Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Síða 12
12 | Fréttir 13. apríl 2011 Miðvikudagur Ekki hjá því komist að hætta að nota olíu og bensín: Lestir eru framtíðin „Það myndi að mörgu leyti breyta ásýnd yfirborðs í þéttbýli, fría land, það gæti minnkað útblástur, sót og hávaða. Þannig að við erum að tala um hugsanlega réttlætingu á að nið- urgreiða slíkt meira af því við fáum svo margt jákvætt í staðinn.“ Þetta segir Þorsteinn Þorsteinsson, kenn- ari á verkfræði- og náttúruvísinda- sviði Háskóla Íslands og sérfræð- ingur í samgöngumálum. Hann er einn framsögumanna á málþingi um framtíð almenningssamgangna, sem haldið verður í dag, miðviku- dag. Málþingið er á vegum Metro- hópsins, sem samanstendur af núverandi og fyrrverandi starfs- mönnum verkfræði- og náttúruvís- indasviðs Háskóla Íslands, í sam- vinnu við Strætó. Þorsteinn segir hugmyndir Metro-hópsins um samgöngur á Ís- landi ná nokkra áratugi fram í tím- ann. „Það er í fyrsta lagi að not- ast við allt önnur samgöngutæki en núna,“ segir Þorsteinn og nefn- ir dæmi um neðanjarðarlestir, líkt og þekkjast víða í heiminum. Hann bendir á að það þurfi ekki að hafa allar lestirnar neðanjarðar heldur væri hægt að hafa tvöfalt kerfi þar sem smáskutlur yrðu gerðar út frá miðstöðvum neðanjarðarlestanna. „Það myndi gjörbreyta skipulagi og hvernig við nýtum og búum í þess- ari borg. Þetta er það sem við ætl- um að opna augu fólks fyrir.“ Þor- steinn telur að neðanjarðarlestir séu vel raunhæfur möguleiki á Íslandi. „Við komumst ekki hjá því að hætta að nota olíu og bensín,“ segir hann og bendir á að 95 prósent Reyk- víkinga nýti sér einkabílinn frekar en almenningssamgöngur á með- an í mörgum borgum sem við vilj- um líkjast sé hlutfallið um 40 til 50 prósent. Málþingið verður haldið í fundarsal Þjóðminjasafnsins á milli klukkan 14 og 17.30. solrun@dv.is Ingibjörg Sólrún selur Heimili Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur, fyrrverandi utanríkisráð- herra, og eigimanns hennar Hjör- leifs Sveinbjörnsonar að Nesvegi 76 er til sölu. Ásett verð er 75 milljónir en húsið er einbýli, 267 fermetrar að stærð og talsvert endurnýjað. Það var byggt árið 1966. „Við erum aðeins að losa um okk- ur,“ sagði Ingibjörg Sólrún í samtali við DV. „En við erum ekkert búin að taka ákvörðun um neitt. Við seljum auðvitað ekki nema að fá ásættan- legt verð. En þetta er bara persónu- legt mál,“ segir hún. Erró slær í gegn Sýning Errós í Pompidou-safninu í París var þriðja best sótta sýning safnsins í fyrra. Ríflega 271 þúsund gestir sóttu sýningu Errós í fyrra, eða ríflega 3.300 manns á dag þann tíma sem sýningin stóð yfir. Þetta kemur fram í aprílblaði breska listatíma- ritsins The Art Newspaper. Fram kemur að sýningin hafi verið níunda best sótta sýning í París í fyrra og sé í sextánda sæti yfir best sóttu sam- tímalistasýningar í heiminum. Efst á lista er Marina Abramovic en ríflega 7.100 manns sóttu sýningu hennar, The Artist is Present, í Museum of Modern Art, á dag. Hún var haldin í New York. Raunhæft Þorsteinn telur að neðjanjarðarlestir séu raunhæfur möguleiki á Íslandi. „Ég veit ekki hvernig henni dettur í hug að gera þetta svona en allavega gerði hún það. Hún kannski veit ekk- ert alla söguna. Hún er alveg svaka- leg,“ segir Hafrún María Zsoldos, sem var meðlimur í Krossinum, í samtali við DV. Hún fékk nýlega tölvupóst frá Jónínu Benediktsdóttur, eiginkonu Gunnars Þorsteinssonar í Krossinum, þar sem Jónína bað hana um að koma Gunnari til varnar í máli kvennanna átta sem stigið hafa fram og sakað hann um kynferðislegt ofbeldi. Í póst- inum, sem DV hefur undir höndum, vísar Jónína til þess að Hafrún hafi þekkt Sigríði Guðnadóttur, sem er ein kvennanna átta. Hafrún gekk úr Krossinum árið 1997 eftir að Sigríður greindi henni frá meintu kynferðis- ofbeldi Gunnars gegn sér. Sigríður er jafnframt systir Ingibjargar, fyrrver- andi eiginkonu Gunnars. Jónína sagði í tölvupóstinum að saga Sigríðar hefði breyst og að þau hjónin væru að reyna að fá