Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Page 26
26 | Fólkið 5. janúar 2011 Miðvikudagur
F
ramleiðslufyrirtækin Zik-
Zak og Filmus sem standa
að gerð myndar byggðrar
á bók Stefáns Mána, Svart-
ur á leik, hafa fengið leikarann
Damon Younger til að taka að sér
hlutverk illmennisins og skíthæls-
ins Brúnós.
Leikarinn Damon Younger sló í
gegn í myndinni Strákarnir okkar
þar sem hann lék Ása sækó á eftir-
minnilegan hátt. Síðustu misserin
hefur hann verið að taka ljósmynd-
ir og ferðast, leikið í stuttmyndum
og í myndinni Tími nornarinnar.
Damon líst vel á að taka að sér
hlutverkið „Brúnó er dökkur kar-
akter og ég held að þetta sé mjög
spennandi tækifæri til að sjá heim-
inn út frá ákveðnu sjónarhorni.“
En hefur Damon lesið bókina? „Já
og þetta er frábær bók. Ég hef hitt
Stefán Mána, en efast um að hann
muni eftir mér.“
Enn hefur ekki verið ráðið í öll
hlutverk en staðfest hefur verið að
Þorvaldur Davíð Kristjánsson og
Jóhannes Haukur fara með burð-
arhlutverk í myndinni. Tökur hefj-
ast með vorinu.
Hlakkar til að
leika skíthæl-
inn Brúnó Leikarinn Damon Younger:
Logi verður HM-
sérfræðingur
Handboltahetjan og silfurdrengurinn Logi
Geirsson verður einn af sérfræðingum
Stöðvar 2 Sports á meðan heimsmeistara-
mótið í handbolta stendur yfir í Svíþjóð.
Logi er meiddur og fer því ekki með á
mótið. Mun Logi verða í fjögurra manna
sérfræðingateymi Þorsteins J. sem heldur
utan um upphitun og eftirmála leikjanna á
hverjum degi. Hinir sérfræðingarnir eru Geir
Sveinsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði,
Guðjón Guðmundsson íþróttafréttamaður
og Hafrún Kristjánsdóttir, íþróttasálfræð-
ingur og fyrrverandi leikmaður Vals. „Það er
náttúrulega hræðilegt að Logi fer ekki með
út en það kemur alltaf maður í manns stað.
Við getum þó allavega notið hans í settinu
hjá okkur,“ sagði Þorsteinn J. við DV í gær.
Trúlofaður
landsliðsmaður
Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður
í knattspyrnu, trúlofaðist kærustu
sinni, Ásu Maríu Reginsdóttur, á
gamlárskvöld. Vinkona parsins,
fjölmiðladrottningin og rithöfund-
urinn Tobba Marínós, greindi frá því
á bloggsíðu sinni. Emil og Ása búa
í Verona þar sem Emil spilar knatt-
spyrnu í þriðju efstu deild ítalskrar
knattspyrnu. Emil er uppalinn í
Hafnarfirði og varð Íslandsmeistari
með FH árið 2004. Hann hefur síðan
þá leikið með Tottenham, Malmö,
Reggina og Barnsley. Þá á hann að
baki tuttugu og níu landsleiki en í
þeim hefur hann skorað eitt mark.
Ornella Thelmu-dóttir hefur
snúið baki við ljós-
myndafyrirsætuferli
sínum og stefnir hátt
í leiklistinni. Ornellu
var boðið að sitja fyr-
ir í Playboy tímaritinu
sem hún og þáði á sín-
um tíma. Hún segist þó
ekki sjá eftir neinu. „Ég sé
aldrei eftir neinu,
ég er ekki þannig
gerð. Ég verð að
fá að prófa mig
áfram á meðan ég
finn út hver ég er.
En leiklistin hefur
nú tekið við og það
er vegna þess að
hún hefur algerlega
heillað mig. Að fá að
læra leiklist fyllir mig
orku á hverjum degi.“
Dáist að Chaplin
Ornella nemur leik-
listina í einkareknum
skóla, British Theater
Comedy School í Kaup-
mannahöfn. Hún hef-
ur sérstaklega gaman af
þeim áherslum sem þar
eru á líkamlega tjáningu.
„Ég læri loftfimleika og leik-
list með líkamstjáningu og
einna skemmtilegasti hluti
námsins eru trúðafræðin,
eða Commedia dell‘arte.“
Ornella segist dást að þeirri
margbreytilegu tækni sem felst í trúðsleikn-
um og nefnir Chaplin sem dæmi um fyrir-
mynd. „Þessi tækni er ótrúlega fjölbreytt og
mér þykir gaman að takast á við trúðsleik-
inn því hann er bæði krefjandi og skemmti-
legur.“
Ornella stefnir á að starfa sem leikkona í
framtíðinni og allt útlit er fyrir að það gangi
að óskum. „Ég er að fara til Bristol á næstu
dögum í prufu fyrir leikrit. Ég get ekki sagt
meira frá því á þessu stigi en það gæti verið
spennandi tækifæri fyrir mig.“
n „Hætt að sitja fyrir á nektar-
myndum n Stefnir hátt í leik-
listinni n Sér ekki eftir neinu
Ornella Thelmudóttir:
Lærir látbragð
og trúðalistir
Leiklistin heillar Ornella hefur nú þegar verið boðuð í leikprufu, þrátt fyrir að hafa aðeins stundað námið í um hálft ár. MYnD björn bLönDaL
Hætt að sitja fyrir
Ornella segist ekki sjá
eftir neinu en leiklistin
sé nú í fyrsta sæti.
MYnD björn bLönDaL