Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Síða 38
70 ára á laugardag
Guðmundur Magnússon
fyrrv. fræðslustjóri Austurlandsumdæmis
Guðmundur fæddist á Reyðarfirði og
ólst þar upp. Hann lauk gagnfræða-
prófi frá Héraðsskólanum á Laugar-
vatni 1946, kennaraprófi frá Kennara-
skóla Íslands 1948, stundaði nám við
San Diego State College í Kaliforníu
og fleiri skóla í Bandaríkjunum 1963–
64 og fór náms- og kynnisferðir til Sví-
þjóðar 1967 og 1976, Danmerkur og
Englands 1971 og til Skotlands 1982.
Guðmundur var skólastjóri Barna-
og unglingaskóla Reyðarfjarðar 1948–
49, kennari við Laugarnesskóla í
Reykjavík 1949–61, skólastjóri Lauga-
lækjarskóla 1961–69, skólastjóri
Breiðholtsskóla 1969–77 og fræðslu-
stjóri Austurlandsumdæmis frá 1977
og þar til hann lét af störfum fyrir ald-
urs sakir 1996.
Guðmundur sat í stjórn Kenn-
arafélags Laugarnesskóla 1954–56,
sat í stjórn Stéttarfélags barnakenn-
ara í Reykjavík 1955–58, í stjórn Fé-
lags barna- og gagnfræðaskólastjóra
í Reykjavík 1965–72, var varaformað-
ur Ríkisútgáfu námsbóka 1964–72,
sat í Barnaverndarráði Íslands 1964–
77, var varafulltrúi Alþýðuflokksins í
borgarstjórn 1974–77, aðalfulltrúi í fé-
lagsmálaráði og fiski- og veiðiræktar-
ráði 1974–77, varamaður í heilbrigð-
isráði 1974–77, í stjórn Þroskahjálpar
á Austurlandi frá 1977, í svæðisstjórn
um málefni fatlaðra frá 1977 og for-
maður 1979–83, varamaður í hrepps-
nefnd Reyðarfjarðarhrepps 1978–82,
formaður byggðasögunefndar Reyð-
arfjarðarhrepps frá 1978, kirkjuþings-
maður 1986–97, og sat í Kirkjuráði
1990–97.
Guðmundur hefur skrifað rit um
skólahald á Austurlandi, skrifaði
Skólasögu Reyðarfjarðar, útg. 1998,
og Sögu Reyðarfjarðar, útg. af Fjarða-
byggð 2003. Þá hefur hann samið
bókarkafla í afmælisrit og greinar í
blöð og tímarit. Hann er heiðursfélagi
ungmennafélagsins Vals á Reyðarfirði
frá 1949 og heiðursfélagi Átthagafé-
lags Breiðholtsskóla frá stofnun þess.
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Anna Arn-
björg Frímannsdóttir, f. 15.1. 1930,
fyrrv. fulltrúi við Fræðsluskrifstofu
Austurlands. Hún er dóttir Jóhanns
Frímanns Jónssonar, f. 2.6. 1898, d.
23.8. 1960, rafstöðvarstjóra á Reyð-
arfirði, og Sigríðar Einínu Þorsteins-
dóttur, f. 9.7. 1901, d. 24.8. 1974, hús-
móður.
Börn Guðmundar og Önnu Arn-
bjargar: meybarn, f. 26.11. 1949, d. s.
d.; Sigríður, f. 26.10. 1950, líffræðingur
að Keldum, búsett í Kópavogi en mað-
ur hennar er Hermann Hermanns-
son, tæknifræðingur hjá Flugstoð-
um og eru börn þeirra Anna Guðný
og Lárus Árni; Magnús, f. 5.11. 1952,
tölvunarfræðingur og deildarstjóri
hjá Tölvumiðlun, búsettur í Reykjavík
en kona hans er Anna Dóra Árnadótt-
ir húsmóðir og eru börn þeirra Guð-
mundur og Erla Rut; Rósa Hrund, f.
