Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2012, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2012, Blaðsíða 10
B jörgvin G. Sigurðsson, alþing- ismaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi viðskiptaráð- herra, var tvísaga í skýrslutöku rannsóknarnefndar Alþingis í mars 2009 og fyrir landsdómi á þriðju- daginn í síðustu viku. Björgvin G. var viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Geirs Haarde frá 1. maí 2007 og þar til hann sagði af sér embætti snemma árs 2009 skömmu áður en ríkisstjórnin féll. Fyrir landsdómi lýsti Björgvin því yfir að efnahagsmál og málefni bank- anna hefðu oft verið rædd á ríkisstjórn- arfundum þó að þau hafi ekki verið á dagskrá. Björgvin sagði jafnframt að hann hefði fylgst vel með starfi sam- ráðshópsins um efnahagsstöðugleika sem settur var á fót snemma árs 2008 og að honum hafi alls ekki verið haldið utan við störf annarra ráðherra. Geir Haarde er meðal annars ákærður fyrir að hafa ekki haldið ráð- herrafundi um mikilvæg stjórnarmál- efni mánuðina fyrir hrun. Í ákærunni segir að hann hafi ekki átt frumkvæði að formlegum ráðherrafundi um ástandið og hafi hann ekki gefið ríkis- stjórninni sérstaka skýrslu um vanda bankanna eða hugsanleg áhrif hans á íslenska ríkið. Þá er hann einn- ig ákærður fyrir að hafa vanrækt að tryggja að starf samráðshóps stjórn- valda um fjármálastöðugleika hafi ver- ið markvisst. Taldi sig vel upplýstan Björgvin G. sagði hins vegar sem vitni fyrir landsdómi í síðustu viku að sér hafi verið haldið vel upplýstum um gang mála og vísaði á bug full- yrðingum um að honum hefði verið haldið utan við ákvörðunarferli. „Ég fullyrði að starf samráðshópsins hafi verið markvist og gott,“ sagði Björg- vin G. fyrir landsdómi og tók fram að hann hafi sem ráðherra haft vitneskju um starf hópsins. Hann sagðist alls ekki hafa fengið minni upplýsingar en aðrir ráðherrar í aðdraganda hruns- ins. Hann sagði að ráðuneytisstjórar sem áttu sæti í samráðshópi stjórn- valda hafi upplýst ráðherra með sam- bærilegum hætti um hvernig starfi hópsins hafi verið háttað og hvað hafi verið að gerast þar. Hann sagði að engar skriflegar skýrslur hefðu ver- ið lagðar fram en að ráðuneytisstjóri hefði munnlega greint honum frá framgangi málanna. Björgvin sagði fyrir dómi að sér hefði ekki fundist þörf á því að kalla eftir tillögum frá samráðshópnum. Allt önnur saga Framburður Björgvins G. fyrir lands- dómi stangast raunar mjög mikið á við þá atburðarás sem lýst er ná- kvæmlega í skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis. Um þátt viðskipta- ráðherra mánuðina fyrir hrunið, þegar Geir átti marga fundi með Davíð Oddssyni, þáverandi banka- stjóra Seðlabankans og bankastjórum bankanna, segir orðrétt í skýrslunni: „Bankastjórn Seðlabankans átti einn- ig á tímabilinu febrúar til maí 2008 a.m.k. fimm fundi með forsætisráð- herra, fjármálaráðherra og utanríkis- ráðherra. Félagsmálaráðherra sótti einn þessara funda þegar rætt var um málefni Íbúðalánasjóðs. Af skýrslu Björgvins G. Sigurðssonar, viðskipta- ráðherra, verður ráðið að hann hafi ekki verið boðaður á neinn þessara funda. Þar var þó m.a. rætt um vanda bankanna og lausafjárkreppuna en málefni bankakerfisins heyrðu undir ráðuneyti hans. Að auki virðist við- skiptaráðherra hvorki hafa verið gerð grein fyrir því að fundirnir fóru fram né upplýstur um það sem þar fór fram, þó með þeirri undantekn- ingu að upplýst er að á þingflokks- fundi Samfylkingarinnar 11. febrúar 2008 gerði formaður Samfylkingar- innar Björgvin og fleirum grein fyrir fundi sem hún átti ásamt forsætis- og fjármálaráðherra með bankastjórn Seðlabankans 7. febrúar 2008.