Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 5. janúar 2011 Miðvikudagur Tólf skilanefndar- og slitastjórnar- menn í stóru bönkunum sem féllu haustið 2008 högnuðustu samanlagt um 460 milljónir króna árið 2009. Allir reka þeir einkahlutafélög og afla tekna sinna í gegnum þau. Að jafn- aði gat hver og einn þeirra haft um 3,2 milljónir króna á mánuði í gegn- um einkahlutafélög sín. Árstekjur hvers og eins geta verið mun hærri afli þeir einnig tekna annars staðar frá. Árstekjur þeirra geta hins vegar ekki verið lægri en ársreikningarnir gefa til kynna. DV hefur skoðað ársreikninga tólf einkahlutafélaga sem nær öll eru í 100 prósent eigu þeirra skilanefnd- armanna sem getið er í meðfylgjandi töflu. Athyglisvert er að tekjur félag- anna hafa tuttugu- til þrjátíufaldast í einstaka tilvikum frá árinu 2008. Það á sér eðlilegar skýringar í sumum til- vikum þar eð sum félaganna voru stofnuð árið 2008. Það á til dæmis við um félag Ársæls Hafsteinsson- ar, framkvæmdastjóra skilanefnd- ar Landsbankans, sem stofnað var 8. október 2008, degi eftir að hann var skipaður í skilanefnd Lands- bankans. Hann þurfti síðar að víkja úr nefndinni þar sem óeðlilegt þótti að fyrrverandi yfirmaður í gjaldþrota Landsbanka sæti í nefndinni. Þess má geta að árið 2007 hafði Ársæll að jafnaði um 20 milljónir króna í laun á mánuði hjá Landsbankanum sam- kvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Annar skilanefndarmaður, Árni Tómasson, hafði um 34 milljón- ir króna að jafnaði á mánuði frá Kaupþingi árið 2004, sem rekja má til hundruð milljóna króna starfs- lokasamnings hans sem bankastjóra Búnaðarbankans þegar bankinn var einkavæddur og sameinaður Kaup- þingi árð 2003. 2007-einkennin Tekjur skilanefndar- og slitastjórn- armanna hafa reglulega orðið að umtalsefni síðan bankarnir féllu í október 2008. Fyrstu mánuðina höfðu skilanefndirnar tekjur sín- ar í gegnum Fjármálaeftirlitið og hið opinbera. Nú eru þær algerlega kostaðar af þrotabúunum sjálfum og þeim tekjum sem þau hafa af eignum sínum. Fréttir voru sagðar um allt að 26 þúsund króna reikn- inga fyrir hverja unna klukkustund lögfræðinga í skilanefndum. Sam- kvæmt því gátu lögfræðingar í fullri vinnu fyrir bú bankanna hæglega haft 200 þúsund krónur á dag fyrir vinnu sína. Þykir mörgum sem þessi nýja tekjuháa stétt bankahrunsins sýni að ýmsu leyti svipaða takta og útrásar- víkingarnir árið 2007 og berist jafn- mikið á og þeir gerðu. DV sagði til dæmis frá því í áramótablaði sínu að Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, hefði ásamt fjöl- skyldu sinni dvalið í Dúbaí um jólin. Þá eru heimildir fyrir því að lögfræð- ingar og eigendur Lögfræðistofu Reykjavíkur hafi snemma vetrar haldið árshátíð í Barcelona á Spáni. Að minnsta kosti fjórir lögfræðing- ar stofunnar starfa í slitastjórnum og skilanefndum Landsbankans, Glitnis og Sparisjóðabankans, þeir Lárentsínus Kristjánsson, Steinar Þ. Guðgeirsson, Ólafur Garðarsson og Tómas Jónsson. Kröfuhafar gera ekki athugasemdir Heildarkostnaður við greiðslu- Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar johannh@dv.is n Þeir sem eru í skilanefndum og slitastjórnum bankanna eru í hópi tekjuhæstu einstaklinga þjóðarinnar eftir hrunið n Tólf þeirra högnuðust samanlagt um 460 milljónir króna í gegnum einkahlutafélög sín allt árið 2009 n Það jafngildir á fjórðu milljón króna á mánuði Hin nýja auðstétt hrunsins 2009 2008 Ársæll Hafsteinsson (ÁH lögmenn ehf 100%) 56,7 6,5 (Yfirmaður hjá Landsbankanum fyrir bankahrun.) Lárentsínus Kristjánsson (Lækjarberg ehf 100%) 39,4 10,7 (Lögfræðistofa Reykjavíkur, skilanefnd Landsbankans okt. 2008, arðgreiðslur 32.5 millj. 2009.) Ólafur Garðarsson (ÓG lögmenn ehf) 53 35,7 (Lögfræðistofa Reykjavíkur - tilsjónarm. greiðslust. Kaupþings okt 2008 - greiddur arður: 36 millj. 2009.) Jóhannes Rúnar Jóhannesson (JRJ fjárráð ehf) 19,1 5,1 (AP lögmenn. Var lögfr. hjá Kaupþingi.) Davíð B. Gíslason (Gjaldheimtan lögfr.ráðgjöf. ehf) 5,4 (Davíð á 25 prósent í Gjaldheimtunni lögfræðiráðgjöf ehf.) Feldís Óskarsdóttir (stofnaði eigin félag árið 2010) (Feldís Óskarsdóttir hdl ehf og tekur tekjur þar í gegnum.) Heimir Haraldsson (Safn - ráðgjöf ehf. 100% ) 33,6 - 0,1 (Skilanefnd Glitnis. Félag í eigu Heimis fékk 500 milljónir afskrifaðar hjá Landsbankanum.) Árni Tómasson ( AT ráðgjöf ehf. ) 42 3,7 (Árni er í skilanefnd Glitnis - 32,4 millj, á mánuði hjá Kaupþingi 2004 vegna starfslokasamnings.) Þórdís Bjarnadóttir (Lögfræðimiðstöðin ehf. 100%) 21 9,1 (4 starfsmenn Lögfræðimiðstöðvarinnar fengu samtals 15 milljónir í laun 2009, greiddur arður 32,2.) Steinunn Guðbjartsdóttir (S.G. Lögmannsstofa ehf) 63 21 (Slitastjórn Glitnis. Hélt til í Dúbaí um jólin með fjölskyldunni.) Herdís Hallmarsdóttir (Embla lögmenn ehf. 50%) 22,4 0.6 (Slitastjórn Landsbankans, eignir félagsins hafa vaxið úr 35 í 120 millj. 2008–2009, skuldir úr 34 í 96.) Halldór H. Backman (LLS ehf. 50% ) 52,3 2,0 (Slitastjórn Landsbankans.) Kristinn Bjarnason (KB lögmannsstofa ehf. 100%) 52 56 (Kristinn Bjarnason starfaði m.a. fyrir Hannes Smárason og FL-Group fyrir bankahrun.) Samtals 460 150 Mismunur: 310 (Samanlagður hagnaður þrefaldaðist að jafnaði eftir skatta milli áranna 2008 og 2009) Hagnaður eftir tekjuskatt í milljónum króna:  Einkahlutafélag Slitastjórn Kaupþings: Ólafur Garðarsson ÓGlögmennehf. Davíð B. Gíslason Gjaldheimtanlögfræðiráðgjöfehf. Feldís L. Óskarsdóttir Skilanefnd Kaupþings: Steinar Þ. Guðgeirsson Guðný Arna Sveinsdóttir Knútur Þórhallsson Theodór Sigurbergsson Slitastjórn Glitnis: Steinunn Guðbjartsdóttir SteinunnGuðbjartsdóttirlögmannsstofaehf. Páll Eiríksson Einar Gautur Steingrímsson Skilanefnd Glitnis: Árni Tómasson ÁTráðgjöfehf. Heimir Haraldsson Safnráðgjöfehf. Þórdís Bjarnadóttir Lögfræðimiðstöðinehf. Slitastjórn gamla Landsbankans: Kristinn Bjarnason KBlögmannsstofaehf. Halldór Backman LLSehf. Herdís Hallmarsdóttir Emblalögmennehf. Skilanefnd gamla Landsbankans: Ársæll Hafsteinsson framkvæmdastjóri skilanefndar ÁHlögmennehf. Lárentsínus Kristjánsson formaður skilanefndar Lækjarbergehf. Einar Jónsson skilanefnd Hverjir sitja í skilanefndum og slitastjórnum?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.