Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Side 17
Erlent | 17Miðvikudagur 13. apríl 2011
Silvio Berlusconi er kokhraustur:
„Skítkast kommúnista“
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, gerði sér lítið fyrir og mætti
í dómhúsið í Mílanó til að hlusta á
vitnaleiðslur í réttarhöldum sem
fjalla um meint skattsvik og fjárdrátt
forsætisráðherrans. í öðru máli er
Berlusconi, sem kunnugt er, sakaður
um að hafa greitt ólögráða vændis-
konu fyrir kynlíf og nýtt sér síðan
pólitísk tengsl til að hylma yfir glæp-
inn.
Berlusconi var ákaft fagnað af
stuðningsmönnum sínum þegar
hann gekk út úr dómhúsinu. Hann
ávarpaði hópinn og virkaði kok-
hraustur sem endranær. „Þetta hef-
ur verið súrrealískur morgunn.
Forsætis ráðherra ykkar þarf að liggja
undir ásökunum vinstrisinnaðra
saksóknara sem henda skít í bæði
hann og land sitt, á tímapunkti sem
við eigum að standa saman og verja
landið okkar á alþjóðlegum vett-
vangi,“ sagði glaumgosinn frá Sard-
iníu, sem virðist hafa gaman af því að
ræða um sjálfan sig í þriðju persónu.
Berlusconi er mikið í mun að
koma skoðun sinni á framfæri, að
dómsvaldið sé krökkt af kommún-
istum – sem þrá ekkert heitar en að
bola honum frá völdum. Hann hef-
ur sagt að ásakanirnar á hendur
sér, hvort sem það varðar vændis-
kaup, spillingu, fjárdrátt eða eitthvað
annað, séu lítið annað en samsæri
vinstrimanna.
Vitnaleiðslurnar, sem fóru fram
á mánudag, voru í máli ítalska ríkis-
ins gegn fjölmiðlaveldi Berluscon-
is, Mediaset. Er Berlusconi gefið að
sök að hafa keypt sjónvarpsefni og
kvikmyndir frá Bandaríkjunum fyrir
háar upphæðir í gegnum skúffufyrir-
tæki í skattaparadísum og því næst
fært þau kaup til bókar á Ítalíu á mun
lægra verði. Mismunurinn var settur
inn á falda bankareikninga í Sviss, að
því er talið er.
Brennum dökkt gourmet
kaffi á hverjum morgni
Lifandi tónlist um helgar
Geirsgötu 7b | Verbúð 2, 101 Reykjavík | S. 551 8484
BúrkuBann
í Frakklandi
n Umdeilt bann á búrkunotkun múslimakvenna tók gildi í Frakklandi á mánudag
n Lögreglumenn eru óánægðir með bannið og segja ómögulegt að framfylgja því
n Karlar sem neyða konur til að vera í búrkum geta búist við hörðum viðurlögum
Á mánudag gengu í gildi umdeild lög
í Frakklandi sem banna konum að
nota búrkur, eða hvers konar and-
litsblæjur sem hylja hár og andlit, í
trúarlegum tilgangi.
Fjöldi fólks safnaðist saman fyrir
framan Frúarkirkjuna í Paris, Notre
Dame, og mótmælti banninu. Lög-
reglan handtók 59, þar af 19 kon-
ur sem huldu andlit sín með búrku.
Lögin eru eins og áður sagði mjög
umdeild, en það eru ekki aðeins
múslimar sem mótmæla banninu.
Það gera einnig lögregluyfirvöld,
sem óttast afleiðingarnar af því að
framfylgja banninu.
Í Frakklandi búa um sex milljónir
múslima og því ljóst að málið er
mjög viðkvæmt.
Ómögulegt að framfylgja
banninu
„Það verður sérstaklega erfitt að
framfylgja banninu á tilteknum stöð-
um,“ sagði Patrice Ribeiro, formaður
Synergie, samtaka lögreglumanna .
Átti hann þar sérstaklega við bæjar-
félagið Trappes, rétt fyrir utan París,
og einnig Venissieux, sem er fyrir
utan þriðju stærstu borg Frakklands,
Lyon. Þar eru múslimar í miklum
meirihluta og er ekki óalgengt að þar
brjótist út óeirðir þar sem múslimar
telja að brotið sé gegn réttindum sín-
um.
