Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Qupperneq 20
LAY LOW OG RÖKKURRÓ Það verður væn tónleikadagskrá á Faktorý á fimmtudagskvöld. Fram koma Lay Low, Rökkurró og Of Monsters and Men. Lay Low kemur sjóðheit á tónleikana úr Ameríkutúr þar sem hún hélt fjölmarga tónleika. Þetta er þó aðeins stutt stopp hjá söngkonunni því hún heldur svo beint aftur út, til Kanada, þar sem hún kom fram í Toronto þann 16. nóvember og Montreal þann 17. Aðgangseyrir á tónleikana á Faktorý er 1.000 krónur og aðeins selt við hurð. Efri hæðin opnar klukkan níu og hefjast tónleikarnir klukkan tíu. VINSÆLT TVÍEYKI Það voru þrjár nýjar myndir sem röðuðu sér í efstu sætin yfir vinsælustu og tekjuhæstu myndir síðustu helgar. Í fyrsta sæti situr Due Date með þeim félögum Robert Downey Jr. og Zach Galifianakis. Tæplega 7.500 manns hafa séð myndina sem hefur þénað um 7,5 milljónir króna. Í öðru sæti situr myndin Red með gömlu brýnunum Bruce Willis, Morgan Freeman og Helen Mirren. Hún fékk tæplega 1.700 gesti og þénaði um 1,8 milljónir króna. Það voru svo Ævintýri Samma sem laumuðu sér í þriðja sætið með um 1.250 gesti og 1,3 milljónir í hagnað. 20 FÓKUS 10. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR HAUSTFAGNAÐUR Á CATALINU Á föstudagskvöld ætla Arnfirðinga- félagið og Önfirðingafélagið að blása til haustfagnaðar á Cafe Catalinu í Kópavogi. Af því tilefni ætlar hljóm- sveitin Glymskrattinn að leika fyrir dansi. Ásamt Glymskrattanum mun fjöldinn allur af gestasöngvurum koma fram. Til dæmis Jón Kr. Ólafs- son. Húsið er opnað klukkan 21.00 og er aðgangseyrir 1.000 krónur. Hægt er að panta sér mat með fyrir- vara í síma 554 2166 en eldhúsið er opið til 21.00. FORSETANUM ER EKKI BOÐIÐ Kvikmyndarinnar um Gnarr er beðið með mikilli eftirvæntingu en hún verður frumsýnd 12. nóv- ember. Myndin fjallar um undir- búning í aðdraganda framboðs Jóns Gnarr til borgarstjórnar og fyrstu daga í embætti. Aðstand- endur myndarinnar standa nú í því að senda út boðsmiða til frumsýningargesta og hafa sent Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Sóleyju Tómasdóttur miða. Þá hafa þeir sent fjármálaráðherra, menntamálaráðherra og Vigdísi Finnbogadóttur boðsmiða en sleppa því að bjóða forsetanum, Ólafi Ragnari Grímssyni. „Á frum- sýningunni verða síðan óvæntir leynigestir og uppákomur í anda myndarinnar,“ segir Gaukur Úlf- arsson leikstjóri myndarinnar. DEEP PURPLE- TRYLLINGUR Deep Purple Tribute og Eyþór Ingi munu leika vel valin lög einnar merkustu rokksveitar sögunnar, Deep Purple, á Sódómu á fimmtu- dagskvöldið. Tónleikarnir eru haldn- ir í annað skipti í vetur vegna fjölda áskorana. „Við ætlum að taka allar helstu sprengjurnar,“ segir söngvari sveitarinnar Eyþór Ingi Gunnlaugs- son. Við tökum auðvitað Child in Time, Smoke on the Water og Sold- ier of Fortune og mörg fleiri.“ Eyþór segist hafa orðið forviða yfir rífandi stemningu á síðustu tónleikum. „Síðustu tónleikar voru á miðviku- dagskvöldi en þrátt fyrir það var fullt út úr dyrum og rífandi stemning.“ Tónleikarnir eru á Sódómu og hefjast kl. 22.00. Miðasala við dyrnar, aðgangseyrir 1.200 kr. Sirkus Íslands æfir sirkuslistir 20 tíma á viku og meðlimir hans eru í fantaformi: Leynilegar sirkusæfingar Sirkus Íslands setur upp sýninguna Sirkus Sóley í Tjarnarbíó, en sýn- ingin var sett upp í Salnum í Kópa- vogi og Hofi á Akureyri fyrr á árinu við stórkostlegar undirtektir og ein- róma lof gagnrýnenda. „Við höldum fjörinu áfram í Reykjavík,“ segir Lee Nelson, sem mætti titla sem sirk- usstjóra Sirkus Íslands. Lee Nelson stofnaði Sirkus Íslands fyrir nokkr- um árum og hefur verið óþreytandi við að setja upp krassandi sýning- ar. „Sirkusinn er alíslenskur. Ég hef búið hér í þó nokkur ár og nú æfa 20 manns með sirkusnum. Við gef- um ekkert eftir og æfum sirkuslistir 20 tíma á viku. Við erum alvöru sirk- ushópur.“ Lee segist ekki gefa upp æfinga- svæði sirkushópsins. Það hafi hann gert einu sinni og geri aldrei aftur. „Um hundrað manns mættu á æf- ingasvæðið til þess að fá að fylgjast með eða í von um að fá að æfa með sirkusnum. Það tók mig margar vik- ur að fá aftur frið til æfinga á nýjum stað.