Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Qupperneq 18
18 | Umræða 17. janúar 2011 Mánudagur Grey sjóræningjar! „Mér finnst ekki alltaf dregin upp sanngjörn mynd af mér í fjölmiðlum, mig grunar að þeir séu oft tengdir stjórnmálaflokk- um.“ n Jón Gnarr borgarstjóri um nýjan spjallþátt sem hann verður með í sjónvarpinu. – visir.is „Þetta er illa rakaður táfýluþáttur þar sem karlar hanna spurningar um karla, fyrir karla, um enska boltann og allt þetta sem strákar eiga að vita en stelpur geispa yfir.“ n Hallgrímur Helgason um spurninga- þáttinn Gettu betur. – DV „Heimsmeistarkeppnin er sérstök, einkum þegar maður er í góðu liði sem á góðum degi getur unnið alla en tapað fyrir flest- um á slæmum degi.“ n Guðjón Valur um íslenska handbolta- landsliðið. – visir.is „Þessari hugarfars kreppu þarf að vinna bug á til þess að hægt sé að halda áfram.“ n Kristín Pétursdóttir forstjóri Auður Capital, um ástand þjóðarinnar. – vb.is „Ég held að það sé stað- reynd að þeir sem lenda í því að vera lagðir í einelti einhvers staðar á lífsleið- inni verði oft sterkari fyrir vikið.“ n Anna Mjöll Ólafsdóttir – DV Hetjan og heigullinn Vandræðagangur og gungu-háttur leiðtoga stjórnar-flokkanna hvað varðar kvótakerfið er með miklum ein- dæmum. Það er skýr stefna bæði Samfylkingar og Vinstri grænna að uppræta skuli kerfi sægreifanna með því að innkalla aflaheim- ildir til ríkisins og tryggja þannig eignarhald þjóðarinnar á því sem skapað hefur grundvöll velferð- ar þjóðar við ysta haf. Og stjórn- arsáttmálinn er alveg skýr hvað þetta varðar. Ríkisstjórnin á að fylgja þeim stefnumálum sem sett voru fram í kosningabaráttunni og síðar í sameiginlegri stefnuyfirlýs- ingu. En raunin hefur orðið sú að leiðtogarnir leita leiða til þess að blekkja fólkið í landinu og viðhalda lénsveldinu. Það mun þó ekki vera af sannfæringu heldur heiguls- hætti. Samtök útgerðarmanna, LÍÚ, hafa við hvert tækifæri haft uppi hótanir um að beita þvingunum og ofbeldi ef ekki verði horfið frá áformum um að endurheimta góss- ið. Jakkalakkarnir á kontórnum neita að semja við launega sína, sjómenn- ina, nema ríkisstjórnin haldi áfram að svíkja loforð sín. Og heildarsam- tök atvinnurekenda hóta á laun að ganga í lið með þeim sem þykjast einir eiga allt kvikt sem syndir í sjón- um í kringum Ísland og steypa þjóð- inni út í átök. Því var hótað á sínum tíma að rifta stöðugleikasáttmál- anum ef ekki yrði horfið frá þeirri ákvörðun Jóns Bjarnasonar sjávar- útvegsráðherra að taka skötusel út úr kvóta. Minnstu munaði að horfið yrði frá ákvörðuninni þótt þau Stein- grímur og Jóhanna stæðust álags- prófið. Sáttanefnd stjórnarflokkanna um það hvernig markmiðum verði náð hefur boðað svokallaða samn- ingsleið. Það þýðir að kvótinn verð- ur innkallaður en honum síðan út- hlutað aftur til útgerðarmanna. Þessi niðurstaða yrði ein stærsta pólitíska blekking sögunnar. Einn ákafasti talsmaður þeirrar leiðar er þingmaðurinn Björn Valur Gísla- son sem hefur smám saman snú- ist frá því að vilja rótækar aðgerðir í þágu þjóðar í að mæla með blekk- ingarleið í þágu sérhagsmuna. Sá þingmaður sem staðið hef- ur fastast á stefnunni er Ólína Þor- varðardóttir sem orðið hefur fyrir heiftarárásum handbenda sægreif- anna fyrir vikið. En hún hefur aldrei hvikað og uppsker nú fyrir staðfestuna. Stórfundur aðildarfé- laga stjórnarflokkanna í Reykjavík um helgina