Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Blaðsíða 11
Fréttir | 11Miðvikudagur 26. janúar 2011 „Stjórnlagaþingið verður“ Forsætisráðherra í þröng „Íhaldið er órólegt því það er skíthrætt við stjórnlagaþing,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi í gær. Mynd róbert reynisson Þannig var stjórnlagaþing ógilt Úrskurður Hæstaréttar um að ógilda kosningar til stjórnlagaþings er byggður á sex atriðum, eða annmörkum, eins og segir í úrskurði. Samkvæmt rökstuðn- ingi Hæstaréttar eru annmarkarnir eftirtaldir: 1 Kjörseðlar voru merktir númerum og því hægt að rekja þá til tiltekinna kjósenda. „Verður að telja að ákvörðun um að haga númeramerkingu seðlanna [...] hafi farið í bága við lokaákvæði 4. gr. laga nr. 90/2010 um leynilegar kosningar.“ 2 Hæstiréttur mat það svo að þau pappaskilrúm sem notuð voru í kosningu til stjórnlagaþings geti ekki talist sem kjörklefar. „[Þ]ar sem þau afmarka ekki það rými sem kjósanda er eftirlátið til að kjósa í með þeim hætti að kjósandi sé þar í einrúmi. Þá uppfyllti þessi umbúnaður heldur ekki það skilyrði að þar mætti greiða atkvæði án þess að aðrir gætu séð hvernig kjósandi kaus.“ 3 Kjörseðla mátti ekki brjóta saman. „Regla í 85. gr. laga nr. 24/2000 um að kjósandi skuli brjóta seðilinn saman áður en hann leggur seðilinn í kjörkassann hefur það markmið að tryggja rétt og skyldu kjós- anda til leyndar um það hvernig hann ver atkvæði sínu. Ekki er í 10. gr. laga nr. 90/2010 [laga um stjórnlagaþing] vikið berum orðum frá þessari reglu svo einfalt sem það hefði verið ef vilji hefði staðið til þess við setningu laganna.“ 4 Ekki var hægt að læsa kjörköss-um. „Þeir kjörkassar sem notaðir voru við kosningar til stjórnlaga- þings uppfylltu ekki skilyrði [...] um að unnt væri að læsa þeim.“ 5 Talning atkvæða fór ekki fram fyrir opnum dyrum. „Bar landskjörstjórn [...] að leyfa aðgang að húsnæði því þar sem talning fór fram eftir nánari ákvörðun sinni þar sem haldið var uppi reglu og öryggi og aðgangur veittur eftir því sem húsrúm leyfði. Verður að telja það annmarka á framkvæmd talningar við kosningar til stjórnlagaþings að hún hafi ekki farið fram fyrir opnum dyrum.“ 6 Frambjóðendur höfðu ekki á umboðsmanni/fulltrúa á að skipa við talningu. „[G]agnsæi [á] að ríkja við talningu atkvæða. Skal í því sambandi áréttað að ekki er nóg að rétt sé talið ef ekki ríkir traust um að þannig hafi verið að verki staðið. Samkvæmt upplýsingum frá landskjörstjórn kom upp vafi við rafrænan lestur kjörseðla þannig að taka þurfti sérstaka ákvörðun um hvernig skilja bæri skrift kjósenda á tölustöfum 13 til 15% allra kjörseðla. Af þessum sökum var sérstök þörf á nær- veru fulltrúa við talninguna, sem ætlað var að gæta réttar frambjóðenda.“ ómar ragnarsson: Menn flýttu sér of mikið „Þetta er mjög dapurleg niðurstaða en ég var viðbúinn henni,“ segir Ómar Ragnarsson sem kjörinn var á stjórnlagaþing í haust. Hæstiréttur hefur ákveðið að kosningin hafi verið ólögleg. „Það merkilega er að ég var alveg viðbúinn þessari niðurstöðu eins og hinni, þó að ég telji hana ranga,“ segir Ómar. Aðspurður hvers vegna hann hafi allt eins búist við þessari niðurstöðu segir hann: „Það er út af mínum bakgrunni sem atvinnuflugmaður. Þegar möguleikarnir eru fleiri en einn verður að gera ráð fyrir þeim öllum og möguleik- arnir voru einfaldega fleiri en einn.“ Ómar gagnrýnir undirbúning stjórnlaga- þingsins og segir að menn hafi verið að flýta sér allt of mikið. „Þetta kennir okkur það að það er ekkert flýtisverk að setja landinu nýja stjórnarskrá. Innifalið í því er undirbúning- urinn og aðdragandinn. Menn voru allt of mikið að flýta sér að koma þessu á koppinn. Undirbúningurinn þurfti líka góðan tíma og satt að segja fannst mér vera búið að stytta þingtímann of mikið,“ segir Ómar og bætir við að stjórnarskráin eigi að standa til langs tíma, vera einföld og skýr og öllum auðskiljanleg. Ástrós Gunnlaugsdóttir stjórn-lagaþingmaður er ein þeirra sem keypti auglýsingar í kosn- ingabaráttunni til stjórnlagaþings. Hún hefur lýst því yfir að hún hafi notað sparifé sitt til þess að kynna sig. Í frambjóðendagrein á stjórn- lagaþingsvef dv.is sagði hún frá því að hún greiddi kostnaðinn við framboð- ið úr eigin vasa. „Ég hef safnað í sjóð síðan ég var 12 ára gömul vitandi að einhvern tímann myndi þessi sjóður gagnast mér til að uppfylla drauma mína og vonir,“ skrifaði Ástrós. Spurð um viðbrögð við ákvörð- un Hæstaréttar um að ógilda kosn- ingu til stjórnlagaþings, segir Ástrós: „Fyrstu viðbrögð eru gríðarleg von- brigði. Þetta er eins og myndarlegt kjaftshögg í andlitið. Þetta er mikið svekkelsi, en ég skil grundvöll dóms- ins í Hæstarétti.“ Aðspurð hvort komi til greina að krefja ríkið um skaðabætur í ljósi þess að hún lagði út í kostnað fyrir kosningu sem var ógild, segir hún: „Ég hugsa að ég muni leita míns rétt- ar ef svona fer og ef ekkert verður gripið inn í. Þá auðvitað athuga ég leiðir til að sækja minn rétt, það er al- veg á hreinu.“ Ástrós, sem er ófrísk, hafði gert ráðstafanir fyrir þá mánuði sem stjórnlagaþingið átti að starfa. „Ég var búin að taka frí frá námi og ég á von á barni í sumar. Ég held að það ráði enginn ólétta konu í vinnu, þannig að þetta er allt í uppnámi svo vægt sé til orða tekið. Maður veit ekki alveg hvað maður á að halda. Lífið er í dálítið lausu lofti í augnablikinu. Ég veit ekki hvort maður eigi að leyfa sér að vona það besta. Þetta er mjög leið- inlegt.“ valgeir@dv.is Ástrós stjórnlagaþingmaður er ófrísk og íhugar að sækja rétt sinn: ófrísk og lífið í lausu lofti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.