Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Side 18
18 | Umræða 5. janúar 2011 Miðvikudagur
Skinka með
samloku
„Hann sýndi okkur að
hann kann enn nokkrar
æfingar þó svo að hann sé
kominn á sextugsaldurinn
og var með nokkrar af
sínum uppáhalds í dag.“
n Guðjón Valur Sigurðsson um
landsliðsþjálfarann Guðmund Þórð
Guðmundsson sem lét strákana okkar
taka á því á fyrstu æfingu liðsins fyrir HM.
– Fréttablaðið
„Ég get stað-
fest það að ég á
von á barni með
kærasta mínum, Pétri
Rúnari.“
Eitt sinn fegursta kona heims, Unnur
Birna Vilhjálmsdóttir, núverandi
meistaranemi í lögfræði, er með barni.
– Fréttablaðið
„Ritstjórinn heldur greini-
lega að hann geti sent
slepjulega sjálfsréttlæt-
ingarpistla sína í smá
skömmtum til þjóðarinn-
ar.“
n Hilmar Jónsson bloggari var ósáttur
við viðtal Viðskiptablaðsins við Davíð
Oddsson. – Morgunblaðið
„Það verður meiri hasar,
meiri lífshætta.“
n Sigurjón Kjartansson, handritshöf-
undur Pressu 2, sem verður sýnd á Stöð 2 í
mars. Leikstjórar og leikendur kíktu á DV
milli jóla og nýárs til að sækja sér
innblástur. – DV
„Þú ert ógeðsleg mann-
eskja ég horfði á þig
faðma og kyssa manninn
minn að sjúklegri nautn.“
n Brot úr tölvupósti sem Jónína
Benediktsdóttir sendi talskonu kvenna
sem bera Gunnar Þorsteinsson sökum um
kynferðislega áreitni. – Pressan
Draugur Steingríms
Steingrímur J. Sigfússon, for-maður Vinstri grænna, stend-ur nú frammi fyrir því að
glíma við sinn eigin draug í líki Lilju
Mósesdóttur, Atla Gíslasonar og Ás-
mundar Einars Daðasonar.
Þau þrjú í Vinstri grænum, sem
hafa neitað að samþykkja fjárlaga-
frumvarpið, eru í sjálfu sér ekki að
gera neitt rangt með því að neita
að samþykkja það. Gagnrýnin á
„vitringana þrjá“ hefur yfirleitt snúið
að því að rangt sé af þeim að styðja
ekki ríkisstjórnina. Það er hins veg-
ar ekkert rangt við það í sjálfu sér að
hafa aðra skoðun en leiðtogi flokks-
ins.
Foringjaræðið innan Sjálfstæð-
isflokksins, Framsóknarflokksins og
Samfylkingarinnar var ein af meg-
inástæðum gagnrýnisleysisins sem
skapaði aðstæður fyrir efnahagsból-
una og hrunið. Hluti af hreinsuninni
var að fá til valda leiðtoga sem fóstr-
uðu gagnrýna umræðu. Steingrím-
ur J. Sigfússon formaður hefur leyft
andstöðuna og umræðuna.
Vandi Steingríms er að Lilja, Ás-
mundur og Atli eru hin sönnu vinstri
grænu. Þau eru eins og hann var sjálf-
ur fyrir valdatökuna. Jafnvel andstaða
þeirra við fækkun opinberra starfa í of-
urskuldugu kreppulandi með góðær-
isútgjöld er vinstri-grænni en stefna
Steingríms í dag. Ein megingagnrýnin
í yfirlýsingu þeirra fyrir jól var að fjár-
lagafrumvarpið gerði ráð fyrir fækkun
opinberra starfa um hátt í þrjú þús-
und á tveimur árum. Opinber störf
voru tæplega 19 þúsund í lok árs 2009,
en aðeins tæplega 14 þúsund fyrir tíu
árum. Við erum því í góðærisfasa þeg-
ar kemur að opinberum störfum.
Steingrímur J. framfylgir nú stefnu
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að stórum
hluta. Hann er nú talsmaður raunsæis
og öryggis. Hann hefur tekið þá af-
stöðu að fara áhættuminnstu leiðina.
