Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Page 6
6 | Fréttir 13. apríl 2011 Miðvikudagur
Undirheimaklíka skartar merktum klæðnaði:
Samtökin Semper Fi í búningum
Semper Fi-klíkan, undir forystu Jóns
Hilmars Hallgrímssonar eða Jóns
stóra eins og hann kallar sig, er kom-
in með sinn eigin einkennisklæðnað.
Meðlimir klíkunar voru á skemmti-
staðnum Vestur, sem er í eigu Dav-
íðs Smára Helenarsonar, síðastliðna
helgi, og klæddust þeir allir svörtum
peysum með nafni klíkunnar áprent-
uðu með hvítum stöfum á bakinu.
Kann þetta að vera til marks um
aukin umsvif hópsins. Nafn hópsins
er eins konar kjörorð bandarískra
landgönguliða og er stytting á orða-
sambandinu „Semper fidelis“ sem
merkir ávallt trúr.
Nokkrir meðlimir hópsins hafa
ítrekað komist í kast við lögin, aðal-
lega í tengslum við fíkniefni en einn-
ig eru tengingar við margvíslega
brotastarfsemi á borð við rekstur á
spilavítum, peningaþvætti, ofbeldi
og hótanir. Opinber tilgangur hóps-
ins er að æfa saman lyftingar og
bardagaíþróttir en eins og kom fram
í frétt DV í mars síðastliðnum hefur
lögregla grun um að tilurð hópsins
megi rekja til ótta íslenskra brota-
manna við aukin umsvif þess glæpa-
hóps sem Pólverjar og Litháar myndi
í undirheimum. Með öðrum orð-
um hafi íslenskir glæpamenn sam-
einast til að geta mætt ógnunum
og ofbeldisverkum erlendu mann-
anna. Í skýrslu lögreglu um skipu-
lagða glæpastarfsemi hér á landi
sem DV hefur undir höndum, kem-
ur fram að til standi að byggja Sem-
per Fi upp eins og MC Iceland og
Black Pistons. Innan hópsins munu
menn bera stöðuheiti og félagsmenn
greiða gjöld til að njóta verndar inn-
an hópsins.
hanna@dv.is
Grensásvegi 8 & Nýbýlavegi 12
Opið mán–föst 11.00–18.00
og lau 11.00–16.00
Úrval af
barnaskóm
BORGARNESI S: 437 1240
St. 28-35 Verð kr. 4.995,-
St. 24-35 Verð kr. 4.595,-
St. 24-35 Verð kr. 4.795,-
St. 19-24 Verð kr. 4.295,-
Seðlabanki Íslands hefur hætt
við fyrirhugað skuldabréfaútboð í
Bandaríkjunum fyrir hönd ríkissjóðs
í ljós niðurstöðunnar í Icesave-kosn-
ingunum um liðna helgi, samkvæmt
heimildum DV. Bankinn var búinn
að ákveða að fara í skuldabréfaút-
boð í Bandaríkjunum ef frumvarpið
um Icesave yrði samþykkt af íslensku
þjóðinni í nýafstaðinni þjóðarat-
kvæðagreiðslu, samkvæmt heimild-
um. Heimildir DV herma að bank-
inn hefði farið í skuldabréfaútboðið
á allra næstu vikum.
Meðal þess sem DV hafði heyrt
var að fjármálaráðuneytið hefði lagst
gegn því að farið yrði í skuldabréfa-
útboð fyrir Icesave-kosningarnar
vegna þeirrar óvissu sem var til stað-
ar um niðurstöðu kosninganna.
Beinar afleiðingar af synjun þjóð-
arinnar á Icesave-lögunum eru því
þegar byrjaðar að koma fram, meðal
annars í þeirri bið sem verður á áður-
nefndu skuldabréfaútboði.
Bankinn fylgist með þróun
skuldabréfamarkaða
DV sendi fyrirspurn um málið til
Seðlabanka Íslands og spurði með-
al annars að því hvort bankinn hefði
ætlað í skuldabréfaútboð í Banda-
ríkjunum.
Í svari frá bankanum kemur fram
að Seðlabankinn fylgist grannt með
þróun skuldabréfamarkaða og að
engin ákvörðun hafi verið tekin um
útboð. „Seðlabankinn, fyrir hönd
ríkissjóðs, fylgist náið með þróun
skuldabréfamarkaða með það fyr-
ir augum að efna til skuldabréfaút-
boðs til endurfjármögnunar þeirra
erlendu lána sem eru á gjalddaga
á þessu ári. Það er í samræmi við
áður birta áætlun í lánamálum rík-
issjóðs. Engin ákvörðun hefur verið
tekin um útboð, tímasetningu þess,
eða hvort leitað verður á Evrópu-
eða Bandaríkjamarkað. Frágangur
málsins mun ráðast af markaðsað-
stæðum.“
Þetta svar Seðlabanka Íslands úti-
lokar hins vegar ekki að búið hafi
verið að ákveða að fara í skuldabréfa-
útboð í Bandaríkjunum ef Icesave-
lögin hefðu verið samþykkt um liðna
helgi.
