Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 13. apríl 2011 Miðvikudagur
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
Rafknúnir
hægindastólar
sem auðvelda
þér að setjast
og standa upp
Fjölbreytt úrval
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Fjárfestirinn Björgólfur Thor Björg
ólfsson bjó yfir innherjaupplýsingum
þegar eignarhaldsfélagið NP keypti
38 prósenta hlut Brú Venture Capi
tal í tölvuleikjaframleiðandum CCP í
mars árið 2006. Heimildir DV herma
að Sigurður Ólafsson, náinn vinur
Björgólfs Thors, hafi tilkynnt honum
að bjartari tímar væru framundan hjá
tölvuleikjaframleiðandanum. Sigurð
ur var þá markaðsstjóri CCP og þekkti
innviði félagsins því vel. Áskriftar
tekjur EVE Online voru sem dæmi
stöðugt að aukast á þessum tíma.
Eftir að Sigurður hafði kveikt
áhuga hjá Björgólfi Thor var eignar
haldsfélagið NP stofnað. Sigurður
hafði verið markaðsstjóri CCP frá
árinu 2000 en lét af störfum í upphafi
árs 2006 þegar hann hóf að vinna fyr
ir Novator, félag Björgólfs Thors. Varð
Sigurður jafnframt stjórnarformaður
eignarhaldsfélagsins NP en það félag
er stærsti hluthafinn í CCP. Settist Sig
urður í stjórn eignarhaldsfélagsins NP
í janúar árið 2006 eða sex vikum áður
en tilkynnt var um kaup félagsins á
38 prósenta hlut Brú Venture Capital
í CCP.
Heimildarmaður DV segir að það
hafi þótt undarlegt á sínum tíma að
Fjármálaeftirlitið (FME) hafi ekki séð
ástæðu til að setja út á hagsmuna
tengsl Sigurðar Ólafssonar við CCP
en hann bjó yfir innherjaupplýsing
um um tölvuleikjaframleiðandann
sem hann tilkynnti Björgólfi Thor um
og urðu þær kveikjan að stofnun eign
arhaldsfélagsins NP.
Ævintýralegur vöxtur
Í mars árið 2006 seldi fjárfestingasjóð
urinn Brú Venture Capital, dóttur
félag StraumsBurðaráss 38 prósenta
hlut sinn í CCP til eignarhaldsfélags
ins NP. Á þeim tíma var rekstur CCP
farinn að ganga mun betur en árin
á undan. Árið 2005 hafði CCP skil
að hagnaði en árið var þó erfitt fyr
ir rekstur þess vegna sterkrar stöðu
íslensku krónunnar. Félagið var þó
komið yfir áhættumesta tímann í
rekstri þess. Gott dæmi um það er að
árið 2006 sexfaldaðist markaðsverð
mæti CCP.
Enginn arður hjá CCP
Í síðasta helgarblaði DV var fjallað
um tengsl Björgólfs Thors við CCP.
Var þar sagt að um helmingur af
hagnaði CCP rynni til erlendra eign
arhaldsfélaga sem skráð eru í Lúx
emborg, á Cayman eyjum eða í Road
Town á Tortóla sem tilheyrir Bresku
Jómfrúaeyjum. Þar sem CCP heftur
ekki greitt sér arð á undanförnum
árum var þessi fullyrðing röng. Var
beðist velvirðingar á því á DV.is síð
asta sunnudag.
Hins vegar má benda á að félagið
BeeTeeBee Ltd., sem skráð er í Road
Town á Tortóla á um 16,7 prósent í
CCP í gegnum eignarhaldsfélagið NP.
Þrátt fyrir að arður renni ekki frá CCP
til BeeTeeBee Ltd. hækkar verðmæti
CCP í bókum aflandsfélags Björgólfs
Thors. Þar með getur aflandsfélag
ið greitt sér arð af fjárfestingu sinni.
Í DV á föstudag var sagt frá því að
Björgólfur Thor hefði hagnast um
nærri fjóra milljarða króna á fjárfest
ingu sinni í CCP. Var þá gengið út frá
því að verðmæti CCP næmi 18 millj
örðum króna.
