Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Side 13
Nærmynd | 13Miðvikudagur 13. apríl 2011
Kaup Skúla Mogensen, sem gjarnan
er kenndur við hugbúnaðarfyrirtæk-
ið Oz, á stórum hlut í MP Banka hafa
vakið talsverða athygli. Skúli hefur
ekki áður komið að rekstri á fjármála-
fyrirtæki, hvorki á Íslandi né annars
staðar. Hann birtist allt í einu aftur á
Íslandi með fullar hendur fjár í kjöl-
far bankahrunsins. Þá hafði hann selt
hlut sinn í Oz í Kanada til farsímafyr-
irtækisins Nokia fyrir að minnsta kosti
nokkra milljarða króna síðla árs 2008
– Skúli hefur alltaf neitað að tjá sig um
söluverðið.
Síðan þá hafa birst fréttir um að
Skúli hafi fjárfest, eða hafi ætlað sér að
fjárfesta, í hinu og þessu hér á landi,
meðal annars gagnaverinu Thor Data
Center. Stærstu viðskipti hans eru
hins vegar umrædd kaup í MP Banka
í gegnum fjárfestingarfélag hans Títan
en hann mun eiga 17,5 prósenta hlut
í bankanum í kjölfar eigendaskipt-
anna. Hlutur Skúla er metinn á tæpan
milljarð króna en nýir hluthafar leggja
samtals 5,5 milljarða króna í formi nýs
hlutafjár inn í reksturinn.
Skúli á sér nokkuð litríka fortíð úr
viðskiptalífinu líkt og DV komst að
þegar blaðið ræddi við nokkra heim-
ildarmenn um sögu hans.
Þolinmóður sölumaður
Einn viðmælenda DV segir að það
helsta sem komi upp í hugann þegar
talið berst að Skúla sé að hann hafi
verið þolinmóður sölumaður. „Hann
er búinn að vera mjög þolinmóður
sölumaður. Það er kannski besta lýs-
ingin á honum. Ég held að hann hafi
keypt sig þrisvar inn í Oz. Á endan-
um græddi hann fullt af peningum á
þessu. Þannig að það er ákveðin þol-
inmæði. Þetta er eitt af einkennum
Skúla: Hann hefur úthald.“
Annar heimildarmaður tekur í
svipaðan streng þegar hann segir að
Skúli sé „staðfastur og hafi úthald“.
„Hann er með heimspekilegan bak-
grunn. Hann lærði heimspeki og þor-
ir að fara ótroðnar slóðir – ég leyfi
mér að segja að hann hafi verið eini
maðurinn í MH á sínum tíma sem
gekk með bindi. Ég vil ekki kalla hann
áhættusækinn en hann hræðist lífið
ekki. Hann er lífsglaður og þorir að
velja erfiðar leiðir í viðskiptum,“ seg-
ir heimildarmaður blaðsins sem tel-
ur að kaup hans í MP Banka sýni að
hann þori að taka vissa áhættu. „Ég
held að hann hafi staðfasta trú á því
að íslenskt viðskiptalíf muni rétta úr
kútnum.“
Óskabarnið Oz
Oz var hugbúnaðarfyrirtæki sem Skúli
Mogensen tók þátt í að byggja upp á
tíunda áratugnum ásamt helsta stofn-
anda þess, Guðjóni Má Guðjónssyni
sem enn er kenndur við fyrirtækið.
Oz var stofnað árið 1989 og kom Skúli
að rekstri þess árið 1991. Þeir Guð-
jón og Skúli stýrðu félaginu næstu tíu
árin og var talað með mikilli virðingu
um Oz á þeim tíma. Margir Íslend-
ingar fjárfestu í hlutabréfum í Oz á
þessum tíma og unnu um 250 manns
hjá fyrirtækinu þegar mest var. Upp-
gangur fyrirtækisins leiddi til þess að
Oz skrifaði undir samning við sænska
farsímafyrirtækið Ericson árið 1996
sem metinn var á um milljarð króna.
Meðal þess sem Oz vann að þróun á
þá var samskiptahugbúnaður sem
kallaðist iPulse sem Guðjón sagði, í
viðtali við Fréttablaðið 2009, að kynni
að hafa verið fyrirrennari samskipta-
forritsins MSN.
Þegar netbólan sprakk árið 2001
fór Oz á hliðina líkt og mörg önnur
fyrirtæki sem störfuðu á sviði hug-
búnaðar- og upplýsingatækni. Stærsti
kröfuhafi Oz, Landsbankinn, tók fyr-
irtækið yfir árið 2002 vegna rekstr-
arerfiðleikanna – sama ár og bank-
inn var seldur til Björgólfsfeðga. Skúli
eignaðist Oz svo árið 2003 og flutti
fyrirtækið til Kanada. Þá skildu leiðir
Skúla og Guðjóns í Oz eftir rúmlega
tíu ára samstarf.
