Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Page 23
Úttekt | 23Miðvikudagur 26. janúar 2011 S íðustu áratugi hefur líkams- þyngd Íslendinga aukist jafnt og þétt. Æ fleiri konur, karlar og börn flokkast of feit samkvæmt stöðlum Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar, WHO. „Hér er síður en svo um séríslenskt fyrirbæri að ræða, svipaða sögu má víða segja, jafnvel í löndum þar sem næringarskortur er alvarlegt heilbrigð- isvandamál meðal þeirra lægst settu,“ segir doktor Laufey Steingrímsdóttir, prófessor á Rannsóknastofu í næring- arfræði á Landspítala og við Matvæla- og næringarfræðideild HÍ. Djúp gjá sem dýpkar Laufey bendir á að meðan margir þyngist sé fræðsla og hvatning um holla lífshætti á hverju strái og þrýst- ingur umhverfisins á grannan og stælt- an líkama meiri en nokkru sinni fyrr. „Auglýsingar á heilsuvörum og fram- boð á líkamsrækt fylla síður blaða, sem gjarnan eru prýddar myndum af vöðvastæltu og tággrönnu fólki. Aldrei hefur verið svo djúp gjá milli staðalí- mynda og raunverulegrar líkamsbygg- ingar alls almennings og einmitt nú og staðalímyndirnar verða sífellt grennri,“ segir Laufey. Jákvæðar fréttir úr skólunum Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir of fituna vera heimsfaraldur og ótal rannsóknir eru gerðar á heilsufarsleg- um afleiðingum, fylgikvillum og með- ferð og leiða leitað til þess að sporna við þróuninni. Laufey segir að þrátt fyrir þessar ríku áherslur aukist þyngd- in enn um allan heim. Þó berast jákvæð- ar fréttir meðal ann- ars úr skólaheilsu- gæslunni í Reykjavík sem gefa vísbending- ar um breytta þróun en hlutfall barna í yf- irþyngd hefur ekki hækkað allra síðustu ár heldur virðist frek- ar hafa lækkað. Laufey segir að hugsanlega sé aukin áhersla á holla lífs- hætti barna, góðan mat og næga hreyf- ingu að hafa þarna áhrif. „Í skólunum hefur áherslan sem betur fer verið á heilsusamlega lífs- hætti frekar en líkamsþyngdina sem slíka. Eilíft tal um líkamsþyngd veldur kvíða þeirra sem eru mjög þungir og elur á ranghugmyndum hinna grönnu um eðlilega líkamsþyngd – getur jafn- vel leitt til megrunaráráttu.“ Hollur matur fyrir alla Laufey bendir á að þótt fræðsla skipti sannarlega máli hvað varðar heilsu- samlegt mataræði eða hreyfingu, þá hafi hún takmarkað gildi varðandi þyngdina eina og sér. Fólk sem er of þungt veit til dæmis yfirleitt mæta vel hvar kaloríurnar er að finna. Hins veg- ar benda flestar rannsóknir til þess að umhverfi fólks, meðal annars skipulag borga og bæja, og aðgengi og fram- boð á matvörum hafi áhrif á heilsu og líkamsþyngd íbúanna. Þegar ódýrar, orkuríkar en að öðru leyti næringar- snauðar matvörur eru ævinlega inn- an seilingar, en holla varan er dýrari og fjarlægari, þá er ekki að sökum að spyrja hvað verði oftast fyrir valinu,“ segir Laufey. „Það eru væntanlega breytingar á þessum þáttum undan- farna áratugi sem hafa haft hvað mest áhrif á þróun líkamsþyngdar bæði hér heima og um víða veröld. Ég held að það sé tími til kominn að kanna og ræða alvarlega möguleika á að snúa þessari þróun við á einhvern hátt. Það ætti enginn að þurfa að fara á mis við hollar matvörur vegna þess að verðið sé of hátt.“ Kyrrsetan hættuleg „Svo má ekki gleyma hreyfingunni,“ segir Laufey og bendir á að Íslending- ar noti einkabílinn hvað mest í ver- öldinni. „Kyrrsetan fer afar illa með líkamann. Margir bæta að vísu upp kyrrsetuna með því að fara í ræktina eða stunda holla líkamsrækt en það hafa því miður alls ekki allir aðstæður til þess. Daglega hreyfingin hefur svo mikið að segja og hún hefur að miklu leyti horfið úr lífi margra. Það skiptir máli að börnin fái að ærslast og leika sér, það er þeim ekki eðlilegt að sitja heilu og hálfu dagana á skólabekk og koma síðan heim til að vera fyrir fram- an tölvuskjá. Þau þurfa að fá að hlaupa og reyna á skrokkinn.