undirstrikaði rækilega þá almennu óánægju sem er með undanbrögð stjórnarherranna þegar kemur að því að bylta kvóta- kerfinu. Allt að 300 manns mættu á fund þar sem stuðningur við baráttu Ólínu alþingismanns fyr- ir því að staðið verði við stefnuna var nær algjör. Hetjan á að leiða starfið en heigullinn skal víkja með skömmm. Skilaboðin til Steingríms og Jóhönnu eru skýr. Þau eiga ekki að leggja á flótta undan föntunum. Kvótakerfinu skal bylt og ranglætið upprætt. Leiðari Eigum við von á gulli? „Þetta silfur verður að gulli. Við fáum gulldrengi heim,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Eftir fyrstu tvær umferðirnar á HM í handbolta er íslenska karla- landsliðið í handbolta eitt í efsta sæti B-riðils með fullt hús stiga. Spurningin Bókstaflega Mjög einhliða umfjöllun hefur verið um sómalska sjóræn-ingja í vestrænum fjölmiðlum. Yfirleitt tala fjölmiðlar bara við gísla þeirra og hermálayfirvöld sem ráðast gegn þeim og lýsa þeim í neikvæðu ljósi. Það er aldrei talað við sjóræn- ingjana og leitað skýringa hjá þeim. Aldrei nokkurn tímann er talað um málefnin. Þetta er ófagleg blaða- mennska og meiðandi í garð sjóræn- ingjanna. Þeim er lýst sem skepnum og aldrei er höfð hliðsjón af orðum skáldsins: Aðgát skal höfð í nærveru sjóræningjasálar. Tíu sjóræningjar eru nú fyrir dómi í Þýskalandi og nú loks-ins hefur rödd þeirra fengið að heyrast. Þeir hafa ekki verið dæmdir, en það aftraði samt ekki fjölmiðlum frá því að birta nöfn þeirra og myndir af þeim! Það kemur í ljós að sómalsk- ir sjóræningjar eiga sér töluverðar málsbætur. Sjóræninginn Carab sagði frá því fyrir dómi hvernig hann lenti í sjóræningjabransanum. Hann var sex ára þegar foreldrar hans dóu í handsprengjuárás. Hann ólst upp aleinn og án umhyggju. Sú reynsla kenndi honum mikilvægi þess að vera til staðar sem faðir. En hann skuldaði 150 þúsund kall. Syni hans var rænt út af skuldinni. Þannig varð Carab sjóræningi og rændi í þeim göfuga til- gangi að bjarga syni sínum. Sjóræninginn Yssuf lýsti því fyrir dómi hvernig hann varð fórnar- lamb minnkandi fiskistofna. Hann var sjómaður og átti tvær eigin- konur og fimm dætur. Þegar fiskurinn fór var enga vinnu að fá og hann lapti dauðann úr skel. Þá gerðist hann sjó- ræningi til að eiga fyrir salti í grautinn. Þegar maður verður atvinnulaus í Sómalíu fer maður ekki á at-vinnuleysisbætur og kvartar yfir leiðindum eða fer á námskeið. Maður sveltur bara. Og börnin svelta líka. Það þýðir ekkert að skera niður bíóferðir og utanlandsferðir. Það er ekkert til að skera niður. Maður reddar sér pening eða deyr bara. Þetta á fólk hér á Ís- landi erfitt með að skilja. Þess vegna skilja Íslendingar ekki hvernig er að vera sjóræningi. Sómalía er líklega fátækasta land í heimi. Steinsnar undan strönd Sómalíu er siglingaleið þar sem margar fallegustu snekkjur veraldar fara um. Þar fara líka flutn- ingaskip með alls kyns góss fyrir ríka fólkið í heiminum. Upp á þetta horfa Sómalíumenn þar sem þeir sigla og fiska ekki baun. Einn daginn hefur ein áhöfn hugsað með sér: Ansans árans, við eigum ekki neitt, þau eiga allt. Það er ekki rétt – leiðréttum það. Hrói höttur stal frá ríkum og gaf fátækum. Steingrímur J. Sig-fússon og Jóhanna Sigurðar- dóttir taka frá ríkum og gefa fátækum með friðsamari hætti, en miklu um- fangsmeiri, í gegnum skattkerfið. Hin ágenga jafnaðarstefna sjóræningjanna er engin