Hagnaður Björgólfs til
aflandsfyrirtækja
Heimildarmaður DV segir að verð
mæti CCP sé enn meira. Að hans
sögn var félagið metið á um 25 millj
arða króna í síðasta lokaða hluta
fjárútboði. Fjármálamenn nálægt fé
laginu tali nú um að verðmæti CCP sé
meira og slagi jafnvel hátt í 40 millj
arða króna. Miðað við það ætti Björg
ólfur Thor að vera búinn að hagnast
um 7,5 milljarða króna á CCP. Um 6,5
milljarða króna í gegnum BeeTeeBee
Ltd. auk þess sem félagið Novator
Partners LLP, hefur þá fengið rúm
lega milljarð króna vegna samnings
við Novator Onesjóðinn. Þessi hagn
aður Björgólfs Thors kemur þó lík
lega aldrei inn í íslenska þjóðarbúið
þar sem hann fer til aflandsfyrirtækja
í hans eigu.
n Markaðsstjóri CCP tilkynnti Björgólfi Thor um góðar horfur árið 2006 n Björgólfur stofnaði
þá NP og settist markaðsstjórinn í stjórn félagsins sem keypti stóran hlut í CCP n Hluturinn
sexfaldaðist n Fjármálaeftirlitið sá ekki ástæðu til að setja út á hagsmunatengsl
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
„Eftir að Sigurður
hafði kveikt áhuga
hjá Björgólfi Thor var
eignarhaldsfélagið NP
stofnað.
8. apríl 2011
Með Sigurði á mótorhjóla hátíð
Björgólfur Thor sést hér á milli Orra
Haukssonar og Sigurðar Ólafssonar
á mótor hjólahátíð í Sturgis í Suður-
Dakóta árið 2009. Báðir hafa þeir Orri
og Sigurður unnið hjá Indian-mótor-
hjólaframleiðandanum fyrir hönd
Björgólfs.
18 | Fréttir 8.–10. apríl 2011
Helgarblað
Tölvuleikjaframleiðandinn CCP er
að stærstum hluta í eigu eignarhalds-
félaga sem skráð eru í Lúxemborg,
á Caymaneyjum eða í Road Town
á Tortóla sem tilheyrir Bresku Jóm-
frúaeyjum. Segja má að um 430 millj-
ónir króna af nærri 800 milljóna króna
hagnaði CCP árið 2009 hafi farið til
félaga í skattaparadísum. Ekki liggur
ljóst fyrir hvernig afkoma CCP var á
árinu 2010.
Fjárfestirinn Björgólfur Thor Björg-
ólfsson er stærsti hluthafinn í CCP í
gegnum eignarhaldsfélagið NP sem
fer með 30,5 prósenta hlut í félaginu.
Fjárfestingarfélagið Novator fer síðan
með 55 prósenta hlut í NP og félagið
Novator Telecom Poland á 45 prósent í
NP. Fjárfestingarfélagið Novator er síð-
an alfarið í eigu móðurfélagsins Bee-
TeeBee Ltd. sem skráð er í Road Town
á Tortóla sem tilheyrir Bresku Jóm-
frúaeyjum. Novator Telecom Poland
er skráð í Lúxemborg og er alfarið í
eigu Novator One-sjóðsins sem skráð-
ur er á Caymaneyjum.
Hóf að fjárfesta í CCP árið 2006
Í byrjun árs 2006 keypti fjárfest-
ingarfélagið Novator 38 prósenta
eignarhlut fjárfestingarbankans
Straums-Burðaráss (Straums) í CCP.
Átti Straumur hlutinn í gegnum
dóttur félag sitt sem heitir Brú Ven-
ture Capital. Er talið að kaupverð-
ið hafi numið 565 milljónum króna.
Samkvæmt heimildum DV var það
Sigurður Ólafsson, náinn vinur
Björgólfs Thors og núverandi stjórn-
armaður í CCP, sem kveikti áhuga
hans á félaginu. Sigurður var á sínum
tíma markaðsstjóri CCP og einn af
lykilstarfsmönnum félagsins. Auk
þess að sitja nú í stjórn CCP er Sig-
urður stjórnarformaður eignarhalds-
félagsins NP sem fer með stærstan
hlut í CCP.
Skömmu eftir að eignarhalds-
félagið NP hafði keypt 38 prósenta
hlut Straums í CCP keypti Novator
One LP sjóðurinn, sem skráður er
á Caymaneyjum, hlutinn. Sjóðnum
var stýrt af Novator Partners, félagi
í eigu Björgólfs Thors, þrátt fyrir að
sjóðurinn væri alfarið í eigu Straums.
Þar að auki þáði félag Björgólfs Thors
árlega tveggja prósenta umsýslu-
þóknun úr sjóðnum auk þess að taka
20 prósent af hagnaði hans.
