Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Page 8
8 | Fréttir 13. apríl 2011 Miðvikudagur
DV fær góða gjöf frá fyrrverandi útgefendum:
Gáfu borkjarna
Fyrrverandi útgefendur DV, Hörð
ur Einarsson og Sveinn R. Eyjólfs
son, færðu ritstjórn DV góða gjöf á
dögunum í tilefni 100 ára afmæl
is blaðsins í fyrra. Um er að ræða
borkjarna úr vegg sem skyldi að
ritstjórnir Dagblaðsins og Vísis í
Síðumúla 12–14 sem var brotinn
niður haustið 1981 þegar síðdegis
blöðin tvö voru sameinuð. Útgef
endur hins sameinaða blaðs voru
þeir Sveinn, sem hafði verið út
gefandi og stofnandi Dagblaðsins
og Hörður, sem gegndi sama hlut
verki hjá Vísi. Ritstjórar hins sam
einaða blaðs voru Jónas Kristjáns
son og Ellert Schram.
Hörður og Sveinn heimsóttu
ritstjórnarskrifstofu DV í byrjun
vikunnar. Sveinn hafði haldið bor
kjarnanum til haga frá því opnað
var á milli ritstjórna síðdegisblað
anna fyrir tæpum 30 árum. Silfur
skjöldur með áletrun var festur við
gripinn. Áletrunin vísar til upp
runa kjarnans. Þá er letrað á grip
inn að DV hafi orðið 100 ára í fyrra.
Þeir Hörður og Sveinn voru út
gefendur DV á blómatíma blaðs
ins eftir sameininguna og þóttu
einstaklega samhentir. Árið 1983
var lestur DV kominn í 64 prósent,
meðan Morgunblaðið var í 70 pró
sentum.
Í janúar árið 1995 seldi Hörður
sinn hlut í útgáfunni og hætti. Mik
ill hagnaður var af rekstrinum sem
var með miklum ágætum allt til
ársins 2001 þegar fjárfestar undir
forystu Ágústs Einarssonar og Óla
Björns Kárasonar keyptu útgáfuna.
Lauk þá afskiptum Sveins R. Eyj
ólfssonar af rekstrinum. Tveimur
árum síðar varð útgáfa DV gjald
þrota.
Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laug. 11-16.
10% afsláttur
hjá F&B þýðir
FRÁBÆRT VERÐ
til neytenda!
Flísa & Baðmarkaður
inn er eins árs!
Þökkum
frábærar
vitökur!
Í tilefni afmælisins er 10% afsláttur af
öllum vörum vikuna 11. til 16. apríl.
Gerðu góð kaup!
„Ég var í sjónum í einhverjar fimm
til tíu mínútur og var orðinn nokk
uð kaldur,“ segir Heimir Harðarson,
stýrimaður á hvalaskoðunarbátn
um Knerrinum og einn af eigendum
Norðursiglingar á Húsavík. Heimir
lenti í sjávarháska aðfaranótt mánu
dags þegar hann féll útbyrðis í vondu
veðri skammt frá Húsavík.
Hjálparbeiðni barst frá skútunni
Áróru um kvöldmatarleytið á sunnu
dag en vegna mikils hvassviðris átti
skútan í erfiðleikum með að komast
til hafnar. Því var ákveðið að senda
hvalaskoðunarbátinn til móts við
skútuna og var hún tekin í tog og
dregin áleiðis til hafnar.
Var í flotúlpu
Allt gekk eins og í sögu til að byrja
með en þegar komið var í hafnar
mynnið dundi ógæfan yfir. Þegar ver
ið var að losa spottann á milli báts
ins og skútunnar fékk Áróra spottann
í skrúfuna. Við það kom slinkur á
spottann, eins og Sigurður Jóns
son, skipstjóri á Áróru, lýsti í samtali
við DV.is á mánudag. Í kjölfarið féll
Heimir útbyrðis og annar skipverji á
Knerrinum fótbrotnaði illa.
„Ég var í svona flotúlpu sem hélt
mér að vísu ekki þurrum. Hún er
samt ágætt öryggistæki og hélt mér á
floti,“ segir Heimir sem náði að synda
í áttina að bátnum og ná taki á taug.
Hann var svo dreginn um borð á
nokkrum mínútum.
Tveir slæmir kostir
Heimir slasaðist á fæti þegar hann féll
útbyrðis en sem fyrr segir fótbrotnaði
kollegi hans á Knerrinum illa. Heimir
segir að hann hafi haft um tvennt að
velja – fótbrotna eða henda sér í sjó
inn. „Það sem gerðist var svipað og
hjá félaga mínum. Ég klemmdist og
það voru í raun ósjálfráð viðbrögð að
henda sér í sjóinn til að bjarga fætin
um. Ég fann að hann var að gefa sig
en mér tókst sem betur fer að snúa
mér yfir rekkverkið á bátnum og
henda mér í sjóinn. Það var annað
hvort að gera það eða sjá hvort fótur
inn myndi mölbrotna.“ Félagi Heimis
fótbrotnaði þegar hann festi fótinn í
lykkju sem var hluti af dráttarbúnað
inum milli bátanna. Hann fór í að
gerð á mánudag og er á batavegi.
