppilegt. Hér er ekki mælst til þess að menn hverfi aftur til Sturlungaaldar og leiti hefnda í sífellu. En lágmarkskrafan er að þau sem boða nýtt Ísland hagi gjörðum sínum í samræmi við boðorð sín. Geri þau það gæti verðleikaþjóðfé- lagið verið á næstu grösum. n Tónlistarmaðurinn Árni Hjörv- ar Árnason, sem búsettur er í Bretlandi og leikur á bassa með bresku sveitinni The Vaccines, kom fram í sjónvarpsþættinum Later... with Jools Holland á BBC 2 um helgina. Hljómsveit Árna hefur vakið athygli í Bret- landi og var boðið að spila í þættin- um um helgina. Meðal annarra sem komu fram í þætti helgarinn- ar voru Íslands- vinurinn Eric Clapton og hin heims- fræga banda- ríska rokk- hljómsveit Kings of Leon. Í sama þætti og Clapton Stofnuð hefur verið Facebook-síða þar sem hvatt er til þess að Þórð- ur Guðnason, björgunarsveitar- maður í Björgunarfélagi Akra- ness, verði sæmdur fálkaorðunni en hann vann gífurlegt þrekvirki þegar hann bjargaði sjö ára dreng úr sprungu á Langjökli í fyrravet- ur. Það virðast margir vera þeirr- ar skoðunar að Þórður eigi orðuna skilda fyrir björgunina en yfir 1.500 manns hafa nú þegar skráð sig á síðuna. Þórður var afar hógvær í samtali við DV og sagði það ekki sitt að tjá sig um síðuna né orðu- veitingu. Drengurinn, sem Þórður bjarg- aði, hafði fallið ofan í 30 metra djúpa sprungu á Langjökli ásamt móður sinni, sem lést í slysinu. Þórður og félagar hans í Björgun- arfélaginu voru kallaðir út en þegar komið var á jökulinn var sú ákvörð- un tekin að Þórður skyldi látinn síga niður í sprunguna til mæðgin- anna. Í um það bil klukkutíma hékk hann á hvolfi við afar erfiðar að- stæður og á tímabili átti hann erf- itt með öndun þar sem sprungan þrengdi að brjóstkassa hans. Þurfti þá að hífa hann ofar áður en hann fór aftur niður. Í þriðju tilraun náði hann að koma línu um fót drengs- ins og á ótrúlegan hátt náði hann að bjarga drengnum. Um fjór- ir tímar liðu frá því að drengurinn féll niður um sprunguna og þar til hann náðist upp og var hann því orðinn kaldur og þrekaður þegar Þórður náði honum upp. Þetta var önnur björgun Þórðar af svipuðum toga á tæpu ári. Þórður Guðnason björgunarsveitarmaður: Verði sæmdur fálkaorðu n Rapparinn Erpur Eyvindarson spilaði fyrir troðfullu húsi á Nasa aðfaranótt sunnudags. Það var gest- kvæmt á sviðinu og fóru þar fremst- ir Páll Óskar Hjálmtýsson og Raggi Bjarna. Þegar Raggi steig á svið ætl- aði allt um koll að keyra á staðnum og var mikill atgangur við sviðið þegar Raggi söng lagið „Allir eru að fá sér.“ Virtist sem Ragga hafi ekki litist á blikuna þegar leikar stóðu sem hæst því lætin voru svo mikil. Hann þurfti þó ekki að óttast með félaga sinn Pál Óskar sér við hlið sem hélt þéttingsfast utan um hann á meðan með- an Erpur og félagar fóru ham- förum á svið- inu. Hann setti ekki banka á hausinn! DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. Veðrið Í dag kl. 15 ...og næstu daga sólarupprás 09:33 sólsetur 16:49 Áskriftarsíminn er 512 70 80 Fréttaskot 512 70 70 palli passaði ragga REykJavík 8-10 0/-2 13-15 2/-1 5-8 2/0 8-10 4/2 5-8 1/-1 5-8 2/1 12-15 3/0 0-3 -5/-7 3-5 0/-2 3-5 -2/-4 0-3 0/-1 0-3 -5/-7 0-3 -6/-7 3-5 0/-1 0-3 0/0 5-8 3/0 0-3 2/0 5-8 6/4 0-3 -4/-7 3-5 -2/-4 0-3 -4/-5 8-10 3/0 13-15 3/-1 5-8 4/1 5-8 4/1 5-8 -1/-2 5-8 2/-1 12-15 2/1 0-3 -2/-4 5-8 4/3 0-3 -4/-6 0-3 2/0 0-3 -5/-6 3-5 -2/-3 3-5 1/1 5/2 -1/-3 4/2 3/1 7/2 8/5 5/2 21/20 20/17 5/2 -1/-3 2/1 4/2 4/2 8/5 7/1 22/21 20/18 3/2 -1/-3 -2/1 2/1 -5/-2 9/6 5/3 22/21 20/17 3/0 -8/-5 -6/-9 -2/0 7/6 6/4 4/2 22/19 19/16 Þri Mið Fim Fös vindur í m/s hiti á bilinu Stykkishólmur vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Þri Mið Fim Fös vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Höfn Reykjavík Egilsstaðir Ísafjörður Vestmannaeyjar Patreksfjörður Kirkjubæjarkl. Akureyri Selfoss Sauðárkrókur Þingvellir Húsavík Keflavík 8-8 -2/-3 3-5 -2/-3 3-5 -2/-3 0-3 -2/-3 0-3 0/-3 0-3 -8/-9 3-5 -7/-8 12-15 2/-1 8-10 1/-1 12-15 1/-2 10-12 0/-2 8-10 -1/-4 3-5 -3/-5 8-10 -1/-4 121-5 0/-2 8-10 0/-3 12-15 -3/-5 10-12 -2/-4 8-10 -1/-2 3-5 -2/-4 8-10 3/0 Mán Þri Mið Fim hiti á bilinu Kaupmannahöfn hiti á bilinu Osló hiti á bilinu Stokkhólmur hiti á bilinu Helsinki hiti á bilinu London hiti á bilinu París hiti á bilinu Berlín hiti á bilinu Tenerife hiti á bilinu Alicante Veðrið úti Í heimi Í dag og næstu daga -2 -1 2 1 6 0 0 6 2 1 65 5 6 6 6 13 8 10 8 8 10 4 5 Hitakort Litirnir í kortinu tákna hitafarið á landinu (sjá kvarða) Bjart syðra – él nyrðra HöfuðBoRGaRsvæðið: Norðaustan 5–10 og bjart veður. Hiti 0–4 stig, mildast að deginum. landsByGGðin: Almennt verður fremur vindasamt þó engin átök séu í þessu. Við verðum með norðaustlægar áttir á landinu, 5–13 m/s, stífastar austan Vatnajökuls og með vestanverðu landinu. Snjókoma eða stöku slydduél á Vestfjörðum og norðvestan til, hins vegar samfelldari úrkoma, snjókoma eða slydda norðaustan- og austanlands en yfirleitt bjartviðri á sunnan- og vestanverðu landinu. Hiti 0–6 stig á láglendi, hlýjast á sunnanverðu landinu en svalast fyrir norðan og austan. næstu daGaR: Veður fer nú kólnandi og á morgun eru horfur á hægviðri með éljum frá miðju Suðurlandi og yfir á austan og norðaust- anvert landið. Bjartviðri verður á vesturhluta landsins, annars skýjað með köflum. Svipað veður á miðvikudag nema að þá verður snjókoma á Vestfjörðum. Síðan eru horfur á vonskuveðri á fimmtudag og föstudag, norðaustanstormi. Hlýnar heldur á föstudag. Hólakirkja á Hólum í Hjaltadal. snjókoma eða él verða víða á norðan og austanverðu landinu í dag. <5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst, fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.vEðRið mEð siGGa stoRmi siggistormur@dv.is Þórður Guðnason Þórður vann mikið þrekvirki þegar hann bjargaði dreng úr jökulsprungu. ÞÓRÐUR GUÐNASON björgunar- sveitarmaður í Björgunarfélagi Akraness vann gífurlegt þrekvirki þegar hann bjargaði sjö ára dreng úr sprungu í Langjökli í fyrravetur. Þetta var önnur björgun Þórðar af svipuðum toga á tæpu ári. Stofnaður hefur verið hópur á Facebook sem vill veg hans sem mestan og að forseti Íslands veiti honum fálkaorðuna. SPENNA OG KRAFTUR DRÍFA MIG ÁFRAM 1 HEILDSALADÓTTIR SÖGÐ HAFA SVIKIÐ MILLJÓNIR AF OLÍUERFINGJA Helga Ingvarsdóttir er ákærð fyrir stórfelldan þjófnað. 2 SAMBANDIÐ VIÐ VÖLU GRAND VAR BLEKKING Milos Tanasic átti ekki í sambandi við Völu Grand. 3 FAÐIR HELGU Á LEIÐINNI TIL NEW YORK Ingvar Karlsson fór til New York til að veita dóttur sinni stuðning. 4 SÁ Í GEGNUM FLUGFARÞEGA Í DULARGERVI Ekki var allt sem sýndist í flugvél á leið frá Hong Kong til Kanada. 