Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Síða 10
10 | Fréttir 13. apríl 2011 Miðvikudagur Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun „Þetta er ekki góð meðferð á dýr- um, ég verð að segja það,“ segir Elín Folha K., forstöðukona Kattholts. Þegar hún mætti til vinnu á fimmtu- daginn blasti við henni stór pappa- kassi við útidyrnar á Kattholti. Á vel innpökkuðum kassanum var merki- miði frá Flugfélagi Íslands sem á stóð „Lifandi dýr“. Þegar Elín opnaði kass- ann reyndust tvær kisur vera í hon- um, læða og högni. Eigandinn virð- ist hafa ákveðið að losa sig við dýrin og gripið til þess ráðs að troða þeim í pappakassa og skilja eftir við úti- dyrnar hjá dýravinunum í Kattholti. Of langt gengið „Þetta var með því furðulegasta sem ég hef séð. Yfirleitt þegar fólk kemur með svona kassa þá er eitt límband yfir en þessi var rosalega vel lokaður eins og hann hefði verið á einhverju ferðalagi. Inn á milli þessara lím- banda var miði frá Flugfélagi Íslands sem á stóð Lifandi dýr. Ég varð afar hissa og velti fyrir mér hvort kassinn væri að koma úr flugi. Ég hringdi í flugfélagið og spurðist fyrir um þetta. Þeir neituðu því að þetta væri send- ing á þeirra vegum. En mér fannst þetta allt hið furðulegasta,“ segir Elín í samtali við DV. Hún segir að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem pakkning sem þessi berist til Kattholts. „En þetta er einum of, þetta er farið að ganga of langt.“ Aðspurð um ástand kattanna seg- ir Elín að parið hafi ekki verið illa haldið. „Hann er ógeltur og ómerkt- ur en það er ekki ljóst hvort hún sé gelt. Hún er alla vega skelfingu lost- in ennþá. En hann er að koma til. Þau voru ekki illa farin en skiljanlega hrikalega skelkuð.“ Gæludýr skilin eftir í yfirgefnum íbúðum Elín segir að fólk verði að taka ábyrgð á dýrunum sínum þrátt fyrir að hart sé í ári í þjóðfélaginu. Ef fólk finnur ekki ný heimili fyrir þau verði það hreinlega að taka þá ákvörðun hvort ekki sé betra að láta svæfa þau. „Það getur verið erfitt að koma dýrum, eldri en tveggja ára á nýtt heimili. En annars enda þau hjá mér og ég enda kannski á að þurfa að láta svæfa þau. Það er það versta sem ég lendi í,“ seg- ir hún. Hún segir eitt hins vegar skýrt og vill koma því á framfæri við gælu- dýraeigendur: „Ekki losa ykkur við þau á þennan máta. Ástandið í dag er auðvitað ekki gott. Fólk hend- ir þeim út fyrir, flytur burt, skilur þau eftir – stundum í íbúðinni. Mér finnst þetta ekki góð meðferð á dýr- um.“ Undanfarið hefur borið á fleiri vonleysislegum aðferðum fólks við að losna við ketti. Þess er skemmst að minnast þegar gangandi veg- farandi fann níu illa leiknar kisur í kartöflupoka í Heiðmörk. Þeim var komið til Elínar og félaga á Kattholti en þær voru frá þriggja mánaða til árs gamlar. Elín segir að þrjár þeirra séu enn í Kattholti. n Kattholti barst sending í síðustu viku n Tveimur kisum hafði verið pakkað inn í pappa- kassa n Kassinn stóð við útidyr Kattholts þegar forstöðukonan mætti til vinnu Köttum troðið í pappakassa „Mér finnst þetta ekki góð meðferð á dýrum. Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Kettir skildir eftir við útidyrnar Þegar Elín kom til vinnu á fimmtudaginn beið hennar pappakassi við útidyr Kattholts. Í kassanum voru tvær kisur sem hafði verið pakkað rækilega inn. Ákærðir í 38 liðum Fyrirtaka í máli gegn tveimur ungum drengjum sem saksóknari segir að hafi farið ránshendi um Reykjavík fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, þriðjudag. Drengirnir sem eru átján og nítján ára gamlir eru fyrir dómi saman vegna 15 ákæruliða, sá eldri er með 17 ákæruliði til viðbótar en sá yngri 6 ákæruliði. Meðal þess sem drengirnir eru ákærðir fyrir eru ýmsir þjófnaðir þar sem þeir hafa verið staðnir að því að stela allt frá súkkulaði og ávaxtasafa upp í tölvur og myndavélar. Verðmæti þýfisins er ansi mis- jafnt en til að mynda eru drengirnir ákærðir fyrir að hafa stolið úr 11/11 á laugavegi fyrir rétt tæpar tvö þús- und krónur. Þeir eru einnig ákærðir fyrir viðameiri afbrot á borð við inn- brot í Prentsmiðjuna Odda og inn- brot í íbúð í Árbæ þar sem verðmæt- um fyrir þrjár milljónir var stolið. Hollendingar íhuga þvinganir Hollensk stjórnvöld íhuga að beita Íslendinga efnahagslegum þving- unum til að knýja fram efndir í Ice- save-málinu, að því er Vísir greinir frá. Þar segir að Hollendingar ætli að beita sér fyrir því að sparifjáreigend- ur þar í landi fái allt sitt til baka en ekki bara lágmarkstryggingu á inn- stæðunum. Þetta er samkvæmt bréfi hollenska fjármálaráðherrans, Jan Kees de Jager, sem Vísir hefur undir höndum. Fram kemur að niðurstaða þjóðar atkvæðagreiðslunnar, þar sem 60 prósent þjóðarinnar höfnuðu lögunum um Icesave, valdi miklum vonbrigðum í Hollandi. Hollend- ingar íhugi að koma á samstarfi við Breta við að beita Íslendinga efna- hagslegum þvingunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.