nýlunda í grunninn. Ef það væri sérstakur sjóræn-ingjaskattur þyrftu sjóræn-ingjarnir ekki að ræna og ríka fólkið þyrfti ekki að lenda í þessum leiðindasjóránum. Sjóræningjar eru ekkert vondir, þeir bara voru látnir verða það. Það er ekki þeim að kenna að þeir séu lífsgæða- hamlaðir. Fleira sem hefur þurft að þola of skilningslausa umfjöllun í fjölmiðlum: Ögmundur Jónasson og málefnin hans, Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður Ögmundar, og staðgöngumæðr- un sem vændi, Jón stóri sem fyr- irmynd, Marinó G. Njálsson sem heilagur, ósnertanlegur maður, Þór Saari sem eini maðurinn sem veit hvað á að gera, Bjarni Bene- diktsson og sú staðreynd að hann tæmdi ekki bótasjóð Sjóvár sjálfur, Bændasamtökin og nauðsyn þess að flytja áróður gegn ESB í Bænda- blaðinu, Eiður Smári Guðjohnsen og fjárfestingar hans sem eng- inn ætti að mega vita af, Heiðar Már Guðjónsson og hvernig hann bjargaði næstum Íslandi, Svav- ar Gestsson og Icesave-samning- urinn hans sem hefði útrýmt at- vinnuleysi á Íslandi og loks Besti flokkurinn og hvernig hann lækk- aði fargjöld í Strætó með því að hækka þau. Svarthöfði Reynir Traustason ritstjóri skrifar:„ Jakkalakkarnir á kontórnum neita að semja. Dökk fortíð Rannveigar n Margt er skrafað um mögulegan arftaka Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta Íslands. Nafn Rann- veigar Rist er á meðal þeirra sem gjarnan dúkka upp í um- ræðunni. Þykir Rannveig gjarn- an vera sómi íslenskra kvenna með hreinan oog farsælan feril sem álforstjóri. En sá skuggi hvílir yfir henni að hafa verið stjórnar- formaður Skiptu, eignarhaldsfé- lags Símans sem viðurkenndi eitt svívirðilegasta brot íslenskrar við- skiptasögu og greiddi 400 milljónir króna í bætur. Forstjórinn, Brynjólf- ur Bjarnason, fauk en þögnin umvef- ur Rannveigu. Gullæta læst inni n Fyrir helgina varð umtalsverð og byltingarkennd breyting á náttstað Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, þegar hann var lokaður inni í fangageymslu. Sigurjón hefur um áratugaskeið lifað í hásölum íslensku útrás- arinnar. Hæst reis sól hans fyrir allnokkrum árum þegar hann bauð þotuförmum af vinum Landsbankans til Mílanó þar sem hann og gestirnir átu gull í boði bankans en að vísu aðeins í forrétt. Eiði ekki stefnt n Arnþrúður Karlsdóttir, hinn um- deildi útvarpsstjóri Sögu, hefur um nokkurra mánaða skeið haft í heit- ingum við Eið Guðnason, mál- farsráðgjafa og fyrrverandi ráð- herra. Taldi út- varpsstjórinn að Eiður hefði með skrifum sínum vegið að heiðri hennar með þeim hætti að skaðabóta væri þörf. Upplýsti Arnþrúður að hún myndi krefjast milljóna úr vasa Eiðs. Síðan hafa liðið mánuðir og ekkert bólar á stefnu. Halla trompaðist n Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmað- ur innanríkisráðherra, er ein af hópi fjölmiðlafólks sem grafið hef- ur um sig inni í Vinstri grænum. Halla hafði fyrir nokkrum árum einstaklega sterkar skoðan- ir staðgöngu- mæðrun sem hún líkti við vændi og barnasölu. Þegar svo DV rifjaði upp skrif henn- ar trompaðist aðstoðarmaðurinn og notaði ýmis orð um blaðamanninn og blaðið fyrir að voga sér að birta fréttina. Hún virðist þó enn vera sömu skoðunar hvað málið varðar. Sandkorn tryGGvAGötu 11, 101 rEykjAvík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is Ritstjórnarfulltrúi: jóhann Hauksson, johannh@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.