Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Qupperneq 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 13. apríl 2011 Miðvikudagur Þriðji hluti N1-deildar karla gerður upp: FH-ingar áberandi HSÍ gerði á þriðjudaginn upp loka- þriðjunginn í N1-deild karla þar sem valið var úrvalslið umferðarinnar auk þess sem besti þjálfarinn, besti leikmaðurinn og besta umgjörðin var valin. FH-ingar voru áberandi en þeir áttu tvo leikmenn í úrvalsliðinu ásamt því að hreinsa upp öll önnur verðlaun. Það kom heldur ekkert á óvart þar sem FH-ingar fóru á kost- um í þriðju umferðinni og unnu þar sex leiki af sjö og gerðu eitt jafntefli. Ásbjörn Friðriksson var kjörinn leikmaður þriðju umferðar og þá voru þjálfarar FH, þeir Kristján Arason og Einar Andri Einarsson, valdir bestu þjálfararnir. Sigurgeir Árni Ægisson, varnartröllið í FH, var valinn besti varnarmaðurinn og þá var FH verð- launað fyrir bestu umgjörðina í annað skiptið í vetur. Bestu dómararnir sam- kvæmt vali eru Suður nesjamennirnir Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. Ásbjörn var að sjálfsögðu í úr- valsliðinu en auk hans átti Ólafur Guðmundsson stórskytta sæti í því. Valsarar eiga tvo í úrvalsliði þriðju umferðar, markvörðinn Hlyn Mort- hens og skyttuna Erni Hrafn Arnar- son. tomas@dv.is Leikur 2 í Ásgarði n Úrslitarimma Iceland Express- deildar karla heldur áfram á fimmtu- dagskvöldið en þá er annar leikur í viðureign KR og Stjörnunnar. KR niðurlægði Stjörnuna í fyrsta leik liðanna á mánudagskvöldið með þrjátíu stiga sigri en Garðbæ- ingar fá tækifæri til að svara fyrir flenginguna á heimavelli. Leikurinn hefst klukkan 19.15 í Ásgarði í Garðabænum en leikurinn er einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Meistarakeppnin á laugardagskvöldi n Það er ýmislegt sem þarf að flytja og færa til vegna þess að Íslands- mótið í knattspyrnu hefst 1. maí. Meistarakeppni karla fer fram á laugardagskvöld- ið næstkomandi en þar mætast Íslandsmeistarar Breiðabliks og bikarmeistarar FH í árlegum leik meistarakeppni KSÍ. FH-ingar hafa verið sjóðheitir á undirbúningstímabilinu og unnu alla sjö leiki sína í Lengjubikarnum en Blikar hafa einnig verið að komast í gang. Leikurinn er í Kórnum og hefst klukkan 18.15. 30 milljónir punda duga n Gareth Bale er einn eftirsóttasti knattspyrnumaður Bretlandseyja um þessar mundir en fyrir ekki löngu síðan sagði Harry Redknapp, stjóri Tottenham, að pilturinn væri aðeins falur fyrir ofurtilboð á borð við 80 milljónir punda. Nú hefur hann aðeins slakað á kröfum sínum og komi tilboð upp á 30 milljónir punda er ekki loku fyrir það skotið að Bale hverfi til annars félags. Þetta hefur vakið athygli Manchester United, Manchester City og Liverpool sem öll hafa áhuga kappanum. Ferrari-menn ósáttir við hraðann n Ferrari-menn eru ekki alveg nægi- lega sáttir við sjálfa sig eftir fyrstu tvær keppninnar í Formúlunni en hvorki Fernando Alonso né Felipe Massa hafa komist á verðlaunapall. Ætlar liðið nú að rannsaka hvers vegna bíllinn fer ekki hraðar og fara henda upp- færslum á bílinn svo hann verði samkeppnishæfur. „Við þurfum að skoða bílinn betur því þeir útreikningar sem við sáum í prófunum í vindgöngunum eru hvergi sjáanlegir á brautinni,“ segir í yfirlýsingu frá Ferrari. Meiddist í brúðkaupi n Belgíska tennisdrottningin Kim Clijsters sem var farin að gera sér vonir um sinn fyrsta sigur á opna franska meistara- mótinu gæti þurft að sleppa mótinu vegna meiðsla sem hún varð fyrir í brúðkaupi vinkonu sinnar. Clijsters snéri sig illa á ökkla í brúðkaupinu, samkvæmt því sem kom fram í yfirlýsingu, en ekki var farið nánar út í hvað gerðist. Clijsters hefur farið á kostum eftir endurkomuna í tennisinn en hún er nú þegar búin að vinna tvö risamót. Molar Úrslitakeppni N1-deildar karla hefst á fimmtudagskvöldið þegar fyrstu leikirnir í undanúrslitunum verða spilaðir. Deildarmeistarar Akureyrar hefja þá rimmu sína gegn HK á heimavelli í Höllinni á Akureyri en í Kaplakrika er fyrsti leikur í undanúr- slitarimmu FH og Fram. Vinna þarf tvo leiki til þess að komast í úrslita- rimmuna sjálfa þar sem þarf svo þrjá sigra