Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Qupperneq 19
S
viss var síðasta land Evrópu
til að veita konum kosninga-
rétt, en þar fengu konur ekki
að kjósa fyrr en árið 1971. Í
sumum kantónum þurftu þær jafn-
vel að bíða enn lengur, eða allt fram
á 9. áratuginn. Vafalaust voru margir
svissneskir karlmenn sem spáðu því
á sínum tíma að ef konur fengju að
kjósa gerðist það næst að karlmönn-
um yrði bannað að pissa standandi.
Þetta hefur og orðið raunin.
Víða á svissneskum salernum má
sjá skilti sem banna einmitt þetta.
Enn má pissa í pissurennur, en ekki
er alls staðar leyfilegt að pissa stand-
andi í hefðbundin klósett. Þessi höft
hafa nú einnig færst inn á heim-
ilin, þar sem mæður kenna son-
um sínum og eiginmönnum betri
siði en áður hafa tíðkast. Rökin eru
velþekkt, þeir sem pissa standandi
hitta ekki alltaf þangað sem er mið-
að, og jafnvel þó miðað sé vel er
hætta á að eitthvað skvettist upp úr
skálinni. Í viðleitni sinni til að stilla
til friðar hafa sumir heimilisfeður
tekið upp á að þrífa klósettin sjálfir,
en niðurstaðan er sú sama, þegar
þeir sjá óþrifnaðinn sem þeir valda
taka þeir sjálfviljugir upp á því að
pissa sitjandi.
Keisarar klósettskálarinnar
Það hefur reyndar ekki alltaf verið
svo að kynin hafi sameinast um að
pissa sitjandi, því sú var tíð að kon-
ur almennt, og þá sérstaklega heldri
konur, köstuðu vatni með fullri
reisn. Kjólar voru þannig gerðir að
nánast ómögulegt var að athafna
sig öðruvísi, og næturskálarnar sem
voru undir hverju rúmi voru hann-
aðar til þess að eins gott var að gera
sitt í standandi stöðu.
Í fyrri heimsstyrjöldinni tóku
margir upp á því að setja mynd af
þýska keisaranum neðst í skálina
og má vel vera að þetta hafi gert
fólk hittnara, eins og má einnig geta
sér til um að hafi verið reyndin á
skemmtistaðnum Sódómu í Reykja-
vík þegar skálar þar voru skreyttar
andlitsmyndum auðmanna. Hvern-
ig sem því líður er næturgagnið enn
þann dag í dag kallað „Jerry“, eða
Þjóðverji, í Bretlandi, þó að fæst-
ir hafi nú slíkt undir rúmum
sínum.
Land hinnar eilífu
karlmennsku
Þau lönd eru þó
enn til þar sem
karlmennsk-
an ræður ríkj-
um. Svissneskur
bankamaður fór
í vetur í heimsókn
til Íslands og varð
heillaður af landi og
þjóð. Vesalings mað-
urinn hafði löngum þurft
að eiga við það í heimalandi
sínu að nágrannar hans litu hann
hornauga þegar hann lagði öðrum
af tveimur jeppum sínum í götunni,
þar sem slík ökutæki eru þar tal-
in taka upp óþarfa pláss og auka á
mengun. Þegar til Íslands var kom-
ið sá hann sér til
mikillar ánægju að
hér telst það að eiga
jeppa eða tvo til almennra
mannréttinda, og nágrannarnir
líklegri til að líta mann aðdáunar-
augum frekar en að ergja sig. Að
minnsta kosti er ljóst að jeppakarl-
ar hér á landi þykja eiga sömu rétt-
indi og aðrir þegar kemur að því að
leggja, og veitir ekki af, enda þurfa
þeir sitt pláss.
Það varð úr að eftir þessa Íslands-
för ákvað svissneski bankamaður-
inn að flytja til Íslands, og leitar nú
að húsnæði hér, líklegast með góð-
um bílskúr. Gott ef hann hugsar sér
ekki gott til glóðarinnar að fá einnig
að pissa standandi, í landi hinnar ei-
lífu karlmennsku.
Kjallari
Valur
Gunnarsson
Umræða | 19Mánudagur 30. maí 2011
Dúx og
afmæli
1 J-Lo tekst ekki að stöðva vandræðaleg myndbönd
Myndbönd sem fyrrverandi eiginmaður
Jennifer Lopez, Ojani Noa, tók verða
birt þrátt fyrir hörð mótmæli hennar.