Vilhjálmur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka fjárfesta
gagnrýndi þetta samkomulag í við-
tali við Morgunblaðið árið 2009:
„Þetta er bara enn eitt dæmið um
hvernig tengdir aðilar skara eld að
sinni köku og reyna að ná sér í aðeins
meira en þeim ber.“
Þess skal auk þess getið að Nova-
tor Partners, félag Björgólfs Thors,
fær enn greitt fyrir að reka Nova-
tor One LP sjóðinn sem nú er í eigu
skilanefndar Straums. Fullyrti frétta-
stofa Stöðvar 2 í október síðastliðn-
um að Björgólfur Thor fengi enn
hundruð milljóna króna árlega fyrir
að reka eignir Straums.
Óskiljanleg flétta fyrir Straum
Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna
Straumur samþykkti þessa viðskipta-
fléttu. Á þeim tíma sem bankinn
seldi hlut sinn var rekstur CCP far-
inn að ganga mjög vel og hefur dafn-
að enn frekar frá þeim tíma. Hag-
stæðara hefði verið fyrir bankann að
halda áfram utan um hlut sinn í CCP,
í stað þess að selja hann fyrst til eign-
arhaldsfélagsins NP og síðar að sam-
þykkja að fara með hlutinn inn í sér-
stakan sjóð sem félag Björgólfs Thors
fékk þóknun úr.
Árið 2009 tók Novator Telecom
Poland síðan yfir 45 prósenta hlut
Novator One sjóðanna í eignarhalds-
félaginu NP. „Um endurskipulagn-
ingu innanhúss var að ræða, en eng-
in breyting varð á eignarhaldi,“ segir
Ragnhildur Sverrisdóttir, talsmað-
ur Novator, í svari við fyrirspurn DV
um málið. Novator Telecom Poland
er alfarið í eigu Novator One sjóðs-
ins og fær félag Björgólfs Thors enn
greitt fyrir að halda utan um þennan
hlut eins og áður kom fram.
Hlutur Björgólfs Thors talinn
hafa tólffaldast
Markaðsverðmæti CCP er talið hafa
verið í kringum 1.500 milljónir króna
í upphafi árs 2006 þegar Björgólfur
Thor hóf að fjárfesta í félaginu. Er
það miðað við að Brú Venture Capi-
tal hafi fengið 565 milljónir króna
fyrir 38 prósenta hlut sinn í CCP.
Markaðsverðmæti tölvuleikjafram-
leiðandans er talið hafa tólffaldast
frá árinu 2006. Í dag er CCP metið á
um 18 milljarða króna. Er þá miðað
við nýlegt hlutabréfaútboð þar sem
hver hlutur var seldur á 18 dollara,
eða um 2.300 krónur.
4 milljarða hagnaður
Ef miðað er við að fjárfestingar-
félagið Novator hafi keypt hlut sinn
í CCP á 314 milljónir króna árið
2006 og hann hafi síðan þá tólffald-
ast er verðmæti hans 3,8 milljarð-
ar króna í dag. Hagnaður Novator
af þessum hlut er því um 3,5 millj-
arðar króna á einungis fimm árum.
Auk þess má áætla að Björgólfur
Thor hafi fengið nærri 565 milljón-
ir króna í þóknun frá Novator One
vegna hagnaðar sjóðsins af hlut sín-
um í CCP. Er það miðað við að hlut-
ur sjóðsins sem nú er í eigu Nova-
tor Telecom Poland hafi hækkað
úr 254 milljónum króna árið 2006 í
rúmlega þrjá milljarða króna í dag.
Samkvæmt samkomulagi við sjóð-
inn fékk félag í eigu Björgólfs Thors
fimmtung af hagnaði hans. Því má
áætla að samanlagður hagnaður
Björgólfs Thors af fjárfestingu sinni
í CCP nemi um fjórum milljörðum
króna.
Bandaríski hluthafinn skráður í
Lúxemborg
Næststærsti hluthafinn í CCP er
félagið Teno Investments Sarl.,
sem er í eigu bandaríska fjár-
festingarsjóðsins General Cata-
lyst Partners, en er skráð í Lúx-
Hagnaður CCP 2009: 778 milljón
ir króna
Félög: Staðsetning Hlutur í CCP Hluti af ha
gnaði
BeeTeeBee Ltd. Tortóla 16,7% 130 illjónir
Novator One Caymaneyjar 13,7% 107 illjónir
Teno Investment Lúxemborg 23,9% 186 illjónir
Samtals: 54,4% 423 illjónir
Hvert fer hagnaðurinn af CCP?