Enginn ágreiningur samkvæmt
bankanum
Blaðið spurði sömuleiðis að því
hvort fjármálaráðuneytið hefði
lagst gegn því að Seðlabanki Íslands
færi í skuldabréfaútboð fyrir Ice-
save-kosningarnar um liðna helgi.
Samkvæmt svari Seðlabankans var
þetta ekki raunin: „Seðlabankinn
er framkvæmdaaðili þegar kemur
að lánamálum ríkissjóðs. Ákvarð-
anir í þeim efnum eru fjármála-
ráðuneytisins. Enginn ágreiningur
er uppi milli Seðlabankans og fjár-
málaráðuneytisins um framkvæmd
lánamála.“
Heimildir DV herma að í stað
skuldabréfaútboðsins í Bandaríkjun-
um muni Seðlabankinn nú endur-
meta stöðuna í ljósi niðurstöðunnar
í Icesave-kosningunni um helgina.
Þó svo að niðurstaðan í Icesave-
kosningunum hafi verið „nei“ þá
er ekki útilokað að þessi niðurstaða
breyti ekki það miklu varðandi stöðu
Íslands að Seðlabanki Íslands geti
samt samt sem áður farið í skulda-
bréfaútboð í Bandaríkjunum eða
Evrópu á næstunni og endurfjár-
magnað lán ríkisins.
Einn af heimildarmönnum DV
segir að þetta muni skýrast á næstu
dögum: „Kannski breytir þetta litlu;
kannski breytir þetta einhverju. Það
kemur ekki í ljóst fyrr en einhvern
tímann á næstu dögum.“ Þó svo að
Seðlabankinn hafi tímabundið hætt
við fyrirhugað skuldabréfaútboð í
Bandaríkjunum þarf ekki að vera að
hætt verði við skuldabréfaútboð þar
í landi á næstunni. „Markaðsaðstæð-
ur“ munu ráða því samkvæmt svari
Seðlabankans.
Nú er sjá hvort Icesave-niður-
staðan hafi það neikvæð áhrif á þess-
ar markaðsaðstæður að Seðlabank-
inn meti það sem svo að betra sé að
bankinn fari ekki í skuldabréfaútboð
á næstunni.
„Frágangur málsins
mun ráðast af
markaðsaðstæðum.
Hætt við skuldabréfa-
útboð vegna Icesave
n Seðlabanki Íslands hafði ákveðið að fara í skuldabréfaútboð í Bandaríkjunum
n Hætt var við útboðið vegna Icesave n „Markaðsaðstæður“ munu ráða því hvort
farið verður í skuldabréfaútboð þrátt fyrir niðurstöðuna í Icesave-kosningunum
Skuldabréfaútboðið hefði farið
fram á næstunni Skuldabréfaútboð
Seðlabankans hefði farið fram í Banda-
ríkjunum á næstu vikum, samkvæmt
heimildum DV. Már Guðmundsson er
seðlabankastjóri.
Mynd SIgtryggur ArI
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Velunnarar Seljavallalaugar:
Vilja bjarga
lauginni
„Við viljum fá sem flesta til að fara
með okkur þangað á næstunni, með
skóflur í hendi og uppbrettar ermar,“
segir á síðu sem velunnarar Selja-
vallalaugar hafa stofnað á Face book.
Yfirskrift síðunnar er: „Breytum
Seljavallalaug úr sandkassa í sund-
laug“ en laugin þykir ekki svipur hjá
sjón miðað við hvernig hún var. Hún
er full af sandi og með öllu ónothæf.
Þessi sögufræga laug var byggð árið
1923 af ungmennafélaginu í sveit-
inni og þykir afar sérstök enda byggð
við klettavegg þar sem heitt vatn
sytrar út úr berginu.
„Okkur þykir alveg ótrúlega
vænt um Seljavallalaug og af þeim
sökum er frekar sorglegt að horfa
upp á ástand hennar í dag. Þó hún
sé vissulega ágætis sandkassi í dag,
væri nú ekki betra að geta synt í
henni eins og fyrir gos?“ spyrja
stofnendur Facebook-hópsins á síð-
unni. Fram kemur að tímasetning
hreinsunarinnar verði ákveðin síðar.
Eins og sjá má ef rýnt er í með-
fylgjandi mynd, sem Lárus Sigurðs-
son tók í vikunni, bíður velunnara
laugarinnar verðugt verkefni. Hún er
því sem næst sléttfull af sandi.
mikael@dv.is
„Ávallt trúr“ Nokkrir meðlimir Semper Fi-klíkunnar í einkennisbúningi. Mynd Björn BlöndAl