Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Síða 26
26 | Fólk 13. apríl 2011 Miðvikudagur
Geiri á Goldfinger seldi skemmtistað:
Búinn að selja Re-Play
Ásgeir Þór Davíðsson, oftast kenndur
við karlaklúbbinn Goldfinger, er bú-
inn að selja skemmtistaðinn Re-Play
við Grensásveg. Aðspurður segist
hann eiga eftir að sjá eftir staðnum
en að allt sé falt fyrir rétt verð. „Ég veit
ekki alveg. Þetta gekk ágætlega en ég
ákvað að selja, því það er eins það er
að allt er til sölu fyrir rétt verð,“ segir
hann aðspurður af hverju hann ákvað
að selja staðinn.
Ásgeir gerði stórfelldar breytingar
á staðnum í góðærinu og lagði mikla
peninga í að gera klúbbinn sem
glæsilegastan. Hann segir staðinn
hafa verið á góðu reki undanfarið og
að hann hafi gengið vel sem sport-
bar. Ásgeir segir að nýir eigendur
muni halda barnum sem sportbar og
að fastir liðir eins og konukvöld, sem
haldin hafa verið á um 5 vikna fresti,
verði áfram fastur liður.
Staðurinn hefur verið mikið í frétt-
um undanfarnar vikur en eitt um-
talaðasta partí síðari tíma, VIP-partí
Hildar Lífar og Lindu Ýrar Kjerúlf,
var haldið á staðnum. Lögreglan hef-
ur þá einnig þurft að hafa afskipti af
ungmennum undir lögaldri á staðn-
um nokkrum sinnum frá áramótum
og hefur staðnum meðal annars verið
lokað tímabundið vegna fjölda þeirra.
„Það er alveg pottþétt, þetta er al-
veg rosalega fallegur staður og það
kostaði mig mikla peninga að breyta
staðnum,“ segir hann aðspurður hvort
hann sakni skemmtistaðarins. Ásgeir
þvertekur fyrir að hann hyggist selja
fleiri staði, eins og Goldfinger.
adalsteinn@dv.is
Mun sjá eftir staðnum Ásgeir Þór Davíðsson segist eiga eftir að sjá eftir staðnum en hann hýsti meðal annars eitt umtalaðasta partí
síðari tíma. Mynd Björn Blöndal
DReymiR um
RafmagnsBíl
Tónlistarspekinginn dr. Gunna, eða
Gunnar lárus Hjálmarsson eins og
hann heitir, dreymdi að hann hefði keypt
rafmagnsbíl á 900 þúsund krónur á ferð
um Austurland. Um var að ræða „lítið
brúnt rafmagnsrúgbrauð“ eins og hann
orðar það sjálfur. Í draumnum vildi þó
ekki betur til en svo að hann bakkaði
nýja bílnum sínum af veginum og ofan
í gjá „af eintómum klaufaskap“. „Var í
næsta atriði vaðandi út í einhverri á og
hringdi afsakandi í eldgamla kærustu til
að segja henni frá þessu,“ segir hann og
að næst hafi hann þurft að skrifa bréf
til einhvers sveitamanns sem átti að
draga bílinn upp úr gjánni þar sem hann
var með síma. „Vaknaði með hausverk,“
sagði hann svo að lokum um drauminn.
eiga 22
áR eftiR
jónína Benediktsdóttir, frumkvöðull
og lífskúnstner, ætlar að lifa í tæp 22 ár í
viðbót ef marka má skilaboð sem hún setti
á Facebook-vegg eiginmanns síns Gunnars
Þorsteinssonar, sem oftast er kenndur við
trúfélagið Krossinn. Í skilaboðunum, sem
hún skrifaði 4. apríl, sagði hún: „Við eigum
um 8000 daga eftir ólifað hér á jörðunni ef
við hugsum um heilsuna, eins gott að nota
þá vel.“ Í dag, miðvikudag, er því 7991 dagur
eftir af lífi hjónanna. Jónína, sem í dag er
54 ára, ætlar því að verða 76 ára gömul, ef
marka má skilaboðin.
É
g er að fara sex sinnum í viku
í ræktina og þá er ég búinn að
taka mataræðið alveg í gegn,“
segir Jóhannes Haukur Jóhann-
esson, leikari, sem hefur brátt tökur á
kvikmyndinni Svartur á leik en hún er
byggð á samnefndri skáldsögu Stefáns
Mána. Í myndinni leikur Jóhannes mik-
inn hrotta og undirheimakóng og hefur
því þurft að koma sér í allsvakalegt form.
Það hefur heldur betur gengið eftir því
Jóhannes er nær óþekkjanlegur í dag
vegna vöðva.