“ Sniðgengu hvor annan Í skýrslutöku sinni fyrir rannsóknar- nefnd Alþingis sagði Björgvin G. að menn hefðu sniðgengið hverja aðra kerfisbundið og að Davíð Oddsson hafi með mjög yfirveguðum hætti haldið sér frá upplýsingum og atburð- um og ýmsu slíku. Í skýrslu rannsókn- arnefndarinnar er margsinnis fjallað um hvernig Björgvin G., sem þó var ráðherra bankamála, hafi ekki verið í innsta hring ákvarðanatöku. Í skýrslunni segir frá fundi sem fjórir ráðherrar héldu 8. ágúst 2008 með Má Guðmundssyni, Gauta B. Eggertssyni, Friðriki Má Baldurssyni og Jóni Þór Sturlusyni. Fundinn sóttu Geir H. Haarde forsætisráðherra, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir utanríkisráð- herra, Árni M. Mathiesen fjármála- ráðherra, og Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra. Í skýrslunni, er fjallað um ástæður þess að Björgvin var ekki á fundinum. „Björgvin G. Sigurðsson, við- skiptaráðherra, var ekki meðal fund- armanna. Um ástæður þessa upplýsti Jón Þór Sturluson við skýrslutöku fyr- ir rannsóknarnefnd Alþingis að þetta hefði verið „súperráðherrahópur- inn“. Hagfræðingarnir Friðrik, Gauti og Már hefðu á fundinum haldið framsögu um lausafjárvandann.“ Baldur drottnaði yfir Þá eru tekin dæmi í skýrslunni um hvernig Björgvin G. taldi að Baldur Guðlaugsson hafi haldið öllum hlut- um mjög hjá sér og drottnað mjög yfir öllu saman. Við skýrslutöku hjá rannsókn- arnefnd Alþingis var Björgvin G. spurður hvort að hann hafi vitað að ráðuneytisstjóri forsætisráðu- neytisins hefði farið yfir stöðu mála með forsætisráðhera og utanríkis- ráðherra, eins og lýst er í fundargerð samráðshóps stjórnvalda frá 16. september 2008. Björgvin sagðist ekkert hafa vit- að um þennan fund. Þá sagði hann fyrir rannsóknarnefndinni að sam- ráðshópurinn hefði verið mikill leynihópur sem ekki hefði mátt upp- lýsa að til væri, að hópurinn hefði aldrei komið með neinar skriflegar skýrslur. Hann kannaðist aðspurður held- ur ekkert við að ráðuneytisstjóri við- skiptaráðuneytisins hefði nokkurn tíma borið undir hann tillögur af vettvangi samráðshópsins sem hann hefði þurft að taka ákvörðun um. Sem fyrr segir sagði Björgvin G. fyrir landsdómi að oftsinnis hefði þróun efnahagsmála verið rædd á fundum ríkisstjórnarinnar mán- uðina fyrir hrun. Í skýrslunni er hins vegar haft eftir honum að það það hefði verið „ofboðslega fátæklegt“ hvað rætt var í ríkisstjórninni um stöðu bankanna og lausafjárkrepp- una. Þessu samskiptaleysi er lýst með nákvæmum hætti í skýrslunni, þar sem segir: „Besta dæmið væri að eftir fall krónunnar í mars 2008 og hræðslu- bylgjuna sem gengið hefði í gegn- um samfélagið hefði ekkert verið rætt í ríkisstjórninni vikum saman. Kristján Möller, samgönguráðherra, og Össur Skarphéðinsson, iðnaðar- ráðherra, hefðu orðið mjög óþreyju- fullir út af því og spurt hvort ekki ætti að fara að ræða stöðu efnahagsmála. Það hefði hins vegar ekki verið gert fyrr en löngu síðar.“ Hengdur upp til þerris Í skýrslunni kemur einnig fram að Björgvin hafi ekki fengið upplýsing- ar um alla fundi eða efni sem síðar hefði komið á daginn að Geir hefði átt með Davíð Oddssyni árið 2008. Lýsing Össurar Skarphéðinsson- ar fyrir rannsóknarnefnd Alþingis var hispurslaus. Þar sagði hann að Geir hefði ekki miðlað þeim alvar- legu upplýsingum sem komið hafi á daginn að seðlabankastjórar hefðu veitt honum munnlega á fundum. Hann hefði heldur ekki miðlað þeim til Björvins G. „Í hvaða ríki myndi það gerast að forystumaður ríkisstjórnarinnar hafi fund með seðlabankastjóra, ekki einu sinni, ekki tvisvar, ekki þrisvar, heldur sex eða sjö sinnum, og eftir því sem seðlabankastjórinn segir að þá komi þar fram alls kon- ar „warnings“, ég veit ekkert um það, en að viðskiptaráðherra sé ekki lát- inn vita?