Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 26. janúar 2011 Miðvikudagur Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokkins: „Pólitískt óþægindaálag“ Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Ríkislögreglustjóri hefur ákært Þór- arinn Arnar Sævarsson, einn af eig- endum Remax-fasteignasölunnar á Íslandi, fyrir skattsvik. Í ákæruskjal- inu er Þórarinn sagður hafa framið „… meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum í sjálfstæðri at- vinnustarfssemi sinni í fasteignavið- skiptum.“ Þórarinn, sem hefur verið stórtækur í fasteignaviðskiptum hér á landi á undanförnum árum, er ákærður fyrir að hafa skilað röng- um skattaskýrslum árin 2005, 2006 og 2007 vegna tekna áranna á und- an, með því að vanframtelja samtals rúmar 42,3 milljónir króna í rekstr- artekjur og hafa þannig ekki tal- ið fram skattskyldar tekjur. Þannig hafi hann komið sér undan greiðslu tekjuskatts og útsvars samtals að fjárhæð 12,6 milljónum króna. Verði sviptur löggildingu Aðalmeðferð í málinu átti að fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag, en samkvæmt upplýs- ingum frá efnahagsbrotadeild rík- islögreglustjóra, hefur lögmaður Þórarins krafist frávísunar í málinu vegna meintra formgalla í ákærunni. Þórarinn er einnig ákærður fyrir að hafa „… látið undir höfuð leggj- ast að færa lögboðið bókhald og vanrækt að varðveita bókhalds- gögn vegna sjálfstæðrar atvinnu- starfsemi sinnar árin 2004, 2005 og 2006,“ eins og segir í ákærunni. Ákæruvaldið krefst þess að Þór- arinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Einnig er þess krafist að Þórarinn verði sviptur rétti til að vera löggilt- ur fasteignasali. Telur málatilbúnaðinn ekki halda Ekki hefur náðst í Þórarin sjálfan, en Garðar G. Gíslason, lögmað- ur hans, segir við DV að frávís- unarkrafan sé byggð á því að ekki standi steinn yfir steini í málatil- búnaði ákæruvaldsins. Um sé að ræða túlkunarmál sem snúi að því að maðurinn hafi gert réttilega grein fyrir öllum sínum tekjum, en deilt sé um hvenær menn teljist vera í atvinnurekstri. „Þetta snýst líka um að þessar tölur í ákærunni eru rangar. Úrskurður yfirskatta- nefndar hefur gengið í millitíð- inni þar sem þessu er nánast öllu fleygt út. Fyrir utan það taka þeir ekkert tillit til þess að hann taldi þetta allt fram sem fjármagnstekj- ur og borgaði af þessu sem fjár- magnstekjum. En skattayfirvöld fóru af stað og ákæruvaldið beið ekki einu sinni eftir úrskurði yf- irskattanefndar,“ segir Garðar um málið. „Þetta snýst líka um að þessar tölur í ákærunni eru rangar. Úr- skurður yfirskattanefndar hefur gengið í millitíðinni þar sem þessu er nánast öllu fleygt út. Eigandi REmax ákæRðuR fyRiR svik n Þórarinn Arnar Sævarsson fyrir dóm vegna skattsvika n Grunaður um að hafa komið sér undan að greiða 12,6 milljónir n Verjandi hans segir að ekki standi steinn yfir steini hjá ákæruvaldinu n Tekist á um frávísun Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Héraðsdómur Reykjavíkur Þórarinn Arnar hefur verið ákærður fyrir skattsvik en lögmaður hans krefst frávísunar og segir málatilbúnað ákæruvaldsins ekki standast. „Ég var á fjölmennum fundi Sam- taka atvinnulífsins í Stapanum í gær, enn einum fundinum í Stap- anum um atvinnumál á Suðurnesj- um. Þar kom fram í máli forstjóra Norðuráls og forstjóra Magma að í fyrsta sinn á þeirra langa ferli í orkugeiranum sem