Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 17. janúar 2011 Mánudagur n Sérstakur saksóknari rannsakar lánveitingu til bróður yfirmanns í Landsbankanum n Félag í hans eigu fékk 1.600 milljóna króna lán til að kaupa bréf í bankanum n Félagið er skráð í Lúxemborg n Ekkert fæst uppgefið um tilgang og hugsunina á bak við viðskiptin. Lántakandinn var yfirheyrður um helgina „Þú hefur þínar heimildir einhvers staðar frá; hafðu þær bara þaðan. Eitt af málunum sem sérstakur sak- sóknari íslenska efnhagshruns- ins rannsakar um þessar mundir er lánveiting upp á um 1.600 milljón- ir króna sem Landsbankinn veitti félagi í eigu í fjármálastjóra vara- hlutaverslunarinnar Stillingar, Stef- áns Ingimars Bjarnasonar. Félagið, Hunslow S.A. sem skráð var í Lúx- emborg, fékk lánið í september 2008, skömmu fyrir íslenska efnhagshrun- ið og fall Landsbanka Íslands. Stefán er bróðir Bjarna Bjarnasonar, þáver- andi forstöðumanns fyrirtækjaráð- gjafar Landsbankans. Sérstakur saksóknari hélt áfram að yfirheyra menn í tengslum við rannsóknina á málefnum Lands- bankans um helgina. Meðal þess sem er til rannsóknar eru viðskipti Landsbankans með bréf í bankan- um þar sem talið er að markaðsmis- notkun hafi átt sér stað. Fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, Halldór J. Kristjánsson, kom til landsins um helgina og mætti í yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara á sunnudag- inn. Einnig var von á Sigurði Bolla- syni fjárfesti til landsins um helgina en ekki er vitað hvort hann kom til yfirheyrslu um helgina. Verið er að rannsaka lánveitingu til félags í eigu Sigurðar árið 2008 en lánið var notað til að kaupa hlutabréf í Landsbank- anum. Sigurjón Árnason, fyrrver- andi bankastjóri Landsbankans, var sömuleiðis yfirheyrður aftur, bæði á laugardag og sunnudag. Stefán ekki viðlátinn DV hafði samband við Stefán Ingimar á fimmtudaginn til að spyrja hann út í aðkomu hans að þeim brotum sem saksóknari hafði til rannsóknar þar sem blaðið hafði heimildir fyrir því að yfirheyra ætti Stefán vegna rann- sóknarinnar. DV náði ekki tali af Stef- áni Ingimar og bað eiginkona hans um að ekki yrði hringt aftur heim til þeirra. Heimildir DV herma að Stef- án Ingimar hafi verið yfirheyrður um helgina. DV reyndi aftur að ná tali af Stefáni Ingimar á sunnudag en kona hans sagði þá að hann væri ekki við- látinn. „Þú hefur þínar heimildir ein- hvers staðar frá; hafðu þær bara það- an,“ sagði hún. DV hafði sömuleiðis samband við Bjarna á fimmtudaginn til að spyrja hann um aðkomu hans að málinu en hann benti á að hann væri ekki aðili að því og því væri hann ekki rétti maðurinn til að spyrja um það. Heimildir DV herma að ekki standi til að yfirheyra Bjarna. „Ef þetta snertir einhverja aðra en mig þá mæli ég með því að þú hringir í þá,“ sagði Bjarni. Heimildir DV herma þó að tengsl- in á milli Stefáns Ingimars og Lands- bankans hafi komist á í gegnum Bjarna á sínum tíma. „Í gegnum bróður sinn,“ segir heimildarmað- ur DV þegar spurt er hvernig Stefán Ingimar hafi tengst Landsbankan- um. Stilling, sem faðir þeirra stofnaði árið 1960, var sömuleiðis í einhverj- um viðskiptum við Landsbankann. Stefán Ingimar var sömuleiðis einn af stofnendum fjárfestingafélagsins Grettis sem Björgólfur Guðmunds- son átti og frændi hans stýrði, sam- kvæmt upplýsingum frá Láns- trausti. Bréfberar bankans Í fréttum Stöðvar 2 á sunnudaginn kom fram að eigið fé hafi aldrei ver- ið reitt fram af hálfu Hunslow í við- skiptunum og að öll áhætta fyrir lánveitingunni til félagsins hafi verið hjá Landsbankanum. Í frétt Stöðvar 2 kom fram að grunur léki á að um umboðssvik hafi verið að ræða í viðskiptunum. Svo virðist sem hluti rannsókn- arinnar hjá sérstökum saksóknara snúi að því að Landsbankinn hafi í reynd plantað hlutabréfum í sjálfum sér inni í eignarhaldsfélögum í eigu manna sem tengdust bankanum með einum eða öðrum hætti. Þar með fóru bréfin formlega úr eigu bankans en áhættan hvíldi samt sem áður áfram á bankanum þar sem kaupendur bréfanna greiddu ekkert fyrir þau heldur tóku einung- is við þeim með lánum frá bankan- um. Slík félög eru stundum kölluð bréfberar í umræðunni um efna- hagshrunið af því ekki er í reynd hægt að segja að bréfin hafi skipt um hendur líkt og í eðlilegum viðskipt- um þar sem vara fer frá aðila A til B í skiptum fyrir greiðslu. Fjöldamörg dæmi er um slík viðskipti í tengslum við íslenska efnhagshrunið, meðal annars hjá sjeiknum Al-Thani, Imon og eigarhaldsfélaginu Stím. BRÓÐIR BJARNA FÉKK 1.600 MILLJÓNA LÁN Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Halldór yfirheyrður Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi forstjóri Lands- bankans, kom til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara á sunnudaginn. Hann sagði við blaðamenn að allt sem hann hefði komið nálægt í bankanum stæðist lög. Grunur um umboðssvik Grunur leikur á að um umboðsvik hafi verið að ræða í viðskiptum Hunslow. Ólafur Hauksson er sérstakur saksóknari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.