Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Side 20
20 | Fókus 13. apríl 2011 Miðvikudagur
Kanadíski grínistinn Jon Lajoie:
YouTube-grínari á leið til landsins
„Þetta byrjaði bara með því að ég sá
myndbönd með honum á YouTube og
mér leist svo vel á hann,“ segir Ragnar
Hlöðversson sem stendur fyrir uppi-
standskvöldi með kanadíska grínist-
anum Jon Lajoie. Lajoie, sem sló fyrst
í gegn í grínmyndböndum á YouTube,
er á leiðinni til landsins til að skemmta
Íslendingum og öðrum gestum í Há-
skólabíói þann 12. maí. Ragnar er í
forsvari fyrir fyrirtækið IceGigg En-
tertainment sem skipuleggur viðburð-
inn. Miðasala er komin á fullt í Skór.is
í Kringlunni en hún hefur farið vel af
stað að sögn Ragnars.
Síðan Lajoie setti inn sitt fyrsta
grínmyndband á YouTube, tónlistar-
myndbandið Everyday Normal Guy,
hefur frægðarsól hans risið skjótt.
Hann fer með hlutverk í sjónvarps-
þáttunum The League á bandarísku
sjónvarpsstöðinni FX Network og
hefur komið fram í grínþættinum
Comedy Central Presents á banda-
rísku sjónvarpsstöðinni Comedy
Central. Hann hefur þá einnig gefið út
tvær hljómplötur, You Want Some of
This?, sem kom út árið 2009, og I Kill
People, sem kom út í fyrra.
Lajoie mun ekki bara skemmta
landanum heldur mun hann verja
nokkrum dögum í að skoða landið og
kynnast fólkinu. Ragnar segist hafa
reynt að kynna Ísland fyrir honum og
að Lajoie sé orðinn nokkuð spenntur
fyrir komunni hingað til lands. „Hann
ætlar að vera í einhverja daga og fá
þetta bara beint í æð,“ segir Ragn-
ar sem segir Lajoie án efa vera einn
fyndnasta mann í heimi.
adalsteinn@dv.is
Gyrðir Elíasson fær 7,5 milljónir:
Smásöguformið fær uppreisn æru
„Ég átti ekki nokkra von á því að fá
verðlaunin,“ sagði Gyrðir Elíasson
rithöfundur rétt eftir að honum var
tilkynnt að hann væri handhafi Bók-
menntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs. Verðlaunin hlaut hann fyrir
smásagnasafnið Milli trjánna. Í um-
sögn dómnefndar verðlaunanna
segir að safnið sé framúrskarandi
skáldverk sem sé í samræðu við
heimsbókmenntirnar, stílhreint en
lýsi á sama tíma innri og ytri átök-
um.
Gyrðir segist ánægður með að
smásöguformið fái uppreisn æru.
„Skáldsöguformið hefur verið
ríkjandi meðan smásögur hafa iðu-
lega átt undir högg að sækja.“ Hann
segist ekki hafa haft mikinn tíma til
þess að velta fyrir sér þýðingu þess-
arar viðurkenningar en segist vona
að með henni fái hann ef til vill fleiri
verk sín þýdd á Norðurlandamálin.
Minna sé um að smásögur og ljóð
séu þýdd en skáldsögur.
Gyrðir gaf út sína fyrstu bók árið
1983, Svarthvít axlabönd, og eft-
ir hann hafa komið út fjölmargar
smásagna- og ljóðabækur og fimm
skáldsögur. Hann er einnig afkasta-
mikill þýðandi og hefur meðal ann-
ars þýtt verk Williams Saroyan og
Richard Brautigan á íslensku.
Gyrðir hafði betur en 13 rithöf-
undar frá Norðurlöndunum og sjálf-
stjórnarsvæðunum. Nokkrir þeirra
koma hingað til lands á höfunda-
kvöld sem haldin eru í Norræna
húsinu. Verðlaunin nema 350.000
dönskum krónum, um 7,5 millj-
ónum íslenskra króna. Verðlaun-
in verða afhent formlega á Norður-
landaráðsþinginu 2. nóvember 2011
í Kaupmannahöfn. Finnst Gyrði
þetta ekki ágætis búbót? „Ég mun
ekki víkjast undan því að veita þeim
viðtöku,“ segir hann og hlær.
