Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2012, Blaðsíða 3
ÁRið 2007
snýR aftuR
Fréttir 3Mánudagur 12. mars 2012
n Hærri yfirdráttur, hærra fasteignaverð og meiri einkaneysla
Hækkandi
fasteignaverð
n Fasteignavísitalan fer hækkandi og
nálgast hratt það sem hún var árið 2007.
Vísitalan hefur hækkað jafnt og þétt
síðasta árið og tekið nokkur lítil stökk.
Ekki er þó ljóst hvort um einhvers konar
fasteignabólu er að ræða en fjárfestinga-
kostir fyrir hinn almenna Íslending hafa
verið af skornum skammti frá hruni. Lítil
viðskipti eiga sér stað í Kauphöllinni og
ekki er unnt að færa fjármagn úr landinu
sökum gjaldeyrishafta. Það hefur því
líklega knúið einhverja til að fjárfesta í
fasteignum.
Einkaneysla
mun meiri
n Einkaneysla þjóðarinnar er orðinn um
það bil sú sama og hún var í lok árs 2006
og byrjun árs 2007. Einkaneyslan hefur
samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands
rokið upp eftir hrunið. Mesta aukningin
var strax eftir hrun, árið 2009 og 2010,
þegar Íslendingum var gert kleift að
taka út séreignarlífeyrissparnað sinn.
Einkaneyslan hefur þó síðan þá haldið
áfram að aukast jafnt og þétt.
Spjaldtölva
jólagjöf ársins
n Það koma mörgum á óvart þegar
spjaldtölva var valin jólagjöf ársins 2011.
Slíkar tölvur kosta tugi þúsunda króna.
Það var Rannsóknarsetur verslunarinnar
sem valdi gjöfina og í rökstuðningi á
valinu kom meðal annars fram að
spjaldtölvan hafi verið næstvinsælasta
jólagjöfin í Bandaríkjunum í ár, næst á
eftir einhverju nýju í fataskápinn. Eftir
jólin kom svo í ljós að rannsóknarsetrið
hafði hitt naglann á höfuðið.
Storknaðar álslettur
á land í Straumsvík
É
g var á gangi um fjöruna þegar
ég rakst á einn svona kögg-
ul og eftir að ég fann þennan
eina þá sá ég þá um allt,“ seg-
ir maður sem gerði merkilega
uppgötvun á rölti sínu um fjöruna í
Straumsvík. Hann fann ósköpin öll
af álkögglum á víð og dreif meðfram
strandlengjunni og áður en hann
vissi af var hann kominn með poka-
fylli af áli sem skolast hafði á land frá
álverinu. Talsmaður Alcan segir að
líklega sé um að ræða leifar frá gam-
alli tilraun á upphafsárum álversins.
Nokkur kíló í einni ferð
Maðurinn sem fann kögglana kveðst
nú eiga mörg kíló af þeim og að ál
sé úti um allt í fjörunni við álverið
í Straumsvík, meðfram golfvellin-
um Keili og lengra. Blaðamaður DV
hitti manninn við fjöruna hjá golf-
vellinum fyrir helgi og afhenti mað-
urinn sýnishorn af því umtalsverða
magni af áli sem hann fann. „Það er
allt morandi í þessu,“ segir hann og á
meðfylgjandi mynd má sjá fötu fulla
af ruslinu sem hann tók. Þar sem
blindbylur var á svæðinu eftir há-
degi á föstudag og veðurskilyrði afar
óhagstæð komst blaðamaður ekki í
skoðunarferð um fjöruna. En eftir því
sem DV kemst næst leikur ekki vafi á
að um ál er að ræða.
Krakkar halda að þetta sé
fjársjóður
DV spurðist einnig fyrir um málið hjá
starfsmönnum golfvallarins sem er
í næsta nágrenni við álver Rio Tinto
Alcan í Straumsvík. Þar fengust þær
upplýsingar hjá einum starfsmann-
inum að reglulega komi krakkar í af-
greiðsluna með vasa fulla af þessum
álkögglum og halda að þeir séu „fjár-
sjóður.“ Þannig hafi það verið í nokkur
ár hið minnsta. Spjótin beinast því að
álverinu. Þar óskaði DV eftir svörum
frá álverinu vegna þessa enda virðist
umtalsvert magn af áli liggja einhvers
staðar í sjónum við álverið.
Tilraun sem endaði illa?
