Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Blaðsíða 15
Jólatré ekki hirt í Reykjavík Reykjavíkurborg mun ekki hirða
jólatré borgarbúa í ár frekar en í fyrra. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar.
Þeir sem þurfa að losa sig við jólatré að hátíðinni lokinni geta farið með trén endur-
gjaldslaust á endurvinnslustöð eða keypt þjónustuna hjá sorphirðufyrirtækjum og
íþróttafélögum. Þar sem flestir fara á endurvinnslustöðvar eftir jólin með ýmsar
umbúðir og pakkningar utan af flugeldum er tilvalið að kippa trénu með. Nokkur
íþróttafélög í Reykjavík bjóða upp á þá þjónustu að hirða jólatrén eftir hátíðirnar
en eins hafa Skógræktarfélag Reykjavíkur og Gámaþjónustan hafið samstarf um
hirðingu trjánna en hægt er að panta þjónustuna hjá fyrirtækjunum.
Árétting Vegna verðkönnunar á árskortum líkamsræktarstöðva vildu
forsvarsmenn Hreyfingar koma því á framfæri að líkamsræktarstöðin býður
einnig upp á skólakort. Í grein DV kom ekki fram að hjá Hreyfingu geta námsmenn
á aldrinum 16 til 25 ára fengið svokallaða skólaaðild. Annaðhvort sækir fólk um
tveggja mánaða binditíma sem kostar 5.900 krónur á mánuði eða 12 mánaða
binditíma sem kostar 4.500 á mánuði. Eins vildu þeir geta þess að hægt er að fá
tveggja ára binditíma sem er ódýrari leið en árskortin. Í könnun DV var þó aðeins
kannað verð á árskortum. Einnig er vert að geta þess að í Baðhúsinu er hægt að fá
árskort í áskrift en þau veita frían aðgang á öll lokuð námskeið.
Neytendur | 15Miðvikudagur 5. janúar 2011
„Já, við komum nú meðal annars út af útsölunum en erum meira bara að
skoða,“ sögðu Hrafn Ólíver Posocco og Þorleifur Rafnsson. Þeir sögðust ekki hafa beðið
eftir útsölum en þeir ættu örugglega eftir að geta gert góð kaup.
SPARAÐU OG KAUPTU NÚNA
Eitthvað fyrir alla
Í Hagkaupum er boðið upp á „verðpunkta“ með föstu verði en
það eru vörur á 500 til 1.000 krónur. Afslátturinn þar er á bilinu
30 til 50 prósent en fatnaður og skófatnaður eru þær vörur
sem lækka mest þó svo að flestir vöruflokkar lækki eitthvað.
Debenhams er með 30 til 70 prósenta afslátt af völdum
vörum sem koma úr öllum deildum. Útsölurnar samanstanda
að mestu af eldri vörum en til eru dæmi um að nýjar vörur
fari beint á 50 prósenta afslátt. Einna minnst eru tilboð
á snyrtivörum. Barnaföt er sá vöruflokkur sem Cintamani
lækkar um þessar mundir en þar eru slegin 30 prósent af öllum
barnafatnaði. Fullorðinsflíkur fara hins vegar á útsölumarkað
í Garðabæ þegar nýir litir og nýjar gerðir koma inn. Svipað er
hjá 66°Norður en þar fara eldri flíkur beint á útsölumarkað í
Faxafeni.
Íþróttavörur
Útsalan í Adidas hefst 6. janúar en að sögn starfsmanns
verslunarinnar var ákveðið að lengja skilafrest til þess að sem
flestir næðu að skila jólagjöfum. Þá verður boðið upp á 30
prósenta afslátt af þeim vörum sem eru ekki allra vinsælastar.
Þau vörunúmer sem eru mikið keypt allan ársins hring fara ekki
á útsölu. Í mars eða apríl má svo búast við lagersölu á vörum
Adidas. Í Útilíf eru það mestmegnis verð á skóm og sportfatn-
aði sem hefur verið lækkað. Um miðjan mánuð mun afsláttur
hækka enn meira til að koma vörum út.