Hann gerði það í Icesave-málinu þeg-
ar hann reyndi að semja sem hraðast
og hann gerði það líka þegar kom að
gjaldeyrissjóðnum.
Á hinn bóginn eru „vitringarnir
þrír“ fylgjandi áhættumeiri leiðinni í
efnahagslegum skilningi, því að hætta
jafnvel samstarfi við Alþjóðagjaldeyr-
issjóðinn og skera ekki niður í velferð-
arkerfinu. Í því felst meiri óvissa.
Þegar allt kemur til alls er þetta það
sem aðskilur þau helst. Steingrímur
og hans fólk vilja lágmarka áhættu,
hin þrjú vilja taka sénsinn og kasta Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum. Kannski hef-
ur Steingrímur rétt fyrir sér út frá raun-
veruleikanum, en vitringarnir hafa
rétt fyrir sér út frá hugsjónum vinstri
grænna.
Einu sinni var Steingrímur hug-
sjónamaður, óspjallaður af ábyrgð.
Þau þrjú eru eins og Steingrímur J.
sprelllifandi úr fortíðinni. Hans eig-
in draugur ásækir hann, draugur þess
Steingríms sem vildi kasta Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum úr landi.
Silfurfat sægreifanna
n Jón Bjarnason sjávarútvegsráð-
herra fær stuðning úr óvæntri
átt við að taka aflaheimildir út úr
kvótakerfinu
og leigja í nafni
almennings.
Emil Thoraren-
sen, fyrrverandi
stjórnarmaður
í LÍÚ, tjáði sig á
DV.is um stöðu
Jóns. „Sem ráð-
herra sjávar-
útvegsmála hefur Jón haft þor og
kjark til að framkvæma leiðréttingu,
vilja mikils meirihluta þjóðarinnar
vegna stærsta ráns Íslandssögunn-
ar, sem sægreifarnir fengu rétt á silf-
urfati, með sértækri hjálp Kristjáns
Ragnarssonar hjá LÍÚ, hættulegasta
sjávarútvegsráðherra landsins í ára-
tugi,“ segir Emil og víst er að göml-
um félögum hans rennur kalt vatn
milli skinns og hörunds.
Vottorð saksóknara
n Mál Catalinu Ncogo er með þeim
allra dularfyllstu. Mikil leynd hvíl-
ir yfir því hvaða einstaklingar hafa
verið dæmdir
sekir í málinu.
DV upplýsti á
mánudaginn að
átta viðskiptavin-
ir hennar væru
saklausir vegna
þess að viðskipt-
in áttu sér stað
áður en ný lög
um hórur og hórkarla tóku gildi.
Dæmi eru um að þeir einstaklingar
sem í hlut eiga hafi fengið uppáskrif-
að vottorð frá saksóknara um að þeir
séu ekki grunaðir í málinu eða vitni.
Óvissa ráðherrans
n Fyrir ári virtist mörgum foringja-
kreppa í uppsiglingu innan Sam-
fylkingarinnar. Jóhanna Sigurðar-
dóttir var að sjá hundþreytt, og
virtist helst vilja hætta. Stöðugur
orðrómur var um að hún gæti ekki
hugsað sér að halda áfram að smala
villiköttum VG í hvert sinn sem
mikilvægt mál kom upp. Þeir tveir
sem einkum höfðu verið líklegir til
að slást um formennsku voru Dagur
B. Eggertsson, borgarfulltrúi og vara-
formaður, og Árni Páll Árnason. Þeir
hafa nú tapað pólitískri vigt og eru
almennt álitnir vera úr leik að sinni.
Ólíklegt er jafnvel að Árni Páll lifi af
næstu ráðherrahrókeringu þegar
atvinnuvegaráðuneytið verður sett
á stofn og þarf að fækka ráðherrum.