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
n Helmingur hagnaðar CCP fer til félaga sem skráð eru í Lúxemborg, á Caymaney
jum eða Tortóla n Björg-
ólfur Thor hefur hagnast um 4 milljarða á CCP frá 2006 n Undarleg sala Straums
á hlut í CCP árið 2006
gróði ccp til tOrtólA
„Árið 2009 skilaði
félagið nærri 800
milljóna króna hagnaði ef
miðað er við gengi dollars
gagnvart krónunni í lok
árs 2009.
4 milljarða hagnaður af CCP Talið er að Björgólfur
Thor Björgólfsson hafi hagnast um fjóra milljarða króna
á fjárfestingu sinni í CCP. Hefur markaðsverðmæti
hlutar hans í tölvuleikjafyrirtækinu tólffaldast frá því
að hann hóf að fjárfesta í CCP árið 2006.
Fréttir | 19
Helgarblað 8.–10. apríl 2011
emborg. Skammstöfunin Sarl.
táknar takmörkuð ábyrgð
(f. Societee a Responsabilite Limi
tee) og eru mörg félög í Lúxemborg
sem notast við þetta rekstrarfyrir
komulag. General Catalyst Partn
ers kom inn í hluthafahóp CCP
árið 2006 og hefur David Fialkow,
forstjóri sjóðsins, setið í stjórn
félagsins. Auk þess að fjárfesta í
CCP ákvað bandaríski fjárfesting
arsjóðurinn að fjárfesta í gagnaveri
Verne Global í Reykjanesbæ.
Hagnaður CCP úr landi
CCP er með um 300 starfsmenn
á Íslandi sem fá laun sín greidd í
evrum. Árið 2009 skilaði félagið
nærri 800 milljóna króna hagnaði
ef miðað er við gengi dollars gagn
vart krónunni í lok árs 2009. Meira
en helmingur þess hagnaðar, eða
423 milljónir króna, fór til félaga í
Lúxemborg, á Caymaneyjum og í
Road Town á Tortóla. Þannig fóru
um 130 milljónir króna af hagnað
inum til félagsins NP ehf. sem er
alfarið í eigu félagsins BeeTeeBee
Ltd. sem skráð er í Road Town á
Tortóla. 107 milljónir króna fóru
til Novator Telecom Poland sem
skráð er í Lúxemborg en er í eigu
Novator One sjóðsins sem skráður
er á Caymaneyjum. Stærsti hlutinn
fór hins vegar til félagsins Teno In
vestment, félags General Partners
sem skráð er í Lúxemborg, eða 186
milljónir króna.
„Þetta er kannski ekki sú hitatala sem
við erum með í huga þegar við tölum
um hitabylgju en jú, það verður hlýtt
um helgina,“ segir Sigurður Þ. Ragn
arsson veðurfræðingur. Íslendingar
eru orðnir langeygir eftir hlýindum og
væntanlega hafa margir glaðst þegar
fréttir um gott veður um næstu helgi
fóru að berast. „Ég vil meina að vor
ið sé komið fyrir nokkru síðan og að
veðrið um helgina verði svona for
smekkur þess sem koma skal í sumar.“
Sigurður segir að búast megi við
besta veðrinu á Norðausturlandi en
þar geti hitinn farið upp í 18 til 20
gráður. „Við fáum suðrænt loft yfir
til okkar og við erum að tala um að
það verði Halló Akureyri og þar aust
ar af um helgina.“ Sunnan og vest
anlands má þó búast við smávætu
en þegar hlýtt suðrænt loft kemur til
okkar fylgir því oftast raki. Hitastigið í
Reykjavík verður á bilinu 10 til 14 stig.
Við erum þó ekki alveg laus við
veturinn því Sigurður segir að fast
lega megi búast við hreti. „Það er í
rauninni í kortunum svo við skulum
ekki slá neitt af með það. Þetta verð
ur svona bland í poka næstu vikurnar.
Hitinn sem kemur yfir landið verður
skammvinnur en veðrið gott meðan á
því stendur.“
Aðspurður um páskaveðrið segir
hann að páskarnir líti alveg ágætlega
út og ekkert sé tilefnið til að ætla að
við fáum mikið bakslag. Maí geti oft
verið leiðinlegri en apríl og það geti
vel verið að sú verði raunin nú. „En ég
er bjartsýnn. Við erum að tala um 18
til 20 gráður fyrir norðan og almennt
góðu veðri um land allt um helgina.