Þetta var í þriðja sinn sem verk
eftir Gyrði er tilnefnt til bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs. Auk
Gyrðis var Ísak Harðarson tilnefnd-
ur fyrir Íslands hönd þetta árið.
Sameinast á
tónleikum
Hljómsveitirnar Andvari, Vigri og
Útidúr sameina krafta sína á tón-
leikum sem fram fara á Sódómu
Reykjavík í miðbænum á fimmtu-
dag. Húsið er opnað klukkan 21.00
en fyrsta hljómsveitin stígur á svið
klukkutíma síðar. Andvari og Vigri
vinna báðar að útgáfu hljómplatna
en Útidúr sló í gegn með plötu sinni
This mess we‘ve made sem kom út
síðastliðið haust en sú hljómsveit
er þekkt fyrir hressandi sviðsfram-
komu. Aðgangseyrir er 500 krónur.
Bíó Paradís
sýnir Boy
Græna ljósið stendur fyrir sýningu
á nýsjálensku kvikmyndinni Boy
í Bíó Paradís og verður myndin
frumsýnd á föstudag. Myndin ger-
ist árið 1984 þegar poppkóngur-
inn Michael Jackson er upp á sitt
besta. Fylgst er með 11 ára strák
sem býr á bóndabýli með ömmu
sinni, yngri bróður sínum, Rocky,
og geit. Þegar amma drengs-
ins fer í vikulangt ferðalag birtist
faðir hans upp úr þurru á bónda-
bænum til að ná í poka fullan af
peningum sem hann hafði grafið
á landareigninni mörgum árum
áður. Myndin hefur hlotið góðar
viðtökur bæði gagnrýnenda og
áhorfenda en hún hefur meðal
annars unnið til verðlauna á kvik-
myndahátíðinni í Berlín.
Ásatrú til
umræðu
Eggert Sólberg Jónsson flytur erindi á
vegum Félags þjóðfræðinga á Íslandi
um ásatrú á Íslandi við upphaf 21. ald-
ar. Erindið er byggt á nýlegri MA-rann-
sókn Eggerts en þeirri rannsókn var
ætlað að varpa ljósi á það hvort stofnun
félags um ásatrú á seinni hluta 20. ald-
ar á Íslandi hefði aðeins verið eitt skref
í langri sögu endurgerðar og túlkunar á
þeirri heiðnu trú sem var ríkjandi fyrir
kristnitöku. Eggert mun í erindi sínu
einnig varpa fram þeirri spurningu á
hvaða hátt ásatrúarmenn í dag notast
við þau verk sem til eru um trúar-
brögð fyrir kristnitöku í trúarathöfnum
sínum. Erindið er opið öllum en það
verður flutt í stofu 102 í Gimli í Háskóla
Íslands á fimmtudag klukkan 17.00.
Sló í gegn á netinu Jon Lajoie varð
frægur fyrir grínmyndbönd á YouTube.
Fær 7,5 milljónir í verðlaun Gyrðir
Elíasson er vel að Bókmenntaverðlaunum
Norðurlandaráðs kominn. Hann fékk verð-
launin fyrir smásagnasafnið Milli trjánna.
í Reykjavík
Okkur fannst mega lífga aðeins upp á tónlistarlífið að vori. Það er alltaf nóg að gerast á haust-
in,“ segir Kristján Freyr Halldórsson
hjá útgáfufyrirtækinu Kimi Records
sem stendur fyrir tónlistarhátíðinni
Reykjavíki Music Mess um helgina.
Hátíðin stendur frá föstudegi fram á
sunnudag og koma fram 31 listamað-
ur og hljómsveitir á þessum þremur
dögum. Uppistaða hátíðarinnar eru
íslenskir listamenn en einnig eru at-
riði frá fimm öðrum löndum. Þar ber
helst að nefna sveitina Deerhunter
frá Bandaríkjunum.
