Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 5. janúar 2011 Miðvikudagur Langaði til að gleðja börn sem dvelja þurftu á sjúkrahúsi um jólin: Safnaði gjöfum fyrir veik börn Jón og Hanna fá metanbíl Fjárfest hefur verið í nýjum bíl fyrir borgarstjóra, forseta borgarstjórnar og aðra lykilstarfsmenn í stjórn borg- arinnar. Bíllinn leysir af hólmi tvær aðrar bifreiðar sem áður voru í þjón- ustu borgarinnar í gegnum rekstr- arleigusamning. Bíllinn mátti kosta allt að fimm milljónum króna en hann kostaði þó umtalsvert minna. „Hann verður notaður fyrir borgar- stjóra, fyrir forseta borgarstjórnar og í sendiferðir fyrir ráðhúsið,“ segir Sig- urður Björn Blöndal, aðstoðarmaður Jóns Gnarrs borgarstjóra. Bílum skilað Sigurður Björn segir að tveimur bíl- um, sem voru á rekstrarleigu, hafi verið skilað á sínum tíma vegna hag- ræðingar. Síðan þeim bílum var skil- að hafa verið gerðar tilraunir með bíla knúna með vistvænum orkugjöf- um, líkt og vetni og rafmagni. Leiða má að því líkur að þær tilraunir hafi ekki gengið sem skyldi og nú hafi verið keyptur bíll til að sinna brýn- ustu verkefnum hjá stjórnendum borgarinnar. „Þar sem vantaði bíl í alls konar hluti fyrir ráðhúsið, það er náttúrulega eðlilegt að svona batterí hafi einn bíl, þá var ákveðið að kaupa metanbíl,“ segir hann. „Hann þjónar þá öllum, bæði sem snattbíll til út- keyrslu og ef það þarf að keyra borg- arstjórann.“ Borgarstjórabíll Samþykkt var í borgarráði í lok desember að kaupa ætti bílinn. Var lögð fram beiðni af meirihlutanum um að kaupa bíl fyrir borgarstjór- ann. Var þar lagt til að keyptur yrði ársgamall Volkswagen Passat sem gengur fyrir metani. Samþykkt var að eyða allt að fimm milljónum króna í kaupin en bíllinn kostaði hins vegar um 3,7 milljónir króna, samkvæmt heimildum DV. Bíllinn er skráður á skrifstofu borgarstjóra. „Ég veit ekki nákvæmlega hvern- ig notkunin var á þeim, sjálfsagt hafa þeir eitthvað verið notaðir í snatt líka,“ segir Björn aðspurður um hvort þessum bíl sé ætlað að koma í stað- inn fyrir þá tvo sem skilað var á sín- um tíma. Hjól til afnota Í ráðhúsi Reykjavíkur eru til stað- ar hjól fyrir starfsmenn borgarinn- ar. Segir aðstoðarmaður Jóns að þau komi sér vel og að þau hafi alla jafnan verið nýtt af starfsmönnum skrifstofu borgarstjóra. „Fyrir utan mesta vind- inn í janúar er þetta mjög fínt. Það er mjög fínt að nota þessi reiðhjól, ég meina það er hægt að fara á fundi, það er mjög fínt að fara upp á Höfða- torg,“ segir hann um reiðhjólin. Hjól- in munu þó ekki vera hugmynd Besta flokksins, og voru þau í húsinu þeg- ar Besti flokkurinn náði meirihluta í borginni. „Við getum víst ekki tekið kredit fyrir það,“ segir hann. n Metanbíll keyptur fyrir skrifstofu borgarstjóra n Tæplega fjögurra milljóna króna bíll keyptur n Segja bílinn vera til að keyra borgarstjóra og „snattbíl til útkeyrslu“„Ég veit ekki ná- kvæmlega hvernig notkunin var á þeim, sjálf- sagt hafa þeir eitthvað verið notaðir í snatt líka. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Stjórinn og forsetinn Jón Gnarr borgarstjóri og Hanna Birna forseti borgarstjórnar munu hafa afnot af bílnum, samkvæmt aðstoðarmanni Jóns. kennsla hefst 10. janúar Innritun og upplýsingar í síma 561 5620 www.schballett.is Sara Lind Kolbeinsdóttir býr í Sønder borg í Danmörku og stundar nám í háskólanum þar. Undanfarin fjögur ár hefur hún safnað gjöfum og farið með til barna sem þurfa að liggja á barnadeildinni á sjúkrahús- inu á Sønder borg um jólin, þeim til mikillar gleði. „Það er mikið af lista- mönnum og þekktu tónlistarfólki sem heimsækir barnadeildina á sjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn og börnin fá gjafir og fleira skemmti- legt. Mér fannst vanta að eitthvað skemmtilegt væri gert fyrir krakkana á barnadeildinni hér í Sønder borg “ Sara Lind ákvað að taka málið í eigin hendur og fór sjálf af stað með söfnun til að gleðja börnin. „Það eru ekki allir sem vilja gefa pening í svona safnanir, svo ég ákvað að hver og einn gæti bara keypt sína jólagjöf og sett hana undir stórt jólatré sem er hjá háskólanum. Fólk skrifaði á pakkann hvort hann væri fyrir stelpu eða strák og hvaða aldur.“ Sara Lind segir söfnunina hafa gengið afar vel og að bæði fyrirtæki og einstaklingar hafi lagt þeim lið. „Við fórum svo nokkrir krakkar úr háskólanum með jólasveininum og tveimur aðstoðarmönnum hans með gjafirnar á spítalann 22. desem- ber. „Það var ein lítil stelpa þarna sem lá í sjúkrarúmi. Hún hafði verið í beinmergsskiptum stuttu áður en við komum og þurfti því að liggja kyrr í rúminu, en hún var svo ótrúlega spennt og glöð yfir að jólasveinninn væri kominn að hitta hana að hún gat bara ekki ekki legið kyrr, elsku stelpan“, segir Sara Lind og hlær. Eftir að hafa gefið börnunum á sjúkrahúsinu gjafirnar var talsvert af pökkum eftir, svo Sara Lind brá á það ráð að gefa þær til krakka og ungl- inga sem dvelja í kvennaathvarfi í bænum. Sara Lind ætlar að halda áfram með söfnunina um ókomin ár, en hún segist ekki vera á leið heim til Ís- lands eftir nám. „Það er æðislegt að byrja jólin á þennan máta og ég ætla að halda þessu áfram næstu árin.“ hanna@dv.is Jólagleði Sara Lind segir æðislegt að byrja jólin á að fara með gjafir á sjúkrahúsið. Ósætti í Krossinum: Hættir vegna Jónínu Ben Magnús Sigurjón Guðmundsson hefur sagt sig úr stjórn trúfélagsins Krossins. Gerir hann það í kjölfar birtingar á tölvupóstsamskiptum Jónínu Benediktsdóttur við Ástu Knútsdóttur, talsmann kvennanna sem sakað hafa Gunnar Þorsteins- son, eiginmann Jónínu, um kynferð- islega áreitni og misnotkun. „Þetta er aðallega út af þessum bréfaskrift- um sem áttu sér stað í morgun,“ sagði hann við DV á þriðjudag. Magn- ús segist ekki vera sammála vinnubrögðum Jónínu og Ein- ars Ólafssonar, stjórnarmanns í Krossinum, sem sendi fyrrverandi tengdamóður Gunnars bréf þar sem hann spurði hvort ekki hefði eitthvað misfarist í uppeldi barna hennar, en fyrrver- andi mágkonur Gunnars eru meðal þeirra kvenna sem saka hann um kynferðisbrot. „Mér finnst fulllangt gengið að vera með svona skítkast eins og var þarna,“ segir hann. „Almennt séð er fólk innan Krossins að bregðast hárrétt við en það er misjafn sauður í mörgu fé, þarna eins og annars staðar,“ segir Magnús. Aðspurður um póst Jónínu svarar hann: „Mér fannst þessi póst- ur frá henni til háborinnar skammar. Bæði fyrir okkur sem í stjórn sitjum og kirkjuna alla. Ég vona innilega að fólk átti sig á því að þetta end- urspeglar ekki skoðun kirkjunnar, langt því frá. Fólk hefur kappkostað að mæta þessum erfiðleikum á fag- legan hátt en þá er það skemmt með svona barnalegum verkum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.