Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Síða 4
4 | Fréttir 26. janúar 2011 Miðvikudagur Yfirheyrslur halda áfram í Landsbankarannsókninni: MP-maður yfirheyrður Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is Handspritt og handgel Inniheldur 85% etanól og glyserín sem mýkir húðina. Verð: 795 kr. – 600 ml. Ný könnun MMR: Helmingur vill kjósa um Icesave Helmingur þjóðarinnar vill kjósa aftur um nýjan Icesave-samning, samkvæmt niðurstöðum könnunar MMR. Að sama skapi vill helmingur þjóðarinnar að hann verði eingöngu afgreiddur af Alþingi. MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvort ákvarðanataka vegna nýs Icesave-samnings ætti eingöngu að vera í höndum Alþingis eða hvort bera ætti samninginn aftur undir þjóðaratkvæði. Af þeim sem tóku afstöðu vildu 50,3 prósent að nýi samningurinn yrði sendur í þjóðar- atkvæði en 49,8 prósent sögðust vilja að hann yrði eingöngu afgreiddur af Alþingi. Niðurstöðurnar eru mjög svip- aðar og í könnun MMR frá mars í fyrra en þá vildu 49,5 prósent nýjan Icesave-samning í þjóðaratkvæði en 50,5 prósent sögðust vilja samning- inn afgreiddan eingöngu af Alþingi. Samtals tóku 78,5 prósent aðspurðra afstöðu til spurningarinnar, eða 890 einstaklingar. Innbrot upplýst Lögreglan á Eskifirði handtók á mánudag nokkra einstaklinga í tengslum við rannsóknir á innbrot- um og þjófnuðum sem framin hafa verið í umdæminu og víðar undan- farnar vikur. Brotist hefur verið inn á fjölda staða og má þar nefna Hótel Capitano í Neskaupstað og þjófnað og innbrot í lóðsbátinn Vött á Reyð- arfirði. Þá var brotist inn í skemmu Skógræktar ríkisins á Hallormsstað, brotist inn í vörugám á Egilsstöðum og verðmætum stolið hjá Gámafé- laginu á Reyðarfirði. Einnig var brotist inn og verð- mætum stolið úr sumarbústað í landi Úlfsstaða, gerð tilraun til inn- brots í annan sumarbústað á sama stað og vörum og kortaveski stolið frá viðskiptavini í Krónunni á Reyð- arfirði. Málin teljast upplýst og hefur þeim sem handteknir voru verið sleppt. Félag sem „gerir ekkert“ gaf arð Bræðurnir Friðjón og Haraldur Þórðarsynir græða á tá og fingri þrátt fyrir efnahagserfiðleika í þjóð- félaginu. Félagið TH Investments sem er í eigu bræðranna greiddi sér nærri 300 milljóna króna arð fyr- ir árin 2008 og 2009. Kemur þetta fram í ársreikningum félagsins. Samkvæmt heimildum DV voru þeir bræður stórtækir í gjaldeyris- viðskiptum eftir bankahrunið. Í samtali við DV í júlí 2009 sagði Friðjón Þórðarson að félagið TH Investments „gerði ekkert.“ Þrátt fyrir að engin starfsemi væri í félag- inu að sögn Friðjóns þá skilaði fé- lagið samt nærri 250 milljóna króna hagnaði árið 2008 og 45 milljóna króna hagnaði árið 2009. Meint brot bræðranna Friðjón Þórðarson er fyrrverandi starfsmaður Landsbankans en starfaði síðar hjá fyrirtækinu Virð- ingu þaðan sem hann var rekinn haustið 2008. Vék Virðing honum úr starfi þar sem hann var grun- aður um markaðsmisnotkun auk peningaþvættis og auðgunarbrota. Áttu hann og Matthías Ólafsson, æskuvinur Friðjóns og ljósatæknir hjá Orkuveitu Reykjavíkur, meðal annars að hafa millifært 250 millj- ónir króna á milli reikninga sinna. Matthías var skráður einn eigenda TH Investments árið 2009 en er ekki lengur á meðal hluthafa sam- kvæmt ársreikningi félagsins. Haraldur Þórðarson var for- stöðumaður fjárstýringar Exista sem annaðist gjaldeyrisjöfnup. Því má ætla að reynsla Haraldar frá Ex- ista hafi nýst félaginu TH Invest- ments vel. Þeir Friðjón og Haraldur eru synir Þórðar Friðjónssonar, for- stjóra Kauphallar Íslands. Bræðurnir voru báðir hand- teknir og yfirheyrðir síðla árs 2008 vegna rannsóknar efnahagsbrota- deildar ríkislögreglustjóra á Virð- ingarmálinu og Friðjón var einn- ig hnepptur í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn málsins. Eftir því sem DV kemst næst stend- ur rannsóknin á Virðingarmálinu ennþá yfir hjá deildinni. „Ekkert að sýsla“ „Við erum ekkert sérstaklega með skrifstofur fyrir fyrirtækið. Við eig- um þetta saman bræðurnir,“ sagði Friðjón í samtali við DV í júlí 2009. „Við erum ekkert að sýsla,“ sagði hann þegar hann var spurður að því hver starfsemi fyrirtækisins væri. „Það gerir ekkert,“ bætti hann við. Samkvæmt hlutafélagaskrá var fyrirtækið stofnað þann 24. októ- ber 