Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Qupperneq 15
Frekar „cheap“ páskaegg. Svokallað
súkkulaði antiklímax.“
Þorbjörg Helga: „Óspennandi og
bráðnar alls ekki eins og súkkulaði á
að gera.“
Úlfar: „Ljóst og matt. Bragðlítið, feitt
og sætt.“
Meðaleinkunn: 3,25
Nóa Síríus lakkrísegg
Kristjana: „Sætt, aðeins of. En reynd
ar mjög ljúffengt.“
Lilja Katrín: „Hreinn unaður! Ég
mundir stúta þessu á 10 mínútum.
Gott súkkulaði, úrvalslakkrís og
kaloríuhimnaríki.“
Þorbjörg Helga: „Passlega mikið af
lakkrís en allt of sætt súkkulaði með.“
Úlfar: „Ljómandi fínt. Góður lakkrís
en of sætt.“
Meðaleinkunn: 6,5
Nóa Síríus karamellukuegg
Kristjana: „Hrikalega er þetta sætt!
Skemmtilega stökkt samt.“
Lilja Katrín: „Virkilega góð blanda en
ég er hrædd um að ég fengi ógeð á
því. Væri til í eitt svona númer 2.“
Þorbjörg Helga: „Karamellan kem
ur sterk inn en gefur egginu of mik
ið nammibragð. Ég gæti ekki borðað
mikið af þessu.“
Úlfar: „Sniðugt að hafa núggat. Of
sætt.“
Meðaleinkunn: 6,25
Góu Fígúruegg
Kristjana: „Allt of salt. Mikið mjólk
urbragð – ömurlegt egg.“
Lilja Katrín: „Ágætt egg en ekki
sukksins virði.“
Þorbjörg Helga: „Lakkrísbragð eða
eitthvert aukabragð sem passar illa.“
Úlfar: „Matt, þurrt og sætt.“
Meðaleinkunn: 3,25
Freyju Rísegg
Kristjana: „Mikið mjólkurbragð og
lítið kakóbragð.“
Lilja Katrín: „Rís á að vera súkkulaði
stykki, ekki páskaegg.“
Þorbjörg Helga: „Sætt eins og súkku
laðistöng. Virkar alvöru. Kemur á
óvart miðað við útlit.“
Úlfar: „Mikið rís.“
Meðaleinkunn: 5,0
Síríus Konsúm
Kristjana: „Svolítið of sætt, dökkt
súkkulaði er góð tilbreyting.“
Lilja Katrín: „Ekki nógu vandað dökkt
súkkulaði – frekar mikil vörusvik.“
Þorbjörg Helga: „Ekki eins gott og
það lítur út fyrir að vera. Of sætt mið
að við að vera dökkt súkkulaði. Líkist
suðusúkkulaði.“
Úlfar: „Glansandi og fallegt. Með
besta móti, of sætt.“
Meðaleinkunn: 6,5
Neytendur | 15Miðvikudagur 13. apríl 2011
Leiðrétting á verðsamanburði:
Ekki fljúga eftir iPad 2
Fyrir nokkru birtist í DV grein um
nýjan iPad 2 og var gerður verðsam
anburður á tækinu hér á landi og er
lendis. Samkvæmt útreikningum í
umræddri grein er iPad 2 64GB 3G /
WiFi, sem keyptur er í Bandaríkjun
um, 53.134 krónum ódýrari en hér á
landi. Því var haldið fram að það gæti
borgað sig að fljúga til New York til að
kaupa slíkt tæki.
Láðist að taka inn í útreikn
ingana virðisaukaskatt sem leggst
við kaupverðið. Virðisaukaskattur
inn er mismunandi eftir löndum
og misjafnt hvort hann sé innifal
inn í verði. Til dæmis er hann inni
í uppgefnu kaupverði á Norður
löndunum – líkt og hér á landi – en
ekki í Bandaríkjunum. Neytendur
eru því hvattir til að kynna sér regl
ur um virðisaukaskatt eða söluskatt
í hverju landi fyrir sig. Eins skal
tekið fram að hér á landi eru regl
ur um tveggja ára neytendaábyrgð
sem ekki eru erlendis. Eftirfarandi
er leiðrétting á verðmun milli land
anna tveggja.