“ er haft eftir Össuri í skýrsl- unni. Um þetta samskiptaleysi sagði Össur einnig í skýrslunni: „ Mér þykir vænt um drenginn [Björgvin G. Sigurðsson] og við erum gamlir samstarfsmenn, en hann var nátt- úrulega bara hengdur upp á snúru til þerris, skilurðu. Ég meina, í hans stöðu, að hann sé ekki látinn vita af þessum fundum, ekki bara að hann sé ekki látinn vita, skilurðu, honum, þeim bar skylda til þess að hann væri þar, til þess að hann gæti þá að minnsta kosti fengið tækifæri til að standa undir þeirri ábyrgð sem á honum hvíldi. Og ég tel að hann hafi ekki fengið það. Og ég meina, þið getið spurt þau bæði, Ingibjörgu Sólrúnu og Björgvin, um það en mér er til efs að hún hafi nokkru sinni hringt í hann, kannski einu sinni, tvisvar, til þess að konferera hann, allan tímann, fyrir og eftir hrun. Og ég meina, þessir fundir, ég bara held að hann hafi ekkert vitað um þessa sex eða sjö seðlabankafundi. Klárt er að ekki vissi ég um þá, við töluð- um mikið saman.“ Alveg skýr niðurstaða Árni Mathiesen, þáverandi fjár- málaráðherra, staðfesti einnig fyrir rannsóknarnefnd Alþingis að Björgvin G. hefði verið haldið í myrkrinu með mörg mikilvæg mál í aðdraganda bankahrunsins. Þeg- ar hann var spurður hvers vegna Björgvin G. hefði ekki verið hafð- ur með á ráðherrafundum þegar rætt var um málefni bankanna við bankastjórn Seðlabankans, svar- aði hann því til að það hefði verið ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar. Hann sagðist halda að Björgvin hefði bara ekki verið treyst. Árni sagði: „Menn treystu því ekki […] að það sem væri verið að tala um á þessum fundum mundi ekki ein- hvern tímann og einhvers staðar endurspeglast í því sem hann segði í fjölmiðlum.“ Jón Þór Sturluson, aðstoðar- maður viðskiptaráðherra, sagði að hinn svokallaði súperráðherrahóp- ur hefði komið fyrst að umfjöllun um stóru málin, svo sem ríkisfjár- mál, kjarasamingsráðstafanir og síðan mótað stefnuna áður en aðrir ráðherrar hefðu komið að máli. Niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis um þekkingarleysi Björg- vins og hvernig honum var hald- ið skipulega utan við hlutina, þrátt fyrir það sem hann segir núna, er alveg skýr: „Af skýrslu Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, verður ráðið að hann hafi ekki ver- ið boðaður á neinn þessara funda þar sem þó var m.a. rætt um vanda bankanna og lausafjárkreppuna en málefni bankakerfisins heyrðu undir málefnasvið ráðuneytis hans. Að auki virðist viðskiptaráðherra hvorki hafa verið gerð grein fyrir því að fundirnir fóru fram né upplýstur um það sem þar fór fram.” 10 Fréttir „Ég fullyrði að starf samráðs- hópsins hafi verið mark- vist og gott. Björgvin tvísaga 12. mars 2012 Mánudagur Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Árni Mathiesen Menn treystu Björgvin ekki og þess vegna var honum haldið fyrir utan. Össur Skarphéðinsson Sagði að Björg- vin G. hefði verið hengdur upp til þerris. Björgvin G. Sigurðsson Rannsóknar- nefnd Alþingis fjallar ítarlega um hvernig honum hafi verið haldið utan við mikilvæg mál í ríkisstjórninni. Fyrir landsdómi hafnaði hann þessu öllu. n Allt annar framburður fyrir landsdómi en hjá rannsóknarnefnd Alþingis

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.