2008, stuttu eftir bankahrun- ið og er með skrifstofur að Suður- landsbraut 22 í Reykjavík. „Það var bara stofnað til að gera eitthvað ef eitthvað yrði í vændum,“ sagði Friðjón um tilgang félagsins. Þeg- ar hann var síðan spurður að því hvort eitthvað hafi orðið í vændum sagði hann „neibb“. Ævintýralegur hagnaður Ljóst er að frásögn Friðjóns af litl- um umsvifum TH Investments á ekki við rök að styðjast. Ársreikn- ingar félagsins staðfesta það. Félag- ið skilaði 248 milljóna króna hagn- aði árið 2008. Þó var það einungis starfandi í tvo mánuði árið 2008. Hlýtur árangurinn að teljast ævin- týralegur en á sama tíma voru flest eignarhaldsfélög í fjármálageiran- um að fara á hausinn eða að skila mettapi. Rekstarkosnaður TH In- vestments nam auk þess einung- is 1.600 þúsund krónum árið 2008 og þar af voru launagreiðslur eng- ar. Hlýtur það að teljast ansi lít- ið í samanburði við 248 milljóna króna hagnað auk þess sem félag- ið greiddi sér 92 milljónir í arð fyrir árið 2008. Árið 2009 var hagnaður félags- ins töluvert lægri eða 45 milljónir króna. Þrátt fyrir versnandi afkomu greiddi félagið sér 190 milljónir króna í arð árið 2009 vegna rekstr- arársins 2008. Hækkaðu laun og launatengd gjöld úr 0 krónum árið 2008 í 642 þúsund krónur árið 2009. Einnig kemur fram að TH Invest- ments eigi félagið Manzo Corp ltd., sem gæti verið aflandsfélag en það er þó ekki á listanum sem Morg- unblaðið birti í greinaflokki um af- landsfélög og skattaskjól árið 2009. Í ársreikningi TH Investments árið 2009 kemur fram að Manzo Corp ltd. sé eignalaust og í slitameðferð. Engar upplýsingar finnast um þetta fyrirtæki. Ekki liggur ljóst fyrir hvort Manzo Corp var notað til að fela meint gjaldeyrisbrask bræðranna erlendis. Einnig virðist TH Investments hafa selt hlut sinn í norska trygg- ingafyrirtækinu Storebrand árið 2009. Samkvæmt ársreikningn- um fyrir árið 2008 var hluturinn í Storebrand metinn á 70 milljón- ir króna. Árið 2009 er 61 milljónar króna skuld við lánastofnanir líka gerð upp. Má telja líklegt að það sé skuld vegna bréfanna í Storebrand og að Haraldur hafi fengið lán fyrir hlutnum vegna starfa sinna hjá Ex- ista. Kaupþing var um tíma stærsti hluthafinn í Storebrand með 20 prósenta hlut en Exista var þá þriðji stærsti hluthafinn með um 5,5 pró- senta hlut. n Bræðurnir Friðjón og Haraldur Þórðarsynir eru taldir hafa verið stórtækir í gjaldeyrisbraski n 250 milljóna hagnaður hjá TH Investments árið 2008 á einungis tveimur mánuðum n Rannsakaðir af lögreglunni í Virðingarmálinu Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is Handtekinn Friðjón, sem græðir á tá og fingri í dag, sést hér í fylgd lögreglumanns eftir að Virðingarmálið var tekið til rannsóknar. „Við erum ekkert að sýsla. Embætti sérstaks saksóknara heldur áfram rannsókn sinni á málefnum Landsbankans sem hófst með hand- töku og gæsluvarðhaldi Sigurjóns Árnasonar fyrir skömmu. Þannig hefur embættið yfirheyrt forstöðu- mann lögfræðisviðs MP banka, Jó- hann Tómas Sigurðsson, á síðustu dögum. Fleiri yfirheyrslur standa til samkvæmt heimildum DV en í ein- hverjum tilfellum mun vera um að ræða menn sem staddir eru erlendis um þessar mundir. Sérstakur saksóknari yfirheyrði sömuleiðis einn af helstu stjórn- endum Seðlabanka Íslands, Sigurð Sturlu Pálsson, yfirmann alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Ís- lands, síðastliðinn mánudag. Sig- urður Sturla hefur meðal annars þann starfa í bankanum að sjá um samskipti við viðskiptabanka eins og Landsbankann og er hugsanlegt að hann hafi verið milligöngumað- ur í millifærslunum af reikningi Landsbankans í Seðlabankan- um sem nú eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Líkt og komið hefur fram snýst rannsóknin með- al annars um millifærsl- ur af reikningi Landsbank- ans í aðdraganda hrunsins haustið 2008 og kaup á bréfum Landsbankans og Straums úr peninga- markaðs- sjóðum Lands- bankans eftir lokun sjóð- anna. Um var að ræða millifærsl- ur upp á milljarða króna af reikningum bank- ans og inn á reikn- inga MP banka og Straums þann 6. október 2008, dag- inn sem neyðarlög- in voru sett og degi áður en Landsbank- inn var yfirtekinn af íslenska ríkinu. ingi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.