„Ég byrjaði í „hardcore“-þjálfun um
áramótin og fékk þá prógram hjá Kon-
ráð Gíslasyni, vaxtarræktarkappa. Áður
en ég fór í það hitti ég Hilmar Arnars-
son einkaþjálfara í Framhúsinu þrisvar
í viku til að ná þjálfuninni upp. Það var
bara til að byggja upp grunn og almennt
að geta hreyft sig. En núna er ég kominn
á fjórtándu viku í svona rosalegri þjálf-
un,“ segir Jóhannes sem æfir með Guð-
jóni Þorsteini Pálmarssyni sem margir
þekkja úr þáttunum Pressu. Guðjón er
einkaþjálfari og hefur hann hjálpað Jó-
hannesi að halda sér við efnið.
„Þetta var alveg rosalega erfitt fyrst.
Þá var rosalega mikilvægt að hafa
Denna með mér í ræktina. Hann er ein-
mitt að læra einkaþjálfarann núna og
ég held að hann eigi framtíðina fyrir sér
í þeim efnum,“ segir Jóhannes sem fær
nammidaga á sunnudögum og hlakkar
til þeirrar hátíðar alla vikuna.
„Ég er venjulega búinn að ákveða á
mánudegi hvað ég ætla að fá mér næsta
sunnudagskvöld,“ segir hann og hlær.
„Þessi tími hjálpar mér gríðarlega því þá
hef ég eitthvað til að hlakka til. Ég fer líka
„all in“ á sunnudagskvöldum, borða
hamborgara, franskar, ís og nammi, al-
veg endalaus. Það er líka betra að fá sér
sem mest því þá sjokkera ég líkamann
svo mikið að það verður auðveldara að
losa sig við þetta. Þetta er mjög fínt á
meðan ég held mig bara við einn dag í
viku,“ segir Jóhannes.
Jóhannes segir konuna sína hafa
gaman af því að vera með einn svona
hrikalegan á heimilinu en best finnst
honum hvað þessi tími hefur hvatt hann
til að taka upp heilbrigðara líferni. „Í júlí
í fyrra fór ég í mælingu á kólesteróli og
blóðþrýstingi og bæði var alltof hátt.
Það var talað um að setja mig á einhver
lyf. Nú fór ég aftur í mælingu um daginn
og þá var allt í toppstandi. Þegar þess-
um svakalegum æfingum fyrir mynd-
ina er lokið hætti ég örugglega að fara
sex sinnum í viku í ræktina, fer frek-
ar þrisvar til fjórum sinnum. En ég hef
verulegan áhuga á að halda þessu líferni
áfram,“ segir Jóhannes.
Svartur á leik fjallar í grófum drátt-
um um undirheima Reykjavíkurborgar
og er karakter Jóhannesar einn af þeim
illkvittnari í myndinni. „Ég er að leika
mann sem er mjög afvegaleidur í líf-
inu. Hann er svona undirheimafor-
ingi sem hefur verið undirmaður þeirra
sem stjórnað hafa eiturlyfjabransanum
undanfarin tuttugu ár. Nú er hann sjálf-
ur að brjótast fram og byrja sinn eigin
bransa. Þá hittir hann Stefán sem leik-
inn er af Þorvaldi Davíð en myndin segir
sögu hans. Við fáum þar að fylgjast með
hvernig ég tek hann inn í undirheim-
ana. Við erum í undirbúningi og upp-
lestri núna en tökur byrja 26. apríl,“ segir
Jóhannes Haukur Jóhannesson, leikari
og nú vöðvafjall.
n Morgunmatur 150 gr hafragrautur
n Milli mála Epli og ein skeið af
mysupróteini
n Hádegismatur Magurt kjöt
(kjúklingur eða fiskur) ásamt grænmeti
eða hýðishrísgrjónum. Dæmi: Burrito á
Serrano en sleppa osti og sósum
n Milli mála Banani og ein skeið af
próteini
n Klukkan fimm 50 gr af hafragraut
n Kvöldmatur Magurt kjöt ásamt
grænmeti eða hýðishrísgrónum
n Kvöldbiti Epli og ein skeið prótein
(Verði Jóhannes svangur á öðrum tímum
borðar hann möndlur með hýði og svo
fær hann sér lýsi og vítamín)
Mataræði Jóhannesar
n jóhannes Haukur orðinn helmassaður n Æfir eins og vaxtarræktarkappi
sex sinnum í viku n Hluti af undirbúningi fyrir kvikmyndina Svartur á leik
Bíður alla vikuna
eftir nammideginum
Breyttur maður Jóhannes Haukur er orðinn svakalega massaður og klár í sitt hlutverk í
Svartur á leik. Mynd SiGtryGGur ari
jóhannes Haukur:
M
y
n
d
S
iG
tr
y
G
G
u
r
a
r
i