til þess að hampa Íslandsmeist- aratitlinum. Akureyri er deildar- meistari og mætir því HK sem endaði í fjórða sæti en FH náði öðru sætinu eftir frábæra þriðju umferð í deild- inni og hefur því heimaleikjarrétt- inn á Fram. Í innbyrðis viðureignum Akureyrar og HK var staðan nokkuð ójöfn í deildinni. Akureyri vann alla þrjá leiki liðanna, þar af tvo auðveld- lega og þá báða í Digranesi. Mun jafnara var í leikjum FH og Fram. Liðin unnu hvort sinn leikinn, báða á útivelli, og þriðji leikurinn endaði með jafntefli. Jafnt er meira að segja á með liðunum hvað varðar marka- tölu í innbyrðis viðureignum. Fínt eftir áramót „Stemningin er bara virkilega góð í hópnum,“ segir Einar Andri Einars- son, annar þjálfari FH, við DV. „Við höfum beðið eftir því að komast í úr- slitakeppnina svolítið lengi í Krikan- um. Menn eru spenntir og bjartsýnir myndi ég segja. Við erum hægt og ró- lega að ná heilsu og mannskapurinn er bara ferskur held ég,“ segir Einar sem dregur ekkert úr góðu gengi FH- inga að undanförnu en liðið raðaði inn þrettán af fjórtán stigum mögu- legum í þriðju umferð N1-deildar- innar. „Við getum ekkert neitað því að síðasta umferðin spilaðist vel fyrir okkur. Við vorum að spila góða vörn, sóknin var fín og báðir markverðir að verja. Holningin er búin að vera mjög góð. Heilt yfir hefur þetta ver- ið ágætt í allan vetur hjá okkur fyrir utan slæman nóvember þar sem við töpuðum þremur leikjum. Eftir ára- mót hefur þetta verið mjög gott, fyrir utan auðvitað eina slæma viku á Ak- ureyri,“ segir Einar en FH-liðið tapaði bæði í bikar og deild gegn Akureyri á innan við viku. Svekktir í fyrra FH er algjört stórveldi í íslenskum handbolta en gengið hefur verið afar slakt undanfarin ár. Liðið hefur ekki spilað í úrslitakeppni síðan árið 2003 en þá var Kristján Arason þjálfari liðsins. Hann er þjálfari ásamt Einari Andra í dag. Enn lengra er síðan FH vann síðast Íslandsmeistaratitil, heil 19 ár. Einar Andri viðurkennir því að spenna sé í mönnum. „Jú, ég myndi taka undir það. Við vorum auðvitað mjög svekktir í fyrra að komast ekki úrslitakeppnina og menn eru því hungraðir núna og vilja klára þetta mót á fullu. Það er al- veg klárt mál. Það er langt síðan FH var síðast í úrslitakeppni þannig það er mikið hungur í mönnum og það gleður mig,“ segir Einar, en hvar eru mótherjarnir, Fram, sterkastir? „Fram er með frábæran hóp og mestu breiddina ásamt okkur myndi ég segja. Það er ekki veikan blett á þeim að finna. Fram er með frábært sóknarlið sem keyrir hraðaupp- hlaup, hraða miðju og spilar annað tempó mjög vel. Þetta þurfum við að stoppa. Svo er blandan af ungum leikmönnum á móti reynsluboltum mjög góð hjá þeim,“ segir Einar. En hvað með leynivopn FH, Loga Geirsson, er hann klár? „Logi byrjaði að æfa í síðustu viku þannig að það verður bara að koma í ljós. Honum gengur vel á æfingum núna þannig að ég er bjartsýnn á að hann nái að hjálpa okkur. Það er vonandi að hann nái að taka nokkrar mínútur fyrir okkur ef á þarf að halda. Það væru virkilega góðar fréttir fyrir okkur því hann er auðvitað frábær leikmaður eins og allir vita,“ segir Einar Andri Einarsson. Átta ára fjarvera n Fyrsta úrslitakeppni FH í átta ár n Spila gegn Fram og hefja leik á heimavelli n Hungur í mönnum að klára þetta, segir Einar Andri Einarsson Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is Bjartsýnn Einar Andri hefur góða tilfinningu fyrir úrslitakeppninni. Ás í ermi Logi Geirsson gæti spilað nokkrar mínútur fyrir FH. Markvörður: Hlynur Morthens, Val Vinstra horn: Bjarki Már Elísson, HK Vinstri skytta: Ólafur Guðmundsson, FH Miðjumaður: Ásbjörn Friðriksson, FH Hægri skytta: Ernir Hrafn Arnarsson, Val Hægra horn: Bjarni Fritzson, Akureyri Línumaður: Orri Freyr Gíslason, Val Besti leikmaðurinn: Ásbjörn Friðriksson, FH Besti þjálfarinn: Kristján Arason og Einar Andri Einarsson, FH Besti varnarmaðurinn: Sigurgeir Árni Ægisson, FH Besta umgjörðin: FH Bestu dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson Úrval umferða 15–21 Úrvalslið umferða 15-21 Myndarlegur hópur. Mynd RóBERT REyniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.