Heimir marðist á fætinum og
þarf að styðjast við hækju í einhverja
daga.
Flensan versnaði
Aðspurður hvort hann hafi einhvern
tímann óttast um líf sitt segir Heimir
að hann hafi ekkert hugsað um það.
„Ég er flugsyndur og vanur að vera í
sjónum. Kuldinn var samt óbærileg
ur,“ segir Heimir í samtali við DV og
bætir við að það sé ekki góð tilfinning
að detta í sjóinn í vondu veðri, kulda
og í myrkri. „Það er samt ekkert sem
ég sef ekki rólegur yfir. Ég var með
hálfgerða flensu þegar ég fór í þenn
an leiðangur sem batnaði ekkert. Ég
er frekar rámur í dag.“
Sigurður Jónsson, skipstjóri á
Áróru, lýsti því í samtali við DV.is á
mánudag að hann væri miður sín
yfir því að vinargreiðinn hafi endað
svona. Skipverjar á Áróru og Knerr
inum þekkjast vel og segir Heim
ir að þeir hefðu gert nákvæmlega
það sama ef Knörrinn hefði lent í
vanda. „Þetta er eins og hann sagði
bara vinargreiði. Við fórum til móts
við þá sem okkar vini. Ég veit að þeir
myndu gera það sama ef við lentum í
vandræðum á þeirra heimaslóðum.“
n Heimir Harðarson féll í sjóinn í vondu veðri aðfaranótt mánudags n Hefði hann ekki
gert það hefði hann líklega fótbrotnað illa n Var með flensu sem versnaði eftir volkið
Henti sér í sjóinn til
að bjarga fætinum
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Með flensu Heimir segir að hann hafi verið
með hálgerða flensu þegar hann fór í leiðangur-
inn. Hún hafi ekki batnað þegar hann féll í sjóinn.
Hús Jóhannesar í Bónus:
Lúxusvilla
til sölu
Skilanefnd Landsbankans hefur
ákveðið að selja 427 fermetra lúxus
einbýlishús sem fjárfestingarfélagið
Gaumur átti og Jóhannes Jónsson,
kenndur við Bónus, bjó í þar til í
lok síðasta árs. Skilanefnd Lands
bankans leysti til sín húsið en gamli
Landsbankinn átti tæplega 400
milljóna króna veð í húsinu.
Gaumur er
fjárfestingarfélag
í eigu Jóhannesar
og barna hans,
Jóns Ásgeirs Jó
hannessonar
og Kristínar Jó
hannesdóttur.
Félagið er tækni
lega gjaldþrota
og skilur eftir sig skuldir upp á tugi
milljarða króna.
Samkvæmt auglýsingu sem birt
ist á þriðjudag, bæði á fasteignavef
mbl.is og í Morgunblaðinu, er húsið
nú komið á sölu. Óskað er eftir til
boðum í húsið og af myndunum að
dæma hefur ekkert verið til sparað
þegar húsið var byggt árið 2005.
Fasteignamat hússins er sagt
tæpar 88 til rúmlega 90 milljónir
króna og brunabótamatið rúmar 324
milljónir króna. Brunabótamatið
tekur til þeirra efnislegu verðmæta
húseignar sem eyðilagst geta í eldi
og miðast við byggingarkostnað að
teknu tilliti til aldurs, slits, viðhalds
og ástands eignar. Lúxusvillan er því
afar verðmæt og takist að selja hana
er ljóst að hún verður ekki selt á
brunaútsölu.
Fram kemur í lýsingu á eigninni
að húsið, nefnt Hrafnabjörg, stendur
á rúmlega sextán þúsund fermetra
eignarlóð. Húsið er á tveimur hæð
um. Útveggir eru klæddir náttúru
steini og sedrusviði. Stórir útsýnis
gluggar og útsýni er yfir Akureyri,
Eyjafjörð og inn í Eyjafjarðarsveit.
Við húsið er 40 fermetra útisundlaug
og stór heitur pottur. Á neðri hæð
hússins er að finna líkamsræktarað
stöðu, baðherbergi fyrir hvort kyn,
gufubað og tækjarými fyrir sund
laug. Eins og DV greindi frá var hús
ið fært frá Gaumi yfir til Landsbank
ans þann 10. desember síðastliðinn.
mikael@dv.is
Borkjarni Sveinn hélt kjarnanum eftir
þegar opnað var á milli ritstjórna Dagblaðs-
ins og Vísis fyrir tæpum 30 árum.
Mynd RóBeRT Reynisson
Knörrinn á siglingu Heimir Harðarson féll
útbyrðis í vondu veðri skammt frá Húsavík.