Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Qupperneq 18
18 | Umræða 26. janúar 2011 Miðvikudagur „Aðeins blind fífl eða and- hvítir svikarar myndu vilja hið sama fyrir Ísland.“ n Sigríður Bryndís Baldvinsdóttir, í samtökunum Blóð og heiður, um fjölmenningarstefnu Evrópu. – DV „Ég hef verið hálf-flissandi yfir fréttum af aðskotatölvu á Alþingi.“ n Margrét Tryggvadóttir, alþingismað- ur Hreyfingarinnar. – margrettryggva.is „Súrsaður matur og kæstur hákarl er holl fæða.“ n Ólafur Reykdal hjá MATÍS um hollustugildi súrmats sem er saltsnauður og B-vítamínríkur og kæsta hákarlsins sem er fullur af ómettuðum fitusýrum. – DV „Villisvínið sem lifði hér á land- námsöld var náttúrulega kafloðið og hörku- ljótt.“ n Eyjólfur Guðmundsson, rithöfundur og meindýraeyðir, sem vill flytja alls kyns tegundir af villtum dýrum á Vestfirðina, þar á meðal sauðnaut, snæhéra og villisvín. – DV „Sumir strákar láta svona líka við mig.“ n Söngvarinn Friðrik Ómar sem skilur ekkert í því af hverju bandaríski táningurinn Justin Bieber fær ekki meiri athygli. – Friðrik Ómar, Facebook Ábyrgð skussanna Sú niðurstaða Hæstaréttar að svipta beri stjórnlagaþing-menn umboði sínu og reka þá heim er áfellisdómur yfir fjölda manns. Augljóst er að kjörstjórnin öll verður að fara. Þá er nærtækt að sá ráðherra sem fór með dómsmálin á þeim tíma sem kosningin fór fram axli sín skinn. Jafnvel er þetta spurn- ing um líf ríkisstjórnarinnar allr- ar þótt sá pólitíski óstöðugleiki sem fylgdi yrði skaðlegur samfélagi sem er að leggja af stað upp úr djúpum öldudal kreppunnar. Eitt af meginatriðum þess að þjóðin næði að sætta sig við örlög sín eftir hrun var að stjórnlagaþing kæmi saman og nýtt Ísland yrði að veruleika með nýrri stjórnarskrá. Burtséð frá nauðsyn þessarar end- urskoðunar er hún hluti af lífsnauð- synlegri sátt. Með því hugarfari gengu flestir til kosninganna í haust. Sáralítill ágreiningur er um þá 25 fulltrúa sem valdir voru. Á yfirborð- inu var almenn sátt um að ganga til þeirra verka að endurskoða íslensku stjórnarskrána. Niðurstaða Hæstaréttar nú er áfall fyrir alla nema kannski þá laumupúka og þjóðníðinga sem ekki vilja að auðlindum þjóðarinn- ar verði skilyrðislaust haldið í þjóð- areign. Það þýðir þó ekkert að deila við dómarana eða fordæma þá sem kærðu. Klúðrið liggur fyrir og hund- ruð milljóna króna fara í súginn. En það verður að leita lausna. Eins og staðan er nú er í raun frá- leitt að hverfa frá stjórnlagaþingi eða kjósa aftur. Jóhanna Sigurðardótt- ir hefur rétt fyrir sér þegar hún seg- ir: „Stjórnlagaþingið verður ekki tek- ið af þjóðinni.“ Þegar skussunum, sem bera ábyrgð á klúðrinu, hef- ur verið vikið frá er eðlilegt og sjálf- sagt að leita annarra leiða til að færa fulltrúunum 25 að nýju umboð sitt. Þar er nærtækt að Alþingi komi til skjalanna og skipi þá einfaldlega til verka. Það er nóg komið af sóun og hringlandahætti. Stjórnlagaþing, eða hvað svo sem það verður látið heita, á að koma saman og skila tillögu að breyttri stjórnarskrá. Alþingi hefur til þess vald að skipa þá til verka og á að gera það. Leiðari Þarf stjórnin að laga þingið? „Hún hefur ekki þurft að laga það stjórnlagaþing sem kosið var,“ segir Ómar Ragnars- son sem kjörinn var á stjórnlagaþing en Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu á þriðju- dag að kosningarnar væru ógildar. Spurningin Bókstaflega Reynir Traustason ritstjóri skrifar„Klúðrið liggur fyrir. Bæjarfulltrúi rannsakaður n Gunnar Birgisson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, er ekki af baki dottinn í baráttunni þótt Ármann Kr. Ólafsson, leiðtogi Sjálfstæðisflokks- ins, hafi slegið hann kaldan í prófkjöri. Gunn- ar er eins konar minnihluti innan minnihlutans og fer að vanda sínar eigin leiðir við lítinn fögnuð Ármanns. Dóttir Gunnars, sem átti í góðum viðskiptum við bæjarfélag föður síns, sótti mál á hendur bæj- arfulltrúum fyrir meiðyrði en tap- aði. Nú er Ómar Stefánsson, leiðtogi Framsóknar, undir lögreglurann- sókn fyrir að hafa kjaftað frá því að stór hluti ættboga Gunnars gekk í Framsókn í kringum frægt prófkjör. Oddviti braskar n Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, vara- þingmaður og oddviti