Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 5. janúar 2011 Miðvikudagur
H&M sagt skipta við þrælaverksmiðju:
Líklega ekkert aðhafst
Forsvarsmenn Landsbanka Ís-
lands eru ósáttir við uppgjör á búi
heildverslunarinnar Dreifingar og
íhuga að leita réttar síns. Bankinn
er stærsti kröfuhafi fyrirtækisins.
Þetta kemur fram í svari Kristjáns
Krist jánssonar, upplýsingafulltrúa
Landsbankans, við fyrirspurn DV
um afstöðu bankans til uppgjörs-
ins á búi Dreifingar. „Forsvarsmenn
Landsbankans eru mjög ósáttir við
hvernig þetta mál hefur þróast og
eru að skoða hvort rétt sé að grípa til
viðeigandi ráðstafana.“
Líkt og DV greindi frá í síðustu
viku gerði matvæla- og drykkjar-
vörufyrirtækið Ölgerðin Egill
Skallagrímsson ráðgjafarsamning
við forstjóra og eiganda Dreifingar,
Hauk Hjaltason, um það leyti sem
félagið varð gjaldþrota í nóvem-
ber. Í ráðgjafarsamningnum felst
að Haukur tryggi Ölgerðinni um-
boð og samninga við erlenda aðila
sem Dreifing hafði áður. Dreifing
var meðal annars með samninga
við kanadíska matvælafyrirtækið
McCain en viðskipti við það fyrir-
tæki stóðu fyrir á milli 50 og 60 pró-
senta af heildarveltu fyrirtækisins.
McCain framleiðir til að mynda
franskar kartöflur.
Þrotabú Dreifingar, sem Ást-
ráður Haraldsson lögmaður stýrir,
skoðar nú hvort brotið hafi verið á
hagsmunum kröfuhafa fyrirtækisins
með viðskiptum Ölgerðarinnar og
Dreifingar.
Skoða möguleg lögbrot
Kristján segir að forsvarsmenn
Landsbankans séu meðal annars að
skoða hvort eitthvað ólöglegt hafi
verið við samninginn á milli Ölgerð-
arinnar og Hauks. „Hafi eitthvað
ólöglegt verið gert í tengslum við
gjaldþrot Dreifingar eða í aðdrag-
anda þess, mun bankinn leita réttar
síns vegna þeirra gjörða.“
Forstjóri Ölgerðarinnar, Andri
Þór Guðmundsson, sagði við DV í
síðustu viku að ekkert ólöglegt hefði
verið við viðskiptin og að Haukur
ynni að því að ná samningum við
fyrrverandi birgja Dreifingar. „Hann
er að beita sér fyrir því að þessir að-
ilar sem hann hefur verið í áratuga-
viðskiptum við geri samninga við
okkur. Þetta er bara bisniss fyrir okk-
ur og það er ekkert ólöglegt í þessu
sem Haukur er að gera.“
Andri vildi ekki gefa upp hversu
háa fjárhæð Haukur fengi fyrir ráð-
gjöf sína en DV hafði heimildir fyr-
ir því að um væri að ræða í kringum
180 milljónir króna.
500 til 600 milljóna skuldir
Á meðan Landsbankinn og þrota-
bú Dreifingar skoða stöðu sína í
Dreifingarmálinu eiga Ölgerðin og
fyrrverandi birgjar heildverslunar-
innar í samningaviðræðum. Þetta á
meðal annars við um samninga við
McCain. Haukur tekur þátt í þessum
samningaviðræðum fyrir hönd Öl-
gerðarinnar, líkt og gert er ráð fyrir
samkvæmt samkomulagi hans við
matvælafyrirtækið. Um þetta sagði
Andri í samtali við DV í síðustu
viku: „Við tókum við þessum um-
boðum um það leyti sem Dreifing
varð gjaldþrota, það er svona einn
og hálfur mánuður síðan. Og við
höfum smám saman verið að gera
samninga við birgja síðan.“
Ætla má að heildarskuldir Dreif-
ingar séu á bilinu 500 til 600 millj-
ónir króna og er Landsbankinn
langstærsti kröfuhafi félagsins líkt
og áður segir. Ástráður veit ekki
nákvæmlega hversu miklar eignir
munu fást upp í skuldir Dreifingar
en ætla má að kröfuhafar fyrirtækis-
ins þurfi að afskrifa talsvert af kröf-
um sínum vegna gjaldþrots félags-
ins.
n Landsbankinn skoðar réttarstöðu sína í Dreifingarmálinu n Bankinn hyggst leita
réttar síns reynist hafa verið gengið á rétt hans n Fyrrverandi forstjóri Dreifingar vinnur
við að tryggja Ölgerðinni umboð Dreifingar n Dreifing varð gjaldþrota í nóvember
„Mjög ósáttir“ við
Dreifingarmálið
„Hafi eitthvað ólög-
legt verið gert í
tengslum við gjaldþrot
Dreifingar eða í aðdrag-
anda þess, mun bank-
inn leita réttar síns vegna
þeirra gjörða.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Bankinn skoðar
stöðu sína Forstjóri
Ölgerðarinnar, Andri
Þór Guðmundsson,
taldi ekkert athugavert
við ráðgjafarsamning-
inn við Hauk Hjaltason,
fyrrverandi forstjóra
Dreifingar, þegar
DV ræddi við hann í
síðustu viku.
