Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Qupperneq 12
12 | Fréttir 5. janúar 2011 Miðvikudagur
Bubbi vill fá lögin
sín frá bankanum
n Nokkrir þekktustu tónlistarmenn Íslands seldu hugverkaréttinn á tónlist
sinni til Baugs 2006 n ALMC, áður Straumur, er við það að leysa réttinn
til sín n Bubbi Morthens vill eignast hugverkaréttinn á tónlist sinni aftur
Bubbi Morthens tónlistarmaður vill
kaupa aftur réttinn á lögum sínum
frá fjárfestingarbankanum ALMC,
áður Straumi-Burðarási. ALMC
eignast réttinn á lögum Bubba og
níu annarra landsþekktra tónlist-
armanna, meðal annarra Gunnars
Þórðarsonar og Stefáns Hilmars-
sonar, eftir að fjárfestingarbankinn
tekur formlega yfir Baugsfélagið Á
bleiku skýi á næstunni. Starfsmenn
ALMC, Brynjar Hreinsson og Birna
Káradóttir, settust í stjórn Á bleiku
skýi í lok september í fyrra. Einka-
hlutafélagið á Hugverkasjóð Ís-
lands ehf. sem heldur utan um rétt-
inn á tónlistinni.
Tónlistarmennirnir seldu réttinn
á lögum sínum inn í Hugaverkasjóð
Íslands árið 2006 og fengu í stað-
inn lán frá Baugi upp á samtals 150
milljónir króna. Bubbi Morthens
fékk hæstu upphæðina fyrir rétt-
inn, 36 milljónir króna. Hugmynd-
in með viðskiptunum var sú að stef-
gjöldin vegna laga listamannanna
myndu renna til Hugverkasjóðs-
ins og borga niður lánin til tónlist-
armannanna á tíu árum. Í tilkynn-
ingu frá Baugi um viðskiptin árið
2006 var sagt að markmið sjóðsins
væri að efla íslenskt tónlistarlíf og
veita listamönnunum aukið svig-
rúm til sköpunar nýrra höfundar-
verka. Eftir þetta tíu ára tímabil áttu
tónlistarmennirnir að fá réttinn á
tónlist sinni til baka. Í kjölfarið á
gjaldþroti Baugs og tengdra félaga
mun Á bleiku skýi enda sem eign
ALMC, áður Straums.
Nauðasamningar Straums voru
samþykktir um mitt ár í fyrra og
vinna starfsmenn bankans að því
að gera búið upp og selja eignir
þess til að hámarka endurheimtur
kröfuhafa. Stærsti hluthafi Straums
fyrir hrun var Björgólfur Thor Björ-
gólfsson fjárfestir.
Bubbi og Gunnar vilja lögin sín
Bubbi segist ólmur vilja kaupa aft-
ur réttinn á lögum sínum. „Auð-
vitað hef ég áhuga á því. Ég ætla
svo sannarlega að vona að ég geti
keypt réttinn til baka. Stefgjöldin
mín hafa farið í það að borga nið-
ur upphæðina sem ég fékk á sínum
tíma og ég held að það hafi geng-
ið vel. Nú ætla ég að fara af stað og
sjá hvað ég get gert í þessu,“ segir
Bubbi aðspurður.
Gunnar Þórðarson segist sömu-
leiðis vilja eignast hugverkarétt-
inn á lögum sínum aftur. „Já, ég
hef áhuga á því. En svo er spurn-
ing hvernig maður fer að því,“ seg-
ir Gunnar en hann fékk 27 milljón-
ir króna fyrir hugverkaréttinn þegar
hann seldi sjóðnum hann á sínum
tíma.
Björn Jörundur Friðbjörnsson,
meðlimur Nýdanskrar, sem einnig
seldi réttinn á tónlist sinni á sínum
tíma, segir hins vegar að breyting-
ar á eignarhaldi Hugverkasjóðs Ís-
lands breyti engu um þann samn-
ing sem hann gerði þegar hann
seldi hugverkaréttinn til sjóðsins
á sínum tíma. Björn Jörundur fékk
9,5 milljónir króna fyrir réttinn.
„Réttur inn fer bara til baka þeg-
ar samningurinn er búinn, alveg
sama hver á hann,“ segir Björn Jör-
undur. Hann segist ekki sjá neina
ástæðu til þess að ná réttinum aftur
til sín áður en samningstímanum
lýkur. Hann segist heldur ekki hafa
ráð á því að kaupa réttinn aftur. „Ég
hef ekki efni á því þannig að ég er
ekkert að pæla í þessu.“
Rétturinn verður seldur
Samkvæmt upplýsingum frá ALMC
hyggst bankinn selja eignirnar sem
eru inni í Á bleiku skýi þegar þar að
kemur. Engin ákvörðun hefur hins
vegar verið tekin um hvenær þess-
ar eignir verða seldar og eru eng-
ar viðræður hafnar um sölu þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá fjár-
festingarbankanum munu form-
leg eignaskipti á Á bleiku skýi eiga
sér stað á næstunni en samkvæmt
öllum opinberum upplýsingum er
eigandi Á bleiku skýi ennþá dótt-
urfélag Baugs, Stoðir Invest. En
Straumur, nú ALMC, á veð í eign-
um félagsins sem bankinn mun
brátt leysa til sín.
Baugur lánaði Á bleiku skýi 150
milljónir króna á sínum tíma og
var sú upphæð notuð til að greiða
tónlistarmönnunum fyrir réttinn á
lögum þeirra. Á fyrri hluta árs 2008,
þegar eignum Baugs var skipt upp
á nokkur önnur félög, fluttist eign-
arhaldið á félaginu yfir til Fjárfest-
ingarfélagsins Gaums og þaðan til
Stoða Invest og tók það félag jafn-
framt við láninu sem áður hafði
verið við Baug. Skuldin við Stoðir
Invest nemur rúmum 62 milljónum
króna í dag samkvæmt ársreikningi
Á bleiku skýi fyrir árið 2009.
Stjórnarmenn Á bleiku skýi,
Kristín Jóhannesdóttir, Hreinn
Loftsson og Þórdís Jóna Sigurðar-
dóttir, sögðu sig öll úr stjórn félags-
ins á mánuðunum eftir efnahags-
hrunið haustið 2008.
Standa ekki vel
Staða Á bleiku skýi er ekki mjög góð í
dag. Félagið tapaði tæpum sjö millj-
ónum króna árið 2009 og er eigið fé
þess neikvætt um rúmlega 61 millj-
ón króna. Hlutafé félagsins er rúmar
100 milljónir króna. Á bleiku skýi á
aðrar eignir líka þótt Hugaverkasjóð-
urinn sé stærsta eign félagsins. Hug-
verkasjóðurinn sjálfur stendur held-
ur ekki mjög vel. Tap félagsins nam
26 milljónum króna árið 2009, eign-
irnar námu tæpum 200 milljónum
króna og var eigið fé félagsins nei-
kvætt um nærri 80 milljónir króna.
Félögin sem halda utan um hug-
verkaréttinn á tónlist listamann-
anna níu standa því alls ekki mjög
vel. Sú staðreynd að bankinn sem
heldur utan um félögin sem eiga
þessi hugverkaréttindi er í upp-
gjörsferli eftir samþykkt nauða-
samninga þýðir að bankinn mun
vilja selja sem mest af eignum sín-
um á eins háu verði og mögulegt
er. Hugverkarétturinn mun því
að öllum líkindum enn skipta um
hendur á næstunni. Í einhverjum
tilfellum er hugsanlegt að tónlist-
armennirnir sjálfir reyni að kaupa
réttinn, ef þeir geta fjármagnað slík
kaup það er að segja, en jafnframt
er ekki hægt að útiloka að réttur-
inn verði seldur þriðja aðila. Lög
tónlistarmannanna gætu því hald-
ið áfram að vera á vergangi í kjölfar
hrunsins 2008, áður en þau rata aft-
ur til höfunda sinna eftir um sex ár,
í lok samningstímans.
Gunnar Þórðarson 27 milljónir
Bubbi Morthens 36 milljónir
Stefán Hilmarsson 23,5 milljónir
Jón Ólafsson 6,5 milljónir
Valgeir Guðjónsson 17 milljónir
Eyþór Gunnarsson 11 milljónir
Helgi Björnsson 7 milljónir
Jakob Frímann Magnússon 7 milljónir
Björn Jörundur 9,5 milljónir
Guðmundur Jónsson 18 milljónir
Hugverkasjóðsmenn
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Ég ætla svo sannar-
lega að vona að ég
geti keypt réttinn til baka.
Lög á vergangi Hugverkarétturinn að tónlist
Bubba Morthens hefur verið á vergangi síðastliðin ár,
fór fyrst til Milestone, þaðan til Baugs og svo áfram til
Straums. Lög Gunnars Þórðarsonar og Björns Jörund-
ar Friðbjörnssonar eru einnig eign Straums í dag.
Stýrðu sjóðnum Hugverkasjóður Íslands var í eigu Baugs og síðan Gaums. Hér sjást
Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, og Jón Ásgeir Jóhannesson og Kristín Jóhannes-
dóttir, tveir af helstu eigendum Baugs og Gaums.