Jóhanna í banastuði
n Össur Skarphéðinsson, valdamesti
maður Samfylkingar á eftir Jóhönnu,
hefur þverneitað að hann vilji taka
við af Jóhönnu og ítrekað sagt að
hann vilji fylgja ESB-umsókninni
á enda. Guðbjartur Hannesson, sem
er í miklum metum hjá formann-
inum, hefur þá verið nefndur sem
mögulegur biðleikur, og sumir hafa
velt fyrir sér Ólínu Þorvarðardóttur
sem annaðhvort formanni eða vara-
formanni. Nú virðist Jóhanna hins
vegar vera að ganga í endurnýjun
lífdaga. Hún hefur verið í banastuði
um áramótin og lýst stríði á hend-
ur sægreifunum og Mogganum og
nýtur óskoraðs stuðnings ráðherra
sinna og þingflokks.
Sandkorn
tryGGVaGötu 11, 101 rEykjaVík
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Leiðari
Er kuldi í
kortunum?
„Það er hálfgerð ísöld,
með frostrósum
en hlýju í hjarta,“
segir Sigurður
Þ. Ragnarsson
veðurfræðingur en
það sem af
er fyrstu
viku ársins
hefur
kuldi bitið
landann.
Spurningin
Bókstaflega
Einn allra besti stjórnmála-maður á Íslandi er Jón Gnarr. Borgarstjórinn ástsæli lofaði
spillingu í stjórnmálabaráttunni.
Þvert á það sem gerist hjá öðrum
flokkum stóð hann við loforðin og
spillingin grasserar sem aldrei fyrr.
Jón Gnarr nefndi það sem ástæðu fyrir framboði sínu að hann vildi fá rólega og vel
borgaða innivinnu auk bitlinga.
Nú er allt þetta komið á dag-
inn auk þess að hann þiggur 100
þúsund krónur á mánuði fyrir
að mæta hugsanlega á fundi hjá
slökkviliðinu. Og hann er með bíl
til einkanota sem kostar milljón-
ir og að öllum líkindum einka-
bílstjóra. Alveg eins og allir hinir
spillingarkólfarnir sem voru á
undan.
Og Jón borgarstjóri hefur fengið valdsmannsbrag. Pólitískir öfundarmenn
Jóns segja nú frá uppnámi sem
varð vegna samloku. Kokkurinn í
Ráðhúskaffi er flúinn undan ofríki
hans og einhver annar kominn í
eldhúsið í staðinn. Hermt er að
Jón, í allri sinni tign, hafi komið
í kaffiteríuna þar sem hann beið
auðmjúkur eftir afgreiðslu. Þeg-
ar afgreiðslumaðurinn loksins sá
borgarstjórann pantaði hann þann
alþýðlega skyndibita samloku með
skinku og osti. Svo illa vildi til að
pöntunin gleymdist. Þarna stóð
borgarstjórinn eins og illa gerður
hlutur án þess að bólaði á pönt-
uninni. Þetta var auðvitað óboðleg
framkoma við æðsta mann borg-
arinnar. Þegar mistökin uppgötv-
uðust dugði ekkert „sorrí“ að því
er heimildir herma. Borgarstjórinn
fór fram á að fá langþráða samlok-
una senda á skrifstofu sína. Við því
var orðið.
Þegar pöntun Jóns barst loks-ins á skrifstofuna segir sagan að það hafi orðið uppnám.
Samlokan sem átti að innihalda
bæði ost og skinku var gölluð. Það
vantaði skinkuna að öðru leyti en
því að það var skinka sem kom
með samlokuna. Borgarstjóranum
var algjörlega ofboðið vegna þessa
og það heyrðist þá gnarr í Ráðhús-
inu.
Kokkurinn í Ráðhúskaffi er hættur störfum og skinkan fór sömu leið. Hann hrökklaðist
út á land, bæði sár og reiður vegna
örlaga sinna. Borgarstjórinn hefur
aftur á móti sýnt hvað í honum býr.
Hann stendur við kosningaloforð sín
og er húsbóndi í sínu ráðhúsi.
Svarthöfði
Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar„Vandi Steingríms
er að Lilja, Ás-
mundur og Atli eru hin
sönnu vinstri grænu.