Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Blaðsíða 24
„Á miklu fleiri leiki inni“
24 Sport 11. apríl 2012 Miðvikudagur
n Paul Scholes spilar örugglega eitt ár til viðbótar
M
iðjumaðurinn Paul
Scholes átti enn
einn stórleikinn fyr-
ir Manchester Uni-
ted um helgina þegar liðið
lagði QPR að velli, 2–0. Scho-
les var valinn maður leiksins í
öllum miðlum en hann skor-
aði glæsilegt mark með skoti
fyrir utan teig. Eitthvað sem
stuðningsmenn Manchester
United þekkja betur en margir
enda Scholes þekktur fyrir sín
þrumuskot.
„Þetta var týpískt Scholes-
mark,“ sagði Sir Alex Ferguson
við Daily Mail eftir sigurinn.
„Hann er búinn að skora þrjú
mörk síðan hann kom aftur
inn í liðið og síðan þá höfum
við aðeins tapað tveimur stig-
um af þrjátíu og sex,“ segir
Skotinn en stigin tvö sem töp-
uðust voru í leik gegn Chelsea
þar sem United kom til baka
eftir að hafa lent 3–0 undir og
jafnaði leikinn í 3–3.
„Það sjá allir hversu vel
hann stjórnar leiknum inni
á miðjunni og ræður á hvaða
hraða hann er spilaður. Þetta
hefur aldrei breyst. Þó hann sé
37 ára í dag getur hann þetta
enn. Scholes er frábær leik-
maður sem er lykilmaður í
þeim árangri sem við höfum
náð á síðustu vikum,“ segir
Ferguson.
Scholes lagði skóna á hill-
una, eins og frægt er orðið, í
fyrrasumar en snéri óvænt
aftur í byrjun þessa árs.
Nú er Scholes við að skrifa
undir nýjan samning sem
tryggir Manchester United
þjónustu hins rauðbirkna
miðjumanns. Michael Carric
hefur spilað með Scholes
síðan 2006 og þekkir manna
best hvernig er að spila við
hlið hans.
„Scholes er búinn að vera
frábær. Hann kom bara inn í
liðið og hefur verið magnað-
ur frá fyrstu mínútu. Það er
eins og hann hafi aldrei yfir-
gefið liðið og ég er þess full-
viss að hann eigi miklu fleiri
leiki inni,“ segir Michael Car-
rick.
Riðlakeppnin
klárast
Riðlakeppni Lengjubik-
ars karla í fótbolta lýkur
í vikunni en síðasta um-
ferðin hefst með stórleik
Keflavíkur og ÍA í Reykja-
neshöllinni í dag, miðviku-
dag. ÍA er enn taplaust í 2.
riðli en Keflavík hefur ver-
ið á miklu skriði síðan liðið
tapaði gegn Víkingi í fyrstu
umferð. Leikurinn fer fram
í Reykjaneshöllinni og hefst
klukkan 18.00. Umferðin
heldur svo áfram á fimmtu-
dag þar sem mætast Haukar
og Þróttur, Leiknir og Valur,
Selfoss og KR og þá mæt-
ir Víkingur liði Stjörnunnar.
Rijkaard
gagnrýndur
Hollenski þjálfarinn Frank
Rijkaard er harðlega gagn-
rýndur af mörgum með-
limum sádiarabíska knatt-
spyrnusambandsins eftir að
honum mistókst að koma
liðinu á HM í Brasilíu sem
fer fram eftir tvö ár. Rijka-
ard fékk risasamning þegar
hann tók við liðinu en hann
fær greiddar 16 milljónir
dollara fyrir þrjú ár. Í dag-
blaðinu Saudi Daily Al
Eqtisadia segja meðlimir
knattspyrnuráðsins að pen-
ingarnir sem fara í Rijka-
ard sé mun betur varið í að
byggja upp unglingastarf
landsins frekar en að borga
undir rándýran þjálfara sem
kemur liðinu svo ekki á stór-
mót.
Úrslita-
keppnin hefst
Úrslitakeppnin í N1-deild
kvenna í handbolta fer af
stað á fimmtudaginn. Þá
tekur ÍBV á móti Gróttu og
HK heimsækir Stjörnuna.
Tvö efstu lið deildarinnar,
Valur og Fram, sitja hjá í
fyrstu umferð. Vinna þarf
tvo leiki til að komast í
undanúrslitin. Báðir leikirnir
hefjast klukkan 19.30.