„Ég spurðist fyrir hjá þeim sem búnir
eru að vera hér lengur og þá kom í ljós
að við höfum heyrt um þetta áður,“
segir Ólafur Teitur Guðnason, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs Alcan
á Íslandi.
„Líklegasta skýringin sú að 1975
eða 1976 var gerð tilraun með að
hreinsa álleifar með sjó. Það gafst ekki
mjög vel því slatti af því áli fór bara
einmitt út í sjó. Þessum tilraunum,
sem voru víst gerðar í um eina viku,
var ekki haldið áfram.“
Ólafur Teitur segir að það virð-
ist hafa verið nógu mikið magn til að
eitthvað af því berist þarna upp í fjör-
una. „Og við höfum heyrt af því að
einhverjir hafi af og til fundið svona
mola.“
Hann segir ál vera verðmæti sem
fyrirtækið vilji selja og því sé ekki um
vísvitandi losun á afgangsáli í sjóinn
að ræða hjá fyrirtækinu. Aðspurður
hvort ekki væri að ræða um umhverf-
isslys fyrst svo miklu magni af þess-
um álmolum skoli þarna á land segir
Ólafur að kannski megi segja það. „En
þetta er svo sem ekki hættulegt, en
svo geta menn haft sínar skoðanir á
því hvort það sé prýði að þessu.“
Vekur áhuga hjá
Umhverfisstofnun
„Steinarnir eru allir mjög ávalir og
fægðir, engin hvöss horn heldur ein-
ungis ávalar línur. Þetta hefur því
verið að veltast í ölduróti allavega í
mörg ár ef ekki áratugi,“ segir Krist-
ján Geirsson, deildarstjóri umhverf-
isverndar hjá Umhverfisstofnun en
stofnunin er eftirlitsaðili álversins
í Straumsvík og gefur út starfsleyfi
Alcan.
DV leitaði álits hjá Kristjáni og
gat hann út frá myndum sem hon-
um voru sendar af kögglunum dreg-
ið almennar ályktanir af þeim. Einn
möguleikinn varðandi hina dular-
fullu köggla var að þarna væri um að
ræða kerbrot úr flæðigryfju álversins
þar sem þau eru urðuð við sjóinn en
Kristján telur að líklega sé um hrein-
an málm að ræða.
„Af því sem ég sé þá sýnist mér
þarna vera hreinn málmur, ekki
blanda af áli og kerbrotum. Það styð-
ur ekki að þarna séu kerbrot,“ seg-
ir Kristján í svari sínu við fyrirspurn
DV. Hann segir að molarnir séu
„blöðróttir“ svolítið eins og slettur.
„Það myndi mér þykja ólíklegt ef álið
kæmi úr kerbrotum, sem eru gerð úr
föstum þéttum málmhellum sem ég
hallast að að myndu veðrast öðruvísi
(þ.e. brotna upp í mola, vera þétt) en
síðan þarf allnokkra veðrun til að ná
þessari áferð fram.“
Kristján segir að mat sitt á þessum
myndum sé að þarna sé um að ræða
hreint ál sem hafi storknað hratt í
slettur og síðan velkst um í særóti í
fjölda ára. Skýring Alcan um álið sem
fór í sjóinn á 8. áratugnum er því ekki
ósennileg að hans mati. Hann við-
urkennir þó að skoða þyrfti þessa
álmola betur til að draga einhverj-
ar ákveðnari ályktanir. „Mér finnst
þetta hins vegar nokkuð áhugavert
og við munum forvitnast um þetta
eftir helgi,“ segir Kristján.
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
„Við höfum heyrt
um þetta áður.
n Má rekja til misheppnaðrar tilraunar fyrir 37 árum segir Alcan
Álslettur Hér má sjá sýnishorn sem DV
fékk afhent. Virðist sem um storknaðar
álslettur sé að ræða. Sumir molarnir líkjast
steinvölum en þegar þeim er slegið saman
verður ekki um villst. Þetta er ál. MyNd SigUrðUr
MiKael JóNSSoN
Hnefafylli Kristján segir að mat sitt á
þessum myndum sé að þarna sé um að
ræða hreint ál sem hafi velkst um í særóti í
fjölda ára. MyNd SigUrðUr MiKael JóNSSoN
Álkubbar Ólafur Teitur segir að
ekki sé um að ræða vísvitandi losun
á afgansáli í sjóinn. MyNd eyþór ÁrNaSoN