„Upphaflega var hugmyndin sú
að fá Deerhunter hingað til að halda
tónleika og síðan vatt það upp á sig
og við ákváðum að slá þessu upp í há-
tíð,“ segir Kristján, en Deerhunter er
bandarísk indíhljómsveit sem hefur
gert það gott undanfarin ár. „Þeir hafa
gefið út nokkrar góðar plötur en svo
sprakk sveitin algjörlega út á síðasta
ári þegar þeir gáfu út plötuna Hal-
cyon Digest. Hún rataði inn á nánast
alla topplista yfir bestu plötur ársins.“
Til dæmis valdi kana díska tímarit-
ið Exclaim! plötuna í annað sæti yfir
þær bestu á árinu 2010 og Pitchfork
Media valdi hana í það þriðja.
Norræna húsið verður áberandi á
tónlistarmessunni en starfsfólk þess
kemur meðal annars að innflutn-
ingi norrænna hljómsveita á hátíð-
ina. „Við höfum átt í góðu samstarfi
við starfsfólkið þar og heillast svo af
húsinu að við vildum endilega halda
tónleika þar,“ segir Kristján, en einn-
ig verða staðirnir Nasa og Sódóma
lagðir undir messuna. Auk íslenskra
listamanna og Deerhunter koma
fram á hátíðinni Fossils frá Dan-
mörku, Tomutonttu frá Finnlandi,
Nive Nielsen frá Grænlandi og Lower
Dens frá Bandaríkjunum.
Gamla kexverksmiðjan Frón
kemur líka við sögu á hátíðinni með
skemmtilegum hætti en þar hefur
verið opnað gistiheimili sem heitir
Kex Hostel: „Gömlu verksmiðjunni
hefur verið breytt í glæsilegt gisti-
heimili og má segja að báðir aðilar
séu að stiga sín fyrstu skref í þessu.
Við, í að halda hátíðina, og þeir, í að
taka á móti gestum, því Kex Hostel
ætlar að hýsa listamennina fyrir okk-
ur.“ Hátíðargestir sem höfðu þegar
keypt sér miða og áttu að sækja arm-
böndin í verslun Kimi Records, Ha-
varí í Austurstræti, þurfa að sækja
þau í Kex Hostel. „Havaraí er lok-
að um þessar mundir þannig að við
munum opna verslunina tímabundið
í andyri Kex undir nafninu Bríarí og
fólk getur sótt armböndin sín þang-
að,“ segir Kristján að lokum, en allar
frekar upplýsingar og dagskrá er að
finna á reykjavikmusicmess.com.
n 15., 16. og 17. apríl
n Miðaverð: 7.900 kr. á alla hátíðina,
1.500 kr. á staka viðburði, 3.900 kr. á
Nasa á sunnudag.
n Miðasala í Smekkleysu og á
reykjavikmusicmess.com
n Tónleikastaðir: Nasa, Norræna húsið
og Sódóma
n Dagskrá og allar nánari upplýsingar á
reykjavikmusicmess.com
n Armbönd sótt í verslun Havarí sem er
tímabundið sett upp í Kex Hostel.
Upplýsingar
Agent Fresco (IS)
AMFJ (IS)
Borko (IS)
Deerhunter (US)
Einar Örn + SWC (IS)
FM Belfast DJ set (IS)
FOSSILS (DK)
Hellvar (IS)
Hljómsveitin Ég (IS)
kimono (IS)
Kippi Kaninus (IS)
Lára Rúnars (IS)
Lazyblood (IS)
Lower Dens (US)
Miri (IS)
Mugison (IS)
Nive Nielsen (GL)
Nolo (IS)
Orphic Oxtra (IS)
Prinspóló (IS)
Quadruplos (IS)
Reykjavík! (IS)
Samaris (IS)
Sin Fang (IS)
Skakkamanage (IS)
Sóley (IS)
Stafrænn Hákon (IS)
Sudden Weather Change (IS)
Swords of Chaos (IS)
Tomutonttu (FI)
Æla (IS)
Tónlistarmessa
n Reykjavík Music Mess haldin í fyrsta skipti
um helgina n Alþjóðleg hátíð með Deer
hunter í fararbroddi n 3 dagar og 31 atriði
Hljómsveitirnar á hátíðinni:
Kristján Freyr Kimi Records stendur að baki Reykjavik Music Mess. MynD SiGtRyGGuR ARi