2 Botninn er í kistunniErla Rún Ámundadóttir segir bæði
rangt og hættulegt að leita botnsins.
3 Sýktar gúrkur drepa fleiriAð minnsta kosti 10 hafa látist af
völdum E.coli sýkingar í Þýskalandi og
270 hafa smitast.
4 Áætla stórfellda sölu eignaMeirihluti bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar gerir áætlanir um að bjarga
fjárhag sveitarfélagsins með stórfelldri
sölu eigna.
5 Ásakanir um múturMohamed bin Hammam, sem sóttist
eftir því að verða næsti forseti FIFA,
hefur dregið til baka framboð sitt eftir
að hann var sakaður um að reyna að
kaupa atkvæði í forsetakosningunum
á fundi í karabíska hafinu.
6 Ætla að neyða konur til að spila badminton í pilsum
„Mér finnst þetta fáránlegt,“ segir
Ragna Ingólfsdóttir badmintonkona
um reglur sem Alþjóða badminton-
sambandið hugðist láta taka gildi 1. Olga Sigurðardóttir útskrifaðist
úr Kvennaskólanum í Reykjavík um
helgina með meðaleinkunnina 9,79.
Hún var ekki bara dúxinn í ár heldur er
þetta hæsta meðaleinkunn sem
nokkur nemandi hefur útskrifast með í
skólanum.
Hver er konan?
„Olga Sigurðardóttir.“
Hvar ertu uppalin?
„Í Kópavogi.“
Afhverju fórst þú þá í Kvennó?
„Ég bara veit það ekki. Hann var bara eitt-
hvað svo passlega lítill og heimilislegur.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Súkkulaði, ef það er matur. Ég er enginn
nammigrís samt. Ég vil bara súkkulaði.“
Hvað á svo að gera í sumar?
„Ég er að fara í hjólaferð í Sviss með
nokkrum vel völdum Kvennaskólapíum. Svo
leysi ég af sem móttökuritari á göngudeild
Landspítalans. Ætli ég reyni svo ekki að
rækta frændgarðinn úti á landi og skemmta
mér.“
Hvert er svo stefnan tekin næsta vetur?
„Það er enn óráðið. Ég fer í inntökupróf í
læknisfræðina í júní þannig að það kemur
allt í ljós eftir það.“
Er læknirinn draumur?
„Já, draumurinn. Hefur ekki alltaf verið en
það kom svona smám saman í Kvennó.“
Hverju þakkar þú þennan árangur í
skólanum?
„Ég mætti bara alltaf í skólann og fylgdist
með. Maður skipuleggur sig líka bara vel.
Lykilatriðið finnst mér að fylgjast með í
tímum samt.“
Hvað er uppáhaldsfagið þitt í skóla?
„Efnafræði. Hún er frekar skemmtileg.“
Varstu búin að reikna út þennan
árangur?
„Ég var með svona einhverja hugmynd
um einkunnina en ekki að hún væri svona
há. Hvað þá að hún væri sú hæsta í sögu
skólans. Því bjóst ég ekki við.“
Var þetta ekki rosalega gaman?
„Jú, alveg frábært. Svo á ég líka tvítugsaf-
mæli í dag. Þetta var því alveg ágætis
helgi.“
„Nei, ég vil hafa þetta Laugaveg áfram.“
Valdimar Briem
69 ára fræðilegur ráðgjafi
„Mér finnst þetta frábært framtak en ég
mundi ekki vilja breyta nafninu.“
Guðrún Jóna Stefánsdóttir
24 ára starfsmaður Símans
„Við eigum að halda Laugavegsnafninu út
af sögunni en þetta var flottur gjörningur.“
Katrín Eyjólfsdóttir
25 ára nemi
„Nei, við eigum að halda Laugavegi.“
Elísabet Þórðardóttir
45 ára sálfræðingur
„Þetta er fínt nafn tímabundið en mér þykir
of vænt um Laugaveginn.“
Guðrún Sóley Gestsdóttir
23 ára námsmaður
Mest lesið á dv.is Maður dagsins
Eigum við að breyta Laugavegi í Mannréttindaveg til frambúðar?
Lúðrasveit Mannréttindaganga Amnesty International fór fram á Laugarveginum um helgina í tilefni af 50
ára afmæli samtakanna Mynd/RóBERt REyniSSon
Myndin
Dómstóll götunnar
Bannað að pissa standandi
„ Í fyrri heimsstyrj-
öldinni tóku margir
upp á því að setja mynd
af þýska keisaranum
neðst í skálina...
júní.