Minna virði Bú Dreifingar er minna virði en
áður þar sem samningar við erlenda birgja
fylgja ekki. Stærsti kröfuhafi Dreifingar er
Landsbankinn sem Steinþór Pálsson stýrir.
„Fólk sem framleiðir föt fyrir H&M
vinnur fyrir 238 krónur á dag. Það er
ástæða þess að fötin eru ódýr,“ segir
Drífa Snædal, fyrrverandi framkvæmd-
astýra Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs. Eru þetta viðbrögð hennar
við fréttum af áhuga H&M á því að opna
verslun hér á landi. Þetta kemur fram í
pistli sem hún skrifar frá Svíþjóð og er
birtur á Smugunni. „Í september lögðu
10.000 manns niður vinnu í Kambódíu
til að freista þess að hækka lágmarks-
laun en ríkisstjórn Kambódíu setti lög
á verkfallið,“ segir hún, en í októ ber
birtust fréttir um launakjör fólks sem
vinnur í verksmiðjum í Kambódíu sem
framleiða föt fyrir H&M í Svíþjóð.
„Ég held að við myndum almennt
séð taka því fagnandi ef nýir aðilar sjá
tækifæri í því að koma hingað. Það
stækkar markaðinn og gerir viðskipta-
lífið öflugara,“ segir Andrés Magnús-
son, framkvæmdastjóri Samtaka versl-
unar og þjónustu. Hann dregur í efa að
eitthvað í þessa veru myndi hafa áhrif
á starfsleyfi fyrirtækisins hér á landi en
bendir á að almenningsálitið gæti orðið
neikvætt og að það geti haft mikil áhrif.
„Við höfum heimild í lögum okkar
til að hafna fyrirtækjum sem sækja um
hjá okkur, það er líka heimild í okkar
lögum til að víkja fyrirtækjum úr sam-
tökunum, ef við teljum starfsemi þeirra
ekki samboðna virðingu okkar.“
adalsteinn@dv.is
Til Íslands? Forsvarsmenn H&M komu
nýlega til Íslands til að skoða hugsanleg
verslunarrými fyrir H&M-verslun í Reykjavík.
Fleiri konur
leituðu aðstoðar
Mun fleiri konur en karlar leit-
uðu sér aðstoðar hjá hjálparsam-
tökum í formi matarúthlutunar
þann 24. nóvember síðastliðinn.
Hlutfall kvenna var um 57 pró-
sent á móti rúmum 42 prósent-
um karla. Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands gerði könnunina
að beiðni velferðarráðuneytisins.
Ætla má að 800 manns hafi leitað
sér aðstoðar þennan dag. Flestir
voru á aldrinum 30–50 ára. Um
sjö prósent hópsins voru í laun-
aðri vinnu og um fjögur prósent á
eftirlaunum.
Ríflega tveir af hverjum fimm
svarendum sögðust hafa haft
undir 150.000 krónum í heildar-
tekjur fyrir skatt, mánuðinn fyrir
könnunina.
Íslendingar
svartsýnir
Samkvæmt skoðanakönnun sem
BVA-Gallup framkvæmdi í 53 lönd-
um eru Íslendingar mjög svartsýn-
ir miðað við aðrar þjóðir. Í könn-
uninni var meðal annars spurt um
efnahagshorfur og horfur á vinnu-
markaði. Íslendingar sitja í öðru
sæti listans á eftir Frökkum sem eru
svartsýnastir. Bretar eru í þriðja sæti.
Þjóðverjar eru bjartsýnastir sam-
kvæmt könnun BVA-Gallup en ofar-
lega á listanum voru til dæmis Víet-
namar, Nígeríumenn og Kínverjar.
Tveimur sleppt
úr haldi
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurð-
aði á þriðjudag tvo menn í áfram-
haldandi gæsluvarðhald vegna skot-
árásar á hús við Ásgarð á aðfangadag
jóla. Voru mennirnir úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 1. febrúar. Lögregl-
an fór fram á að tveir menn sem eru
grunaðir um aðild að málinu sættu
einnig áframhaldandi varðhaldi.
Dómari féllst hins vegar ekki á þá
kröfu og hefur þeim nú verið sleppt.
Mennirnir hafa allir játað aðild að
málinu.