“ Berst gegn fordómum Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur hef- ur lengi talað fyrir því í umræðu um heilbrigði og holdafar að mikilvægt sé að forðast að ala á megrunaráráttu og fordómum gagnvart feitu fólki. Sigrún kom opinberlega fram fyrir nokkrum árum og sagði frá því að sjálf hefði hún verið þéttvaxin um tíma sem barn og fundið harkalega fyrir neikvæðum við- horfum sem ýttu undir sjálfsóánægju og skömm. Í kjölfarið barðist hún við átröskun á unglingsárunum en eftir að hafa fætt sitt fyrsta barn ákvað hún að bylta hugarfari sínu og annarra. Á þessum grunni setti Sigrún af stað átak sem beindist að samfélagsviðhorfum í tengslum við holdafar. Blogg Sigrúnar undir heitinu Líkamsvirðing á Eyjunni nýtur mikilla vinsælda en þar birtir hún pistla sína um málefni tengd heil- brigði og holdafari. Lausnin er vandamálið og öfugt Sigrún segir þessar öfgaáherslur og gjána milli staðalímynda og raun- verulegrar líkamsbyggingar langt því frá nýja sögu. „Alla síðustu öld hef- ur baráttan fyrir grönnum vexti ver- ið þrotlaus. Hún stendur enn og hef- ur litlu skilað,“ segir Sigrún. „Það er rétt að við höfum fitnað en við vitum í raun og veru ekki fyllilega af hverju. Það er heilmargt sem þarf að kanna í því samhengi. Einblínt hefur verið á mataræði og hreyfingu en margt ann- að gæti einnig kom- ið til greina, til dæm- is meiri kynding í heimahúsum, auka- efni í mat og snyrti- vörum, streita, minni svefn og jafnvel megr- unartilburðirnir sjálfir en líkamsþyngd hef- ur aukist jafnt og þétt samhliða þrá okkar til að grennast. Lausnin er því ekki fundin og megrun virkar ekki,“ segir hún. „Hún skilar engu til lengri tíma af því flestir þyngjast aft- ur. Stundum endar fólk meira að segja enn þyngra en það var fyrir megrun af því líkaminn vill birgja sig upp til að eiga forða fyrir næstu megrun. Þannig er lausnin orðin að vandamálinu og erfiður vítahringur farinn í gang.“ Ættum að vinna gegn vansæld Hún segir heillavænlegra að hafa áherslurnar aðrar: „Kannski við ættum að einbeita okkur að því að hugsa um heilsu og velferð óháð öllum ytri mæli- kvörðum og staðalmyndum? Að læra að elska okkur sjálf og aðra og umfram allt krefjast virðingar sama hvernig við lítum út? Lífið snýst um allt annað og meira en fituprósentu og kílóatölu og við ættum að vinna gegn þeirri óham- ingju og vansæld sem fylgir megrun- armenningunni í stað þess að fylgja henni í blindni.“ Fólk er mismunandi Sigrún vill opna augu samferðamanna sinna fyrir því að fólk sé mismunandi og eigi rétt á að líða vel í eigin skinni. „Við verðum að opna augun fyr- ir því að fólk er mismunandi. Jafnvel þótt allir lifðu fullkomlega heilbrigðu lífi myndi fólk samt vera mismunandi vaxið, þótt eflaust væri minna um öfg- ar. Ég vil að fólk hafi frelsi til að vera eins og það er og lifa góðu lífi í þeim líkama sem því var gefinn í stað þess að vera fangar í eigin skinni. Það er mannréttindamál.“ Sigrún hefur rætt um þetta á bloggsíðu sinni þar sem hún segir: „Ég trúi því að við höfum öll okkar náttúrulegu kjörþyngd sem er einstaklingsbundin og því mismun- andi fyrir hvern og einn. Ég hef fulla trú á því að fólki geti verið eðlislægt að vera bæði undir og yfir þessum mörk- um sem við köllum kjörþyngd.“ Sigrún spyr: Eru þá allir í sinni nátt- úrulegu kjörþyngd? og segir svarið langt því frá. „Margir eru ýmist þyngri eða léttari en þeim er eðlislægt að vera af því þeir hafa tileinkað sér óheppi- legar lífsvenjur. Það er einmitt málið og á það eigum við að leggja áherslu. Að tala um rétt og rangt holdafar er að tala í kringum það sem raunverulega þarf að huga að: Hegðun. Það hefur enga þýðingu að hamra á því að offita sé slæm og láta fólki líða ömurlega í eigin líkama. Það er til fullt af fólki sem fellur utan kjörþyngdar án þess að lifa óheilbrigðu lífi. Hvers vegna skyldum við dæma það fólk og hafa fordóma gagnvart því? Og af hverju skyldum við horfa fram hjá þeim sem eru í „réttri“ þyngd en eru samt að fara illa með líkama sinn?