Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Síða 4
4 | Fréttir 17. janúar 2011 Mánudagur Sagt upp störfum hjá Arion banka eftir 28 ára starf: „Enn í hálfgerðu losti“ Skuldugur bankastjóri á 350 milljóna flugvél Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Sögu Fjárfestingarbanka, flaug reglulega á milli Reykjavík- ur og Akureyrar á þrjú hundruð og fimmtíu milljóna króna skrúfu- þotu. Hann segist í samtali við DV ekki gera það lengur. Vélin, sem er níu sæta Beechcraft King Air-vél, kostar samkvæmt heimildum DV um þrjár milljónir Bandaríkjadala, eða sem nemur um þrjú hundruð og fimmtíu milljónum króna. Vélin er samkvæmt heimildum DV skráð á félag í Bandaríkjunum. Þorvaldur vill lítið tjá sig um mál- ið. „Ég svara bara engu um þetta, hvað ég geri í mínum frístundum eða annað slíkt, það kemur eng- um við,“ segir hann. Þegar hann er spurður um það hvort að vélin sé skráð á bandarískt fyrirtæki seg- ir hann: „Hún er bara í operation hjá flugfélagi og ég tjái mig ekkert um það.“ Flaug hringinn með Loga Auk þess að nýta vélina til einkanota notaði Þorvaldur Lúðvík hana með- al annars til að fljúga með sjónvarps- manninn Loga Bergmann Eiðsson hringinn í kringum landið á sólar- hring sumarið 2008. Þá lék Logi átj- án holur í golfi á átján golfvöllum víðs vegar um landið til styrktar MND-fé- laginu. Saga Capital styrkti framtakið með því að „lána“ Þorvald sem flug- mann, með flugvél og öllu tilheyr- andi. Eins og fram kom í fréttaflutningi DV á miðvikudag er staða Þorvald- ar Lúðvíks erfið þessa dagana. Hann skuldar vel á annan milljarð króna í bankakerfinu og hefur verið yfir- heyrður í tveimur málum hjá sérstök- um saksóknara. Skuldirnar eru bæði í eignarhaldsfélagi og á honum per- sónulega. Vinsælar vélar Beechcraft King Air-flugvélar eru meðal vinsælustu flugvéla í sínum stærðarflokki í heiminum. Fram- leiðsla vélanna hefur verið stöðug frá árinu 1964 þegar þær voru fyrst settar á markað. Meira hefur verið selt af flugvélunum en öllum öðrum sam- bærilegum keppinautum vélarinnar samlagt. Vélar af þessari tegund eru fremur litlar en rúma þó með góðu móti að minnsta kosti sjö farþega auk eins manns áhafnar. Meðal alþjóðlegra aðila sem nota King Air-flugvélarnar eru bandaríski herinn, Varnarmála- stofnun Japans og Konunglega flug- læknasveitin í Ástralíu. Þá er vélin einnig notuð af lögregluyfirvöldum víðs vegar um heim auk þess sem hún er notuð til að þjálfa íraska her- menn. Skuldugur bankastjóri Einnig kom fram Í DV á miðviku- daginn að félag í eigu Þorvaldar hefði fengið lán hjá bankanum sem hann stýrir til að fjármagna kaup á flugskýli og flugvél. Ekki er hægt að fullyrða að flugskýlið hafi verið fyr- ir umrædda flugvél, þó hægt sé að draga þá ályktun en Þorvaldur hef- ur aðra flugvél til umráða. Þorvaldur er mikill áhugamaður um flug og hefur sem flugmað- ur flogið um árabil. Það hefur hins vegar kostað sitt, því eins og fram hefur komið skuldar eignarhalds- félag Þorvaldar, Cirrus ehf., tæplega 100 milljónir króna en það félag heldur meðal annars utan um for- láta Dornier-flugvél af árgerð 1959 og fyrrnefnt flugskýli á Akureyri. n Bankastjóri Sögu Fjárfestingarbanka flaug 350 milljóna króna flugvél n Rúmar að minnsta kosti átta manns n Vélin er skráð í Bandaríkjunum n Önnur af tveimur flugvélum sem bankastjórinn hefur haft afnot af Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is „Þorvaldur er mikill áhugamaður um flug og hefur sem flug- maður flogið um árabil. Skuldugur bankastjóri Þorvaldur er reyndur flugmaður og hefur afnot af tveimur flugvélum, auk flugskýlis á Akureyri. Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is AIR-O-SWISS rakatækin Bæta rakastig og vinna gegn: • Slappleika og þreytu • Höfuðverkjum • Augnþurrki • Astma Auka vellíðan og afköst Verð 23.950 kr. Konungleg vél Flugvélin þykir mjög góð og hefur meira selst af henni um allan heim en af öðrum flugvélum í sama klassa. Jónu Hjálmarsdóttur var á föstudag- inn sagt upp starfi sínu hjá Arion banka í Garðabæ. Jóna, sem er 49 ára, var búin að starfa hjá bankanum í 28 ár, fyrst í að- albankanum svo Búnaðarbankanum og Kaupþingi og nú síðast hjá Arion. „Ég var kölluð inn á skrifstofu til útibússtjórans klukkan fjögur á föstudag og tjáð að vegna hagræð- ingar væri mér sagt upp störfum taf- arlaust. Það var engin undanfari að þessu og maður fær náttúrulega bara vægt taugaáfall,“ segir Jóna sem er sár og reið vegna uppsagnarinnar. Jóna segist enn vera í hálfgerðu losti. „Maður man allt í þoku þegar maður fær svona beint í andlitið á sér og getur ekki spurt um eitt né neitt. En það sem mér finnst óréttlátt er að það er verið er að ráða nýtt fólk inn í staðinn.“ Samkvæmt Jónu var ráð- in ung kona á Ráðgjafarstofu heim- ilanna sama dag og henni var sagt upp, en ráðgjafastofan tengist bank- anum og er í sama húsi. Hún hafi heyrt að unga konan muni seinna færast niður í sama útibú og Jóna starfaði í. „Ég er svo hissa á afhverju þeir gátu ekki boðið mér annað starf innan bankans,“ segir Jóna. Jóna hefur unnið í Garðabæjar- útibúinu síðan 1983 og var með marga rótgróna viðskiptavini á sín- um snærum. Hún segist hafa unnið sín störf af samviskusemi og nánast aldrei farið í veikindaleyfi fyrir utan eitt skipti þegar hún þurfti að fara í aðgerð. Aðspurð segist hún ekki vita hvað taki nú við. „Ég verð fimmtug eftir mánuð og það er ekki auðvelt fyrir konu á mínum aldri að fá nýja vinnu. En ég ætla ekki að leggjast í kör held- ur hlúa vel að líkama og sál. Kannski maður söðli bara alveg um og fari í skóla.“ hanna@dv.is Ætlar ekki að leggjast í kör Jóna segir skrýtið að henni sé sagt upp vegna hagræðingar þegar verið sé að ráða nýtt fólk í bankann. MYND SIGTRYGGUR ARI Alvarleg líkamsárás í Kópavogi: „Út af einhverju gömlu máli“ „Það var eitthvert rifildri við barinn til að byrja með sem ég stoppaði, en þetta hefur greinilega haldið áfram því rifrildið færðist yfir í andyrið,“ segir Mikael Nikulásson, eigandi Players, um alvarlega líkamsárás fyr- ir utan skemmtistaðinn aðfaranótt sunnudags. Nokkrir einstaklingar réðust þá á karlmann á fimmtugs- aldri og veittu honum lífshættu- lega áverka. Samkvæmt upplýsing- um DV þótti um tíma tvísýnt um líf mannsins en á sunnudag var hann úr lífshættu og var hann útskrifaður af gjörgæsludeild. Mikael var á staðnum um- rædda nótt og samkvæmt hon- um byrjaði rifr- ildi á milli fórn- arlambsins og árásarmannanna inni á staðnum fyrr um nóttina. „Þetta er út af einhverju gömlu máli skilst mér. Það var stelpa með árásarmönnunum og þetta tengist víst eitthvað henni og hennar fjöl- skyldu heyrði ég.“ Mikael segir fólkið hafa verið mjög æst og ljóst hafi verið í hvað stefndi. Dyraverðir staðarins hafi því tekið manninn afsíðis og ráðlagt honum að fara og taka leigubíl heim til sín. Hann hafi þó ekki farið að þeim ráðleggingum og hugsanlega ætlað að fara á annan skemmtistað skammt frá. „Árásarmennirnir hafa greinilega elt hann og réðust síðan á hann á planinu á milli Players og skemmtistaðarins Spot. Þeir voru þrír, fjórir og réðust bara á hann þarna.“ Stúlkan sem var með árásar- mönnum hafði sig í frammi inni á staðnum að sögn Mikaels, en það hefur ekki fengist staðfest hvort hún hafi tekið þátt í árásinni. Samkvæmt heimildum DV var hún þó handtek- in seinna um nóttina ásamt manni, en við vinnslu fréttarinnar voru aðrir árásarmenn ófundnir. Lögreglan hefur farið yfir myndbandsupptökur frá staðnum og er málið nú í rann- sókn. hanna@dv.is Lögregla fer yfir upptökur Players í Kópavogi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.