Ferðamenn mega koma með
vörur að verðmæti upp að 65.000
krónum inn í landið en þar af má
einn einstakur hlutur kosta helm
ing þeirrar upphæðar. Svokölluð
frímörk ferðamanna eru 32.500
krónur. iPad 2 64GB 3G / WiFi
kostar 829 dali í Bandaríkjunum en
við það bætist 8,875 prósenta sölu
skattur, sem er þó breytilegur eftir
fylkjum. Þegar öll gjöld hafa lagst
á tækið kostar það 123.938 krónur
komið hingað til lands. Sambæri
legt tæki kostar á Íslandi 149.900
krónur og munurinn er því 25.962
krónur en ekki 53.134 krónur eins
og haldið var fram í greininni sem
birtist þann 31. mars síðastliðinn.
Tekið skal fram að hér er notast við
gengi Bandaríkjadals þann 28. mars
eins og í umræddri grein.
gunnhildur@dv.is
Serrano best í Svíþjóð Íslenska veitingahúsakeðjan Serrano hefur hlotið
Gullkúna, hin eftirsóttu sænsku matvælaverðlaun, en þau voru afhent á Grand Hotel í
Stokkhólmi að viðstöddu fjölmenni í síðustu viku. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum og
bar Serrano sigur úr býtum í flokknum Besti skyndibitinn. Í rökstuðningi dómnefndar segir:
„Ný hugsun og sköpunarkraftur gefur skyndibitanum sem fólk fær á Serrano nýja vídd.
Gæði og metnaður einkenna matseðil Serrano enda er ferskt hráefni uppistaðan í fram-
leiðslunni. Framsýni og eldmóður stofnenda og stjórnenda leiðir til þess að gesturinn fær
þetta „litla aukalega“ sem dómnefnd var að leita eftir. Hér er á ferðinni úthugsað konsept
og góður matur, sem samanlagt á stærstan þátt í jákvæðri upplifun sænskra neytenda.“
Prófaðu metanbíl Í tilefni af Grænum apríl verður opið
hús hjá Vélamiðstöðinni en þá mun áhugasömum neytendum standa
til boða að kynna sér allt sem vita þarf um metanbíla en slíkir bílar
verða þar til sýnis og til prufu. Sérfræðingar Vélamiðstöðvarinnar
sitja fyrir svörum og eins getur fólk óskað eftir föstu verðtilboði í
breytingar á bílum sínum. Einnig mun Metanorka kynna starfsemi
sína og framtíðarsýn. Bíleigendur sem hafa áhuga á peningasparnaði
og umhverfisvernd ættu ekki að láta þetta fram hjá sér fara. Húsið
verður opið á milli 16 og 18 á fimmtudaginn. Nánar á metanbill.is.
Avókadó
hreinsar andlitið
Neytendum er talin trú um að nauð
synlegt sé að eiga hinar og þessar
snyrtivörur til að viðhalda fallegri og
unglegri húð. Benda má á að hægt
er að nota náttúruleg efni sem gera
sama gagn. Á vefnum nattura.is eru
ráðleggingar um hvernig hægt sé að
nota matvæli sem snyrtivörur. Þar
segir meðal annars að hægt sé að
nota avókadóolíu til þess að hreinsa
af sér andlitsfarða og að olían sé
eitt besta hreinsiefnið fyrir húð
ina. Maskari og annar farði hreins
ist auðveldlega af með olíunni auk
þess sem hún sé góð næring fyrir
húðina. Þar segir einnig að ef laxer
olíu er nuddað á augnhárin á hverju
kvöldi fyrir svefninn verði þau lengri
og mýkri.
iPad 2 Í sumum löndum leggst
virðisaukaskattur ofan á uppgefið
verð á nýjustu útgáfu iPad2.
„Dómarar smökk-
uðu á hverju eggi
fyrir sig án þess að vita
hvaða egg var um að
ræða.
Lakkríseggið frá Góu best
Engum er alls léð né alls varnaðar.
(Ú Heilagra manna sögu)
Bundinn er sá er barnsins gætir.
Sá skal friðinn ei brjóta
sem friðarins vill njóta.
Menn brasa ekki við fjöllin,
heldur hundaþúfurnar.
Svo lifir hver sem lyndur er.
Dómnefndin Þorbjörg Helga,
Úlfar, Kristjana og Lilja Katrín
ásamt aðstoðarmönnum.
MYND SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON