Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Page 22
P
áskar eru mikil sælgætis
hátíð. Mörgum dugar ekki
eitt páskaegg um hátíðina.
Páskaeggin stækka og stækka
og úrvalið eykst. Börn metast sín á
milli um stærð og fjölda og foreldrar
láta glepjast og leyfa börnunum að
innbyrða mikið magn súkkulaðis og
sælgætis á fáeinum dögum.
Súkkulaðipáskaegg eru fyllt með
sælgæti og innihalda því mikinn syk
ur. Það má því vel hugleiða hve mik
ið af gúmmelaðinu sé hollt að borða
yfir páskahátíðina. Hvað skyldi nú
vera mikill sykur í stærri gerðum
páskaeggja. DV fór á stúfana og
kannaði málið.
Langt út fyrir viðmiðunarmörk
Bryndís Elfa Gunnarsdóttir
næringar fræðingur, segir að foreldrar
eigi að miða við að viðbættur sykur
fari ekki fram úr 10 prósent af hita
einingaþörf. Hjá 9–10 ára barni eru
þetta að hámarki um 50 grömm af
sykri á dag. Þegar um stærri egg er
að ræða er ljóst að farið er mjög langt
yfir þau mörk. „Það er ekkert að því
að njóta þess að fá sér súkkulaði yfir
páskana meðan hófs er gætt og pass
að vel upp á fjölbreytni í fæðuvali,
en börn fara hæglega yfir þessi mörk
sem almennt er miðað við með óhóf
legri súkkulaðineyslu. Miðað við það
sykurmagn sem er í eggjunum er ráð
legt að gefa börnunum vel að borða
af næringarríkum mat yfir páskahá
tíðina þannig að það sé minna maga
mál fyrir sykursætt nammið. Það má
líka taka frá súkku laði og sætindi og
geyma þar til síðar. Börn langar iðu
lega í stærri gerð páskaeggja, þegar
ég fer með lítinn son minn í búðir og
er að skoða úrvalið þá get ég hugsað
mér að kaupa númer 3 eða álíka, en
hann langar auðvitað í það stærsta.“
kristjana@dv.is
22 | Lífsstíll 13. apríl 2011 Miðvikudagur
75 sykurmolar
í eggi númer 6
Að borða páskaegg, fyllt sælgæti, er tilhlökkunarefni um hverja páska og flest viljum við páskaegg sömu
tegundar og að minnsta kosti jafn stórt og um síðustu páska. En hvað skyldi vera mikill sykur í stærri gerðum
páskaeggja og fyllingu þeirra? Góa og Nói og Síríus gáfu DV upplýsingar um sykurmagn í þeirra vörum.
Sniðugt á morgunverðarborðið um
páskana fyrir börnin
Það eru ýmsar leiðir til þess að gefa börnum næringarríkan og hollan mat meðfram
öllum sætindunum. Gróft brauð, ostur, grænmeti og egg. Þessu má vel koma fyrir á
morgunverðarborðinu yfir páskana. Börnin borða það sem gleður augað og það má
vel útfæra næringarríkan morgunverð þeim til skemmtunar. Á vefsíðunni eyecandy.
nanakaze.net má finna skemmtilegar uppskriftir fyrir páskahátíðina. Þar á meðal þessa
hænueggjafjölskyldu og stöng með kirsuberjatómötum og mozzarellaosti. Í stað ostsins
má vel setja grófa brauðbollu og hænueggjafjölskyldan gæti þess vegna átt sess á
matarborðinu í næringarríku salathreiðri.
Orkuþörf barna
Meðalorkuþörf 9–10 ára barna er
um 2000 kcal á dag. Samkvæmt
ráðleggingum Lýðheilsustöðvar um
mataræði og næringarefni er miðað við
að viðbættur sykur sé innan við 10% af
hitaeiningaþörf en það samsvarar að
hámarki um 50 grömmum af sykri á dag
eða um 25 sykurmolum.
Sykurmagn í
páskaeggjum
Risapáskaegg
frá Nóa og Síríus
Rúmlega 700 grömm
eða 175 sykurmolar
Risapáskaegg
frá Góu
346 gr grömm
eða 86,5 sykurmolar
Páskaegg nr. 6
frá Nóa og Síríus
300 grömm
eða 75 sykurmolar
Páskaegg nr. 6
frá Góu
178 grömm af sykri
eða 44,5 sykurmolar
Páskaegg nr. 4
frá Nóa og Síríus
184 grömm
eða 46 sykurmolar
Páskaegg nr. 4
frá Góu
113 grömm
eða 28 sykurmolar
Konsúm-
páskaegg nr. 4
frá Nóa og Síríus
206,33 grömm
eða 51 sykurmoli
*Haft var samband við Freyju, upplýsingar um sykurmagn voru ekki á
reiðum höndum. * Athugið að eggin geta verið misþung og misstór frá
hverjum framleiðanda þrátt fyrir að þau séu merkt sömu stærð.
*Í hverjum sykurmola eru um það bil 4 grömm af sykri.
„Það er ekkert að
því að njóta þess
að fá sér súkkulaði yfir
páskana meðan hófs er
gætt.
Reiðistjórnun getur komið í veg fyrir
ofbeldi:
Þarftu að
beisla
reiðina?
Óbeisluð reiði getur leitt til ýmissa andlegra
og líkamlegra vandkvæða – streitu,
þunglyndis, svefnvandamála og jafnvel
áfengisvandamála. Uppsöfnuð reiði getur
líka birst í ofbeldisfullri hegðun sem bitnar á
þeim nánustu.
Þeir sem hafa ekki stjórn á reiði ættu að
tileinka sér reiðistjórnun og leita aðstoðar
fagfólks við að finna réttu leiðirnar. Það má
gera áætlanir sem hægt er að framfylgja
og ef góður árangur næst batna lífsgæðin
umtalsvert.
En það hafa ekki allir fullt innsæi í vandann.
Flestir þeir sem reiðast óhóflega eiga bágt
með að sjá að reiðin er afl sem má beisla
öllum til góða. Ert þú ein/n af þeim sem
ættu að tileinka sér reiðistjórnun? Skoðaðu
eftirfarandi spurningar til að meta hvernig
þú bregst við reiði. Ef þú svarar fleiri en
einni spurningu játandi, þá þarftu að beisla
reiðina áður en illa fer hvað varðar eigin
heilsu og annarra.
Svaraðu spurningalistanum
n Tjáir þú reiði þína á þann veg að öðrum
finnst það óþægilegt eða yfirþyrmandi?
n Verður þú oftar reið/ur en annað fólk í
kringum þig?
n Verður þú reiðari en nauðsynlegt er?
n Hótar þú einhverju þegar þú ert reið/ur?
n Ert þú reið/ur lengi, kannski í margar
klukkustundir?
n Felur þú reiðitilfinningar eða reynir þú að
bæla tilfinningar þínar til þess að koma í veg
fyrir neikvæðar afleiðingar reiðikasta?
n Notar þú áfengi eða róandi lyf til að draga
úr eigin reiði?
n Finnur þú fyrir líkamlegum einkennum
eins og hraðari hjartslætti, spennutilfinn-
ingu í vöðvum og maga, þegar þú verður
reið/ur?