3.2. 1954, fiðluleikari í Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands, búsett í Reykjavík en
maður hennar er Jóhann Guðnason,
löggiltur skjalaþýðandi og er sonur
þeirra Helgi; Guðmundur Frímann,
f. 25.12. 1962, vélvirki og verkstjóri hjá
Alcoa Fjarðaáli, búsettur á Reyðarfirði
en kona hans er Anna Ragnheiður
Gunnarsdóttir garðyrkjufræðingur og
eru börn þeirra Gylfi, Laufey og Arn-
björg Bára; Arnbjörg, f. 29.12. 1965,
sjúkraþjálfari við Reykjalund, búsett
í Reykjavík en maður hennar er Leó
Geir Arnarsson tamningamaður og
eru börn þeirra Atli Jóhann og Bogey
Ragnheiður.
Barnabörn Guðmundar eru því tíu
talsins og langafabörnin tíu.
Systkini Guðmundar: Aagot, f.
12.8. 1919, d. 28.3. 1983, húsmóðir í
Reykjavík; Emil Jóhann, f. 25.7. 1921,
d. 8.2. 2001, var kaupmaður í Grund-
arfirði; Torfhildur Rannveig, f. 11.10.
1922, d. 12.2. 2002, fyrrv. símstöðv-
arstjóri á Eskifirði; Aðalbjörg, f. 17.12.
1923, húsmóðir í Reykjavík; Stefanía,
f. 17.11. 1924, d. 11.9. 2007, var hús-
móðir í Reykjavík; Guðný Ragnheið-
ur, f. 16.5. 1927, fyrrv. bankagjaldkeri,
búsett í Bandaríkjunum; Sigurður, f.
2.6. 1928, fyrrv. framkvæmdastjóri hjá
ÍSÍ.
Foreldrar Guðmundar voru
Magnús Guðmundsson, f. 23.4. 1893,
d. 28.3. 1972, verslunarmaður á Reyð-
arfirði, og Rósa Jónína Sigurðardóttir,
f. 6.11. 1898, d. 21.5. 1939, húsmóðir.
Ætt
Bróðir Magnúsar var Björn, faðir Em-
ils, prests og fréttastjóra. Magnús er
sonur Guðmundar, b. á Felli í Breið-
dal Árnasonar, og Guðnýjar Rögn-
valdsdóttur, á Eiði á Langanesi Rögn-
valdssonar.
Rósa var dóttir Sigurðar Péturs,
trésmiðs á Seyðisfirði Jónassonar, b.
á Barkarstöðum í Svartárdal Krist-
jánssonar. Móðir Rósu var Munn-
veig Andrésdóttir, b. í Miðbæ neðra í
Norðfirði Guðmundssonar.
Guðmundur ver deginum með
fjölskyldu sinni.
85 ára á sunnudag
Héðinn Kristinn er fæddur og upp-
alinn í foreldrahúsum að Ytri-Á í
Ólafsfirði. Að loknu gagnfræða-
prófi á Ólafsfirði stundaði Kristinn
nám við Iðnskólann í Ólafsfirði og
við Iðnskólann á Akureyri. Hann
lærði rafvirkjun hjá Magnúsi Stef-
ánssyni, lauk sveinsprófi í rafvirkj-
un 1966 og öðlaðist síðan meist-
araréttindi í iðngreininni 1969.
Kristinn starfaði fyrst hjá Raf-
tækjavinnustofu Magnúsar Stef-
ánssonar, síðan hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins á Siglufirði en
hefur lengst af starfað við rafvirkj-
un hjá Raforku á Akureyri.
Fjölskylda
Eiginkona Kristins er María Sigur-
laug Ásgrímsdóttir, f. á Siglufirði
20.8. 1939, fyrrv. læknaritari. Hún
er dóttir Ásgríms Sigurðssonar, f.
að Vatnsenda í Héðinsfirði 19.4.