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
London vill
læra af Peking
n Þarf að hugsa hvað á að gera við leikvangana eftir að leikunum lýkur
T
æp fjögur ár eru
síðan borgin Pek-
ing í Kína hýsti ein-
hverja mögnuðustu
ólympíu leika sög-
unnar. Leikarnir bættu borg-
ina að mörgu leyti, meðal
annars eru almenningssam-
göngur mun betri í dag en
þær voru fyrir fjórum árum.
Aftur á móti eru mörg móta-
svæði sem notuð voruð fyrir
greinar á Ólympíuleikunum
ónotuð núna og gera ekkert
annað en kosta skattborgar-
ana mikla peninga. Þó leik-
arnir hafi heppnast vel hefur
Peking ekki gengið nægilega
vel að nýta mannvirkin eft-
ir leikana og í því vilja Bret-
ar ekki lenda. Leikarnir fara
fram þar í ár og er mikilvægt
að borgin nýti vel þá leik-
vanga og mótasvæði sem eftir
standa því næg er gagnrýnin
nú þegar enda eyðir borgin
níu milljörðum punda í leik-
ana.
Fuglahreiðrið orðið
túristastaður
Krúnudjásnið á leikunum í
Peking var hinn stórbrotni
ólympíuleikvangur sem kall-
ast Fuglahreiðrið. Hann kost-
aði 480 milljónir dollara. Þá
er sundhöllin sem kölluð
var Vatnsteningurinn einnig
magnað mannvirki. Meðan
á leikunum stóð var þessum
byggingum hrósað í hástert
en risið á þeim hefur ekki ver-
ið hátt undanfarin ár. Í dag
fara afskaplega fáir íþrótta-
viðburðir fram í þeim og eru
báðar byggingar mun meira
notaðar sem túristaáfanga-
staðir. Ríflega 4,5 milljónir
túrista heimsóttu þessa tvo
staði á síðasta ári.
Fuglahreiðrið hýsir vissu-
lega einn og einn knatt-
spyrnuleik en þá hefur hann
einnig verið notaður sem
vetrargarður og skemmti-
garður og þar hafa verið
haldnir tónleikar. Reiknað er
með að það muni taka 30 ár
fyrir völlinn að borga sig upp
á meðan hann er einungis
notaður fyrir svona viðburði
en engir stórir íþróttavið-
burðir fara þar fram. Þá tap-
aði sundhöllin 11 milljónum
dollara á síðasta ári þrátt fyrir
að byggður væri vatnsrenni-
brautagarður við hlið hennar
til að auka tekjurnar.
Allt annað yfirgefið
„Kostnaðurinn var mikill og
skipuleggjendum leikanna
mistókst algjörlega að hugsa
hvað ætti að gera við alla leik-
vangana og mótasvæðin eftir
að Ólympíuleikunum lauk.
Það er einfaldlega þannig
með íþróttaleikvanga að því
oftar sem þeir eru notaðir,
því lengur endast þeir. Þá fá
þeir meiri pening frá borgar-
yfirvöldum í endurbygging-
ar, fleiri mót eru haldin þar.
Þannig vinna allir,“ segir Yan
Quang, fyrrverandi íþrótta-
málafulltrúi Peking.
Fuglahreiðrið og Sund-
teningurinn eru þó að
minnsta kosti í einhverri
notkun. Það sama verður
ekki sagt um önnur móta-
svæði frá Ólympíuleikunum
í Peking. Til dæmis er kajak-
brautin yfirgefin og vatns-
laus. Safnast nú saman skítur
og lauf í þessari annars flottu
braut sem vakti mikla lukku á
leikunum. Þá er róðrarbraut-
in í sama ástandi. Aftur á móti
voru hallir fyrir borðtennis og
glímu byggðar á háskólalóð-
um svo hægt væri að nota
þær af skólayfirvöldum.
„Það fengu allar íþrótt-
ir risasvæði og hallir. Fólkið
sem stóð að leikunum í Pek-
ing hafði ekki hugmynd um
hvernig ætti að halda svona
leika og þeim var ekki leyft að
leita sér aðstoðar. Ég veit að
London ætlar alla vega ekki
að lenda í þessu og hefur haft
teymi með sér til að skipu-
leggja hvað eigi að gera við
leikvangana og mótasvæðin
að leikunum loknum,“ segir
fréttamaður Reuters sem tók
út svæðin fyrir nokkrum vik-
um.
Fuglahreiðrið Er nú mest notað fyrir tónleika og skemmtanir.
Sundhöllin Magnað mannvirki sem skilar tapi á hverju ári.
Verið góður Scholes hefur spilað vel.