“ Með Lee æfir Katla Þórarinsdótt- ir á hverjum degi. „Við æfum fjóra tíma í senn, tvisvar á dag. Ég er at- vinnudansari og lærði dans í Lond- on en eftir að ég fór að vinna með Lee hef ég sótt mér nám í loftfim- leikum og alls kyns sirkuskúnstum. Við erum í raun afar dugleg að flytja hingað til lands góða kennara til að bæta þekkingu okkar. Hingað hafa komið griplarar, jugglarar og loft- fimleikamenn á heimsklassa.“ Að- spurð um leyndina sem hvílir yfir æfingunum hlær hún og segir að- sóknina og spennuna í kringum æf- ingarnar auðvitað æðislegar og þau vildu óska að þau gætu tekið á móti flinku sirkusfólki alla daga. Það geti þau hins vegar ekki því þau þurfi að æfa svo stíft sjálf. „Við höldum samt oft námskeið og tökum þá nýja og efnilega sirkusmeðlimi inn, segir Katla. Þá höfum við kennt sirkuslist- ir í samstarfi við ÍTR og grunnskól- ana og það er virkilega gefandi starf. Sirkusinn er nefnilega svo breitt svið lista að allir krakkar geta náð árangri á sínu sviði og það gleður þau.“ „Við erum alvöru sirkushópur“ Katla Þórarinsdóttir og Lee Nelson, aðalspírurnar í Sirkus Íslands. Owen (Smit- McPhee) er einmana 12 ára strákur sem býr með mömmu sinni í lítilli blokk- aríbúð. Þeg- ar dularfull stelpa, Abby (Moretz), flyt- ur í næstu íbúð eign- ast hann sinn eina vin, en fljótlega kemur í ljós að hún er ekki öll þar sem hún er séð. Þetta er endurgerð á sænsku kvikmyndinni Låt den rätte komma in frá árinu 2008 sem vakti mikla athygli og var virki- lega vel heppnuð. Endurgerðir í Hollywood eru nær undantekningarlaust um- deildar, því yfirleitt er um að ræða frábærar myndir sem vakið hafa mikla alþjóðlega athygli en eru svo færðar í hið hefðbundna Hollywood-form. Það virkar að sjálfsögðu ekki alltaf og of oft er niðurstaðan hraðsoðið og karakt- erlaust bergmál af fyrirmyndinni. Let Me In er alls ekki versta end- urgerð sem framleidd hefur ver- ið, en hún kemst heldur ekki ná- lægt því að vera sú besta. Kodi Smit-McPhee (The Road) og Chloe Moretz (Kick- Ass) standa sig þó frábærlega í hlutverki krakkanna. Owen er lagður í hart einelti og maður get- ur ekki annað en fundið til með honum. Honum finnst fjölskylda sín vera að sundrast eftir skilnað foreldra sinna og því kemur Abby á hárréttum tíma. Allt hennar fas er þreytulegt og ískalt, en þó hlý- legt á ákveðinn hátt. Hennar líf er sömuleiðis óeðlilegt og hún er greinilega mjög leið á því. Þegar yfirnáttúrulegir hlutir fara að gerast bregst myndin hins vegar áhorfendum illa. Hún fell- ur niður á lágt plan óþarfra tölvu- brellna og klisjukenndra óhljóða, og tekst þannig að skemma ann- ars góða tilfinningalega upp- byggingu myndarinnar. Þessi atriði koma algjörlega eins og skrattinn úr sauðarleggnum, því að öðru leyti er myndin virkilega smekkleg og fellur ekki í freist- andi Hollywood-gildrur. Þetta er þó aðeins einn af ör- fáum hlutum sem draga myndina niður. Myndataka og tónlist eru til fyrirmyndar sem og almennt útlit myndarinnar. Hún gerist á 9. ára- tugnum, en það er ekki gert mik- ið úr því – áhorfendum er leyft að átta sig á tímabilinu og staðsetn- ingunni upp á eigin spýtur. Let Me In á marga mjög góða spretti, skapar magnþrungið and- rúmsloft á köflum og er mjög vel leikin. Þegar myndin er hins veg- ar svona háð uppbyggingu og smekklegri framsetningu á yfir- náttúrulegum hlutum er gjör- samlega óþolandi að sjá hana falla í jafn auðveldar gildrur og raun ber vitni. Tvær mínusstjörn- ur fyrir það. GILDRURNAR Í HOLLYWOOD KVIKMYNDIR JÓN INGI STEFÁNSSON skrifar LET ME IN Leikstjórn: Matt Reeves Aðalhlutverk: Chloe Moretz, Kodi Smit-McPhee, Richard Jenkins, Cara Buono, Elias Koteas Handrit: Matt Reeves upp úr handriti og skáldsögu John Ajvide Lindqvist. FRÁBÆR Kodi Smit-McPhee og Chloe Moretz standa sig ótrúlega vel. LET ME IN „Let Me In er alls ekki versta endurgerð sem framleidd hefur verið, en hún kemst heldur ekki nálægt því að vera sú besta.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.