Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Blaðsíða 15
Stálu Skartgripum fyrir 30 milljarða Erlent 15Miðvikudagur 11. apríl 2012 B resk löggæsluyfirvöld hafa loks komið lögum yfir hóp eistneskra skartgripaþjófa sem svifust einskis í rán­ um sínum víðsvegar um Evrópu. Talið er að hópurinn, sem telur átta manns, hafi stolið skart­ gripum að verðmæti 150 milljóna punda, eða 30 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi. Ránin framdi hópurinn um alla Evrópu; meðal annars í Svíþjóð, Finnlandi, Ítalíu Monte Carlo og í Bretlandi þar sem ellefu skartgripaverslanir urðu fyrir barðinu á honum. Breska blaðið The Daily Mail fjallaði um hópinn á dögunum en í umfjöllun blaðsins kemur fram að lögregla hafi komist á sporið eftir að verslun­ in Berry‘s Jewellers í Leeds var rænd fjórum sinnum árin 2005 til 2007. Hópurinn framdi vopnuð rán víðar um Bretland, meðal annars í Man­ chester, Newcastle, Wolverhampton og Chester. Vopnuð rán Talið er að höfuðpaurar hópsins hafi nýtt sér neyð meðlima hópsins en sumir þeirra neyddust til að taka þátt í ránunum vegna fíkniefna­ skulda. Þeir keyptu sér ódýr flugfar­ gjöld með lággjaldaflugfélögum og ferðuðust vítt og breytt um Evrópu gagngert til að ræna skartgripaversl­ anir. Talið er að þeir hafi rænt skart­ gripum að verðmæti 75 milljóna króna í ránunum í verslun Berry‘s í Leeds en myndirnar sem fylgja greininni eru einmitt úr ráni sem framið var í versluninni árið 2007. „Þeir virðast hafa safnað saman mönnum sem voru skuldum vafðir. Þegar þeir gátu ekki greitt skuldirnar var þeim úthlutað þessum verkefn­ um,“ segir Lloyd Batley, sem leiddi rannsókn málsins. Samtals 82 ára fangelsi Dómur í máli eins mannanna, Janno Heinola, 33 ára, var kveðinn upp rétt fyrir páska og hlaut hann níu ára fangelsi. DNA­rannsókn sem gerð var á sígarettustubbi sem fannst fyrir utan Berry‘s árið 2007 tengdi hann við ránið en þegar niður­ stöður þeirrar rannsóknar lágu fyr­ ir var hann farinn úr landi. Lýst var eftir honum í kjölfarið og hann loks framseldur til Bretlands í febrúar síðastliðnum eftir að hafa lokið af­ plánun dóms fyrir vopnað rán sem hann hlaut í Þýskalandi. Heinola er áttundi meðlimur hópsins sem hlýtur dóm í Bretlandi. Áður höfðu þeir Algo Toomits, Sarik Sander, Raivo Loige, Joonas Jarvsoo, Rauno Kuklase, Reigu Janes og Ivo Parn hlotið dóma fyrir ránin. Þyngsta dóminn hlutu þeir Toomits og Jarvsoo, eða tólf ára fangelsi en Sander var dæmdur í ellefu ára fangelsi og Loige hlaut átta ára dóm. Kuklase, Janes og Parn hlutu allir tíu ára dóm. Samtals voru þeir því dæmdir í 82 ára fangelsi Þegar dómurinn yfir Heinola var kveðinn upp í Jórvíkurskíri á dög­ unum hrósaði dómarinn í málinu bresku lögreglunni. Talið er að skartgripirnir, meðal annars Rolex­úr, sem hópurinn stal hafi verið fluttir úr landi með flutn­ ingaskipum og seldir á svörtum markaði í Austur­Evrópu og Rúss­ landi. n Glæpagengi nýtti sér neyð skuldum vafinna fíkniefnaneytenda „Þeir virðast hafa safnað saman mönnum sem voru skuld- um vafðir. Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Bíræfnir bófar Hópurinn notaði skammbyssur í ránunum. Hér sést einn úr hópnum hóta starfsmanni Berry‘s Jewellers í Leeds árið 2007. 82 ára fangelsi Mennirnir átta sem að sameiningu stóðu að ránunum hafa verið dæmdir í samtals 82 ára fangelsi í Bretlandi. Níu ára fangelsi Janno Heinola var á dögunum dæmdur í níu ára fangelsi í Bretlandi fyrir aðild sína að ránunum. 4 ára drengur stunginn illa Fjögurra ára drengur liggur illa slasaður á spítala í Englandi eftir að hann fannst ráfandi, illa særður, úti á götu í Mansfield í Nottingham á öðrum degi páska. Hann var með fjölmörg stungu­ sár. Drengnum var sinnt á vett­ vangi áður en hjálp barst. 51 árs karlmaður var handtekinn í fjöl­ býlishúsinu þar sem fjölskylda drengsins býr og er nú í haldi lög­ reglu. Hann er ekki sagður ættingi þeirra en er þó kunnugur fjöl­ skyldunni. Ekkert er vitað um tilurð árás­ arinnar en drengurinn er allur að braggast. Faðir hans gerir ráð fyrir að hann geti farið heim áður en vikan er öll. Santorum hættur við Rick Santorum, sem sóttist eftir útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum, hefur ákveðið að draga sig í hlé. Santorum var einn helsti keppinautur Mitts Romney um útnefningu flokksins en Rom­ ney hefur þó hingað til haft afger­ andi forskot. Ákvörðun hans mun því væntanlega gera það að verk­ um að Romney verður forsetaefni Repúblikanaflokksins. Talið er að fleira en gott gengi Romneys spili inn í ákvörðun Santorums. Yngsta dóttir hans, Bella, glímir við erfða­ sjúkdóm sem kallast Trisomy 18 og var hún flutt á sjúkrahús vegna veikindanna skömmu fyrir páska.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.