Flestar heimilisvörur og
búsáhöld á afslætti
Verslanir með heimilisvörur og búsáhöld eru með mikið magn
af vörum sínum á útsölu. Þannig auglýsir IKEA allt að 50
prósenta afslátt á 2.300 vörunúmerum sem nær til allra deilda
og stendur yfir þar til síðla í janúar. ILVA veitir 25 til 40 prósenta
afslátt af ýmsum vöruflokkum sem nær til 1.400 vörunúmera.
Í Tekk Company eru allar jólavörur á helmingsafslætti, matar-
stell og ákveðin kerti eru á 30 prósenta afslætti en þess fyrir
utan eru allar vörur í búðinni á 10 prósenta afslætti. Verslunin
Búsáhöld býður upp á 20 prósenta afslátt af nær öllum vörum
eða um 90 prósentum þeirra.
Snyrtivörur
Þær sem þurfa að hressa upp
á baðherbergisskápinn og
snyrtibudduna geta glaðst yfir
því að þessar vörur fara einnig á
útsölu. Til dæmis er The Body Shop
með allt að 50 prósenta afslátt af
völdum vörum. Það eru bæði vörur
sem verslunin fær sendar að utan
sem og sérstakar tilboðsvörur en
einnig eru nokkur af vinsælustu
kremunum á útsölunni. Make-up
Store er með ýmsar vörur á tilboði.
Til dæmis eru 1.000 krónur slegnar
af ákveðnum litum í varalitum,
augnskuggum og varalitablýöntum
og fjaðraaugnahár er hægt að fá á
590 krónur. Auk þess er pakki með
ilmvatni og sturtusápu nú á 4.912 í
stað 9.890 króna.
Rífandi út-
sölustemning
„Klikkað“ að gera, segir verslunarmaður:
Stemningin í Kringlunni og Smára-
lind fyrsta útsöludaginn í flestum
búðum var svipuð og síðustu dag-
ana fyrir jól. Erfitt var að finna laust
bílastæði og inni var fólk með fulla
poka af útsöluvörum. Biðraðir við
kassa voru langar og það mætti því
ætla að margir hafi geymt að kaupa
ýmislegt þar til útsölur hófust en
í flestum búðum í verlsunarmið-
stöðvunum og í miðbæ Reykjavík-
ur eru útsölur nú hafnar. Verslun-
arfólk sem DV ræddi við var flest
sammála um að útsölurnar færu
vel af stað. Mikið væri búið að gera
eða „klikkað að gera“ eins og einn
orðaði það. Á einum stað beið fólk
fyrir utan þar til búðin var opnuð
og á öðrum höfðu starfsmenn ekki
við að fylla á vörur. Einn starfsmað-
urinn hafði það á orði að óvenju-
mikið hefði verið að gera þann dag-
inn og örtröðin meiri en sama dag
í fyrra.
Viðmælendur blaðamanns í
Smáralindinni voru þó ekki búnir
að kaupa margt en voru ánægðir
með það sem þeir höfðu séð.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Einn starfs-
maðurinn
hafði það á orði að
óvenjumikið hefði ver-
ið að gera þann dag-
inn og örtröðin meiri
en sama dag í fyrra.
Vinkonurnar Rebekka Katrín Arnþórsdóttir og Helga Hauksdóttir sögðust
vera búnar að gera góð kaup á útsölunum. „Ég var að leita mér að kjól fyrir árshátíðina
og fann hann,“ sagði Helga. Þær voru sammála um að þeim litist vel á útsölurnar en þær
hefðu ekki geymt nein kaup þar til þær byrjuðu. „Já, þetta eru mjög góðar útsölur, miklu
betri en við bjuggumst við. Við héldum eiginlega að það væri allt búið,“ bættu þær við.
„Já, við komum eiginlega út af útsölunum en erum ekkert búin að versla,“
sögðu Bjarki Brynjólfsson og Rósa Hafliðadóttir. Þau sögðust þó ekki vera að leita að
neinu sérstöku og að þau væru að skoða hvað væri í boði. Þeim fannst búðirnar bjóða
upp á mikinn afslátt en þó svipaðan og í fyrra.
„Þeir karlmenn
sem vilja
bæta í fataskápinn
ættu ekki að vera í
vandræðum með að
finna eina eða tvær
flíkur á útsölunum.