Ég stend og fell með því.“
gunnhildur@dv.is
Skammvinn hitabylgja á laugardaginn með allt að 20 stiga hita:
Einmuna blíða á kjördag
Blíða um helgina
Sigurður segir að besta
veðrið verði fyrir norðan.
Björgólfur bjó yfir
innherjaupplýsingum
Málstofa um peningastefnu í Háskóla Íslands:
Höft í tíu ár hið minnsta
„Reynslan sýnir að það tekur
minnst tíu ár að vinna sig út úr
gjaldeyrishöftum,“ sagði Yngvi Örn
Kristinsson hagfræðingur á mál
stofu um peningastefnu eftir höft
í Háskóla Íslands á þriðjudaginn.
Hann velti því fyrir sér hvort Seðla
bankinn væri ekki að byrja á röng
um stað í umræðunni um peninga
stefnu framtíðarinnar því ekki væri
ljóst hvaða stefna væri við lýði. Taldi
hann núverandi stefnu ógegnsæja
og frekar byggjast á gengismark
miði en hinu formlega verðbólgu
markmiði sem Seðlabankinn segist
styðjast við.
Á málstofunni, sem haldin var
vegna skýrslu sem Seðlabankinn
samdi fyrir efnahags og viðskipta
ráðherra um peningastefnu eft
ir höft, fór Þórarinn G. Pétursson,
aðal hagfræðingur Seðlabankans,
yfir helstu möguleika sem standa Ís
lendingum til boða í gjaldmiðlamál
um. Lítið nýtt kom fram í máli hans
en farið var yfir þá fjóra valmögu
leika sem við stöndum frammi fyr
ir; fljótandi krónu, krónu með fast
gengi og höftum, einhliða upptöku
annars gjaldmiðils og tvíhliða upp
töku annars gjaldmiðils. Það sem
helst vakti athygli á málstofunni var
að allir frummælendur, þeir Þórar
inn og Yngvi Örn ásamt Friðriki Má
Baldurssyni, voru á því að helsta
vandamál Íslendinga væri og hefði
alltaf verið slæm hagstjórn. Mátti
jafnvel greina efasemdir þeirra um
að breytinga væri að vænta. Þá kom
einnig fram að litlu skipti hvaða
peningamálastefna væri við lýði ef
hagstjórnin í heild væri ekki byggð
á traustum grunni.
gudni@dv.is
Höftin komin til að vera Yngvi Örn segir
að það taki hið minnsta 10 ár að vinna sig út
úr höftunum miðað við reynslu annarra.
Boðaði endalok
jarðhitanýtingar
„Ríkisstjórnin fer nærri því að reka
síðasta naglann í líkkistu jarðhita
nýtingar á Íslandi með áformum
sínum um að takmarka leigutíma
jarðhitaauðlinda við þrjátíu ár,
sagði Júlíus Jónsson, forstjóri HS
Orku á fundi Jarðhitafélags Íslands
í gær, þriðjudag. Júlíus gagnrýndi
stjórnvöld fyrir tregðu við upp
lýsingagjöf, erfitt væri að fá svör.
Alls staðar væru tafir sem leiddu til
aukins kostnaðar. Því fylgdi að ekki
væri hægt að standa við þá samn
inga sem gerðir hafa verið. „Það
fjarar undan þessu smám saman,“
sagði Júlíus á fundinum. Hann
sagði enn fremur að með 30 ára há
marks leigutíma jarðhitaauðlinda
væri komið að endalokum jarðhita
nýtingar á Íslandi. Hann sagði líka
að eina leiðin til að mæta þessum
áformum væri að hækka orkuverð
verulega.
Bensínverð enn
á uppleið
Ekkert lát virðist á hækkun bens
ínverðs. Í gær, þriðjudag, hækk
aði útsöluverðið um þrjár krónur.
Verð til neytenda er nú víðast rétt
liðlega 240 krónur, eða 238,5 að
meðaltali. Það þýðir að um tólf
þúsund krónur kostar að fylla tóm
an fimmtíu lítra tank. Sá sem á bíl
sem eyðir tíu lítrum á hundraðið
og ekur 20 þúsund kílómetra á ári
má gera ráð fyrir því að eyða 477
þúsund krónum á árinu, miðað
við óbreytt bensínverð. Fyrir einu
ári var algengt verð 206 krónur á
hvern bensínlítra. Verðið hefur
hækkað um nærri 16 prósent á
einu ári og um 112 prósent á fjór
um árum.