Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Blaðsíða 20
20 Lífsstíll 11. apríl 2012 Miðvikudagur Barneignir ekki lykill að hamingju n Eini ávinningurinn er að foreldrar ungra barna drekka minna E f hópi fólks er sýnd mynd af krúttlegu ungbarni eru við- brögðin að öllum líkindum eitt stórt ahhhh. Samkvæmt sál- fræðingnum Robin Simon hjá Wake Forest-háskólanum eru barneignir gjarnan tengdar við hamingju í vest- rænni menningu. Simon er hins veg- ar ekki viss um að svo sé. Hún seg- ir eina mælanlega ávinninginn við barneignir þann að foreldrar ungra barna drekka minna áfengi en hinir. Þeir stundi hins vegar minna kyn- líf, fari sjaldnar í bíó og sinni síður hugðarefnum sínum. Simon er að ljúka við stóra rann- sókn þar sem hún skoðar hamingju og barneignir með tilliti til þung- lyndis, kvíða, notkunar áfengis og fíkniefna og annarra breyta. „For- eldrar eru sá hópur fólks sem þjáist af miklu stressi og álagi. Við höfum ekki fundið neitt jákvætt við barn- eignir. Foreldrar eldri barna finna fyrir enn meira álagi en foreldrar yngri barna. Við vitum að stress getur leitt til erfiðra sjúkdóma síðar í lífinu. Mæður og feður eru jafn óhamingju- söm og menntunin skiptir ekki máli,“ segir Simon. Andew Cherlin, félagsfræðingur við John Hopkins-háskólann, telur að það sé erfitt að skilgreina ham- ingjuna. „Foreldrar nýfædds barns eru ef til vill óánægðari með hjóna- bandið en á sama tíma eru þau mjög hamingjusöm.“ Aðrir sérfræðingar benda á að afrek krefjist oftast mikillar vinnu og vinn- an sem slík veiti ekki mikla hamingju. Hún sé hins vegar nauðsynleg til að skapa aðstæður fyrir hamingjuna. Viltu höndla hamingjuna? 15 atriði sem þú ættir að sleppa Ef þú sleppir þessum 15 atriðum úr lífinu þínu eru meiri líkur á því að þú höndlir hamingjuna að mati vefsíðunnar purposefairy.com. Listinn hefur farið sem eldur um sinu internetsins og því ekki úr vegi að birta hann í styttri útgáfu. 1 Að verða alltaf að hafa rétt fyrir þér Því fylgir bæði streita og sam- skiptaörðugleikar, svo slappaðu af. 2 Stjórnsemi Leyfðu fólki að vera það sjálft. Þú eyðir orku og óþarfa tíma í slíka stjórnun. Vertu þú sjálf/ur og leyfðu öðrum að vera sjálfum sér samkvæmir. 3 Að kenna öðrum um Ábyrgð á eigin lífi og líðan skiptir höfuðmáli hvað varðar að höndla hamingjuna. 4 Neikvæðar hugsanir Ekki skaða sjálfa/n þig með neikvæðum hugs- unum. Ekki trúa eigin hugsunum þegar þú fyllist vanmætti. 5 Að takmarka þig Ekki takmarka sjálfa/n þig. Þannig festist þú og draumarnir safna ryki. Allt er hægt sé trúin til staðar. Leyfðu draumum þínum að rætast. 6 Að kvarta Hættu að kvarta yfir áreiti, fólki, veðri, mat og öllu því sem lífið býður upp á. Ekkert af umkvörtunarefnum þínum gerir þig leiða/n nema þú leyfir það. Ekki vanmeta mátt jákvæðrar hugsunar. . 7 Gagnrýni og baktal Við erum mismunandi og við viljum öll höndla hamingjuna á mismunandi forsendum. Hættu að eyða tíma í að gagnrýna þá sem lifa á öðrum forsendum en þú. 8 Að þóknast öðrum Hættu að reyna að láta öllum líka við þig. Um leið og þú hættir dregst fólk að þér. 9 Ekki streitast á móti breytingum Breytingar eru góðar. Breytingar hjálpa þér að komast frá a til b. 10 Að draga í dilka Opnaðu huga þinn og láttu af fordómum. Hugurinn virkar betur sé hann opinn og það sem helst hamlar hamingju eru fordómar og hræðsla. 11 Hugleysi Það eina sem þarf að ótt-ast er óttinn sjálfur, sagði Franklin D. Roosevelt. Óttinn er sjálfsköpuð hindrun sem er óþarfi að reisa. 12 Að afsaka sig Þú þarft ekki að afsaka þig. Taktu frekar ákvörðun að vera yfir það hafin/n að afsaka þig og notaðu tímann sem þú áður notaðir til að verja þig í að vaxa og þroskast. 