5 UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ HJÁLPAR HELGU MEÐ LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ Íslenska utanríkisráðuneytið vinnur nú með fjölskyldu Helgu Ingvars- dóttur. 6 UNNU NÁIÐ MEÐ TRÚGJARNA TÓNSKÁLDINU Helga Ingvarsdóttir vann náið með bandaríska tónskáldinu Roger C. Davidson. 7 BJÖRK HVETUR TIL ÁHORFS: ÞAÐ LIGGUR MIKIÐ VIÐ Söngkonan hvatti fjölskyldur og vini til að horfa á Návígi. MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN Hver er maðurinn? „Þórður Guðnason, 28 ára sjúkraflutningarmaður og nemi.“ Hvað drífur þig áfram? „Spenna og kraftur.“ Hver eru áhugamál þín? „Fjalla- mennska, ísklifur, klettaklifur, skíði og ferðalög. Björgunarstörfin eiga líka hug minn.“ Uppáhaldsbók? „Ég á mér ekki uppáhaldsbók en les allt það sem fjallar um áhugamálin.“ Uppáhaldssjónvarpsefni? „Ég hef mest gaman af því að horfa á spennu- myndir en get ekki nefnt neina sérstaka mynd. Það er oft mikið um að vera hjá mér svo ég sit ekki oft fyrir framan sjónvarpið.“ Hvað gerir þú til að slappa af? „Ég slappa af með því að ganga á fjöll. Ég geng á sem flest fjöll en fer oftast og finnst skemmtilegast að ganga upp á Skarðsheiði enda eru þar heimaslóð- irnar.“ Hvað kom til að þú fékkst áhuga á útivist og björgunarstarfi? „Þegar ég var lítill polli var stór björgunar aðgerð við Skarðsheiðina. Þetta var um áramót og það þurfti að bjarga týndum hrossum. Ég varð afar hrifinn af þessum aðgerðum og ætli áhuginn hafi ekki kviknað þá. Annars kunna sögur afa míns af lífinu á Hornströndum einnig hafa haft áhrif á mig.“ Stundar þú líkamsrækt? „Ég geng á fjöll og stunda klifur. Klifur er alhliða líkamsrækt sem reynir mjög á og hentar vel þeim sem sinna björgunarstörfum.“ Hvað finnst þér um hópinn sem hef- ur verið stofnaður þér til heiðurs á Facebook? „Ég hef enga skoðun á því.“ Afrek ársins? „Góð spurning!“ Áttu þér einhverjar fyrirmyndir? „Ás- mundur Rúnar Ívarsson, Gunnar Agnar Vilhjámsson,Sigurður Axel Axelsson og Sigurður Kári Guðnason.“ Hvað er mikilvægast í lífinu? „Fjölskyldan og að lifa lífinu.“ MAÐUR DAGSINS „Miðað við það sem ég hef lesið mér til um.“ MATTHÍAS BJARNASON 38 ÁRA MEISTARANEMI VIÐ HÍ „Nei, maður ætti að geta valið.“ ÁGÚST INGI GUÐNASON 18 ÁRA NEMI Í MR „Mér finnst það alveg koma til greina.“ HALLA PÁLMADÓTTIR 48 ÁRA BÓKASAFNSFRÆÐINGUR „Ekki nema að vel athuguðu máli.“ NÚMI THORKELL TÓMASSON 31 ÁRS KOKKUR „Ekki banna, en skýra á pakkningum svo fólk viti hvað það er að borða.“ HANNES HALLDÓRSSON 18 ÁRA NEMI Í MR Á AÐ BANNA TRANSFITU Í MATVÆLUM Á ÍSLANDI? DÓMSTÓLL GÖTUNNAR MIÐVIKUDAGUR 10. nóvember 2010 UMRÆÐA 19 Beðið eftir nýja Íslandi Stjórnarráð Ís-lands og stjórn- sýslan í heild glíma við trúverðugleikavanda sem endurspeglast ekki síst í umræðu um ófaglegar og jafnvel spilltar ráðningar. KJALLARI JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar Lögreglustjórinn á vettvangi Umferðaróhapp varð á gatnamótum Tryggvagötu og Geirsgötu á þriðjudag. Það vakti athygli vegfarenda að Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sinnti sjálfur útkallinu. Hér að ofan sést hann tala við vegfarenda en sem betur fer urðu engin slys á fólki. MYND SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.