Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Blaðsíða 22
22 Menning 11. apríl 2012 Miðvikudagur
Vandað verk
S
egið það móður minni
er plata sem inniheldur
lög eftir tónlistarmann
inn Ingólf Steinsson við
kvæði Davíðs Stefánsson frá
Fagraskógi á Galmaströnd í
Eyjafirði. Þetta er metnaðar
fullt verk þar sem tónlistin fell
ur vel við stemninguna sem
Davíð hefur mótað í kvæðum
sínum.
Hljómurinn og hljóðfæra
leikurinn á plötunni er til eftir
breytni enda engir aukvisar
sem leika og syngja með Ingólfi
á þessari plötu.
Tónlistarmenn ættu að
kannast við nöfn líkt og Ás
geir Óskarsson, Gísli Helga
son, Jón Guðmundsson, Lárus
H. Grímsson og Vilhjálmur
Guðjónsson, og vita að þess
um mönnum fylgja lítið ann
að en gæði. Þá gefur það góða
tilfinningu að heyra fallegan
söng dætra Ingólfs, Arnþrúðar
og Sunnu, á plötunni og gefur
það henni alþýðlegan blæ sem
erfitt er að skapa.
Sé farið yfir nokkur lög af
plötunni sem eru verð hlustun
ar, og án efa spilunar í útvarpi,
þá kemur fyrst upp í hugann
lagið Komdu á plötunni. Það
er einhver mystískur blær yfir
laginu. Stefið sem opnar lag
ið og er leikið á milli erinda
er alveg unaðslega álfkennt
og söngurinn fellur alveg ein
staklega smekklega að heildar
myndinni. Af öðrum lögum má
nefna Segið það móður minni,
Þú skalt farmanns kufli klæð
ast, Margt er þeim að meini og
Fjallarefurinn. Allt eru þetta
lög sem gripu mig við hlustun.
Hér er á ferðinni vandað
verk sem vel er hægt að mæla
með. Lágstemmd plata fyrir þá
sem vilja njóta seiðandi tóna
og glöggva sig á kvæðum hins
merka skálds Davíðs frá Fagra
skógi. Hér er greinilegt að höf
undur og allir þeir sem koma
að gerð þessarar plötu hafa
vandað vel til verka og gert
þetta verk af lífi og sál.
AK Extreme
Snjóbretta og tónlistar
hátíðin AK Extreme fer
fram dagana 12. 15. apríl.
Bestu snjóbrettakappar
landsins keppast um að
vinna AK Extreme titilinn
fyrir árið 2012. Á kvöldin er
svo tónleikdagskrá þar sem
fjölmargir tónlistarmenn
koma fram, meðal annars
Blaz Roca, Eldar, Endless
Dark, Emmsjé Gauta og
fjölda annarra. Tónleika
dagskráin Græna Hatt
inum, Pósthúsbarnum og
Kaffi Akureyri.
Útgáfutón-
leikar Vicky
Hljómsveitin Vicky heldur
útgáfutónleika kl. 21 á
fimmtudagskvöld í Bæjar
bíói í Hafnarfirði fyrir
plötuna Cast a Light sem
kom út í október síðast
liðnum. Þetta mun vera í
eina skiptið sem hljóm
sveitin flytur plötuna í
heild en lagið Feel good
af plötunni hlaut miklar
vinsældir hérlendis síðasta
sumar. Þetta eru einnig síð
ustu tónleikar hljómsveit
arinnar í bili en meðlimir
hyggjast taka sér smá frí
vegna annarra verkefna.
Tríó Sunnu
Gunnlaugs
Tríó Sunnu Gunnlaugs
leikur á tónleikum Jazz
klúbbsins Múlans í Nor
ræna húsinu, miðvikudag
inn 11. apríl. Tónleikarnir
eru liður í dagskrá Jazz
klúbbsins Múlans og
Norræna hússins. Ásamt
Sunnu í tríóinu eru bassa
leikarinn Þorgrímur Jóns
son og Scott McLemore
sem leikur á trommur. Á
dagskrá er tónlist eftir með
limi tríósins af disknum
„Long Pair Bond“ ásamt
tónlist Ben Harper og Rufus
Wainwright. Tónleikarnir
hefjast klukkan 21.
Birgir Olgeirsson
birgir@dv.is
Tónlist
Segið það móður minni
Ingólfur Steinsson
S
tingtu puttanum í
þetta,“ segir húsráð
andi við mig sem ég
stíg inn í borðstofuna
hjá honum. „Nei, takk.
Mig langar það alls ekki,“ svara
ég. „Þetta er geðveikt gott, ég
lofa,“ segir húsráðandinn við
mig og brosir. „Af hverju þarf
ég að stinga puttanum í þetta?
Mig langar einfaldlega ekki til
þess,“ svara ég. „Hérna, taktu
þá skeið,“ segir húsráðand
inn og skóflar með skeiðinni
upp dýrindis skötuselssúpu,
sem hann hafði eldað, upp úr
pottinum sem ég átti að stinga
puttanum mínum í. Kannski
var ég of varfærnislegur og
hefði átt að treysta þessum
manni betur.
Ég mætti óboðinn í þessa
matarveislu húsráðandans á
Ísafirði á föstudaginn langa.