Tálknfirð- inga, þrífst ágætlega í kvótakerfinu. Frægt varð í fyrra þegar DV sagði frá því að útgerð hennar, Stegla ehf., hefði feng- ið byggðakvóta árum saman en leigt bát og kvóta frá sér. Alls upp- skar oddvitinn um 160 milljónir króna í leigutekjur. Engin breyting hefur orðið á þessu. Enn fær útgerð oddvitans byggða- kvóta sem leigður er í hagnaðar- skyni. Þetta gerist enn og aftur með stuðningi sveitarfélagsins. Skjaldborg um Jón n Jón Bjarnason sjávarútvegsráð- herra á í vök að verjast gegn valda- kjarnanum í ríkisstjórninni sem vill losna við þennan óþekktarorm rík- isstjórnarinnar. Sjálfur er Jón full- komlega með- vitaður um þann hug sem Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon bera til hans. Mun Jón ætla að berjast þar til yfir lýkur. Og hann er ekki einn því órólega deildin í VG hefur slegið um hann skjaldborg. Þá er Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra stað- fastur í baklandi Jóns. Úrslitin eru því ekki ljós. Óvinur þorpsins n Flateyringar standa nú í þeim sporum að fullkomin óvissa er um framhald á vinnslu á fiski í þorp- inu. Og til að bæta gráu ofan á svart er fyrirhugað að loka elliheimilinu í þorpinu. Í þeim efnum sverja flestir af sér ábyrgð og benda hver á ann- an. Nú er almannarómur sá að það sé Álfheiður Ingadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, sem hafi veitt rekstrinum náðarhöggið með því að hamla því að teknir yrðu inn nýir vistmenn í stað þeirra sem hurfu á braut. Þannig hafi ráðherrann svelt reksturinn. Sandkorn TryggVAgöTu 11, 101 rEykJAVÍk Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir Traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is Ritstjórnarfulltrúi: Jóhann Hauksson, johannh@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Oft er það þannig að fólkið sem skilur eftir sig sviðn-ustu jörðina fær mestu upp- skeruna. Í vikunni var Anna Skúla- dóttir, fjármálastjóri Orkuveitu Reykjavíkur, rekin frá störfum. Þeir sem til þekkja vita að vandi Orku- veitu Reykjavíkur er einmitt gríð- arlegur þegar kemur að fjármál- um hennar. Og þeir sem enn betur þekkja til muna að Anna hafði kríað 7 milljóna króna Benz-jeppa út úr almannafyrirtækinu í fyrra, á sama ári og undirbúnar voru gríð- arlegar gjaldskrárhækkanir á okk- ur eigendurna. Anna er kvödd með kossi; 14,4 milljóna króna kossi, nánar til tekið. Það vill nefnilega þannig til að alveg eins og hún hafði í starfi fjármálastjóra náð að færa lykla af Benz-jeppa í eigin vasa, hafði hún öðlast mán- aðarlaun upp á 1,6 milljónir króna. Ofan á það hafði hún fengið 9 mánaða uppsagnarfrest, sem er 200% lengri en aðrir launamenn fá. Auðvitað stóð Anna fjármála-stjóri ekki ein að málum í Orkuveitunni. Það er lenska að vísa ábyrgð yfir á aðra, þannig að hún getur gert það. Auk þess segir einhver í svona tilfellum að Anna hafi þurft umbun fyrir að bera slíka ábyrgð (sem hún stóð ekki undir). Svo er í tísku að segja að andrúmsloftið hafi verið svona lúxus- og óhófsmiðað, þannig að fólk sukkaði ósjálfrátt. En það var 2007, ekki í fyrra! Og hver voru viðbrögð Önnu þegar hún skilaði loksins lúxusjeppanum? Hún sendi bréf á samstarfsmenn sína og kvartaði yfir umræðunni um málið. Í því felst auðvitað að ef enginn hefði sagt neitt hefði hún varla skilað jeppanum. Hún hefði haldið áfram að horfa upp á sömu hörmungartölur í bókhaldinu og verðlaunað sjálfa sig á kostnað þess, með oggulitlum mínusum, sem hún sendir svo í umslagi til alþýðunnar. Það er í tísku hjá leiðtogum landsins að tala um bjarta framtíð vegna mikilla auð- linda okkar Íslendinga. Þá helst er það fiskurinn, orkan og mannauð- urinn. Líklega eru leiðtogarnir að meina þetta, en þeir eru aðal- lega að tala um sína eigin björtu framtíð. Enda tala þeir um okkur sem auðlind, eins og hverja aðra borholu. Einhvern veginn verður útkoman alltaf sú að þeir sem fá hæstu launin veðsetja auðlindirn- ar og senda reikninginn á mann- auðinn. Enda er greiðsluviljinn auðlind út af fyrir sig; sú dýrmæt- asta sem jeppafólk hjá hinu opin- bera eða í fjármálageiranum hefur komist í tæri við. Ætli það sé eitt- hvað í kalda vatninu? Svarthöfði Fjármálastjórinn og við

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.