1909, d. 21.6. 1988, skipstjóra á
Siglufirði, og k.h., Þorgerðar Gróu
Pálsdóttur, f. í Ólafsvík 7.1. 1908, d.
14.11. 1982, húsmóður.
Börn Kristins og Maríu eru tveir
drengir, f. 11.10. 1966, d. sama dag;
Þorgerður Kristinsdóttir, f. 12.11.
1967, húsmóðir og bókari, búsett
á Álftanesi, en maður hennar er
Bjarni Ragnarsson, f. 5.5. 1966 tölv-
unarfræðingur og eiga þau þrjú
börn, Halldóru Margréti, Kristin
Má og Guðmund Inga; Mundína
Ásdís Kristinsdóttir, f. 30.11. 1972,
sjúkraþjálfari, búsett í Kópavogi;
Anna María Kristinsdóttir, f. 22.5.
1974, rekstrarfræðingur, búsett
á Akureyri en maður hennar er
Friðrik Kjartansson, f. 22.10. 1975,
húsasmiður og tamningamaður
og eru börn þeirra María Björk og
Kjartan Ingi.
Kristinn er þriðji yngstur tut-
tugu systkina.
Foreldrar Kristins voru Sigur-
björn Finnur Björnsson, útvegs-
bóndi, f. að Ytri-Á 16.9. 1895, d.
29.5. 1986, og k.h., Mundína Frey-
dís Þorláksdóttir, f. að Lóni í Ólafs-
firði 8.4. 1899, d. 5.12. 1985, hús-
freyja.
Kristinn Finnsson
rafvirkjameistari á Akureyri
30 ára á föstudag
Nellý fæddist á Akranesi en ólst
upp á Sveinsstöðum á Mýrum.
Hún var í barnaskóla að Varma-
landi í Borgarfirði og í Grunnskóla
Borgarness, stundaði nám við Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi og lauk þaðan stúdentsprófi,
stundaði síðan nám við Tæknihá-
skóla Íslands og lauk þaðan B.Sc.-
prófi í geislafræði árið 2006.
Nellý ólst upp við öll almenn
sveitastörf á æsku- og unglings-
árum, starfaði hjá Vegagerðinni í
Borgarnesi og starfaði í Hyrnunni
í Borgarnesi um skeið, vann hjá
Domus Medica á háskólaárunum
og hefur starfað á röntgendeild
Landspítalans í Fossvogi frá 2006.
Nellý söng með Samkór Mýra-
manna um árabil og situr í stjórn
Félags geislafræðinga.
Fjölskylda
Systkini Nellýjar eru Einar Páll
Pétursson, f. 16.10. 1968, bifreiða-
stjóri og atvinnurekandi, búsettur
í Borgarnesi; Svanhvít Pétursdótt-
ir, f. 21.3. 1982, bifreiða- og vinnu-
vélastjóri, búsett í Borgarnesi;
Helga Pétursdóttir, f. 9.11. 1984,
nemi og starfsmaður við skólasel,
búsett á Sveinsstöðum.
Foreldrar Nellýjar eru Pétur
Valberg Jónsson, f. 4.5. 1933, bóndi
og vinnuvélastjóri á Sveinsstöðum,
og Erna Pálsdóttir, f. 22.10. 1943,
bóndi á Sveinsstöðum.
Nellý Pétursdóttir
geislafræðingur
30 ára á föstudag
Fjölnir fæddist í Neskaupstað en
ólst upp á Eskifirði. Hann var í
Grunnskóla Eskifjarðar, stundaði
nám við Menntaskólann á Akur-
eyri og lauk þaðan stúdentsprófi
og er nú að ljúka námi í læknis-
fræði við Háskóla Íslands.
Fjölnir vann við frystihús-
ið á Eskifirði og við rækjuvinnslu
á unglingsárunum, starfaði hjá
Ferró zink í þrjú sumur, starfaði við
geðdeild Landspítalans í Reykjavík
og hefur verið afleysingalæknir í
Borgarnesi og í Fjarðabyggð.