“ Grannt fólk er ekki endilega heilbrigt Sigrún bendir á að vandinn sé lúmsk- ari en margir átti sig á. Grannt fólk lifi oft í blekkingu hvað varðar eigin heilsu vegna skilaboða samfélagsins um að grannir einstaklingar séu heilbrigðir einstaklingar. „Ég legg áherslu á að óholl- ar lífsvenjur eru al- veg jafn óheilbrigðar hvort sem grönn eða feit manneskja á í hlut. Það er ekki hægt að ganga út frá því að grannur vöxtur veiti vernd frá vanheilsu ef lífsvenjurnar eru slæmar.“ En hver er lausnin? „Að mínu mati felst lausnin í því að leggja áherslu á heilsu og hamingju en ekki líkamsþyngd sem slíka. Þyngd er útkoma margra samverkandi þátta en við höfum ekki stjórn á nema sum- um þeirra. Það að ætla að stjórna ein- hverju sem við höfum litla stjórn á er ávísun á pirring, vanlíðan og tilgangs- lausa baráttu. Við getum valið að borða næringarríkan mat, hreyft okk- ur reglulega, hvílt okkur vel og unn- ið gegn streitu og við það öðlumst við sannarlega betra líf en það er ekki þar með sagt að við verðum mjó. Við verð- um að læra að lifa í þeim líkama sem við eigum núna. Á bloggsíðunni sinni segir Sigrún að lokum: „Við eigum að taka mið af því sem rannsóknir hafa kennt okkur um ár- angur megrunar og setja markið á eðli- legar, heilbrigðar lífsvenjur sem hægt er að halda út ævina. Síðan eigum að vinna að því að þróa samfélagið í þá átt að öllum manneskjum sé gert kleift að þykja vænt um líkama sinn og finnast þess virði að hugsa um hann af virð- ingu og alúð.“ Ungt fólk í hættu Kristjana Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri líkamsræktar hjá Baðhúsinu, fagnar því að það sé almennt viðurkennt að gjáin milli staðalímynda og raunveru- legrar líkamsbyggingar sé vandi sem þurfi að ráðast að jafnt sem offitu. „Það þarf fyrst að viðurkenna vand- ann til þess að hægt sé að vinna í af- gerandi úrlausnum. Ég held að þetta séu margir þættir sem spila þarna inn í. Ungt fólk er í mestri hættu varðandi stað- alímyndir og þar er fræðsla mjög mikil- væg. Það eru ekki all- ar fyrirmyndir spenn- andi hjá ungu fólki í dag. Jafnframt er mikilvægt að fólk eigi samtal við sjálft sig: „Hvað er það sem ég raunverulega vil fyrir mig?“ Við stjórnum því sjálf hverju við leyfum að hafa áhrif á okk- ur.“ Fræðsla mikilvæg Kristjana telur framtíðarsýnina felast í því að halda uppi góðri fræðslu frá unga aldri. „Það þarf að kenna gott mataræði og reglulega hreyfingu fyrir alla aldurshópa. Við þurfum að hreyfa okkur minnst hálftíma á dag og það þarf að styðja við það, til dæmis í skól- um og á vinnustöðum. Það hafa ver- ið tekin mörg góð skref í þessa átt þar sem vinnuveitendur styðja við starfs- fólkið varðandi hollt mataræði og hreyfingu.“ Kristjana tekur undir með Lauf- eyju og Sigrúnu sem telja fólk mjög misjafnlega uppfrætt og gildi holls mataræðis. „Unga fólkið er líka mjög misjafnlega statt með mataræði sitt og þar þarf heldur betur að halda vel á fræðslunni.“ „Aldrei hefur verið svo djúp gjá milli staðalímynda og raunverulegrar lík- amsbyggingar alls al- mennings og einmitt nú og staðalímyndirn- ar verða sífellt grennri. „Það þarf fyrst að viðurkenna vandann til þess að hægt sé að vinna í afgerandi úrlausnum.Fangar í eigin skinni „Alla síðustu öld hefur bar-áttan fyrir grönnum vexti verið þrotlaus. Hún stendur enn og hefur litlu skilað. Ungt fólk viðkvæmt Kristjana Þorgeirsdóttir hjá Baðhúsinu segir ungt fólk viðkvæmara en það eldra fyrir þrýstingi um að falla í ákveðið mót. Staðalímyndir verða æ grennri Laufey segir gjána milli staðalímynda og raunverulegrar líkamsbyggingar aldrei hafa verið dýpri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.