telur rúmlega áratug, að minnsta kosti í öðru til- fellinu, fari nú erlend fjármögn- unarfyrirtæki fram á það að pól- itískt óþægindaálag sé sett ofan á fjármögnun sem íslensk fyrirtæki eru að leita eftir,“ sagði Ragnheið- ur Elín Árnadóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum á Alþingi á þriðjudag. Ragnheiður sagði í ræðustól Al- þingis að pólitísk óvissa og póli- tískur óstöðugleiki á Íslandi væri svo mikill að í fyrsta sinn væru er- lendir fjárfestar sem eru að skoða fjárfestingu á Íslandi að hugsa um að kaupa sér tryggingu vegna póli- tískrar óvissu á Íslandi. Í ljósi ummælanna sem Ragn- heiður hafði eftir forstjórun- um tveimur, spurði Ragnheiður Steingrím J. Sigfússon fjármála- ráðherra hvort hann stæði við orð sín frá því fyrr í mánuðinum um að umræða um eignarnáms- og þjóð- nýtingartal mundi varla fæla frá fjárfesta til Íslands. „Er þetta ennþá stormur í vatns- glasi?“ spurði Ragnheiður. Steingrímur J. svaraði Ragn- heiði: „Varðandi það að stefna um opinbert eignarhald á auðlindum og það að þjóðin fái eðlilegan arð af þeim fæli frá erlenda fjárfesta tel ég misskilning. Það er vel þekkt, og fjárfestar þekkja það vel, að lönd hafa yfirleitt í löggjöf sinni og jafn- vel stjórnarskrá ýmis ákvæði til að tryggja stöðu sína. Nægir að benda á Kanada í þeim efnum. Fjárfestar sem nýta svona auðlindir þekkja þetta vel.“  valgeir@dv.is Ragnheiður Elín Árnadóttir Telur ríkisstjórnina fæla frá erlenda fjárfesta. Ökumaður í tómu tjóni Karlmaður á fertugsaldri var stöðv- aður tvívegis með skömmu millibili á laugardagskvöld fyrir of hraðan akstur. Bifreið mannsins fannst síð- ar um kvöldið mannlaus og mikið skemmd utan vegar. Fyrst var maðurinn stöðvaður á Miklubraut eftir að bifreið hans mældist á 127 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Sami maður var stöðvaður á nýj- an leik rúmum hálftíma síðar. Þá var hann á ferð á öðrum stað í borginni þar sem hámarkshraði er einnig 80 kílómetrar á klukkustund. Mældist bifreið mannsins á 123 kílómetra hraða. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að skýring mannsins hafi verið einföld: Hann var á leið í bíó. „Ætla mætti að einhver hefði nú lært af reynslunni en það virðist þó ekki eiga við um þennan öku- mann því bíll hans fannst mannlaus og utan vegar í öðru sveitarfélagi á höfuðborgarsvæðinu nokkrum klukkutímum síðar. Af ummerkjum að dæma er ekki ósennilegt að mað- urinn hafi haldið uppteknum hætti og síðan misst stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum. Bíllinn er mikið skemmdur og þurfti að kalla til dráttarbifreið svo koma mætti honum af vettvangi. Þess má geta að umræddur ökumaður hefur alloft áður gerst sekur um umferðarlaga- brot,“ segir í tilkynningu frá lögreglu. Fleiri flytja frá landinu en til þess Á síðasta ári fluttu rúmlega tvö þúsund fleiri frá landinu en til þess. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar. Mjög dró úr brottflutningi á árinu miðað við árið áður þegar rúmlega 4.800 fluttu úr landi umfram aðflutta. Alls fluttu 7.759 frá landinu, samanborið við 10.612 árið 2009. Rúmlega 5.625 manns fluttu til Íslands árið 2010, sem er svipað- ur fjöldi og árið 2009 þegar 5.777 fluttu til landsins. Íslenskir ríkis- borgarar voru fleiri en erlendir í hópi brottfluttra, eða 4.340 á móti 3.419, samkvæmt tölum Hagstof- unnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.