Lögreglumenn hafa einnig
áhyggjur af tvískinnungi í lögun-
um, sem gæti birst í því þegar forrík-
ar konur frá arabaríkjum ákveða að
versla við Champs-Élysées breiðgöt-
una í París, þar sem er að finna dýr-
ustu og frægustu tískuhús í heimi.
Myndu þær væntanlega njóta frið-
helgi þar sem þær eru líklegar til að
eyða fúlgum fjár.
Denis Jacob er talsmaður Alli-
ance, samtaka lögreglumanna.
„Við höfum margt þarfara við tíma
okkar að gera en að eltast við kon-
ur í búrkum.“ Lögreglumenn hafa
fengið afar flóknar leiðbeiningar í
hendur en um er að ræða níu síðna
„óbeinar reglur“ um hvernig lög-
reglumenn eigi að bera sig að við að
framfylgja lögunum. Konur mega
til að mynda ganga með búrkur
í námunda við moskur og einnig
heima hjá sér. Þær mega bera búrk-
ur inni í bíl, en þó ekki þegar þær
aka sjálfar.
Bannað að fjarlægja búrkur
Í leiðbeiningunum, sem koma
beint frá Claude Guent innanríkis-
ráðherra Frakka, kemur einnig fram
að lögreglumönnum er stranglega
bannað að afhjúpa andlit kvenna –
það er, að fjarlægja búrkur þeirra.
Einnig eru ströng viðurlög við því
að almenningur reyni slíkt hið sama
með því að taka lögin í sínar hendur.
Sjái almenningur konu með búrku
ber að tilkynna það til lögreglu – en
þá hefur hún fjórar klukkustundir
til að bregðast við. Viðurlögin við
því að nota búrku meðal almenn-
ings er 150 evra sekt, sem sam-
svarar um 25 þúsund íslenskum
krónum. Sé karlmaður hins vegar
uppvís að því að neyða eiginkonu
eða annan nákominn ættingja
til að bera búrku geta viðurlögin
numið 28 þúsund evra sekt og allt
að árs vist í fangelsi.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Við höfum margt
þarfara við tíma
okkar að gera en að
eltast við konur í búrkum.
Mótmælt fyrir framan Notre Dame Lögreglan handtók 59 í mótmælum á mánudag.
Silvio Berlusconi Lék á als oddi fyrir
framan dómshúsið í Mílanó.
Þingmaður segir
af sér vegna
klámhneykslis
Indónesískur þingmaður, Arfinito að
nafni, hefur sagt af sér þingmennsku
eftir að upp komst að hann horfði
á klámefni á tölvu sinni meðan á
þingfundi stóð. Málið er talið enn
alvarlega fyrir þær sakir að Arfinito,
sem gegndi þingmennsku fyrir hinn
íhaldssama Réttlætisflokk, var sá
sem lagði fram frumvarp fyrir stuttu
sem kvað á um að allt klámáhorf
skyldi bannað með lögum. Blaða-
maður nokkur náði að festa Arf-
inito á filmu, þar sem hann skoðaði
klámefni í nokkrar mínútur. Málið
hefur vakið mikla athygli í Indónes-
íu og er þess krafist að Arfinito verði
nú leiddur fyrir dóm, svo hægt sé að
sakfella hann fyrir brot á lögum sem
hann samdi sjálfur.
Zuckerberg sigrar
Winklevoss-bræður
Þeir sem hafa séð óskarsverð-
launamyndina The Social Network
muna væntanlega eftir deilum
þeirra Winklevoss-tvíbura við Mark
Zucker berg, stofnanda og stjórnar-
formann Facebook. Tvíburabræð-
urnir, ásamt Divya Narendra, fóru
í mál við Zuckerberg og kröfðust
skaðabóta – en þeir héldu því fram
að Zuckerberg hefði stolið frá þeim
hugmyndinni sem síðan varð að
Facebook. Fyrir tveimur árum náðist
sátt í málinu og greiddi Zuckerberg
þremenningunum 65 milljónir doll-
ara. Tvíburarnir voru hins vegar ekki
sáttir og fóru ári síðar aftur í mál við
Zuckerberg og þá var umkvörtun-
arefnið að Zuckerberg hafði leynt
upplýsingum um verðmæti fyrir-
tækisins, sem er nú metið á um 50
milljarða dollara. Zuckerberg hefur
nú haft betur í seinna málinu og þarf
ekki að greiða tvíburunum meira fé.