Það gerði ég eftir stutt stopp á
hátíðinni Aldrei fór ég suður
sem hafði þá fyrir nokkrum
klukkutímum verið sett með
glæsibrag. Mugison hafði
sungið sig inn í hjörtu hátíð
argesta. Orphic Oxtra hafði
gert glæsilegar skalaæfingar
sem eru ómenntuðu fólki ekki
færar. Inni á milli taktbreytinga
og brotinna þríunda heyrðust
skemmtilegar melódíur sem
fluttar voru af mjög svo hæfi
leikaríku fólki sem á svo sann
arlega framtíðina fyrir sér.
Eftir það sá ég manninn
sem átti hátíðina að mínu
mati. Það var heimamaður
inn Skúli Þórðarson sem var
með eina þá flottustu tónleika
sem ég hef séð á þessari há
tíð. Skúli syngur og flytur búgí
tónlist af mikilli snilld og ekki
skemmir fyrir að hann er með
frábæra hljómsveit með sér. Ég
var ekki einn um þessa skoð
un. Skúli gjörsamlega átti sal
inn og söng hver einasti kjaftur
með laginu Ég held aldrei aftur
heim. Menn setti þó hljóða
þegar Skúli söng um föngulega
kvenmannsleggi og freisting
arnar sem fylgja þeim en hann
sveiflaði góða skapinu í gang á
ný þegar hann flutti lagið Ball.
Að prófa eitthvað nýtt
Þarna taldi ég toppnum á há
tíðinni náð og ákvað að leita að
einhverju teiti í heimahúsi. Það
var dumbungur yfir hátíðinni
og kólnar fremur fljótt í mönn
um þegar norðan garrinn blæs
á blauta regnstakka. Ég gerðist
líka brotlegur að því leytinu til
að ég var ekkert svo spenntur
fyrir hljómsveitunum sem áttu
eftir að spila það kvöld þegar ég
ákvað að leita skjóls í heimahúsi.
Þegar þangað var komið hitti
ég fyrir fyrrgreindan húsráð
anda sem bauð mér að smakka
á skötuselssúpunni. Af áratuga
samskiptum við hann hefði það
nú verið réttast af mér að treysta
honum. Húsráðandinn er Ísfirð
ingurinn og lét ég slag standa og
smakkaði þessa súpu hans sem
var ein sú allra besta sem ég hef
fengið.
Eftir að hafa gert það áttaði
ég mig á því að hann hafði svo
sannarlega rétt fyrir sér. Maður
verður að prófa eitthvað nýtt
í lífinu og var það gert þetta
kvöld. Nóg var af nýjungum og
stóðu til að mynda böndin Leg
end, Vintage Caravan og Sykur
fyrir sínu, þó þau séu misjafn
lega ný af nálinni ef út í það er
farið.
Smávegis svik
„Eru þið til í smá svik? Eru þið
til í smá dauða?“ öskraði kynn
irinn Pétur Magnússon í hljóð
nemann þegar hann kynnti
hljómsveitina, sem þurfti víst
ekkert að kynna að hans sögn,
Ham, á laugardeginum. Án efa
var þetta hljómsveit kvölds
ins, sem státar nefnilega líka
af heimamanninum Sigurjóni
Kjartanssyni sem gerir víst ráð
fyrir því að á Seljalandsvegi á
Ísafirði muni rísa safn tileinkað
honum. Þar ól Sigurjón mann
inn á sínum yngri árum og sagði
hann hátíðargestum á uppi
standskvöldi í Ísafjarðarbíói á
skírdag að þeir gætu gert sér
ferð í húsið á Seljalandsvegi og
séð þar veggjalistaverk í kjallar
anum eftir hann þar sem segir
víst: „Fokk ríkis stjórnin núna.“
Það skemmtilega við þessa
hátíð er hversu mikið líf sprett
ur upp á svæðinu samhliða
henni. Kirkjuræknir menn gátu
farið í Hólskirkju í Bolungarvík
og hlustað á leikarann Pálma
Gestsson flytja Passíusálma
Hallgríms Péturs sonar. Rúm
lega sex tíma lestur með tón
listaratriðum á klukkutíma
fresti, himneskur flutningur
gæti einhver sagt. Í Bolungar
vík var einnig frumsýnd kvik
mynd í Félagsheimilinu eftir
heimafólk sem hefur ekki gerst í
langan tíma, og sama var uppi á
teningnum á miðvikudeginum
fyrir páska þegar hrollvekja var
frumsýnd í Ísafjarðarbíói.
Tónleikahald, listahátíðir,
leiksýningar, málverka og ljós
myndasýningar. Það var af nógu
að taka þessa helgi, svo ekki sé
talað um allt skemmtanahald
ið sem fór að mestu vel fram að
sögn lögreglu.
birgir@dv.is
„Stingtu putt-
anum í þetta“
n Brakandi fersk Aldrei fór ég suður n Blaðamaður kíkti á hátíðina
„Nóg var af
nýjungum og
stóðu til að mynda
böndin Legend, Vin-
tage Caravan og
Sykur fyrir sínu.
Fyrir vestan Fjöldi fólks lagði leið sína á hátíðina líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Hér má sjá hljómsveitina Reykjavík! leika fyrir gesti hátíðarinnar sem
taka þessari ísfirsku sveit alla jafna vel þegar hún stígur á svið á Aldrei fór ég suður. Mynd ágúSt AtlASon