Keypti af Landsbankanum
Upplýsingar um fjármögnun Skúla, og
tíu annarra lykilstjórnenda fyrirtækis-
ins, á Oz árið 2002 liggja ekki fyrir. Eft-
ir því sem DV kemst næst voru kaup-
in að mestu fjármögnuð með yfirtöku
á skuldum sem Oz átti útistandandi
við Landsbankann. Bankinn hafði þá
ekki mikla trú á nýsköpunarfyrirtæki
eins og Oz, eftir netbóluna nokkrum
árum áður, og vildi losa sig við fyrir-
tækið sem fyrst. Kaup Skúla á Oz og
flutningurinn til Kanada áttu sér stað
eftir einkavæðingu Landsbankans
í lok árs 2002 þegar Björgólfsfeðgar
keyptu bankann. „Oz var tekið yfir af
Landsbankanum og Skúli samdi við
nýja eigendur, Bjögga Thor og þá,
um að fá bara lánað fyrir kaupverð-
inu. Hann flutti starfsemina til Kan-
ada þar sem hann fékk alls konar þró-
unarstyrki og slíkt og svo seldi hann
til Nokia 2008. Þá var hann búinn að
vera inni í Oz frá 1992. Þannig að Oz
er kannski í reynd eitt af farsælli fyrir-
tækjum Íslands.“
Verðmæti Oz á þeim tíma var til-
komið vegna þess að fyrirtækið hafði
unnið að því um nokkurra ára skeið
að gera vinsæl tölvusamskiptafor-
rit aðgengileg í farsímum. Það voru
þessar tæknilausnir sem Nokia hafði
áhuga á og keypti.
Tengslin við Björgólf Thor
Þeir sem DV ræddi við um Skúla telja
að tengslin við Björgólf Thor hafi að
minnsta kosti ekki spillt fyrir þegar
Skúli keypti Oz af Landsbankanum
árið 2003. „Þeir eru auðvitað vinir og
ráku meðal annars Hótel Borg saman
á sínum tíma.“ Það hefur verið orð-
rómur á kreiki um að Björgólfur Thor
standi að kaupunum á MP Banka
með Skúla en sjálfur hefur Skúli neit-
að öllu slíku.
Skúli hefur látið hafa það eft-
ir sér að hann fjármagni kaup sín í
MP Banka sjálfur, með eigin fé. Einn
heimildarmanna DV orðar það svo
að Skúli hafi sjálfur sagt að hann sé að
„hætta“ eigin fé sínu með kaupunum
á MP Banka og að enginn annar fjár-
sterkur aðili sé á bak við hann. Hvort
þetta er rétt eða ekki á væntanlega eft-
ir að koma í ljós eftir að Skúli og aðr-
ir nýir eigendur MP Banka taka við
rekstrinum á næstunni.
n Skúla Mogensen er lýst sem þolinmóðum sölumanni n Leggur MP Banka til tæpan milljarð
í nýju hlutafé n Aðdáandi Einars Ben n Auðgaðist á útrás Oz til Kanada n Seldi fyrir milljarða„Á endanum græddi
hann fullt af pen-
ingum á þessu. Þannig að
það er ákveðin þolinmæði.
Tíu stærstu hluthafar MP Banka
Nr. Nafn hluthafa Eigandi Hlutafé Eignarhlutur
1 Títan fjárfestingafélag ehf. Skúli Mogensen 965.000.000 17,45%
2 Lífeyrissjóður verslunarmanna Lífeyrissjóður 540.000.000 9,82%
3 Manastur Holding Joseph C. Lewis 530.000.000 9,64%
4 Linley Limited Rowland-fjölskyldan 530.000.000 9,64%
5 Mizar ehf Guðmundur Jónsson 500.000.000 9,09%
6 TM hf. Tryggingafélag 300.000.000 5,45%
7 Drómi hf. Slitastjórn SPRON 255.000.000 4,64%
8 VÍS hf. Tryggingafélag 250.000.000 4,55%
9 Moment fjárfesting Eiríkur Guðnason/Guðni Eiríksson 200.000.000 3,64%
10 MP Canada Iceland Ventures Inc. Robert Raich 200.000.000 3,64%
Skúli og Einar Ben
Skúli Mogensen hefur sérstakt dálæti á Einari Benediktssyni,
samkvæmt því sem heimildarmenn DV segja, líkt og nafnið á
fjárfestingarfélagi hans ber með sér. Fjárfestingarfélag Skúla
heitir Títan, líkt og Fossafélagið Títan sem Einar Benediktsson
stofnaði í byrjun tuttugustu aldar og ætlað var að byggja
virkjanir í Þjórsá. Ekki er óeðlilegt að Skúli hafi Einar í hávegum
þar sem hann hefur gefið sig út fyrir að vera frumkvöðull, líkt
og skáldið, sem hafi miklar og háar hugmyndir sem hann vilji
hrinda í framkvæmd. „Hann er mikill aðdáandi Einars Benediktssonar,“ segir einn heim-
ildarmanna DV.
Aðdáun hans á Einari Benediktssyni hefur meðal annars komið fram í því að Skúli hefur
haldið erindi um hugmyndir Einars Benediktssonar um virkjanir á Íslandi, meðal annars
á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs fyrr á þessu ári.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Skúli Mogensen fæddist í Keflavík þann
18. september 1968. Hann varð stúdent
frá Menntaskólanum í Hamrahlíð árið
1989 og stundaði í kjölfarið heim-
spekinám við Háskóla Íslands árið 1991
en lauk ekki námi. Árið 1991 byrjaði hann
að vinna að rekstri Oz.
Móðir Skúla er Anna Skúladóttir, fyrr-
verandi fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
og Orkuveitu Reykjavíkur, og faðir
hans er Brynjólfur Mogensen, þekktur
bæklunarlæknir.
Uppruni Skúla
Þolinmóður sölumaður
Nýr eigandi MP Banka Skúli er stærsti hluthafinn
í nýjum eigendahópi MP Banka. Hann sést hér bak við
Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóra MP Banka, og
Þorstein Pálsson, nýjan stjórnarformann bankans,
á blaðamannafundi sem haldinn var í húsakynnum
bankans á mánudaginn. MyNd ANTON BriNK