fólk til að tala um þessa hluti. Aðspurð segist Hafrún ekki skilja hvers vegna Jónína sendi henni póst, einkum vegna þess að henni og Gunnari hafi aldrei verið vel til vina. Aftur á móti séu þær Sigríður ágætis vinkonur. Hafrúnu finnst pósturinn bera þess merki að Jónína reyni nú að safna fólki saman til að tala gegn kon- unum, en mál þeirra eru nú komin inn á borð til lögreglu þó að hugsan- lega séu þau fyrnd. Hvatti hana til að losa sig við Gunnar Hafrún kannast við Jónínu því hún vann fyrir hana í skamman tíma þeg- ar hún var nýbúin að opna Planet Pulse-líkamsræktarstöðina. Hún var á báðum áttum með það hvernig hún ætti að svara umræddum pósti; hvort hún ætti að spila með og fá það bet- ur á hreint hvað Jónínu gengi til eða segja henni strax að hún stæði full- komlega með konunum. Hún ákvað að velja síðari kostinn. „Ég veit upp á hann sökina! Trúi þeim öllum – það er reyndar auðvelt því ég þekki hann vel... veit hvað í honum býr... þú örugglega líka Jónína... “ er með- al þess sem stendur í svarbréfi Haf- rúnar til Jónínu. Þá hvatti hún hana jafnframt til að losa sig við Gunnar og skrifa aðra bók. „Þú hagaðir þér eins og hóra“ Jónína brást hin versta við svarbréfinu og sakaði Hafrúnu meðal annars um að hafa hagað sér eins og hóra. Hún sagði marga hafa sagt henni að Haf- rún hefði elt Gunnar á röndum. „Haf- rún, þú hagaðir þér eins og hóra þegar þú vannst hjá mér og hélst því áfram í Krossinum. Mættir í latexsamfest- ing til þess að auglýsa þig. Ertu fúl að Gunnar féll ekki fyrir þér?“ er meðal þess sem Jónína skrifaði Hafrúnu eft- ir að hún lýsti yfir stuðningi sínum við konurnar átta. Hún sagði konurnar jafnframt fárveikar og sturlaðar. Hafrún segir það af og frá að hún hafi elt Gunnar á röndum, enda hafi hún aldrei haft nokkurn áhuga á hon- um. Hún segist aldrei í lífinu hafa klætt sig í latexgalla og fullyrðir að hún hafi ávallt fylgt reglum Kross- ins um klæðaburð. Hún hafi gengið í síðum pilsum, ekki klippt á sér hárið og hafi hvorki rakað á sér leggina né undir höndunum. Hafrún hefur þó breytt um lífsstíl og í dag rekur hún snyrtistofu í Noregi þar sem hún sér meðal annars um að fjarlægja líkams- hár af viðskiptavinum sínum með vaxmeðferð. Jónína sagðist ekki kannast við tölvupóstana þegar blaðamaður hafði samband við hana, en bætti því síðan við að hún vildi ekki tjá sig um mál- ið. „Þetta er það sem ég hef um mál- ið að segja: Ég hef ekkert um málið að segja.“ n Jónína sendi fyrrverandi meðlimi í Krossinum bréf og óskaði eftir stuðningi við Gunnar n Brást ókvæða við þegar konan lýsti yfir stuðningi við konurnar átta n Sagði hana hafa elt Gunnar á röndum og hagað sér eins og hóra „Ertu fúl að Gunnar féll ekki fyrir þér?“ „Ég veit upp á hann sökina! Trúi þeim öllum. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Gekk úr Krossinum 1997 Hafrún skilur ekki af hverju Jónína sendi henni póst. Sendir út pósta Jónína sendi Hafrúnu tölvupóst og bað hana að koma Gunn- ari til varnar. Mynd RaKEl ÓSK Íslenski limurinn vekur athygli Það hefur vakið heimsathygli að Hið íslenzka reðasafn á Húsavík hafi nú loks afhjúpað sinn fyrsta mannslim. Associated Press-fréttastofan greinir frá nýjasta meðlimi safnsins í dag og er fréttin tekin upp af ótal erlendum fréttamiðlum. Eins og DV.is greindi frá á dögunum var limur Páls Ara- sonar afhjúpaður í safninu á föstu- daginn. Það var fyrir fjórtán árum sem Páll ánafnaði safninu liminn. Þykir það heimsfrétt að safninu, sem sagt er það furðulegasta í heimi, hafi nú loksins áskotnast sinn fyrsti karl- mannslimur. Það eru því ekki bara Icesave-fréttir sem berast heims- byggðinni frá Íslandi þessa dagana. Meðlimum í trúfélaginu Krossinum fækkaði um 11 prósent á milli áranna 2010 og 2011, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Meðlimir í fyrra voru 630 talsins en núna eru þeir 559; 326 karlar og 233 konur. Hafa þeir ekki verið færri frá því árið 2003, eða í átta ár. Fækkar í Krossinum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.