13 Að hugsa í þátíð Ekki lifa í for-tíðinni þrátt fyrir að framtíðin virðist ógnvekjandi. Lifðu í núinu og mundu að lífið er ferðalag en ekki einn áfangastaður. 14 Að festa sig Ekki verða of hænd að hlutum, stöðum eða fólki. Lærðu að elska skilyrðislaust og án ótta. 15 Að lifa fyrir aðra Ekki lifa sam-kvæmt væntingum annarra. Hverjar eru þínar? Spurðu þig reglulega spurninga á við: Hvað vil ég? Hvernig vil ég hafa umhverfi mitt? Hvað myndi ég gera? Greindu utanaðkomandi þrýsting frá þínum eigin markmiðum. Hamingjusöm fjölskylda Samkvæmt sálfræðingnum Robin Simon eru barneignir gjarnan tengdar við hamingju í vestrænni menningu. Hættið að rífast vegna peninga n Nokkrar leiðir til að stoppa fjármálarifrildi hjóna F lest pör þekkja það að pen- ingar vilja oft verða að miklu þrætuefni í sambandinu og er reyndar í mörgum sambönd- um eitt langlífasta deiluefn- ið. Sérstaklega á tímum sem þessum þegar kreppir að. Ekki kenna hvort öðru um Það er til lítils að kenna hvort öðru um fjár- málavandræði heimilis- ins. Komist að rót vandans og reynið að finna lausn til lengdar. Hvar þið getið sparað eða fyrir hverju þið getið safnað þannig að þið hafið meira á milli handanna. Ræðið málin Flestum reynist það illa að ætla al- gjörlega að hætta alveg að eyða. Í staðinn getur verið gott að setjast niður og komast að raunhæfri niður- stöðu um það hvað skuli eytt í. Setjið ykkur eyðsluviðmið og hvað megi eyða miklu í hvað. Hversu hátt hlut- fall launa heimilisins fer í útgjöld og fasta reikninga og hvað megi nota mikið í skemmtanir, föt og annað slíkt. Það þarf að ríkja gagnkvæm virðing um þetta samkomulag annars segir það sig sjálft að það gengur aldrei upp. Standið við samkomu- lagið og sjáið hvað gerist. Safnið Langar ykkur í stærra hús eða bara gott frí? Jafnvel að skella ykkur í meira nám en teljið ykkur ekki hafa efni á því? Stofnið sérstakan reikning sem þið safnið inn á saman. Ef einhver af- gangur er um mánaðamótin þá er til- valið að setja inn á reikninginn. Pen- ingar sem myndu kannski annars fara í óþarfa eyðslu geta nýst í gott frí á sólarströnd. Sumir hafa ekki mikið á milli handanna en þeir sem hafa efni á því sjá að safnast þegar saman kemur. Skipulag er lykilorðið. Hvort sem um ferðareikning eða annað er að ræða þá er alltaf gott að eiga smá aukasjóð sem hægt er að grípa í, komi eitthvað upp á. Samtaka í kaupum Það er lykilatriði að það sé ekki tortryggni um fjármál á milli hjóna. Upplýsið hvort annað um stærri útgjaldaliði þannig að ekkert komi á óvart. Það hefur aldrei hjálpað til í neinum hjónaböndum að fela kreditkortareikn- inginn fyrir makanum. Yfir- leitt kemst slíkt upp um síðir og virkar stundum sem svik. Best er að vera vel upplýstur um fjármál hvors annars án þess að vera skipta sér of mikið af. Gullið jafnvægi. Sem sagt ef þú ætlar að kaupa þér kaffibolla þá skiptir það væntanlega maka þinn litlu máli en það er kannski betra að ráðfæra sig við hann um kaup á nýju sjónvarpi. Peningar eða völd? Yfirleitt snúast rifrildi hjóna um fjármál alls ekkert um peninga heldur frekar um völd. Stundum þegar eignir hjóna eru mismiklar þá snúast rifrildin um sjálfsálit eða afbrýðisemi. Stundum eru þau um athygli. Þegar þið rífist um fjármál reyn- ið þá að hafa á hreinu um hvað rifrildið snýst. Er það virkilega um peningana sjálfa eða býr eitthvað ann- að að baki? Ef þér liggur eitt- hvað á hjarta segðu það þá við maka þinn. Deilumál Peningar eru mikið þrætuefni í mörgum samböndum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.