Fjölnir sat í Stúdentaráði og í
stjórn Stúdentaráðs fyrir Háskóla-
listann.
Fjölskylda
Systkini Fjölnis eru Pétur Steinn
Guðmannsson, f. 11.11. 1986, raf-
virki hjá Alcoa Fjarðaáli; Herdís
Hulda Guðmannsdóttir, f. 8.11.
1988, skrifstofumaður hjá Alcoa
Fjarðabyggð.
Foreldrar Fjölnis eru Guðmann
Þorvaldsson, f. 6.5. 1955, kennari á
Eskifirði, og Sólveig Eiríksdóttir, f.
23.2. 1960, starfsmaður hjá Virtus.
Fjölnir Guðmannsson
nemi
Ólína Margrét Ólafsdóttir
starfsmaður Íþróttamiðstöðvarinnar í Sandgerði
Ólína Margrét fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hún var í barna- og
gagnfræðaskóla í Reykjavík og lauk
þar gagnfræðaprófi frá Hólabrekku-
skóla.
Ólína Margrét flutti í Sandgerði
1977 og hefur átt þar heima síðan.
Hún starfaði um skeið hjá Miðnesi
í Sandgerði og hefur einnig starfað
hjá Kaupfélagi Suðurnesja. Hún hóf
störf hjá Íþróttamiðstöðinni í Sand-
gerði 1992 og hefur starfað þar síðan.
Fjölskylda
Ólína Margrét giftist 9.12. 1978 Ás-
geiri Þorkelssyni, f. 20.6. 1959, verk-
stjóra. Hann er sonur Þorkels Aðal-
steinssonar verkamanns, og Ólafíu
Guðmundsdóttur, húsmóður í Sand-
gerði, en þau eru bæði látin.
Börn Ólínu Margrétar og Ásgeirs
eru Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir, f.
12.10. 1978, stjórnsýslufræðingur hjá
Reykjavíkurborg, búsett í Mosfells-
bæ en maður hennar er Bogi Guð-
mundsson lögfræðingur og er dótt-
ir þeirra Bryndís Bogadóttir, f. 22.8.
2008; Iðunn Ýr Ásgeirsdóttir, f. 1.4.
1984, ferðamálafræðingur, búsett
að Forsæti I í Flóahreppi en maður
hennar er Þórbergur Hrafn Ólafsson
húsasmiður og er dóttir þeirra Kar-
ólína Þórbergsdóttir, f. 2.11. 2009;
Ásgeir Þór Ásgeirsson, f. 11.2. 1991,
nemi við Framhaldsskólann á Laug-
um í Suður-Þingeyjarsýslu.
Systkini Ólínu Margrétar eru
Kristín Þ. Ólafsdóttir, f. 13.5. 1959,
húsmóðir og matráðskona að Ferju-
nesi III í Villingaholtshreppi í Árnes-
sýslu en maður hennar er Ingjald-
ur Ásmundsson og eiga þau fjögur
börn; Torfi J. Ólafsson, f. 13.4. 1965,
starfsmaður við sambýli, búsettur á
Akureyri en kona hans er Ásdís Stef-
ánsdóttir og eiga þau fjögur börn.
Hálfsystir Ólínu Margrétar, sam-
mæðra, er Ragnheiður Þórarinsdótt-
ir, f. 7.4. 1956, húsmóðir og sjúkraliði
við dvalarheimili, búsett á Eyrar-
bakka, en maður hennar er Þórarinn
Ólafsson og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Ólínu Margrétar eru Ól-
afur H. Torfason, f. 28.7. 1936, vega-
eftirlitsmaður, búsettur í Reykjavík,
og Margrét Sæmundsdóttir, f. 28.1.
1926, húsmóðir og saumakona.
50 ára á laugardag
38 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 7.–9. janúar 2011 Helgarblað